Morgunblaðið - 30.06.1994, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1994
FIMMTUDAGUR 30. JÚNI
BLAÐ
KNATTSPYRNA / HM
Rúmenanum Vladoiu
var vikið úr hópnum
IOAN Vladoiu, miðheija Rúmeníu, var vikið úr
hópnum í gær og verður hann sendur heim á
morgun. Radu Timofte, tálsmaður Knattspyrnu-
sambands Rúmeniu, sagði að tvær ástæður væru
fyrir ákvörðuninni. Sú fyrri ljótt brot á Svisslend-
ingnum Stephane Chapuisat, sem kostaði rauða
spjaldið, og sú seinni hegðun miðheijans við þjálf-
ara liðsins í kjölfar brottvikningarinnar. Vladoiu,
sem er 25 ára, var rekinn frá Steaua Bucharest
í fyrra fyrir að nefbijóta mótheija.
Vladoiu er annar leikmaður HM, sem er sendur
heim, en óprúðmannleg framkoma Þjóðveijans
Stefans Effenbergs í garð áhorfenda á leik Þýska-
lands og Suður-Kóreu kostaði hann landsliðssætið.
Alþjóða knattspyrnusambandið sagðist ekki
skipta sér af innri málefnum þjóðanna, en hrósaði
hugrekki Rúmena og Þjóðveija í umræddum tilvik-
um.
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Kristinn
32-liða úrslit bikarkeppni karla
ÍA í vandræðum
með Leiknismenn
IBV þurfti framlengingu gegn KS
slit í leikjunum í 32 liða úrslit-
um bikarkeppni KSÍ í gær-
kvöldi voru öll eftir bókinni, en
þó lentu tvö fyrstu deildarlið í
miklum vandræðum í viðureignum
við lið sem leika í fjórðu deild.
íslands- og bikarmeistarar Skaga-
manna léku við Leikni á gervigras-
inu í Breiðholti og sigruðu með
þremur mörkum gegn einu. Stað-
an var jöfn, 1:1, þar til sex mínút-
ur voru til leiksloka, en þá skoruðu
Skagamenn tvö mörk með stuttu
millibili. Fyrst Haraldur Ingólfsson
beint úr aukaspyrnu og síðan Mi-
hajlo Bibercic.
Eyjamenn lentu í enn meira
basli með KS á malarvellinum á
Siglufirði. Heimamenn lentu undir
til að byija með, en náðu að jafna
og komast yfir. Eyjamenn jöfnuðu
síðan og tryggðu sér framlengingu
þegar lítið var eftir af venjulegum
leiktíma. Sumarliði Árnason
tryggði þeim síðan sigurinn með
tveimur mörkum í framlengingu.
Onnur útilið lentu ekki í jafn
miklum vandræðum og tvö fyrst-
nefndu liðin. Breiðablik sigraði
Hamar 5:0, Fram sigraði Víði 3:1,
Fylkir sigraði Þrótt Neskaupstað
5:2 í fjörugum leik. Lúðvík Arnar-
son skoraði bæði mörk Þróttar en
hann er nýkominn til liðsins frá
FH. KA sigraði Hvöt 3:0, og Þrótt-
ur Reykjavík sigraði Tindastól
einnig 3:0.
• Á myndinni er Zoran Miljcovic
leikmaður ÍA í baráttu um boltann
í Ieiknum við Leikni í gærkvöldi.
■ Úrslit/B2
HM í Bandaríkjunum
Leikmaður
fallinn á
lyfjaprófi?
Fyrra sýni, svo nefnt A-sýni,
úr lyfjaprófi ónefnds leik-
manns á HM, var jákvætt að
sögn talsmanns Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins en þaðþýðir
að viðkomandi hafi neytt ólög-
legs eða ólöglegra lyfja, og var
B- sýnið rannsakað í gær að
viðstöddum fulltrúa frá við-
komandi þjóð. Meiri upplýs-
ingar voru ekki gefnar, en gert
er ráð fyrir fréttamannafundi
um málið í kvöld.
SNOKER/EM
Jóhannes komst í
átta manna úrslit
Fyrsti íslendingurinn sem nærsvo langt
Jóhannes Ragnar Jóhannesson
komst í átta manna úrslit á
Evrópumeistaramótinu í snóker í
Búdapest í Ungverjalandi í gær.
Hann sigraði Jonathan Nelson frá
N-írlandi 4:3, í hreinum úrslitaleik
um sæti í átta manna úrslitum.
Þetta er í fyrsta sinn sem íslend-
ingur kemst í átta manna úrslit á
mótinu. Ásgeir Ásgeirsson komst
ekki áfram og endaði í 13. til 16.
sæti.
Jóhannes náði hæsta stuði
mótsins í leiknum við Nelson, 119
stig. Hann vann síðan úrslitaram-
mann með 70 stiga mun. í átta
manna úrslitum spilar Jóhannes
við írann John Farell, sem hefur
sigraði í öllum leikjum sínum til
þessa.
NORÐURLANDAMOT STULKNA
Morgunblaðið/Rúnar Þór
íslendingar
sigruðu
Norðmenn
ÍSLENSKA stúlknalandsliðið lauk
Norðurlandamótinu rneð 2:1 sigri á
Norðmönnum á Akureyri í gær. Lið-
ið hafnaði í neðsta sæti á mótinu,
en Finnar sigruðu. Þeir unnu alla
leiki sína nema eipn, töpuðu fyrir
Norðmönnum sem íslendingar lögðu
síðan að velli. Á myndinni eru marka-
skorarar íslands í leiknum í gær,
Anna Lovísa Þórsdóttir til vinstri,
og Áslaug Ákadóttir, sem skoraði
þijú mörk á mótinu og var marka-
hæst ásamt tveimur öðrum.
HESTAR: LANDSMÓTIÐ Á GADDSTAÐAFLÖTUM / B4