Morgunblaðið - 22.07.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.07.1994, Blaðsíða 6
6 C FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FLESTIR koma í Skallagrímsgarðinn gangandi en þessi þýski ferðamaður, Dieter H. Kolb fór um garðinn á lystivagni sínum. Morgunblaðið/Theodór FRÁ „BJÖSSARÓLÓ" á Vesturnesi sem er neðst í gamla bænum. Galleri Hönil op Skallagrímsgarður FLESTIR sem koma til Borgarness [ 7~ gggggs . byrja á að stoppa á Brúartorgi og fara þá annað hvort á Shellnesti eða í Hymuna, áður en þeir fara niður í gamla bæinn eða halda áfram ferð sinni lengra. En nú hefur bæst við verslun á Brúartorg- ið sem heitir Gallerí Hönd og höndl- ar með minjagripi og gjafavöru. Þeir sem leið eiga í gegn um Borgarnes hafa eflaust tekið eftir snotru timburhúsi sem komið er á Brúartorgið á milli Hymunnar og Shellstöðvarinnar. Það er félag handverksfólks í Borgarfirði og fleiri sem stofnuðu samvinnufélag og reka verslunina, Gallerí Hönd, í þessu húsi. Höndlað er með ýmsa handgerða muni svo sem minja- gripi, gjafavöru, skrautmuni og einnig nytjahluti sem handverks- fólkið hefur sjálft gert. Þarna er hægt að kaupa góðar lopapeysur, vettlinga, sokka, handgerð og út- saumuð kort, hálsmen og eyrna- lokka, svo eitthvað sé nefnt. Ef menn eru eitthvað slappir er einnig hægt að kaupa sér orkupoka eða orkusteina hjá handverksfólkinu og taka þá allir gleði sína á ný. Versl- unin verður opin daglega í sumar. Fyrir þá sem hyggja á að skoða sig um í Borgarfirði má benda á að nýverið létu Ferðamálasamtök Mýra- og Borgarfjarðarsýslu prenta þjónustukort sem tekur yfir báðar sýslurnar ásamt Akranesi. Á kortinu eru greinargóðar upplýs- ingar um þá þjónustu sem hægt er að fá í héraðinu. Kortið kostar ekkert og liggur frammi í verslun- um og söluskálum. Ferðamálasam- tökin hafa einnig látið prenta ritið „Söguferð bæ frá bæ um Borgar- íjörð“ sem er í samantekt Ingi- bjargar Bergþórsdóttur. í inngangi ritsins segir m.a.: „Þetta kver, sem fylgir nýja kortinu okkar af Borg- arfirði, á að vera ferðafólki leiðsögn um söguslóðir. Við kusum að taka hvern hrepp fyrir sig og fylgja þjóð- veginum bæ frá bæ í vegaröð, þannig að lýsingin verði sem að gengilegust.“ Þá er fólki bent á Mæðgurnar, Guðríður Jónsdóttir og Ingibjörg Jónasdóttir, stóðu vaktina í Gallerí Hönd. aðra ferðabók um Borgarfjörð sem er eftir Björn Hróarsson. Síðan segir: „Við reynum að rekja sögu allra bæja á svæðinu og segja frá borgfirskri menningu. Á hveiju sumri ferðast þúsundir fólks um Borgaríjörð á bílum, hestum, hjól- um eða bara tveimur jafnfljótum. Nú eiga allir að geta verið sínir eigin leiðsögumenn, þegar þeir leggja land undir fót eða hjól eða þá hestahófa." Sé haldið niður í Borgames er tilvalið að skoða Skallagrímsgarð- inn sem segja má að sé í hjarta bæjarins og eitt helsta stolt bæj- arbúa. í garðinum er meðal annars haugur Skallagríms Kveldúlfsson- ar. Þá er í bænum er rnjög sérstak- ur leikvöllur sem kallast „Bjössa- róló“ og kenndur er við smiðinn Björn Guðmundsson sem smíðað hefur öll leiktækin sjálfur. Fjöl- margir heimsækja þennan frum- lega leikvöll, jafnt heimamenn sem ferðafólk. Staðsetning hans gerir það að verkum að á meðan bömin em að leika sér geta foreldrarnir notið útsýnisins og sólað sig. ■ Theódór Kr. Þórðarson FERÐALÖG Dvöl og/eöa kvöl í llughölnum MÉR ÞYKIR yfirleitt gaman á flug- völlum. Mér þykir spennandi að sitja með bjórglas og horfa á fólkið sem streymir fram og aftur í búðarrápi, situr yfir veitingum eða bara situr og bíður þangað til flugið er kallað. Það er skemmtilegt að velta fyr- ir sér hvert þetta fólk er að fara, hvers vegna og hvaðan það er og hvað það geri þegar það er ekki að bíða eftir flugvél. Búa til sögur um það í huganum. Svo verður fólk öðmvísi í laginu á flughöfnum. Það er yfir því