Morgunblaðið - 10.02.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.02.1995, Blaðsíða 22
22 B FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ UavlmtiriifliiUii HÚSARÖÐIN, sem byggð hefur verið. Frá vinstri stóð hús frú Herdísar Benediktsen, næst Hótel Reykjavík á lóðum tveggja húsa og svo „Syndikatið" út við Pósthússtræti. Smiðjan I kjölfar branans mfflda 1915 risu mörg slórliýsi Bruninn mikli 1915 eyddi mörgum bygging- um í miðbæ Reykjavíkur. Bjami Olafsson rekur hér sögu þeirra og þeirra bygginga, sem risu í þeirra stað og enn setja mikinn svip á miðbæinn. VEGFARENDUR hafa gott af að líta upp á göngu sinni og skoða skreytingu Reykjavíkurapóteks. EINHVER mesti eldsvoði sem orðið hefur hér á landi varð 1915 í Reykjavík. Hinn 25. apríl 1915 brunnu 10 hús til kaldra kola í Reykjavík, en þau stóðu við Austurstræti og Hafnarstræti. Eldurinn kom upp í Hótel Reykjavík, tvílyftu timbur- húsi með rishæð og kvistum sem stóð þar sem nú er Austurstræti 12a. Gengið var inn í hótelið frá Austurstræti en svalir sneru mót Austurvelli, í suð- urátt. Rögnvaldur Ólafsson húsa- meistari teiknaði hótelbygginguna sem var byggð 1910. Austan við hótelið, á hornlóð- inni, stóð átta ára gamalt hús sem kallað var „Syndikatið". Það var byggt að frumkvæði Einars Bene- diktssonar, tvílyft timburhús. Ekki er vitað með vissu hver teiknaði „Syndikatið“ en þak þess var bratt ris með kvistum á, en á myndum af þessu húsi vekur athygli að gluggarnir hafa heilar rúður stærri en áður tíðkaðist. A hominu hinum megin við Pósthússtræti stóð verslunarhús sem Thor Jens- en hafði rekið í byggingarvöru- verslun og nefnt Godthaab. Pétur Pétursso'n, kennari og síðar bisk- up, bjó lengi í því húsi. Eitt hús vestan við hótelið brann einnig, það var hús frú Herdísar Bene- diktsen. Norðanvert við Austur- stræti brunnu hús verslunar Egils Jacobsens og íbúðarhúá hans. Landsbankahúsið brann einnig mikið þótt steinhús væri. Við Hafnarstrætið sunnanvert brann Ingólfshvoll, steinhús, hús Gunn- ars Gunnarssonar kjötkaupmanns, bæði við Austurstræti og við Hafn- arstræti og verslunarhús Edin- borgarverslunarinnar. Þessi mikli eldsvoði varð tveim- ur mönnum að bana, þeim Guðjóni Sigurðssyni, eiganda Ingólfshvols, og Runólfi Steingrímssyni er vann á Hótel Reykjavík. Þeir brunnu báðir inni. Byggt stórhýsi Strax á næsta ári, 1916, var hafist handa við að byggja á God- haabs-lóðinni. Það var verslunar- félagið Nathan & Olsen sem fékk ungan arkitekt er var nýkominn heim frá námi í Kaupmannahöfn til þess að teikna húsið. Hann hét Guðjón Samúelsson og varð síðar húsameistari ríkisins. Bygging hússins hófst um vorið 1916 en það varð ekki fullgert fyrr en á næsta ári. Guðjón stundaði nám á listaháskóla í Kaupmannahöfn og ber hús þetta vott um húsagerð þessa tíma, það minnir um margt á svipuð hús í Kaupmannahöfn um og upp úr aldamótunum síð- ustu. Á margan hátt var mikið í hús- ið borið, enda þótt það væri byggt á styijaldartíma. Neðsta hæðin hefur háa bogadregna glugga og dyr og við norð-vesturhornið er bogadregin hvelfing sem hvílir á gildri sívalri súlu. Hið ytra eru veggir þessarar fyrstu hæðar mynstraðir með strikum og á skil- um fyrstu og annarrar hæðar er upphleypt skrautbrún. Á horninu yfir súlunni gengur höfuð út úr skrautbrúninni og er það högg- mynd eftir Einar Jónsson mynd- höggvara. Allmikið skrautverk er beggja vegna og upp af dyrum austast á norðurhlið hússins og á annarri hæð er sérstaklega skreyttur gluggi yfir þessum inn- gangi. Þakbrúnin yfir fjórðu hæð húss- ins er áberandi út fyrir vegglínu og þakið er hátt brotið þak með fjórum kvistum á norðurhlið og er hinn austasti með öðru lagi en hinir þrír, frá götuhæðinni og dyr- unum sem þar eru ganga upp- hleyptar brúnir upp að þakbrún og enda í kvistinum sem er eins og dálítill turn. Á vesturhlið þaksins eru sex kvistir og er hinn syðsti svipaðrar