Morgunblaðið - 07.09.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.09.1994, Blaðsíða 4
KÖRFUKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA Grindvíkingar langt frásínubesta GRINDVÍKINGAR töpuðu fyrsta Evrópuleik sínum í körfuknatt- leik í gærkvöldi þegar þeir tóku á móti sænska liðinu M 7 Bask- et. Svíarnir sigruðu 96:108 eftir að hafa 46:50 yfir f leikhléi. Miðað við styrk sænska liðsins er sá munur of mikill til að Grindvíkingar eigi möguleika í síðari leiknum sem verður í Borás á laugardaginn. Samt er aldrei að vita, Grindvíkingar geta leikið mun betur og ætla sér örugglega að gera það á laugardaginn. Grindvíkingar hófu leikinn vel og náðu 7 stiga forystu eftir mín- útu leik en Svíarnir áttuðu sig fljót- lega, léku griðariega SkúliUnnar stífa maður./ maun Sveinsson yorn naðu fljot- skrifar lega undirtökunum. Þeir hittu ágætlega og það sem meira var um vert, tóku flest öll fráköst, enda miklu stærri. Grindvíkingar hittu hræðilega illa, vítahittnin náði varla 50%, og áttu allt of margar sendingar sem mót- herjamir náðu. Fyrri hálfleikur var frekar stíft leikinn og dómararnir, sem voru ákveðnir í að missa leikinn ekki úr böndunum, dæmdu á allt. Grindvík- ingar lentu í villuvandræðum og strax í upphafí síðari hálfleiks fékk Guðmundur Bragason sína fimmtu villu og þar með var draumur UMFG í raun og veru búinn því þó svo hinn tvítugi Bergur Eðvarðsson léki þokkalega þá réði hann ekkert við átta sentimetrum hærri og helmingi þyngri leikmann Svíanna undir körf- unni. Svíar náðu fljótlega þægilegri stöðu, höfðu 15 stiga forystu eftir 6 mínútur og ætluðu að reyna að hvíla lykilmenn sína. Það gátu þeir þó ekki leyft sér því Grindvíkingar söx- uðu strax á forstu þeirra og þegar 7 mínútur voru eftir munaði aðeins 10 stigum og vonir Grindvíkinga glæddust á ný, en því miður aðeins um stund. Svíamir léku af skynsemi síðustu mínúturnar og sigur þeirra var ekki ógnað. Grindvíkingar léku ekki vel og hefðu með leikjum eins og þeir sýndu í úrslitakeppninni í vor átt að vinna. Þeir náðu ekki að stjórna hraða leiks- ins og það komu aðeins stuttir kaflar í leiknum þar sem heimamenn náðu að keyra upp hraðann og þá minnk- uðu þeir ætíð muninn. Helgi Guðfínnson var bestur í liði Grindvíkinga og Nökkvi Már átti einnig góðan leik. Þessir tveir ásamt Joe Wright voru þeir einu sem léku vel. Aðrir áttu þó þokkalega spretti. Grindvíkingar geta miklu betur. Þeir eru með góðar skyttur og þær þarf að nýta betur. Það gerist ekki nema leikmenn hreyfí sig í sókninni þó þeir séu ekki með boltann. Bestir hjá Svíum voru Bandaríkja- mennirnir tveir, Drex Baldwin og Jim McCoy ásamt Robert Anderson sem tók aragrúa frákasta og fyrirliðinn Jonas Larsson er skemmtilegur leik- maður. Morgunblaðið/Sverrir NÖKKVI Már Jónsson og Guðmundur Bragason í baráttunni vlð rlsann Robert Andersson sem ráðl ríkjum undir körfunum enda 208 sentlmetrar og því höfðlnu hærri en Grlndvíkingar Ætlaði að vinna þennan leik - sagði Friðrik Rúnarsson, óánægður þjálfari Grindvíkinga Eg er ekki ánægður með úrslitin í kvöld, ég ætlaði að vinna þennan leik. Mér finnst að það hefði verið raunhæfur mögluleiki. Frímann Ólafsson skrifar frá Grindavík Við klikkuðum á vít- alínunni í kvöld og vorum of staðir í sókninni. Það var eins og menn væru ragir við að gera það sem þeir hafa verið að gera að undanförnu. Núna voru menn með mikla reynslu að spila undir getu og Guðmundur fékk á sig ódýra villu þegar hann fékk 5. villuna sína. Það var slæmt að missa hann útaf en ungu strák- arnir sem höfðu litla reynslu spil- uðu vel. Við ætlum okkur að gera betur úti, það er engin spurning. „Ánægður með sigurinn" „Ég er ánægður með sigurinn," sagði Eyvind Möstl þjálfari M7 Basket eftir leikinn. „Leikurinn í kvöld var erfiður fyrir framan allt þetta fólk sem studdi sitt lið vel. UMFG-M 7 96:108 íþróttahúsið í Grindavik, Evrópukeppni félagsliða i körfuknattleik, fym leikur, þriðjudaginn 6. september 1994. Gangur leiksins: 2:0, 7:2, 11:4, 14:8, 16:16, 18:21, 22:21, 24:29, 34:31, 39:42, 43:4446:50, 50:59, 