Morgunblaðið - 11.11.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.11.1994, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Ljúft er að láta sig dreyma um vetrarfrí í sólinni. LOTTÓ 5/38 gefur þér kost á að láta drauminn rætast! FRÉTTIR: EVRÓPA Forstjórar segja fjárfest- ingar í hættu Stokkhólmi, Ósló. Reuter. FORSTJÓRAR fjögurra stærstu útflutningsfyrirtækja Svíþjóðar rit- uðu í gær sameiginlega blaðagrein, þar sem þeir hvöttu Svía til að sam- þykkja aðild að ESB í þjóðarat- kvæðagreiðslunni á sunnudag. Segja þeir að ef aðild verði felld séu fjárfestingar í Svíþjóð í hættu. í greininni segja forstjórar fyrir- tækjanna Volvo, Ericsson, Stora og ABB að fyrirtækin fjögur áformi sameiginlega fjárfestingar upp á um 50 milljarða sænskra króna á næstu fímm árum. Ef aðild yrði felld væri aftur á móti hætta á að sænski markaðurinii yrði of ein- angraður fyrir þau og gáfu þar með í skyn að fjárfest yrði annars stað- ar en í Svíþjóð. Fyrirtækin standa á bak við um þriðjung útflutningstekna Svía og eru mjög háð ESB-markaðnum. Um 90% af sölu Volvo er til dæmis utan Svíþjóðar og um 53% á Evrópu- markaði. Jafnt Volvo sem Ericsson Nýjar reglur um vinnuvemd • VEGNA gildistöku samnings- ins um EES hefur Vinnueftirlitið endurskoðað gamlar reglur um vinnuvemd og bætt fjölmörgum nýjum við. Eftirfarandi reglur hafa þegar öðlazt gildi. • REGLUR notkun persónuhlífa (hlífðarfatnaðar og annars búnað- ar) kveða meðal annars á um skyldu atvinnurekanda til að láta þær í té og skyldu starfsmanna til að nota þær. Birtar eru leið- beinandi skrár um störf þar sem notkun hlífa er nauðsynleg. • REGLUR um öryggi ogholl- ustu þegar byrðar eru handleikn- ar kveða skýrt á um að atvinnu- rekandi skuli sjá til þess að starfs- menn komist hjá að handleika byrðar þannig að hætta stafi af. • REGLURum skjávinnunkú\ starfsmanna sem notatölvu a.m.k. tvo tíma á dag. Atvinnurekanda er skylt að gera úttekt á vinnuað- stöðu og meta áhrif hennar á starfsmenn, m.a. á sjón og líkam- lega og andlega heilsu. Allir vinnustaðir verða að uppfylla lág- markskröfur. • SAMKVÆMT reglum um háv- aðavarnirá vinnustöðum ogeftir- lit með heyrn starfsmanna skal hávaði vera undir 85 desibelum að jafnaði. hafa gefið út bæklinga þar sem afstaða fyrirtækjanna til Evrópu- sambandsaðildar er útskýrð. Stjómendur fjögurra stærstu pappírsfyrirtækja Svíþjóðar birtu einnig sameiginlega grein í síðustu viku þar sem þeir vöruðu við því að helsti keppinautur þeirra, Finn- land, yrði í betri aðstöðu ef Svíar höfnuðu aðild. Forstjórar nokkurra af stærstu fyrirtækjum Noregs, Statoil, Norsk Hydro, Norske Skog og Aker, rit- uðu einnig sameiginlega grein, sem birtist í blaðinu Aftenposten í gær. í grein norsku forstjóranna segir að ef Norðmenn greiði atkvæði gegn aðild muni það leiða til aukins óöryggis í norsku efnahagslífi. Einnig segjast þeir óttast að að EES-samningurinn verði of veik- burða ef einungis Norðmenn og íslendingar standa að baki honum EFTA-megin. Skoðanir Delors VIÐTALSBÓK við Jacqu- es Delors, forseta fram- kvæmdasljórnar Evrópu- sambandsins, sem rituð er af félagsfræðingnum Dominique Wolton var kynnt blaðamönnum í gær. I bókinni lýsir Del- ors lífsviðhorfum sínum og hefur útgáfa hennar ýtt undir vangaveltur um að hann bjóði sig fram í forsetakosningunum á næsta ári. Hann vildi þó ekki staðfesta það er hann var spurður um áform sín í gær. 700 Norðmenn til starfa í Brussel SJÖ HUNDRUÐ Norðmenn fara til starfa hjá stofnunum Evrópusam- bandsins í Brussel í janúar, sam- þykki þjóðin ESB-aðild í atkvæða- greiðslunni í lok þessa mánaðar. í Aftenposten kemur fram að skóla þurfí væntanlega starfsmenn í ESB-fræðum. Þeir þurfa líka að kynna sér siði og menningu hinna ESB-þjóðanna til að verða sér ekki til skammar í Brussel. „Við verðum að læra að allt tekur tíma, mjög langan tíma. Menn eru ekkert að flýta sér. Norðmenn hafa til dæmis þann óvana að leggja fram mála- miðlunartillögur strax á fyrsta fundi. Það gengur ekki; þá hafa menn ekkert að semja um,“ segir Einar Bull, embættismaður í utan- ríkisráðuneytinu sem sér um að ráða og þjálfa væntanlega emb- ættismenn ESB. Bull segir að verði ESB-aðild samþykkt, þurfi á fyrstu dögum janúarmánaðar að ráða í 20-25 stöðúr hátt settra embættismanna. í þær komi aðeins til greina fólk með mikla reynslu og menntun. En hvernig verður hinn dæmi- gerði norski „Evrókrati"? Bull segir að hann verði 27-35 ára, með há- skólapróf, helzt í lögfræði, stjórn- málafræði eða hagfræði, hafi lagt stund á háskólanám erlendis, a.m.k. í hálft til eitt ár, tali og skrifi reip- rennandi ensku og kunni frönsku eða hafi áhuga á að læra hana — franska sé málið, sem sé notað í kaffitímunum. 1 I t I N i í i i i i i i i i i i i i i ( i i li i i i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.