Morgunblaðið - 01.10.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.10.1994, Blaðsíða 2
2 C LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MENNING/LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Gerðuberg Inga Svala Þórsdóttir sýnir til 2. okt. Listasafn Islands í deiglunni 1930-1944. Asmundarsafn Samsýn. á verkum Ásmundar Sveinss. og Kristins E. Hrafnss. til áramóta. Safn Asgríms Jónssonar Þingvallamyndir fram í nóvember. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar íslandsm. og súlur Siguijóns til áramóta. Kringlan Ljósmyndasýn. World Press Photo til 15. okt. Gallerí einn einn Gunnar M. Andrésson sýnir til 13. okt. Listasafn ASÍ Valgerður Árnad. Hafstað sýnir til 16. okt. Gallerí Úmbra Guðrún Gunnarsd. sýnir til 5. okt. Gallerí Sólon Islandus Thor Vilhjálmsson sýnir til 3. okt. Gallerí Árt-Hún Móa Romig Boyles sýnir til 2. okt. Stöðlakot Bjamheiður Jónsd. sýnir til 2. okt. Ásmundarsalur Árni Rúnar Sverrisson sýnir. Gallerí Greip Salon 1994 til 19. okt. Listasafn Kóp. - Gerðarsafn Kristín Þorkelsd. sýnir til 16. okt. Gallerí Fold Ásgeir Smári sýnir til 16. okt. ■ Portið „Altari/altaristafla" 25. myndl.menn sýna til 15. okt. Sýningarsalur Hafnarhússins List gegn vímu: Verk eftir 140 lista- menn til 9. okt. Norræna húsið Hafsteinn Austmann sýnir til 9. okt. Gallerí Sævars Karls Eggert Pétursson sýnir til 6. okt. Mokka Verk Jennyar Holzer til 17. okt. Sýningarsalurinn Önnur hæð Verk eftir Alan Uglow út okt. Hafnarborg Margrét Þ. Jóelsd. sýnir til 10. okt. Sýn. Gler og grafík í kaffistofu. Gerðuberg Yfirlitssýn. Islenska einsöngslagið til 1. des. Nýlistasafnið Ólafur Lárusson sýnir til 9. okt. SPRON-Álfabakka Rut Rebekka sýnir til 25. nóv. Gallerí AllraHanda Akureyri Lísa K. Guðjónsdóttir sýnir til 2. okt. Norðurárdalur - Borgarfirði Svn. Finnu B. Steinsson. Óákv. tími. Laugardagur 1. október Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson í Borgarleikhúsinu kl. 14.30. Þýsk lúðrasveit ásamt Lúðrasveit Hafnarfj. í Víðistaða- kirkju kl. 16. Afmælistónl. Tónlist- arsk. Seltjamam. í Seltjamames- kirkju kl. 16. Sunnudagur 2. október Tónleikar Kammermúsíkklúbbs Reykjavíkur í Bústaðakirkju kl. 20.30._________________________ LEIKLIST Borgarleikhúsið Óskin (Galdra-Loftur) kl. 20; lau. 1. okt., sun., mið., fim., fös., lau. Leynimelur 13 kl. 20; lau. 1. okt., sun., fim. Þjóðleikhúsið Dóttir Lúsifers kl. 20.30; lau. 8. okt. Vald örlaganna kl. 20; lau. 8. okt. Gauragangur kl. 20; sun. 2. okt., mið., fim. GaukshreiðriO kl. 20; lau. 1. okt., fós. Sannar sögur af sálarlífi systra kl. 20; lau. 1. okt., fds. Leikfélag Akureyrar Karamellukvömin kl. 14; lau. 1. okt, sun., lau. BarPar i Þorpinu kl. 20.30; lau. 1. okt., fos., lau. Frú Emilia Macbeth kl. 20; lau. 1. okt., fim., lau. íslenska óperan Hárið lau. 1. okt. kl. 20 og kl. 23, fos. kl. 20 og 23, lau. kl. 23.30. Norræna húsið Norski leikarinn Toralv Maurstad með einleik byggðan á Pétri Gaut sun. 2. okt. kl. 16 sun. Tjarnarbíó Danshöfundakvöld íslenska dans- flokksins lau. 1. okt. kl. 20 og sun. kl. 15. Leikhúskjallarinn Trífólí-hópurinn sýnir dansleikinn Hillingar. Augu þín sáu mig eftir Sjón, höf. ásamt tónl.mönnum flytur efni úr óbirtri skáldsögu, mán. 3. okt. MÍR Stórbrotið líf, kvikm. frá Úkraínu sun. 2. okt. kl. 16. Norræna húsið Kvikm.sýn. fyrir böm sun. kl. 14. Yf irlilssýning