Morgunblaðið - 16.11.1994, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B/C/D
262. TBL. 82. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR16. NÓVEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þing Norðurlandaráðs í Tromso
ESB auki
baráttu gegn
atvinnuleysi
Talið að meirihluti óákveðinna í Nor-
egi muni greiða ESB-aðild atkvæði
Tromso, Ósló. Reuter.
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Norðurlandanna skoruðu í gær á Evrópusam-
bandið að gera baráttuna gegn atvinnuleysi að forgangsverkefni sínu.
Ráðherrarnir, sem sitja nú þing Norðurlandaráðs í Tromso, sendu Theo
Waigel, fjármálaráðherra Þýskalands, áskorun um að Evrópuráðið, sem
fundar í Essen, í Þýskalandi 9. og 10. desember nk., „komi Evrópu til
starfa" eins og segir í bréfi þeirra. Undirbúningur kosninganna um ESB-
aðild er nú hafinn fyrir alvöru, og settu deilur um aðild svip sinn á umræð-
ur um öryggis- og utanríkismál á þinginu.
Bréfíð til Waigel er talið ótvíræð
vísbending um að þau ríki Norður-
landanna, sem samþykkt hafa aðild
að ESB, muni leggja höfuðáherslu á
baráttuna gegn atvinnuleysi. Þá er
það talið liður í því að fá norska
andstæðinga ESB-aðildar til að láta
af ótta sínum við hrun velferðarkerf-
isins, gangi þjóðin í Evrópusamband-
ið. Kosið verður um aðild 28. nóvem-
ber nk.
Stuðningur við ESB eykst
Stuðningur í Noregi við aðild að
Evrópusambandinu hefur aukist í
38,3% ef tekið er meðaltal fjögurra
skoðanakannana sem gerðar hafa
verið frá því að ljóst var að Svíar
hefðu samþykkt aðild. Þá hefur fylgi
andstæðinga aðildar aukist um 0,7%,
er nú 47%, en óákveðnum hefur
fækkað úr 20,8% i 14,8%. Hyggjast
norskir fjölmiðlar birta skoðana-
kannanir um fylgi við ESB-aðild á
hveijum degi fram að kosningum.
„Þetta er greinileg jásveifla, sem
er nýtt en gerist í kjölfar kosning-
anna í Svíþjóð," sagði Henry Valen,
prófessor við Norsku rannsóknar-
stofnunina í félagsfræðum. Segir
hann mun fleiri af hinum óákveðnu
munu reynast fylgismenn aðildar
en andvígir henni en segist þó langt
í frá sannfærður um að það nægi
til þess að þjóðin samþykki ESB-
aðild.
Veldur ESB-aðild veikindum?
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, og Esko Aho, forsætisráð-
herra Finnland, gátu ekki sótt fund
Norðurlandaráðs vegna veikinda. Er
þetta varð ljóst, gall við í Davíð
Oddssyni, forsætisráðherra: „Um
leið og þeir ganga í Evrópusamband-
ið, verða þeir veikir.“
■ Þing Norðurlandaráðs/10-11
Reuter
Hátíðahöld í Jeríkó
PALESTÍNSKIR lögreglumenn sýndu fimi sína við hátíðahöld
í Jerikó í gær í tilefni þess að sex ár eru liðin frá því að Þjóðar-
ráð Palestínumanna í Alsír lýsti yfir stofnun Palestínuríkis.
Italía
Atök um
lífeyris-
kerfið
Róm. Reuter.
BOÐAÐ hefur verið til allsherjar-
verkfalls á Ítalíu 2. desember nk. til
að mótmæla fjárlagafrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar en þar er meðal 'ann-
ars þrengt að lífeyriskerfi ítalskra
launþega. Silvio Berlusconi forsætis-
ráðherra hefur farið fram á trausts-
yfirlýsingu þingsins vegna þessa og
verður hún tekin fyrir á þingi í dag.
Allsheijarverkfallið er svar verka-
lýðsleiðtoganna við þeirri ákvörðun
Berlusconis að fara fram á traustsyf-
irlýsingu vegna lífeyrisskerðingarinn-
ar en með henni er áætlað að spara
á næsta ári um 385 milljarða Isl.
króna. Verkalýðsfélögin efndu til
fjögurra klukkustunda allsheijar-
verkfalls vegna þessa 14. október sl.
-----» ♦ ♦-----
Tóbak skað-
legra konum
en körlum
London. Reuter.
REYKINGAR eru líklegri til að valda
lungnakrabba í konum en körlum.
Er það niðurstaða rannsóknar, sem
breskir og norskir vísindamenn stóðu
að, en þeir segjast ekki vita hvernig
á því standi.
