Morgunblaðið - 02.11.1994, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B/C/D
250. TBL. 82. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
1,2 millj.
í ferðir
maka
Helgir staðir múslima í Jerúsalem
Gæsluhlutverk
Jórdana einung-
is tímabundið
Casablanca. Reuter.
HASSAN Jórdaníuprins lýsti því yfír í gær að Jórdanir hygðust
afhenda Palestínumönnum yfírráð yfír helgidómum múhameðstrúar-
manna í Jerúsalem, þegar náðst hefur endanlegt samkomulag milli
þeirra og ísraela um stöðu borgarinnar. Það gæsluhlutverk sem
Jórdanir munu gegna í samræmi við friðarsamninginn við ísraela
væri einungis tímabundið, sagði prinsinn á blaðamannafundi.
BRESKA dagblaðið The Inde-
pendent greindi frá því í for-
síðufrétt á dögunum að ferðir
maka breskra ráðherra til út-
landa hefðu kostað skattgreið-
endur alls 11.000 pund, jafn-
virði tæpra 1,2 milljóna króna,
á einu ári. Ráðherrarnir þurfa
að fá heimild frá forsætisráð-
herra fyrir hverri ferð.
Makar sex ráðherra og að-
stoðarráðherra í fimm ráðuneyt-
um fóru í eina ferð hver, en á
vegum vamarmálaráðuneytis-
ins voru famar fímm slíkar ferð-
ir. Embættismaður ráðuneytis-
ins sagði kostnað ríkisins af
þeim „óvemlegan eða engan“.
Þarf heimild
forsætisráðherra
Nokkur ráðuneyti höfðu
engan kostnað af slíkum ferð-
um. í siðareglum breskra ráð-
herra segir að útgjöld vegna
ferða maka með ráðherrum í
opinberum erindagerðum megi
„einstaka sinnum greiða úr
opinberum sjóðum, að því til-
skildu að það þjóni augljóslega
hagsmunum ríkisins að hann
eða hún fylgi ráðherranum.
Hvað opinberar ferðir til út-
landa varðar þurfa ráðherrar
að fá heimild frá forsætisráð-
herra í hvetju tilviki."
Frelsissamtök Palestínu (PLO)
mótmæltu harðlega ákvæði í frið-
arsamningi ísraela og Jórdaníu-
manna, sem undirritaður var í síð-
ustu viku, þar sem kveðið er á um
að hinir síðarnefndu hafí umsjón
með hinum helgu stöðum múslima
í Jerúsalem.
Faisal al-Husseini, ráðgjafí
Yassers Arafats, leiðtoga PLO, í
málefnum Jerúsalem, fagnaði í
gær yfirlýsingu prinsins.
Hann tók hins vegar fram að
ákvæðið um eftirlitshlutverk Jórd-
ana hefði aldrei átt að setja í samn-
inginn.
Hinir helgu staðir eru í austur-
hluta borgarinnar en Palestínu-
menn krefjast þess að Jerúsalem
verði höfuðborg ríkis Palestínu-
manna, verði það stofnað.
Stefnt er að því að viðræður
um endanlega stöðu Vesturbakk-
ans, Austur-Jerúsalem og Gaza-
svæðisins hefjist innan árs eftir
að náðst hefur endanlegt sam-
komulag um sjálfstjórn Palestínu-
manna til bráðabirgða.
Þeim viðræðum á að ljúka eigi
síðar en 1998, fimm árum eftir
undirritun Óslóar-samkomulags-
ins.
„Siðferðilegur réttur“
Hassan prins, sem er bróðir
Husseins Jórdaníukonungs, sagði
Jórdana ekki ætla að hafa umsjón
með helgistöðunum að eilífu. Hins
vegar hefðu þeir „siðferðilegan
rétt“ til að gegna þessu eftirlits-
hlutverki þar sem Israelar viður-
kenndu ekki stofnanir Palestínu-
manna í Jerúsalem.
Jórdanir væru að hans mati ein-
ungis að sinna hlutverkinu tíma-
bundið.
ÞÚSUNDIR manna komu saman
í gær fyrir utan skrifstofur fjár-
festingarfyrirtækisins MMM í
Moskvu til að fagna sigri forstjóra
fyrirtækisins, Sergejs Mavrodís, í
aukakosningum til þings á mánu-
dag. Fögnuðurinn breyttist hins
vegar í reiði þegar starfsmaður
fyrirtækisins las upp tilkynningu
frá Mavrodí þess efnis að eldri
hlutabréf í fyrirtækinu yrðu ógild
frá 1. nóvember til 1. janúar.
Margir hentu hlutabréfum sín-
um í MMM eða kveiktu í þeim
eftir þessa tilkynningu og sumir
hentu flöskum að skrifstofu fyr-
irtækisins.
„Margir veðsettu íbúðir sínar
eða bifreiðar til að kaupa þessi
hlutabréf. Nú hafa þjófar stolið
öllum peningunum okkar,“ sagði
hin sjötuga Olga Vladímírova.