gerðar og sá á norðurausturhom- inu nema breiðari. Á miðri vestur- hlið hússins gengur dálítið út úr veggnum bogadregið karnap. Upp af því er svo mun stærri kvistur með steyptum framstafni og litlar svalir ofaná hinum útbyggða boga. Hátt turnþak gnæfir á framhorni hússins. Innandyra hefur verið töluvert um skraut og miklu til kostað. Stigarnir voru lagðir marmara á þrepum og pöllum og við aðalstigana í suðurenda húss- ins eru sjö höggmyndir eftir Guð- mund frá Miðdal, þær eru af áhrifamönnum úr verslunarsög- unni hérlendis. Gnæfir yfir Þetta háreista hús setur sterkan svip á gamla miðbæ Reykjavíkur í kvosinni. Upp af norðvesturhorni hússins gengur allhátt turnþak og gnæfir hærra en flest önnur hús. Það hefur þó verið enn meira áber- andi fyrstu árin eftir að það var fullbyggt því að þá gnæfði það svo hátt yfir öll önnur hús í bænum. Fyrst eftir byggingu þessa húss, Austurstrætis 16, var afgreiðsla Landsbanka íslands á fyrstu hæð- inni, á meðan endurbygging bankahússins fór fram, eftir brun- ann. Veitingastofa var þar 1924 til 1929. Frá 1930 hefur Reykjavíkur- apótek verið rekið þar. Bæjarskrif- stofur Reykjavíkur hafa verið á efri hæðunum frá því 1929. Þeir eru því margir bæjarstjórarnir og borgarstjóramir sem hafa haft skrifstofu embættis síns í þessu húsi en nú er því lokið. Fleiri hús Guðjón Samúelsson teiknaði einnig Hótel Borg sem byggt var svolítið sunnar við 'Pósthússtrætið 1928. Fara þau enda vel saman við Pósthússtrætið þessi tvö stór- hýsi en á milli þeirra skilur mun yngra hús í óskyldum stíl en hrein- legt. Þar sem „Syndikatið11 stóð var óbyggt til ársins 1928 að byggt var hús það sem enn stendur við Austurstræti 14. Það er fjögurra hæða verslunar- og skrifstofuhús sem Erlendur Einarsson húsam- eistari teiknaði. Verslunarhúsin nr. 12 og 12a standa á lóðinni þar sem Hótel Reykjavík stóð fyrir brunann mikla. Árið 1920 byggði Margrét Zo- éga hús á lóðinni nr. 12a við Aust- urstræti. Jens Eyjólfsson bygg- ingameistari teiknaði fyrir hana fjögurra hæða hús á þessa lóð. í mörg ár vom ekki byggðar nema tvær hæðir þessa húss en 1970 var það byggt í núverandi hæð. Hinn hluti lóðar Hótels Reykja- víkur, Austurstræti 12, var seldur Stefáni Gunnarssyni skókaup- manni 1928 og byggði hann þar fjögurra hæða verslunar- og skrif- stofuhús eftir teikningum Péturs Ingimundarsonar byggingameist- ara. Hús á næstu lóð þar vestanvið, nr. 10, hús Herdísar Benediktsen, brann einnig og var sú lóð óbyggð til ársins 1930 er Richard Braun kaupmaður reisti þar hús sem Þor- leifur Eyjólfsson byggingameistari teiknaði. Það átti að verða fjórar hæðir en urðu aðeins tvær þar til tólf árum seinna. Norðurhlið Austurstrætis Norðanvert við Austurstrætið brunnu hús til grunna í stórbrun- anum 1915. Austurstræti 7 teikn- aði Guðjón Samúelsson, hús Egils Jakobsens nr. 9 teiknaði Jens Eyj- ólfsson en það átti að verða hærra eða fjórar hæðir. Við Hafnarstræti 10 var aftur byggt stórt steinsteypt hús eftir brunann. Teiknað af Einari Er- lendssyni húsameistara. Það- var nefnt Edinborgarhúsið, eftir versl- uninni þar. Ingólfshvoll sem stóð á hornlóðinni við Pósthússtræti stóð uppi eftir brunann og var gert upp. Það hafði verið byggt 1902. Lands- bankinn lét rífa Ingólfshvol 1969 og byggja þar nýtt hús. Bruninn 1915 eyddi stórum hluta af miðbænum sem þá var og voru sum húsin sem brunnu aðeins fárra ára gömul, eins og fram kem- ur hér að framan. Það er sannar- lega einkennileg tilhugsun að hugsa sér brunasvæðið rústir einar og ösku þar sem aðeins standa uppi Landsbankahúsið og Ingólfs- hvoll. En gamli miðbærinn hefur aðdráttarafl og mörgum finnst líf vera aftur að færast þangað. Heimildin Árbækur Eekjavíkur, Kvosin, bðk e. Guðm. Ingólfsson, Guðnýju G. Gunn- arsdóttur og Hjörleif Stefánsson, teikn. hjá byggingafulltrúa. eftir Biarna Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.