Rannsóknin fólst meðal annars í
því að kanna DNA-erfðaefnið í 63
krabbameinssjúklingum og kom þá
í ljós, að það hafði orðið fyrir meiri
skaða í konunum.
Hún bendir einnig til, að í framtíð-
inni verði lungnakrabbi algengari í
konum en körlum.
Fundur Atlantshafsbandalagsins um átökin í Bosníu
Breiða yfir deilur
um vopnasölubann
Brussel, Sar^jevo. Reuter.
FULLTRÚAR aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins, NATO, ákváðu í
gær á fundi sínum í Brussel að haldið yrði sem fyrr uppi vopnasölubanni
á Bosníu enda þótt stjórnvöld í Washington taki ekki lengur þátt í að
framfylgja því. Hermálanefnd NATO mun hafa tjáð fundarmönnum
að ákvörðun Bandaríkjanna myndi litlu breyta um bannið í reynd.
Ákvörðun stjómar Bills Clintons forseta hefur valdið miklum áhyggjum
annarra bandalagsríkja og er sögð geta leitt til alvarlegrar misklíðar.
Bandarísk herskip, sem tóku þátt
í að framfyigja banninu, eru á brott
frá Adríahafi. Clinton forseti er nú
staddur í Indónesíu. Hann reyndi í
gær að róa bandamenn sína í NATO.
„Við bijótum ekki gegn vopnasölu-
banninu, við hlítum því. Það munum
við áfram gera,“ sagði forsetinn.
Meirihluti fulltrúa á Bandaríkja-
þingi telur að vopnasölubannið komi
fyrst og fremst Bosníu-Serbum til
góða en þeir réðu þegar í upphafi
átakanna yfir gnægð vopna og
fengu auk þess lengi vopn og skot-
færi hjá þjóðbræðrum sínum í Serb-
íu og Svartfjallalandi. Þingmenn
vildu að Bandaríkin beittu sér af
krafti fyrir því að ríki heims afléttu
banninu og fullyrti Clinton að stjórn
sín hefði fundið málamiðlun.
Claes til Washington
Willy Claes, framkvæmdastjóri
NATO, heldur í dag til Washington
þar sem hann mun ræða deiluna ,um
vopnasölubannið við háttsetta emb-
ættismenn. Bretar og Frakkar, sem
hafa léttvopnaða friðargæsluliða í
Bosníu, óttast um öryggi þeirra verði
banninu aflétt; talið er að Serbar
muni þá hefna sín á gæsluliðum.
Stjórnmálaskýrendur sögðu að þótt
reynt væri að breiða yfír ágreining-
inn í NATO væri ljóst að hann væri
mjög alvarlegur.
Barist af hörku í Bihac
Herir Sarajevo-stjórnarinnnar,
sem aðallega eru skipaðir múslim-
um, veijast enn Bosníu-Serbum af
hörku í Bihac-héraði. Stjórn Króatíu
hefur hótað að koma her múslima-
stjórnarinnar til hjálpar í Bihac en
ekki hefur orðið af því.
Svo mikill skortur er á hjálpar-
gögnum í borginni vegna umsáturs
Serba, að sjúklingar sem flytja þarf
á sjúkrahús verða sjálfír að útvega
bensín á sjúkrabílana.
Reuter
Kohl endurkjörinn kanslari
NEÐRI deild þýska þingsins end-
urkaus Helmut Kohl sem kanslara
Þýskalands til næstu fjögurra ára
í gær. Hann hefur verið kanslari
frá 1982. Náði Kolil kjöri í fyrstu
uinferð og hlaut 338 atkvæði af
672 eða einu meira en hann þurfti.
Gegn kjöri hans greiddu 333 þing-
menn atkvæði eða tveimur fleiri
en saineiginlegur þingmannafjöldi
stjórnarandstöðuflokkanna er.
MikiII viðbúnaður var þjá stjórn-
arflokkunum vegna kjörsins, tveir
veikir flokksmenn Kristilegra
demókrata voru fluttir í þinghúsið
og engu inátti muna að tveir stuðn-
ingsmenn Kohls kæmust í tæka
tíð, annar svaf yfir sig en hinn
tafðist vegna lestaróhapps. Þá
ákvað Kohl að fresta því að til-
kynna hverjir lilytu ráðherraemb-
ætti þar til á inorgun, fimmtudag,
til að koma í veg fyrir að vekja
reiði þeiiTa sem teldu sig eiga rétt
á þeim en fengju ekki. Á myndinni
tekur kanslarinn við blómvendi úr
hendi þingkonunnar Brigitte Bau-
meister en auk hennar fagna Klaus
Kinkel utanríkisráðherra og Al-
fred Dregger kjörinu.