Kiarvqlsstaóa á verkwm Mqgnusar Pálssonar HVÍSKUR (1976) er gifsmynd af leyndarmáli sem Nefertíte sagðiAlxander mikla á ímynduðum ástarfundi þeirra. TILVILJANAVALD og matgvíslegar furður hins ósýnilega Magnús Pálssongamnar sér við tungu- málið á og held- ur sig á mörk- um listarinnar. EKKERT er til nema andstæðan sé til um leið, segir Magnús Pálsson og tekur málstað sameind- ar í loftinu; Hún er í sjálfri sér jafn- gild manni sem andar henni að sér eins og ekkert sé en finnur fyrir veruleika malbiks sem hann gengur á. Myndlist Magnúsar Pálssonar ryðst og laumast gegnum venju- bundin sjónarmið, fangar það sem ekki er og sýnir það sem ekki sést og sameinar það sem hefur verið aðskilið. Hljóð verður mynd og list- greinar einungis leiðir að marki sem áhorfandi stendur við og veltir fyrir sér. Nostur og færni eru ekki keppi- kefli heldur gildrur til að forðast og listamaðurinn, langar leiðir frá helli sínum, í mannlífinu með hin- um. í samstarfi við aðra kemst hann fram úr sjálfum sér. Á Kjarvalsstöðum og raunar Korpúlfsstöðum líka er hafin yfir- litssýning á verkum Magnúsar. Hún stendur til 23. október, en breytist að minnsta kosti að hluta til dag frá degi eða nótt frá nóttu enda er nóttin meira spennandi en dagur- inn að áliti listamannsins. Hann fer öðru hvoru upp að Korpúlfsstöðum og hreyfir við verki sem er þar fyr- ir utan. Það er frá 1980, gert úr völdu rusli af Gufunesi. Magnús teiknar stóra sólskríkju úr ruslinu, nú eins og þá, og breytir henni síð- ar í mús sem loks verður að keng- úru. Verkið, sem um árið var inn- legg í norræna sýningu á umhverf- islist, sést nú aftur svolítið breytt þó að hugmyndin sé sú sama. Yfirborðið skiptir líka minna máli en það sem býr á bak við og verkin sem kennd eru við konsept eru sjaldan fastákveðin og óbreyt- anleg. Stundum eiga þau sér sögu eða skýringar sem sjást ekki í út- komunni, eru kannski heimild um gjörning eða niðurstaða spekúla- sjóna sem gaman er að þekkja til. Þannig er til dæmis skemmtilegt að vita um tilurð Hvískurs, sem sést hér á mynd. Magnús fékk fyr- ir átján árum þá hugmynd að kynna hvert fyrir öðru Alexander mikla (4. öld f.Kr.) og Nefertíte drottn- ingu í Egyptalandi (14. öld f.Kr.). Hann hugsaði sér raunar náin kynni þeirra í milli og reyndi að ímynda sér hvetju Nefertíte hvíslaði í eyra Alexanders uppi í rúmi. Með því að leggja bijóstmyndir af þessum persónum saman á kodda gat Magnús mælt út rýmið milli munns Nefertíte og eyra keisarans. Myndin af því, af þessu ástúðlega hvískri, er úr gifsi og nú er að minnsta kosti tvenns að geta. Annars vegar efnisins, gifsins, sem Magnúsi fannst henta sér vel á sjöunda og áttunda áratugnum. Dautt og látlaust, sagði hann ein- hverntíma um það og útskýrir núna að sú lifandi hugsun sem búi að baki felist yfirleitt ekki í dýrleika efnisins. Hún eigi að njóta sín ótrufluð af efni eða formi. Þar kem- ur hitt atriðið, formið, eða and- hverfa þess. Hvískrið er ekki ein- ungis formgerð rýmis, sem Magnús kallar negatívt og mótast af því sem er þar einnig, án formreglna eða fagurfræði. Það er að auki mynd af hljóði og þannig leið til verka sem seinna urðu aðal hans og eru enn. Hljóðið hefur smám saman tekið yfir í verkum Magnúsar og sjálfur segir hann okkar öld vera tímabil hljóðsins. „Ég hef verið að gamna mér við það og held kannski að margra ára starf hafi hrist saman eitthvað sem býr yfir ákveðnum frumeiningum." Hvað, spyr ég og Magnús segist eiga við skilgrein- ingu ákveðinna hluta. „Nú er ég að fást við skilgreiningu tungu- máls,“ heldur hann áfram, „í tengsl- um við hrynjandi, hljómfall og merkingu, mynd og sýn. Hvað felst í tungumáli og hvar greinist það sundur og hvernig er hægt að beita því.