Morgunblaðið - 11.10.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.10.1994, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1994 ÞRIDJUDAGUR 11. OKTÓBER BLAÐ adidos Handknattleikslið Hauka , leikur í Adidas KNATTSPYRNA Fatih Saribas/Reuter Framhevjamir fögnuðu mörkum * Islendingar mæta Tyrkjum í Istanbul á morgun í EM FRAMHERJARNIR í íslenska landsliðshópnum í knattspyrnu, sem kom til Istanbul ífyrrinótt vegna Evrópuleiks Tyrklands og íslands annaðkvöld, skoruðu með félagsliðum sínum um helgina. Eyjólfur Sverrisson innsiglaði 2:0 sigur Besiktas gegn Ankara ítyrknesku deildinni, en tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir lögðu upp sitt markið hvorfyrir hvorn annan í 6:3 tapi Niirnbergs gegn Hannover í 2. deild í Þýska- Gunnar Odds- son til Leifturs GUNNAR Oddsson, miðvallarleikmað- ur og fyrirliði Keflvíkinga, hefur ákveðið að ganga til liðs við nýliðanna í 1. deild, Leiftur frá Ólafsfírði. í síð- ustu viku gekk Ragnar Gíslason, fyrir- liði Stjömunnar, einnig til liðs við fé- lagið. Gunnar sagði að það legðist vel í sig að fara norður á Óíafsfjörð. „Mér líst vel á mannskapinn hjá Leiftri og hef trú á liðinu. Það er gott að breyta til og kynnast nýju fólki. Maður er ekki í íþróttunum til eilífðar og því sló ég til er þetta tækifæri gafst. Eg fer þó ekki í neinu fússi frá Keflavík," sagði Gunnar við Morgunblaðið. - En hvers Vegna valdir þú Leiftur? „Okkur langar að prófa að búa út á landi. Ég er að klára félagsfræðinám. í vor og svo eigum við hjónin von á öðru barni okkar. Þetta er því góður tími til að breyta til — minnsta röskun- in fýrir fjölskylduna.“ Gunnar og fjölskylda hans flytjast til Ólafsfjarðar í vor. Flestir leikmanna Leifturs verða á Reykjavíkursvæðinu í vetur og mun Óskar Ingimundarson þjálfari stjóma æfíngunum. Þór réði Nóa til tveggja ára NÓI Björnsson var í gær ráðinn þjálf- ari Þórsliðsins í knattspymu til tveggja ára. Þórsarar féllu í 2. deild í haust, en „við ætlum okkur ekki að vera þar nema eitt sumar. Við erum að vinna í að halda okkar mannskap og ég veit ekki til þess að neinn fari nema Lárus Orri [Sigurðsson],“ sagði Kristján Kristjánsson, formaður knattspymu- deildar Þórs. Nói stjómaði Þórsliðinu í tveimur síðustu leikjum 1. deildarinnar i haust, eftir að Sigurði Lárussyni var sagt upp störfum. Nói lék um árabil með Þór og er leikjahæsti maður félagsins. Undanfarin ár hefur hann þjálfað Magna á Grenivík. Helgi og Þórður með Stjömuna HELGI Þórðarson og Þórður Lárusson voru í gær ráðnir þjálfarar meistara- flokks Stjörnunnar í knattspyrnu. Þeir taka við af Sigurlási Þorleifssyni sem stjómaði liðinu í 1. deild sl. sumar. Kjartan áfram meðVíkinga KJARTAN Másson var um helgina endurráðinn þjálfari meistaraflokks Víkings, sem leikur í 2. deild karla á næsta keppnistímabili eins og Stjaman. landi. Landsliðshópurinn tók létta æfingu í Amsterdam í fyrra- dag á meðan beðið var eftir flugi til Istanbul. Tvær Steinþór æfingar voru í Guðbjartsson gær, ein verður skrifar seinni partinn á frá Istanbul morgun og sú síð. asta í fyrramálið. Hefðbundinn undirbúningur rétt eins og hjá mótherjunum og veðráttan í ís- lenskara lagi, en í gær kólnaði skyndilega, hitinn fór niður fyrir 20 stig og það rigndi - fyrsta rigningin hér um slóðir í sjö mánuði og því kærkomin. Eyjólfur hefur gert fimm rnörk í tyrknesku deildinni og er í hópi markahæstu manna. Um helgina skoraði hann með skoti frá vítateigslínu, boltinn í mótheija og inn. Þá gerði hann annað mark með skalla eftir hornspyrnu, en það var dæmt af eins og annað mark Besiktas. „Þetta vom lögleg mörk,“ sagði Eyjólfur. Amar er með fjögur mörk og er markahæstur ásamt fjóram öðram leikmönnum í 2. deild í Þýskalandi, en Bjarki hefur gert tvö mörk. „Liðið hefur gert 13 mörk og við eigum níu þeirra á einn eða annan hátt,“ sagði Bjarki, sem jafnaði 1:1 um helg- ina. Tyrkir bjartsýnir Mikill áhugi er á leiknum landshluta á milli í Tyrklandi og er á heimamönnum að heyra að nú sé komið að fyrsta sigri Tyrk- lands gegn íslandi. „Við sigrum ísland,“ sagði Fatih Terim þjálf- ari Tyrkja í gær. „íslendingar eru líkamlega sterkir en við höfum áhorfendurna á okkar bandi og sjálfstraust leikmanna minna er sérstaklega gott eftir að við náð- um að vinna upp tveggja marka mun gegn Ungveijalandi. Við erum með marksækna fram- heija, höfum undirbúið okkur með sigur í huga og annað kem- ur ekki til greina." Hann sagði ennfremur varðandi fyrri leiki þjóðanna að fortíðin væri að baki og líta bæri til framtíðar. „Það er ekkert öruggt í riðlinum. Svíar hafa ákveðið forskot, Sviss á möguleika og Tyrkland líka, ekki síst ef við fáum þijú stig gegn íslandi." Upp með hendur Það var engln uppgjöf í herbúð- um íslenska llðsins, þó svo að þeir hafi verið uppi með hendur á æfingu í gærkvöldf. íslend- ingar hafa aldrel tapað leik gegn Tyrkjum í fimm vlðurelgn- um. BR Reynir kjörinn formaður Reynir Ragnarsson var í gærkvöldi kjörinn for- maður íþróttabandalags Reykjavíkur á þingi bandalags- ins. Hann hlaut 88 atkvæði í formannskjörinu, en Jón Zo- éga, fyrram formaður Vals, sem einnig gaf kost á sér til formennsku hlaut 50 atkvæði. Reynir tekur við af Ara Guð- mundssyni sem hefur verið for- maður IBR síðan 1988, en gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Aðrir í stjórn eru Sigurður Hall, Asgeir Guðlaugsson, Örn Andrésson, Haukur Tómasson, Sölvi Óskarsson og Kristján Örn Ingibergsson. LANDSLIÐSKONAN RAGNA LÓA STEFÁNSDÓTTIR í VIÐTALI / B2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.