Morgunblaðið - 29.07.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.07.1994, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR B/C 170. TBL. 82. ARG. FOSTUDAGUR 29. JULI1994 Berlusconi vill bæta ráð sitt Mílanó, Róm. Reuter. SILVIO Berlusconi, forsætisráðherra Italíu, hefur boðað fréttamenn til fundar í dag og ætlar hann þar að gera grein fyrir áætlunum sínum um það hvernig hann geti forðast hags- munaárekstra. Ráðherrann mun ætla að skilja á milli hlutverka sinna sem kaupsýsiu- maður annars vegar og forsætisráð- herra hins vegar. Embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, fullyrti að áætlun Berlusconis væri raunhæf og myndi leiða til þess að forsætisráðherrann hefði ekki lengur nein tengsl við fjölskyldufyrirtækið Fininvest. ■ Berlusconi brennir af/22 Hefndin er sæt FJÖGURRA ára drengur í Wales hefndi sín sætlega á móður sinni sem fyrir skömmu neitaði að gefa honum jarðarbeijabúðing. Hann hringdi í lögregluna. Richard Powell bað lögregluna að koma og „tala við“ móður sína, sem krafðist þess að hann borð- aði aðalréttinn áður en hann fengi eftirrétt. „Við sáum til þess að Richard fékk nóg af búðingi - á eftir matnum," sagði tals- maður lögreglu. Reuter Rúandískur hjálparstarfsmaður í Zaire gefur lítilli stúlku, sem þjáist af kóleru, lyfjablöndu í neyðarsjúkrahúsi. Flóttafólkið í Zaire hvatt til að snúa heim Ástandið sagt enn verra í Rúanda Goma, Nairobi. Reuter, The Daily Telegrapb. HJÁLPARSTOFNANIR hvöttu í gær um 1,7 milljónir Rúandabúa, sem hafa flúið til Zaire, til að snúa heim vegna kólerufaraldurs og hörmunga- rástands í flóttamannabúðunum við Goma. I yfirlýsingu frá Rauða krossinum í Nairobi í Kenya sagði að þótt umheimurinn einblíndi nú á hörmungarnar í flóttamannabúðunum í Zaire væri ástandið enn verra í suðvesturhluta Rúanda, þar sei 20 ár án einkenna London. Reuter. ALLT að fjórði hver maður sem smitast af HlV-veirunni getur lifað í allt að 20 ár án þess að sýkjast loks af alnæmi. Fullorðn- ir sýkjast fyrr en ungt fólk. British Medical Journal skýrir frá því að þetta komi fram í könnun sem gerð var á ferli hóps dreyrasjúkra karla sem smitast höfðu við blóðgjöf. Fylgst var með mönnunum í áratug eftir að þeir smituðust og út frá rannsókninni var fund- ið út með framreikningi hver lík- indi hvers aldurshóps væru. Þriðjungur þeirra sem voru undir 15 ára aldri hafði ekki sýkst en aðeins áttundi hver einstaklingur úr röðum 30 ára eða eldri var einkennalaus. rúm milljón flóttamanna hefst við. Embættismenn Sameinuðu þjóðanna skýrðu frá því að áætlað væri að 20.000 manns hefðu látist í búðunum af völdum kóleru og fleiri sjúkdóma, auk vessaþurrðar. Kólerutilfelli fundust í gær í Bukavu, suður af Goma, en í og við Bukavu eru hundruð þúsunda flóttamanna. Lynda Chalker barónessa, sem fer með þróunaraðstoð innan bresku stjórnarinnar, kannaði ástandið í einum búðanna í gær og sagði að þjóðir heims yrðu að stuðla að því að flóttamennirnir sneru aftur til heimalandsins. „Hreint vatn bjargar mörgum en það eina sem bjargar meirihlutan- um er að bæta ástandið í Rúanda til að hægt verði að laða fólkið aftur heim,“ sagði hún. Hútúhermenn ógna Embættismenn Flóttamanna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna sögðu að 15.000 manns, flestir hútúar, hefðu farið yfir landamær- in til Rúanda í fyrradag og þús- undir manna bættust við í gær. Hútú-hermenn, sem komist hafa undan til Zaire, njóta sömu aðhlynningar og aðrir af hálfu Rauða krossins í samræmi við reglur stofnunarinnar. Staffan de Mistura, fulltrúi Barnahjálpar SÞ, sem rekur búðir fyrir munaðarlaus börn í bænum Endosho, sagði í gær að hútú-hermenn hefðu reynt að ógna sér með handsprengju. Einn krafðist þess að fá að kanna hvað færi fram í búðunum og gat de Mistura sér þess til að hann hefði ætlað að myrða börn af þjóð- erni tútsa. Flóttafólk í Rúanda gleymdist Hörmungarnar í flóttamanna- búðunum í Zaire hafa orðið til þess að