Morgunblaðið - 20.11.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1994 5
FRETTIR
Síminn
80 ára í
Mýrdalnum
Fagradal. Morgunblaðið
í HAUST eru liðin 80 ár frá því
að síminn kom fyrst í Mýrdal.
Af því tilefni setti Póstur og sími
í Vík upp sýningu á gömlum sí-
matækjum á símstöðinni og voru
þau elstu frá árinu 1914.
A sýningunni mátti sjá athygl-
isverða þróun sem orðið hefur á
þessum áttatíu árum. Sigþór Sig-
urðsson símaverkstjóri hefur um
langt skeið safnað gömlum sím-
tækjum sem voru til sýnis og
fengið var að láni frá Byggða-
safninu í Skógum skiptiborð sem
notað var um langt árabil á sím-
stöðinni.
Talsímafélag stofnað
Upphaf símanotkunar í Mýrdal
má rekja til ársins 1914, en þann
13. nóvember stofnuðu nokkrir
áhugamenn um simamál Tal-
símafélag Mýrdælinga. Félagið
samdi við Svein Þorláksson,
stoðvarstjóra í Vík, um að annast
rekstur og umsjón símans.
Árið 1929 voru samþykkt á
Alþingi lög um einkasímafélag
samkvæmt áðurnefndum lögum
og var Einkatalsímafélag Mýr-
dælinga stofnað 22. apríl 1930.
Upp úr 1940 tekur svo Landsím-
inn yfir starfsemina og hefur
hann séð um símann siðan.
Frá upphafi fór öll símaþjón-
usta fram í einu herbergi í húsi
Sveins eða til ársins 1967 þegar
nýtt símstöðvarhús var tekið í
notkun. Sveinn gegndi starfi sím-
stöðvarstjóra í Vík til ársins 1956
en þá tók Helga dóttir hans við
starfinu og gegndi hún því tii 1.
desember 1980 þegar Guðný
Guðnadóttir, dóttir Helgu, tók
við af henni og hefur hún gegnt
því síðan.
♦ » ♦
Sviss
Islensk verk
á ljósmynda-
sýningu
Winterthur. Morgunbladið.
BÖRKUR Arnarson og Svanur
Kristbergsson eru meðal þátttak-
enda í norrænni ljósmyndasýningu
sem var opnuð í ljósmyndasafninu í
Winterthur í Sviss 18. nóvember sl.
Sýningin „Stranger than Paradise"
var fyrst sett upp í International
Center of Photography í New York.
Steven Henry Madoff, ritstjóri „ART
news“, valdi myndirnar. Hann sagði
í sámtali við Morgunblaðið að verk
Barkar og Svans hefðu orðið fyrir
valinu af því að þau væru óvenjuleg
og pössuðu vel inn í þema sýningar-
innar.
Madoff skoðaði verk eftir um 150
ljósmyndara þegar hann var að setja
upp sýninguna. Hann valdi úr verk
eftir tuttugu listamenn: fjóra Dani,
fimm Finna, tvo Norðmenn, sjö Svía
og tvo íslendinga, sem gera verkin
saman. Madoff vildi sýna átök ljós-
myndaranna við náttúruna, fjöl-
skylduna og sig sjálfa á sýningunni.
Börkur og Svanur eiga tvö verk,
Sár 1 og III, í Winterthur, sem falla
vel inn í náttúruhluta hennar. Það
eru eikarkassar sem eru rammar
utan um fjórar myndir. I öðrum er
röntgenmynd af fugli, ljósrit af
teikningu af fugli, fugl í kvoðu og
lítið ljóð; innyfli er höndlað á sama
hátt í hinum kassanum. Þriðja kass-
ann af sýningunni í New York vant-
ar. Hann fjallaði um fisk. Madoff
sagði að það væri eina verkið sem
hefur verið selt af listaverkunum
sem voru á sýningunni í New York.
Sýningin í Winterthur stendur til 8.
janúar.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
SIGÞÓR með elnn af fyrstu farsímum sem notaðir voru hér.
HELGA Sveinsdóttir fyrrv. símsljóri við gamalt skiptiborð.
getur
þú
valið
hvar þú kaupir þér brunatryggingu húseigna
Við hjá Tryggingamiðstöðinni önnumst brunatryggingar
þínar ásamt öllum öðrum tryggingum. Nánari upplýs-
ingar færðu hjá starfsfólki Tryggingamiðstöðvarinnar og
umboðsmönnum um allt land. Notaðu tækifærið og veldu
hvar þú tryggir húseign þína. Skilafrestur uppsagna er til
30. nóvember næstkomandi.
*
H:Með nvjum lögum um
brunatryggingar húseigna
(iðlast húseigendur rétt til
þess að ákveða hvar þeir
brunatryggja húseignir sínar
frá og með 1. janúar 1995.
TRYGGINGA
MIÐSTÖÐIN HF.
- þegar mest á reynir!
Aðalstræti 6-8,101 Reykjavík, sími 26466.
YDDA/SÍA F16.9