Morgunblaðið - 11.11.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.11.1994, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjömsdóttir Afmæli Skjólgarðs Höfn - HALDIÐ var upp á 20 ára afmæli Skjól- garðs, elli- og hjúkrunarheimilis aldraðra á Horna- firði 6. nóvember sl. Nú er í sjónmáli mikil breyting á Skjólgarði eða þegar ný langlegudeild og fæðingardeild, sem hefur verið með aðsetur í Skjólgarðj, verður opnuð við heilsugæslustöðina hér í bæ. A myndinni má sjá Höllu Bjarnadóttur matráðskonu og Sigurlaugu Guðmundsdóttur vistmann sem báðar hafa verið á Skjólgarði í þessi 20 ár sem heimilið hefur verið starfrækt og séð margar breytingar á heimilinu á þeim tíma. Veruleg fækkun sláturfjár í Búðardal Saurbæingar slatruðu á Hvammstanga Búðardal - VIÐ haustslátrun hjá afurðasölunni í Búðardal voru 80 stöðugildi og gekk mönnun hússins vel. Meðalvigt dilka var nú 16,24 kg en 16,18 kg í fyrra. Sláturfjöldi var liðlega 23.000 hausar ef með er talinn sá íjöldi dilka sem slátrað var hjá Kaupfélagi V-Húnvetninga, Hvammstanga, vegna framleiðslu umfram greiðslu- mark. Sláturfjöldi í fyrra var 35.081. í fyrra var slátrað á vegum afurða- stöðvarinnar í sláturhúsi Kaupfélags Saurbæinga eða sem nam 8.500 dilkum. Ekkert var slátrað í slátur- húsi í Saurbæ í haust og því er um að ræða verulega fækkun á sláturfé í gegnum afurðastöðina í Búðardal. Fækkun sláturfjár hjá afurða- stöðinni í Búðardal orsakaðist fyrst og fremst af því að óuppgert var að fullu við bændur fyrir sláturtíð jafnframt því að samningar náðust ekki milli afurðastöðvarinnar og Saurbæjarhrepps um útfærslu slátrunar fyrir meirihluta bænda í Saurbæjarhreppi. Úr varð að Saurbæingar lögðu inn hjá Ferskum afurðum á Hvammstanga. Enn- fremur beindu flestir bændur af Snæfellsnesi og nokkrir í suðurdöl- um Dalasýslu viðskiptum sínum annað, aðallega til Sláturfélags Suðurlands við Laxá í Leirársveit og afurðasölunnar í Borgarnesi. Þeir aðilar sem lögðu inn í af- urðastöðina munu styrkja erfiða lausafjárstöðu fyrirtækisins með hlutafjárframlagi sem nemur 6% af innleggi til afurðastöðvarinnar í haust og 4% næsta haust. Dala- byggð hefur einnig aukið hlutafé sitt í félaginu þar sem félagið hefur verið næst stærsti vinnuveitandinn í héraðinu. Fleiri aðgerðir til að leið- rétta erfiða lausfjárstöðu félagsins eru fyrirhugaðar. í júlí sl. urðu framkvæmdastjóra- skipti hjá félaginu. ívar Ragnarsson flutti sig yfir til afurðasölunpar í Borgarnesi en við tók Gylfi Áma- son, áður innheimtustjóri hjá Olíu- verslun íslands hf. í Reykjavík. Morgunblaðið/Albert Kemp Bygging loðnuverks- miðjunnar hafin Fáskrúðsfirði - GÍSLI Jónatans- son, framkvæmdastjóri Loðnu- vinnslunar hf., tók á þriðjudag fyrstu skóflustunguna að nýrri loðnuverksmiðju á Fáskrúðsfirði. Verksmiðjan, sem staðsett er nokkuð utan við þorpið, kemur til með að geta brætt um 1.000 lestir af loðnu á sólarhring og gert er ráð fyrir því að hún taki til starfahaustið 1995. Vélarnar í verksmiðjunni, sem keyptar voru notaðar frá Japan, eru væntanlega nú á hausti kom- anda. Útboð hefur farið fram á jarðvinnu og er það fyrirtækið Vökvavélar á Egilsstöðum sem vinna fyrsta áfangann. Landsbankaútibúið á Akranesi 30 ára Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson ÞRIR starfsmenn Landsbankaútibúsins á Akranesi hafa starfað þar frá stofnun þess 1964. Á myndinni eru þau ásamt umdæmisúti- bússtjóra. F.v. Halldór Jóhannsson, Hrefna Sigurðardóttir, Ólafur I. Jónsson og Guðmundur Vilhjálmsson, umdæmisútibússtjóri. Ulpur og jakkar Ný sending Laugalæk, sími 33755 Akranesi - ÚTIBÚ Landsbanka íslands á Akranesi er 30 ára um þessar mundir og þessum merku tímamótum var fangað í útibúinu á sjálfum opnunardeginum 31. október sl. I tilefni þessara tíma- móta hélt bankaráð Landsbank- ans bankaráðsfund á Akranesi fyrir skömmu og bauð þá bæj- arbúum til móttöku til að minnast þessara tímamóta. Óhætt er að segja að útibú Landsbankans á Akranesi sé ungt, sé tekið mið af elstu útibúum hans á landsbyggðinni. Starfsemin hófst með yfirtöku Sparisjóðs Akraness hinn 31. október 1964. Sparisjóðurinn var á sínum tíma öflug lánastofnun með um 100 milljóna króna inmstæðu í spari- og veltuinnlánum. í upphafi var afgreiðsla bankans í húsakynnum Sparisjóðsins eða allt til ársins 1973, en þá var tekin í notkun glæsileg bygging sem stendur við Akratorg í hjarta bæjarins. Góður vöxtur hefur verið í starfsemi úti- búsins og hlutdeild í viðskiptum á viðskiptasvæði þess farið vaxandi. Fyrsti útibússtjóri Landsbank- ans á Akranesi var Sveinn Elías- son og gegndi hann því starfi til ársins 1977. Helgi Jónsson, núver- andi útibússtjóri á Akureyri, gegndi starfinu á árunum 1977- 1985. Guðmundur Vilhjálmsson er núverandi umdæmisútibús- stjóri bankans á Vesturlandi auk útibússins á Akranesi, en ný svæðaskipting útibúa tók gildi 1992. Undir Vesturlandsumdæmi heyra útibúin á Hellissandi, Grundarfirði, Ólafsvík og Króks- fjarðarnesi. 28 stöðugildi er nú í útibúinu á Akranesi og hafa þrír starfsmenn unnið þar alla tíð frá stofnun þess. Það eru þau Ólafur I. Jónsson, skrifstofustjóri, Hrefna Sigurðar- dóttir og Halldór Jóhannsson. Þau Ólafur og Helga störfuðu áður um skeið við Sparisjóð Akraness. Laugardaginn 12. nóvember kynnum við þér metsöluhugbúnaðinn AutoCAD ásamt AutoScetch og AutoCAD LT. Verið velkomin á einstaka laugardagskynningu. Opið frá kl. 10.00 til 14.00. AutoCAD er mest selda teikniforritið í heiminum. Tæknival Skeifunní 17 - Sími (91) 681665 - Fax (91)680664

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.