Morgunblaðið - 06.11.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.11.1994, Blaðsíða 1
92 SÍÐUR B/C/D 254. TBL. 82. ÁRG. SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Framliðinn í framboði og annar í felum Boston. Morgunblaðið. ÞETTA er undarlegt kosningaár. Fram- bjóðendur ata hver annan auri, sveipa sig bandaríska fánanum, deila um kosti og galla hárieysis og hárprýði í pólitík og guma sig af því að hafa ekkert vit á stjómmáium. En þegar frambjóðendur hverfa sporlaust og framliðnir eiga sigur- inn vísan getur fátt komið lengur á óvart. Robert Garner sigraði í forkosningum repúblikana á Hawaii um framboð til Bandaríkjaþings 17. september en síðan hefur ekkert til hans spurst. Flokks- systkini Garners hafa leitað hans log- andi ljósi enda ekki seinna vænna að hefja kosningabaráttuna því að gengið verður að kjörborði á þriðjudag. Kunningjar Garners segja að hann hafi siglt á haf út á báti sínum. „Hann er hinn framúrskarandi óháði repúblik- ani,“ sagði Jared Jossem, frammámaður í Repúblikanaflokknum. Odell Huffman verður að öllum líkind- um endurkjörinn til setu á ríkisþinginu í Vestur-Virginíu enda vinsæll meðal kjósenda. Þetta væri svo sem ekki í frá- sögur færandi ef ekki vildi svo til að Huffman er ekki lengur í tölu lifenda. En nafn hans verður á atkvæðaseðlinum þótt hann hafi látið lífið í september og á þessari upplýsingaöld er talið að kjós- endur muni grípa til þess ráðs að merkja við nafnið sem þeir þekkja. Nema kjósendur hafi fengið svo mikla andúð á stjórnmálamönnum að þeir kjósi frambjóðendur til að gegna ekki embætt- um sinum. Sú er ailtjent von Mörthu Whitehead, sem sækist eftir embætti ríkisféhirðis í Texas. Hennar kosningaloforð er að leggja niður embættið og allar skrifstof- ur þess. „Færri skriffinnar, minni sóun og ég fer fyrst,“ segir Whitehead í sjón- varpsauglýsingu um leið og mynd af henni rennur út í eitt. ■ Martröð Clintons/14 Fergie leikur í Strandvörðum SARAH Ferguson, Fergie, hertogaynjan af Jórvík, býr sig nú undir að koma fram í sjónvarpsþáttunum „Strandverðir". Hefur hún samið við framleiðendur þátt- anna að þeir muni styrlya eftirlætislíkn- arfélag hennar, „Börn í vanda". Hún mun þó ekki koma fram á sundfötum. Þátturinn verður sendur út í apríl á næsta ári. Auk hertogaynjunnar kemur milljónamæringurinn Richard Branson, eigandi Virgin-samsteypunnar, fram í þáttunum. I þáttunum mun Branson lenda í sjávarháska og strandverðirnir bjarga honum. Hann mun að því búnu eiga samtal við Fergie í myndsíma. Harðnar á dalnum hjá hrossunum Morgunblaðið/RAX HROSSAEIGENDUR eru farnir að huga að heygjöf, enda vetur genginn í garð og farið að harðna á dalnum hjá úti- gangshrossum. Þáðu þau heyið með þökkum í fyrsta siyó vetrarins á suðvesturlandi en myndin er tekin við Akranes. The New York Times segir vopn flæða til Bosníu frá Króatíu Her múslima sækir að bænum Bosanska Krup Sarajevo, New York. Reuter. FRIÐARGÆSLULIÐAR Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sögðu í gær að harðir bardagar stæðu nú á milli stjórnarhers Bosníu og Bosníu-Serba um bæinn Bosanska Krup í norðvesturhluta Bosníu. Bærinn er á valdi Serba, sem verja hann af mikilli hörku. Segjast Bosníu-Serbar stefna að allsherjar herútboði, þar sem múslim- ar séu staðráðnir í að beijast áfram. Dagblaðið The New York Times sagði í gær að vopnasölubannið á Bosniu væri virt að vettugi. Króatar smíðuðu og settu saman allt frá skriðdrekum til MIG-21 orrustuþotna og að vopn flæddu til Bosníu frá eða í gegn- um Króatíu. Friðargæsluliðar SÞ kváðust óttast að mannfall yrði mikið í bardögunum um Bos- anska Krup og að stjórnarhernum myndi ganga erfiðlega að ná honum á sitt vald. Múslimar hafa sótt að bænum í tíu daga en hann er á mörkum Bihac-svæðis múslima. Herir múslima og Króata náðu borginni Kupres á sitt »vald í vikunni. Er hart barist suðvestur af Sarajevo en talsmenn SÞ segja múslima sækja fram að borginni Trovo en um hana liggur mikilvæg flutningaleið. Yfimaður hers Bosníu-Serba, Ratko Mladic, hótar múslimum því að ofbeldi muni færast í aukana í Bosníu, í viðtali sem birtist í Der Spiegel. Segir Mladic að múslimar kunni að „tapa öllu“ og að landamæri ríkjanna verði dregin upp með blóði. Mikið framboð vopna á svörtum markaði Að sögn The New York Times láta banda- risk yfirvöld sem þau viti ekki af umfangsm- iklum vopnaflutningum frá Króatíu til Bosn- íu. „Ég fæ það sem ég þarf,“ sagði varnar- málaráðherra Króatíu, Gojko Susak, í sam- tali við blaðið. Sagði ráðherrann að svo mikið framboð væri af vopnum á svörtum markaði, að væru þau fengin löglega, yrði það þrisvar sinnum dýrara. Líkti Susak vopnakaupum í Póllandi, Búlg- aríu og Rússlandi við kaup á opnum markaði og sagði að Króatar sæju stjórnarher Bosníu, sem aðallega er skipaður múslimum, fyrir sprengjuvörpum, og skotum í þær og aðrar tegundir skotvopna. Tsjúbajs fær stöðuhækkun Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti skipaði í gær umbótasinnann Anatolíj Tsjúbajs í embætti fyrsta aðstoðarforsætisráðherra. Hann hefur stýrt einkavæðingaráætlun stjórnarinnar. Skipun Tsjúbajs fylgir í kjölfar uppstokk- unar í stjórninni en tveir miðjumenn hafa látið. af embætti og landbúnaðarráðherra verið skipaður með stuðningi kommúnista. 10 Barnið mitter fíkill MARTRÖÐ CLINTONS VEDSKIPn AIVINNULÍF Á SUNIMUDEGI 20 HEPPNIOG ÚTSJÓNARSEMI FYRSTI FORSETINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.