drýldinn myndugleiki: það er að takast á hendur þessa ferð, hvorki meira né minna. í sum- um andlitum vottar fyrir krepptum rólegheitum; það fólk hefur sætt sig við örlögin og tekið ákvörðun, það ætlar með þessari tilteknu vél og verður ekki aftur snúið. Vitanlega em flughafnir misfor- vitnilegar, aðbúnaður upp og ofan og mér líður ekki alltaf jafn vel. Ef fyrir höndum er meira en fjög- urra klukkutíma bið em fáir staðir enn á vinsældalistanum að þeim liðnum. Fólk er ekki spennandi lengur og kaffið hefur fyrir æði- löngu leyst bjórinn af hólmi. Þó hef ég komið í flughafnir sem hafa upp á svo ótal margt að bjóða að tíminn flýgur og áður en ég veit af hef ég gert undarlegustu innkaup með nokkurn veginn fullri rænu, eytt morð fjár í blöð og bæk- ur, sælgæti og jafnvel minjagripi þó svo að ég hafi ekki komist lengra í landinu en í þessa flugstöð. Flugstöðin í Jóhannesarborg til fyrirmyndar Nýjasta dæmið er flugstöðin í Jóhannesarborg í Suður-Afríku, þar beið ég tvívegis í samtals 14 klukkutíma á nýliðnu Afríkuflakki. Flugstöðin er hæfilega lítil eða stór, svona eftir því hvemig á það er lit- ið, verslunum er skynsamlega fyrir komið, vöruúrval prýðilegt, greið bankaþjónusta, aðeins ein veitinga- stofa en þar er að fá allt frá morg- unverði upp í sælkeramáltíð. Ég var örg í fýrra skiptið því ég hafði ekki fengið að komast inn í landið til að sofa á mínu flugvallarhóteli og lét fyrirberast í einu af hvíldarher- bergjum flugstöðvarinnar sem er miðlungi góður kostur en að vísu afar ódýr. Ég vaknaði neikvæð og svöng og hugsaði um það eitt að tíminn liði svo ég kæmist um borð í vélina til Maputo. En þegar vinalegur kokkur í veit- ingastofunni hafði snúist í kringum mig og fært mér nánast allt um leið og ég hugsaði það, búið til sér- stakt múslí út í jógúrtina og soðið eggið nákvæmlega eins og mér þóknaðist var auðvitað farið að birta til. Þetta var snemma morg- uns en ég gat strax tékkað farang- ur inn og og rölti um frí og fijáls, að vísu enn staðráðin í að kaupa í mesta lagi Herald Tribune. Þegar ég hafði skoðað mig um vissi ég að sitt af hveiju ætlaði ég að festa kaup á þegar ég kæmi hér í baka- leið. Ég settist svo hin kátasta með blaðabunka inn á veitingastofuna. Ferðasprenging í Rúmeníu MIKIL uppsveifla er nú í rúmenskri ferðaþjónustu og erlend fyrirtæki hafa lagt í umtalsverðar ijárfest- ingar víða í landinu m.a. í bænum Poiana Brasov. Hann er við rætur Karpataíjalla í Transylvaníu. ísra- elskt stórfyrirtæki lagði t.d. 12 milljónir Bandaríkja- dollara í byggingu hótels í bænum. Vinsældir bæjar- ins má rekja til óspilltrar fjallafegurðar, og að auki er staðurinn frægur fyrir að vera í nágrenni við heim- kynni hins illræmda Drakúla greifa, og vinsæll af þeim sökum allan ársins hring. Samningar hafa verið gerðir við enskar og ísraelsk- ar ferðaskrifstofur, og meiri umsvif kreíjast meira hótelrýmis. Dæmi er um að ferðamenn greiði fyrir tvær vikur 534 dollara (um 36 þús. kr.), og er þá allt innifalið, m.a. skemmtanir, heimsóknir í transyl- vaníska kastala, að hinum víðfræga kastala Drakúla ógleymdum, þjóðlegar sýningar, útreiðartúrar og önn- ur útivist. Ferðamálaráð Rúmeníu segir að ferðamál í landinu séu hægt og bítandi að ná sér á strik, með einkavæð- ingu og betri markaðssetningu eftir fall kommúnis- mans. Áætlað er að það taki um tvö ár að gera upp þau þijú hótel sem eru í bænum þegar, og reisa nýtt glæsi- legt 200 herbergja hótel sem ætlað er að taka á móti þeim ferðamönnum sem hyggjast í framtíðinni heimsækja Drakúlaslóðir. Þó höfuðborgin Búkarest veki ekki jafnmikla hrifn- ingu ferðamanna og ýmsar aðrar borgir í austur Evrópu, t.d. Prag og Búdapest má ætla að þar verði einnig gert átak til að ferðamenn tefji um stund í borginni. ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.