Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.08.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ _______LISTIR____ Að lesa ljóð LIST OG HÖNNUN Kjarvalsstaðir LJÓÐASÝNING EGILL SKALLAGRÍMSSON Opið frá 10-18 alla daga. Aðgangur 300 kr. Til 11. september. Því að ætt mín á enda stendr sem hræbarðar hlynar marka; era karskr maðr sá er köggla ber frænda hrörs af fletjum niðr. Það er sjálfgefið, að hægt er að nálg- ast ljóð frá mörgum hliðum, og einn- ig að mögulegt er að matreiða þau á ýmsa vegu fyrir þann er les. En það er nokkuð nýtt að hanna umgjörð um ljóð til lesturs, eins og gert hefur verið á Kjarvalsstöðum hin síðari ár, en hér er kominn angi hönnunar sem er snöggtum víðara svið en margan grunar. Eins og ég hef áður haldið fram, er það til fyrirmyndar að klæða ljóð í sjónrænan búning, og ætti það þó að standa okkur nær, því að hið sér- staka svið er að mestu ókannað er snýr að sjálfu andrúmi ljóðanna, eins og við skynjum þau hver og einn, en á óáþreifanlegan hátt. Víst er að sum ljóð búa yfir ósveigjanleika og hörku, eru gagnorð og knöpp, en önnur hafa yfir sér meiri mýkt og dýpri hljómfallanda, ef svo má að orði komast. Og þetta er vitaskuld mögulegt að yfirfæra í sjónrænan búning og hefur á stundum verið gert með slá- andi ágætum, eins og raunin var t.d. með ljóð Hannesar Péturssonar, er maður las aftur og aftur. Uppsetningin var einfaldlega þannig að hún höfðaði til þeirra er gengu framhjá, hafði yfir sér sömu nánd og máttuga einfaldleika og ljóð- in sjálf. Að þessu sinni eru ljóð sjálfs Egils Skallagrímssonar kynnt í vestri gangi og eins og fram kemur, „rís Egils saga hæst í þeim kveðskap sem eignaður er hinni stríðlunduðu hetju. Egill er sagður uppi á tíundu öld, heiðinn maður, en þó prímsigndur á enskri grundu. Hann orti dróttkveðn- ar vísur sem eru með glæsilegustum skáldskap af þeim meiði. Sú bragar- list var flókin og fólu skáldin merk- inguna í torskildum kenningum og orðaflækjum. Vísa varð ekki skilin nema ratað væri um völundarhús heiðinnar goðafræði og flókið lík- ingamál ráðið. List dróttkvæða er framandi nú- tímamanninum. Við verðum að læra að ferðast um nýjan myndheim, gefa okkur á vald hinni einkennilega heill- andi hrynjandi — og hrífast.“ Og víst lætur maður heillast af hrynjandinum, þótt skilningnum sé ábótavant, en við látum líka heillast af svo mörgu í náttúrunni án þess að skilja það. Hér kemur gott dæmi frá mínum bæjardyrum séð: Ókynni venst, ennis,/ ungr þorði ég vel forðum/haukaklifs, að hefja/ Hlín þvergnípur mínar;/ verð ég í feld, þá er foldar/ faldr kemr í hug skaldi/ berg-Óneris brúna/ brátt miðstalli hváta/ verð ég í feld, þá er foldar. Annað dæmi, en af öðrum toga: Langt þykir mér/ ligg ég einn saman,/ karl afgamall,/ á konungs vörnum;/ eigum ekkjur/ allkaldar tvær/ en þær konur/ þurfa blossa. —Uppsetningin er hugvitsamleg, en ekki gat ég fellt mig við rauða litinn á glerinu, sem mér þótti of hrár og tilbúinn (kommersiell). Hygg ég að vænlegra hefði verið að nota heitari lit er hefur yfír sér meiri fjar- lægð, t.d. einhvern anga af fjólublá- um eða jarðbrúnum. Gefin hefur verið út sýningarskrá, sem er að sjálfsögðu frábær viðbót, en hvergi er þess getið hver sá um skýringartextana, né hver hannaði uppsetninguna sem er meinbugur á góðri framkvæmd. Bragi Asgeirsson Sýning á norrænum grafíkverkum OPNUÐ hefur verið sýning í anddyri Norræna hússins á 18 grafíkverkum eftir norræna listamenn. Öll verkin eru í eigu listlánadeildar Norræna hússins. Hér er um að ræða myndir eftir Braga Ásgeirsson, Sigurð Guð- mundsson, Lars Ahlgrén frá Finn- landi, Jens Matthiasson frá Svíþjóð, Arnold Rottem og Victor Sparre frá