Morgunblaðið - 20.11.1994, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
HL BLAÐSINS
ÓVONAÍSVONA
0£Ý6E>O ,
O/uþEG/tRþc/ OJFTIEtJ
f‘r-\ (éq -Pann fann
þetta. icjotyujfp.. semnCK J
n/eifa'a iayJíaSfi mitt er
t>La.fury-ycÍ~, 'Otafur. A
.. hef bocðpZ táBthletf.
handraö ohhniltgu--
' heit ekfU cá nJOPP-
/v vxri mOMieqxS'Ot
Ferdinand
Kringlan 1 103 Reylgavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Curry- og Hart-
manlínur á Islandi
Frá Thord NeumiiUer:
ÞEGAR ég fann að forfeður okkar
höfðu tekið tillit til Gurry- og
Hartmann-Iína þegar þeir reistu
hús fór ég að rannsaka málið.
Hvers konar línur eru þetta? Við
vitum fátt um eðli þeirra annað
en að hægt er að finna þær með
aðstoð „slagrnta“ því miður er
ennþá ekki til mælitæki sem sýnir
þær eða mátt þeirra.
í Svíþjóð liggja Curry-línur Na-
Sv og Nv-Sa og mynda net með
ferningum sem eru rúmlega 4X4
m. Nafnið er dregið af Manfred
Curry, svissneskum lækni sem frá
um 1950 fann að eitthvað truflaði
heilsu okkar. Hartmann-línur liggja
N-S og A-V og mynda í Svíþjóð
net, þar ferhyrningar eru um
1,5X1,5 m á stærð. Þýskur læknir,
Ernst Hartman, fann um sama leyti
að einnig þessar línur væru heilsu-
spillandi.
í sumar, 30. júlí til 5. ágúst,
gafst mér tækifæri að ferðast á
Suðurlandi með Sigurð Þór Jónsson
sem fararstjóra.
Stöng
Fyrst, áður en ég kom að bæjar-
stæðinu, athugaði ég legu Curry-
lína. Síðan kannaði ég veggi gamla
bæjarins undir þakinu og ég fann
að veggirnir fylgja línunum. Rétt
innan við anddyrið, vinstra megin,
mótast Curry-línur. Til að sann-
prófa þetta bað ég bflstjórann að
aðstoða mig við tilraun, svonefnt
handleggspróf. Fyrst var reynt á
stað án truflana frá línum. Maður-
inn rétti handlegg beint út til hlið-
ar. Ég reyndi svo að þrýsta hand-
leggnum niður, en gat ekki. Mátt-
urinn var of mikill. Þá reyndum
við þetta í Curry-mótinu og eins
og oftast varð handlegguriíin mátt-
laus. Það eru einhver neikvæð áhrif
á líkamann á þessum línumótum.
Bílstjórinn varð undrandi yfir þessu
og ég fann að tilgáta mín var rétt.
Áttavitinn sýnir að línurnar fylgja
ekki sömu gráðum og í Svíþjóð.
Hústóftin á Stöng snýr þá alveg
eins, miðað við Curry-línur, og fon-
ar hústóftir í Svíþjóð til dæmis hjá
steinaldarfólki í Tingby, Smedby,
nálægt Kalmar, en það var uppi
fyrir um 8.500 árum.
Geysir
Eftir að hafa kannað hvernig
bæði línur Curry og Hartmanns
lægju fann ég að mót myndast í
miðju hinna stóru hvera, Geysis og
Strokks. Gæti það verið að þessar
línur skipti máli fyrir þynningu
jarðvegs?
Eignamörk
Mér gafst tækifæri að kanna
nokkra staði þar sem jarðeignir
mætast og þar voru staurar í
Curry-móti. Þannig er það í Svíþjóð
að fornu eignarmörkin mætast á
línu mótum. Af hveiju? Gæti þetta
hafa auðveldað mönnuð að sjá ef
merki höfðu færst til?
Sauðfé
Þá athugaði ég nokkra staði þar
sem sauðfé hafði hvílt. Þeir voru
ekki á neinum Curry-mótum. Þann-
ig er það einnig í Svíþjóð. Gömul
sögn segir enda að það sé rétt að
reisa hús þar féð hvílir, þar ætti
að vera mönnum hollt að lifa.
Önnur lönd
Sjálfur hef ég kannað hvernig
fornminjar og híbýli eru staðsett
og hvernig plöntur og dýr hegða
sér miðað við Curry- og Hartmann-
línur. Samsvörun finn ég bæði í
Egyptalandi, Zimbabwe, Skotlandi,
Orkneyjum og Kína, þar reyndar
er heitið Feng-Shui yfir etthvað
álíka og Curry- og Hartmann-kerf-
in. Feng-Shui eru mörg þúsund ára
gömul fyrirmæli sem notuð eru í
skipulagi bygginga.
THORD NEUMÚLLER,
Vevelstad Gárd,
S 640 33 Bettna, Svíþjóð,
Af hveiju stend ég hérna Svo að þú getir lært Og lært viðskipti Svo að þú getir
í rigningunni og bíð eftir að stafa og marg- og grætt mikla fóðrað hundinn
skólabílnum? falda brot. peninga. þinn.
A
Til Bragci Asgeirssonar
Frá Asgerði Búadóttur:
KÆRI Bragi!
Um leið og ég þakka þér góða
umsögn um sýningu mína í Lista-
safni íslands (Morgunbl. laugar-
daginn 12. nóvember), langar mig
til að leiðrétta
nokkrar mis-
sagnir sem þar
komu fram.
1. Þú segir,
„að það voru svo
handíðir, ekki
síst vefnaður,
sem á myrkum
öldum héldu
uppi listrænum
eiginleikum
meðal íslensku
þjóðarinnar". Því miður verð ég að
benda á, að alls enginn myndrænn
vefnaður er til frá fyrri öldum hér
á landi. Allt var það saumur.
2. Þú segir um verk mín, að þar
sé „fortíðin ræktuð af mikilli sam-
viskusemi...“. Þar sem um enga
fortíð myndvefnaðar er hér að
ræða, get ég heldur ekki ræktað
hana. Allur nútímavefnaður, sem
og minn, er ekki sprottinn úr hefð
fortíðar, heldur af nákvæmlega
sömu forsendum sem önnur mynd-
list á þessari öld.
3. I inngangi að umsögn þinni
talar þú um mikilfenglegan vefn-
að miðalda, „svo sem [í] hinum,
mikla Bayeux-refli“. Refillinn í
Bayeux er með útsaumi en ekki
vefnaði.
4. Líka nefnir þú „hið undur-
samlega veggteppi „Konan frá Lic-
orno“ í Cluny-safni. Þetta er ekki
einn vefnaður heldur myndröð sex
verka og heitir „La Dame á la Lic-
orne“, Konan með einhyrninginn.
Með kærri kveðju,
ÁSGERÐUR BÚADÓTTIR,
myndlistarkona.
Ásgerður
Búadóttir
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.