59:77, 70:87, 80:90, 84:95, 86:101, 96:104, 96:108. Stig UMFG: Joe Wright 30, Guðjón Skúlason 18, Helgi Jónas Guðfinnsson 15, Nökkvi Már Jónsson 14, Unndór Sigurðsson 9, Guðmundur Bragason 4, Marel Guðlaugsson 4, Bergur Eð- varðsson 2. Stig M7 Basket: Jim McCoy 31, Drex Baldwin 28, Jonas Larsson 20, Robert Andersson 17, Daniel Málberg 4, Per Liljenback 3, Jonatan Lönn 2, Anders Skoglund 2, Niklas Blom 1. Dómarar: Paul Lee og Keth DWal. Dæmdu vel og voru rpjög ákveðnir. Áhorfendur: Rúmlega 500 Ég er þó ánægður með 12 stiga sigur. Við vorum hálf taugavei- klaðir í byijun og það tók okkur 10 mínútur að komast inn í leik- inn. Ég vissi að Grindavíkurliðið lék hraðan bolta og með góðar skyttur þannig að við urðum að stöðva þær. Við erum ekkert of sigurviss- ir fyrir seinni leikinn heima því við sáum að við verðum að gera vel ef við ætlum að vinna hann,“ sagði þjáflarinn. „Hundóánægður með eigin frammistöðu" „Það var virkilega gaman að spila þennan Evrópuleik og stemmningin frábær eins og allt- af,“ sagði Guðmundur Bragason fyrirliði Grindvíkinga. „Ég er þó hundóánægður með eigin frammi- stöðu hér í kvöld. Ég er reyndasti maðurinn í liðinu og á að geta bet- ur. Við verðum að snúa bökum saman og vinna þá í næsta leik. Þegar þeir voru búnir að ná 15 stiga mun er erfitt að vinna það upp gegn svona sterku liði en ef við náum að halda í við þá úti eig- um við að geta unnið þá,“ sagði Guðmundur Bragason. Gotthjá Úlfari Ufar Jónsson, kylfingur, varð í fjórða sæti á sænska PGA mótinu í Stokkhólmi um helgina. Þetta var síðasta mótið á skand- inavísku mótaröðinni { sumar og nú heldur Úlfar til Bandaríkj- anna, þar sem hann freistar þess í haust að komast inn á PGA mótaröðina þar í landi. Sigurvegari á mótinu -varð heimamaðurinn Adam Mednick á 287 höggum, einu undir pari. Úlfar Jónsson lék á 291 höggi; 70, 74, 73, 74. „Svona mót vinn- ast yfirleitt á 10-15 höggum undir pari, en veðrið var frekar leiðinlegt og enginn náði lágu skori að þessu sinni. Völlurinn var líka erfíður, sá erfiðasti á „túrnum" en jafnframt sá besti. Frábær völlur,“ sagði Úlfar Jónsson í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hann sagðist mjög sáttur með árangur sinn um helgina. „Það er gott að enda svona. Ég hef púttað mjög illa í sumar, en greip nú til þess örþrifaráðs að breyta gripinu; púttaði með vinstri hendina fyr- ir neðan þá hægri, eins og gerðu á tímabili. Og það gekk upp; ég púttaði rrgög vel. Ég sló hins vegar ekki vel í mótinu en það má segja að púttin hafi bjargað mér.“ Sveinbjörn látinn fara frá ÞróttilM. SVEINBIRNI Hákonarsyni var sagt upp þjálfarastarfinu hjá 2. deildarliði Þróttar á Neskaup- stað í fyrrakvöld. Liðið er í neðsta sæti deildarinnar þegar tveimur umferðum er ólokið. „Við teljum okkur geta náð upp meiri stemmningu í tveimur sið- ustu leikjunum og klárað þannig deildarkeppnina með meiri reisn en ef Sveinbjöm hefði verið hér áfram. Það hafa verið sam- skiptaörðugleikar milli hans manna hér, en við erum þó ekki að segja með þessu að slakt gengi liðsins í sumar sé ein- göngu honum að kenna," sagði Magnús Brandsson, stjórnar- maður hjá Þrótti við Morgun- blaðið. Viðar Þorkelsson, sem leikur með Þrótti, stjómar liðinu í tveimur síðustu leikjunum. Tvö heimsmet ísundiíRóm TVÖ heimsmet voru sett á heimsmeistaramótinu í sund í Róm í gær. Þýska stúlkan Franziska van Almsick setti met í 200 metra skriðsundi; synti á 1.56,78 mín. Austur-þýska stúlkan Heike Friedich átti gamla metið, sem var 1.57,55 mín., sett (júní 1986. Þá synti Bandaríkjamaðurinn Tom Dolan 400 skriðsund á 4.12,30 mín. Gamla metið í þeirri grein á Ungveijinn Tamas Darnyi, 4.12,36 mín., sett í janúar 1991. Naumur sigur Svisslendinga gegn SAF LANDSLIÐ Sviss, sem er með íslendingum í riðli í Evrópu- keppninni í knattspymu, tók á móti liði Sameinuðu arabísku furstadæmanna í vináttuleik í Sion í Sviss í gærkvöldi. Sviss sigraði 1:0 með marki Alains Sutter á 12. mín. íslendingar unnu lið SAF einnig 1:0 á dög- unum, á Laugardalsvelli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.