Noregi, og Morgens Andersen, John Olsen og Palle Nielsen frá Dan- mörku. í fréttatilkynningu frá Norræna húsinu segir m.a.: Listlánadeild Nor- ræna hússins tók til starfa árið 1976. Hún er hluti af bókasafni Norræna hússins og með því að kaupa láns- skirteini, sem kostar 400 kr. og gild- ir í eitt ár, er hægt að fá lánað graf- íkverk í tvo mánuði í senn. Nú eru í listlánadeildinni um 500 grafíkverk eftir listamenn frá öllum Norðurlöndunum. Frá því að deildin tók til starfa hafa verið keypt grafík- verk á sýningum norræna lista- manna, en auk þess hafa borist margar gjafir frá norrænum lista- mönnum og öðrum. Lögð hefur verið áhersla á listræn gæði og fjölbreytni við kaup á listaverkum. Listlánadeildin hefur notið mikilla vinsælda meðal lánþega safnsins. Þeir sém fá lánuð verk eru úr öllum hópum samfélagsins og öllum at- vinnugreinum, ungir og gamlir, sum- ir fá verk handa sér einum, aðrir koma fyrir hönd stofnana. Sýningin í anddyri Norræna húss- ins stendur til 11. september og er opin kl. 9.00-19.00, nema á sunnu- dögum frá kl. 12.00-19.00. Kynningarfundur í kvöld að Sogavegi 69 innritun og upplýsingar í síma: 812411 STJÓRNUNARSKÓLINN KONRÁÐ ADOLPHSSON.EINKAUMBOÐ FYRIR DALE CARNEGIE NÁMSKEIÐIN ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1994 21 SIEMENS LU o Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála Hell issandur: Blómsturvellir Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson Stykkishólmur: Skipavík Búðardalur: Ásubúö ísafjörður: Pólíinn Hvammstangi: Skjanni Sauðárkrókur: Rafsjá Siglufjörður: Torgið Akureyri: Ljósgjafinn Húsavík: Öryggi Þórshöfn: Norðurraf Neskaupstaður Rafalda Reyðarfjörður: Rafvélaverkst. Árna E. Egilsstaðir: Sveinn Guðmundsson Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson Höfn í Hornafirði: Kristall Vestmannaeyjar Tréverk Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga Selfoss: Árvirkinn Garður: Raftækjav. Sig. Ingvarss. Keflavík: Ljósboginn Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla, Álfaskeiði SMITH & NORLAND ■ GT 27B03 / 250 I nettó... 44.900,- kr. stgr. i GT 34B03 / 318 I nettó... 49.900,- kr. stgr. ■ GT 41B03 /400 I nettó... 53.900,- kr. stgr. Gríptu tækifæríð - takmarkað magn! Það er stutt í sláturtíðina og þá viltu sofa áhyggjulaus með matarforðann í öruggri geymslu. Siemens frystikista er rétta fjárfestingin fyrir þig. NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300 Viljir þú endingu og gædi velur þú Siemens! Verzlunarskóli íslands öldungadeild Innritun í öldungadeild Verzlunarskóla Islands verður 29. ágúst - 2. september kl. 08.00-18.00. Öldungadeildin gefur kost á námi í einstökum áföngum sem jafnframt gefa einingar er safna má saman og láta mynda eftirtalin prófstig: Próf af bókhaldsbraut (25 einingar) Próf af skrifstofubraut (26 einingar) Verslunarpróf (71 eining) Stúdentspróf (140 einingar). Ekki er nauðsynlegt að miða að ákveðnu prófi og algengt er að fólk leggi stund á einstakar námsgreinar til að auka atvinnumögvileika sína eða sér til ánægju. Við bjóðum m.a.: 96 tíma tölvunámskeið og 104 tíma bókfærslu- og tölvunámskeið. Eftirtaldar námsgreinar verða í boði á haustönn: Bókfærsla Bókmennta- og listasaga Bókmenntir Danska Efna- og eðlisfræði Enska Franska Hagfræði Islenska Ljóðagerð Markaðsfræði Ritvinnsla Saga Skapandi ritun Stjómmálafræði Stjórnun Stofnun og rekstur smáfyrirtækja Stærðfræði Verslunarréttur Vélritun (á tölvur) Tölvubókhald Tölvunotkun Þýska Kennsla í öldungadeildinni fer fram kl. 17.30-22.00 mánudaga til fimmtudaga. Skráning nemenda er á skrifstofu skólans 29. ágúst - 2. september 1994.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.