“ Listin nálgast vísindi og vísindi geta orðið list og það er að sögn Magnúsar þegar þau snerta mann tilfinningalega. Tilfinningin er þannig listarinnar en fræðileg að- ferð vísindanna og ímyndunaraflið nauðsynlegt hvoru tveggja. Þess er þörf á báðum endum listarinnar, að minnsta kosti í hugmyndalist eins og Magnúsar. Hann leggur upp með eitthvað, sem allt eins er haft frá öðrum, og ætlar síðan áhorf- anda að nálgast það sem hluta af sjálfum sér. „Ég held helst að list sé það sem listamaður kalli því nafni og allir eru listamenn í þeim skilningi að þeir búa yfir neistanum. Allir hafa þörf og að einhverju marki getu til að skapa. Þess vegna ætti umræðan um listina, hvað hún er og hvers vegna, ekki bara að fara fram milli listamanna í venjulegri merkingu orðsins. Mér finnst list ekki vera til að dást að, það er röng hugsun, hún er til að eiga við samskipti og virða eins og sjálfan sig. Það þarf að setja hana undir mælistiku, end- urskoða sífellt og 'efast og sjálfur hef ég kosið að dingla á ystu mörk- um þess sem mér finnst vera list og ekki list. Þar sannprófa ég mörk- EG NOTA stólpa úr Reykjavík- urhöfn sem var, eða járnvið og eik, rauðvið, purpurahjarta og hlyn. Bara alls kyns góðvið,“ seg- ir Magnús Th. Magnússon, eða myndhöggvarinn Teddi, sem er að opna sýningu á 35 höggmyndum í Ráðhúsinu í dag. Sýningin stend- ur til 10. október en Teddi efndi síðast til sýningar af þessari stærðargráðu í Periunni fyrir tveimur árum. „Ég vinn þetta mest með keðju- sögum og fræsurum," segir hann. „Þetta er allt maðkétið og svo vinn ég eftir því. En viðurinn hefur verið í sjónum svo áratugum skipt- ir,“ segir Teddi sem einnig vinnur sem bryti hjá Eimskip þegar þann- ig ber undir. „Þessi sýning verður mun fagmannlegri því á síðustu sýningu lét ég allt fara. Nú ber ég meiri virðingu fyrir hlutunum. Fimm verkanna eru unnin í rauðv- ið og við sem ég lími saman sem er frábrugðið fyrir verkum," segir KIRKJUGARflSHLYNUR 06 MMKÉTNIR STÚLPAR Morgunblaðið/Kristinn TEDDI með eitt verkanna sem unnið er úr hlyni í sem áður óx i kirkjugarðinum við Suðurgötu. „Hann var á leiði frænda míns. hann. Viðnum hefur Teddi einnig safnað á ferðum sínum, meðal annars í Suður-Afríku og Banda- ríkjunum. „Fyrst flyt ég hann inn og þurrka, lími svo saman, og fer með í bandsög. Svo er hann sagað- ur með keðjusög og fræsara og slípaður niður. En sum verkin eru unnin eins og liggur í viðnum, sem mótar endanlegt útlit þeirra." Verkin segir Teddi vera frekar stór og þau eru öll unnin á síðast- liðnum tveimur árum. „Ég er með eitt verk úr járni og gijóti, svona til gamans, sem unnið var á véla- verkstæði. En í tréverkunum er ákveðið form, svo ég er mikið með konur og andlit og önnur náttúru- leg form. Annars fór ég til náms í Finn- landi í nokkra mánuði til að stúd- era skúlptúra, enda margt að sjá þar og áhrifanna gætir á þessari sýningu. Það sést til dæmis á tveimur verkum, þau eru svolítið grófari.“ H.K.E.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.