Alþýðu-
hetjan
sem brást
Hún ásamt fjölmörgum öðrum
Rússum beit á agnið er MMM lof-
aði 3.000% ávöxtun á sparifé.
Sérfræðingar hafa ávallt hald-
ið því fram að um hefðbundna
svikamyllu væri að ræða þar sem
nýtt hlutafé væri notað til að
greiða eldri hluthöfum arð.
Högnuðust margir verulega þar
til nýtt fjármagn hætti að
streyma inn.
Mavrodí, sem er 39 ára gam-
Reuter
all, var orðinn að alþýðuhelju í
Rússlandi. Þrátt fyrir að hann
væri sakaður um fjárdrátt og
skattasvik tókst honum að sann-
færa almenning um að hann væri
litli maðurinn sem berðist gegn
liinu alvonda skrifræðiskerfi.
Þegar hann var fangelsaður voru
haldnár fjölmennar mótmæla-
göngur þar sem þess var krafist
að honum yrði sleppt úr haldi.
Honum var sleppt fyrr í mán-
uðinum er hann tilkynnti um
þingframboð sitt. Með því að
vinna þingsæti kann hann að
sleppa við að verða sóttur til
saka. Yfirlýsing hans í gær mun
hins vcgar líklega binda enda á
vinsældir hans.
Þrátt fyrir allt keyptu um
hundrað manns nýja hluti í MMM
í gær.
Reuter
Lítil eftirspum?
PRINSINN af Wales, ævisaga
Karls ríkisarfa í Bretlandi, kom
í bókabúðir þar í landi í gær.
Kaflar sem birtir hafa verið úr
bókinni að undanförnu hafa vakið
athygli. Þar er því lýst hvernig
það kom í ljós strax í brúðkaups-
ferðinni hve illa Karl og Díana
prinsessa áttu saman. Sala bókar-
innar fór þó hægt af stað því í
bókabúð Dillon’s í Gowerstræti,
þar sem myndin var tekin, seldist
engin bók fyrstu stundirnar.
■ Las sögu Carls Jungs í brúð-
kaupsferðinni/16
Barist í norðvesturhluta Bosníu
Framrás múslima
sögð hafa stöðvast
Sarajevo. Reuter.
HEIMILDIR innan friðargæsluliðs
Sameinuðu þjóðanna í Bosníu
hermdu í gær að framrás stjórnar-
hersins í norðvesturhiuta landsins
virtist hafa stöðvast. Talsmaður
stjórnarhersins sagði hins vegar að
sóknin gengi vel og að bærinn Bos-
anska Krupa myndi falla á næstu
dögum.
Stjórnarherinn hefur náð 250 fer-
kílómetrum á sitt vald austan og
sunnan við Bihac-hérað og leggur
nú áherslu á að endurheimta Bos-
anska Krupa. Talsmenn Sameinuðu
þjóðanna í Zagreb sögðu að bosnísk-
ir Króatar tækju nú þátt í sókn stjóm-
arhersins, sem hefur staðið í viku.
Radovan Karadzic, leiðtogi Bosn-
íu-Serba, hét serbneskum flótta-
mönnum því að stjórnarherinn yrði
fyrir „ógurlegu mannfalli" í gagn-
árás Serba. Leiðtogar Serba í Kraj-
ina-héraði í Króatíu búa sig undir
að senda 2.000 hermenn til að að-
stoða Bosníu-Serba. Yfirmenn frið-
argæsluliðsins vöruðu þá við því að
herþotur Atlantshafsbandalagsins
kynnu að gera árás á hermennina
ef þeir tækju þátt í bardögunum.
Serbar gera sprengjuárásir
„Eftirlitsmenn Sameinuðu þjóð-
anna telja að stjórnarherinn sæki
nú ekki lengur fram... að því er
virðist vegna mótspyrnu Serba,“
sagði heimildarmaður innan friðar-
gæsluliðsins.
60 múslimskir hermenn féllu í
valinn í bardögunum á mánudag,
sem er óvenju mikið mannfall.
Víðtæk samvinna
Jerúsalem. The Daily Telegraph.
ARABAR og ísraelar lögðu í gær
til að tekin yrði upp víðtæk efna-
hagssamvinna til að renna styrkari
stoðum undir frið í Mið-Austurlönd-
um.
Tillaga þessi, sem lögð var fram
á ráðstefnu í Casablanca í Marokkó
um efnahagssamvinnu í Mið-Aust-
urlöndum og Norður-Afríku, gerir
ráð fyrir sameiginlegum þróunar-
banka og verslunarráði. Einnig var
lagt til að stofnað yrði sameiginlegt
ferðamálaráð.
ísraelar lögðu mikla áherslu á
fundinn og sat hálf ríkisstjórn
þeirra hann. Sögðu ísraelskir stjórn-
málamenn fundinn marka endalok
viðskiptabanns araba á þá.