umheimurinn hefur nánast gleymt rúmri milljón flóttamanna sem þarf neyðaraðstoð innan landamæra Rúanda, að sögn deild- ar Alþjóðasambands Rauða kross- ins í Nairobi. í yfirlýsingu frá deildinni sagði að ástandið í bæjunum Gikongoro og Cyangugu í suðvesturhluta landsins væri miklu verra en í flóttamannabúðunum í Zaire. PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bosníu-Serbar þráast við Reyna að notfæra sér vaxandi ágreining milli stórveldanna Genf, Pale, Zagreb. Reuter, The Daily Telegraph. ÞING Serba í Bosníu tilkynnti í gær, að það væri tilbúið til að ræða frekar um alþjóðlega áætlun um frið í landinu en það samþykkti hana ekki eins og krafist hefur verið. í dag koma fulltrúar stórveldanna fimm, sem standa að áætluninni, saman í Genf. Á þar að reyna að samræma viðbrögð gagnvart Serb- um samþykki þeir ekki tillögurnar. Warren Christopher, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að til greina kæmi að refsa Serbum með því að herða viðskiptaþvinganir, stækka verndarsvæði og aflétta vopnasölubanni á Bosníu og þá um leið múslima sem eru verr vopnum búnir en Serbar. Frakkar og Bretar hafa lagt til flesta hermenn í gæslulið Sameinuðu þjóðanna í Bosníu en Bandaríkja- menn hafa þar ekkert lið á landi. Francois Leotard, varnarmálaráð- herra Frakklands, er staddur í Wash- ington og vísaði hann í gær á bug öllum hugmyndum um að aflétta vopnasölubanninu, þá væru menn að taka afstöðu með einum stríðsaðila gegn öðrum. „Við höfum ekki vopna- búnað til að beijast við Bosníu- Serba", sagði ráðherrann. Hann sagði að þar að auki væri slík ákvörð- un andstæð samþykktum SÞ. Nýjar kröfur í yfirlýsingu serbneska þingsins sagði, að það væri reiðubúið til samn- inga um friðaráætlunina en krefðist um leið breytinga á skiptingu Bosníu milli Serba annars vegar og múslima og Króata hins vegar. Þá vildi það, að framtíðarstaða Sarajevo yrði skýrð nánar, fá aðgang að Adríahafi og rétt til að tengjast öðru ríki, þ.e. Serbíu, síðar. Ýmsir stjórnarerindrekar hafa spáð því fyrir fund stórveldanna að Serbar muni enn einu sinni reyna að notfæra sér ágreininginn milii ríkjanna, Rússlands og Vesturlanda, og virðist það líka hafa orðið niður- staðan á serbneska þinginu í gær hver sem hún verður hjá fimm-ríkja- hópnum. Ukraínustjórn lýsti í gær yfir stuðningi við það sjónarmið Rússa að Atlantshafsbandalagið megi ekki taka við friðargæslu í Bosníu af sveit- um Sameinuðu þjóðanna. Rcuter Tapie missir búslóðina VERKAMENN fjarlægja dýr- mæt húsgögn og llstaverk að andvirði 4.000 milljóna króna úr 17. aldar liöll franska sósíal- istans Bernards Tapie í París í gær. Credit Lyonnais-bankinn sakar hann um að hafa vanrækt að greiða af milljarði franka sem hann skuldar og hyggst bankinn reyna að fá upp í skuld- ina með því að klófesta búslóð- ina. Tapie er umdeildur þing- inaður og fyrrverandi ráðherra en einnig þekktur fyrir fjár- málaumsvif sín, m.a. er hann stjórnarformaður knattspyrnu- liðsins Marseille. Rússar smyijaKim Il-sung Moskvu. Reuter. RÚSSUM hefur verið falið af stjórnvöldum í Norður-Kóreu að smyija lík Kim Il-sungs, að því er vikuritið Moskvufréttir greindi frá í gær. Það eru sérfræðingar við líf- fræðistofnun Moskvu, sem munu sjá um verkið, en þeir smurðu á sínum tíma Iík Jósefs Stalíns og sáu um að „viðhalda" líki Leníns. Þá hafa þeir séð um smurningu á líkum þekktra kommúnistaleiðtoga á borð við Ho Chi Mihn, leiðtoga Víetnama og Tékkans Klements Gottwalds. Áður var þessi þjónusta veitt vin- veittum ríkjum endurgjaldslaust en nú er þessi þáttur starfsemi stofn- unarinnar rekinn í hagnaðarskyni í samvinnu við útfararfyriitæki og munu Norður-Kóreumenn þurfa að greiða 300.þúsund dollara, um 20 milljónir króna, fyrir smurninguna. Samkvæmt heimildum blaðsins eru sérfræðingar frá stofnuninni nú þegar konmir til Pyongyang, höfuðborgar Norður-Kóreu. Smurlingur Leníns í Moskvu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.