Morgunblaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 8
8 B LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ KOSNINGAR 8. APRÍL Goðsögnin um tveggja flokka ríkissljóni EITT helsta áhersluatriði Sjálf- stæðisflokksins í kosningabaráttunni er goðsögnin um tveggja flokka ríkis- stjóm. Þar er gefið í skyn að forsenda réttlátra og skynsam- legra stjórnarhátta sé í því fólgin að tveir og ekki fleiri en tveir stjórnmálaflokkar sitji saman í ríkisstjórn. Viðeyjarskotta er tveggja flokka sljórn Það er eins og það gleymist nú í hita leiksins að hér situr einmitt tveggja flokka ríkisstjórn. Ríkis- stjórn sem meirihluti þjóðarinnar vill að fari frá. Ríkisstjórn sem meira að segja meirihluti þing- flokks Sjálfstæðisflokksins vill að fari frá. Það er ekkert í störfum núverandi ríkisstjórnar sem gefur -íólki einhveija vísbendingu um að trygging fyrir ábyrgum og réttlát- um stjómarháttum á næsta kjör- tímabili sé tveggja flokka stjórn. Heldur þvert á móti. Sú tveggja flokka ríkisstjórn sem nú situr hefur meira minnt á tíu flokka ríkisstjórn heldur en tveggja flokka. Ráðherrar opinbera sund- urlyndið og ósamkomulagið í fréttatíma eftir fréttatíma þar sem þeir ráðast hver að öðmm og skipt- ir þá engu hvort það er innan fiokka eða milli flokka. Ósam- komulagið er á öllum sviðum nema einu og það er að sitja og það hefur þeim tekist. Kjörtímabilinu er lokið og þjóðin ásamt meiri- hluta þingflokks Sjálfstæðis- flokksins bíður spennt eftir því að ný ríkisstjóm taki við. Þjóðvaki er ekki stjórnarandstöðu- flokkur Miðað við nýjustu skoðanakannanir er það alveg í járnum hvort núverandi ríki- stjórn heldur meiri- hluta sínum eða hvort stjórnarandstaðan nær meirihluta. Þar spilar framboð Jó- hönnu talsvert mikið inn í. Það er ekki hægt að tala um framboð Þjóðvaka sem framboð stjórn- arandstöðunnar þar sem eini þingmaður flokksins var ráð- herra í þeirri ríkisstjórn sem þjóðin öll er fyrir löngu farin að Tveggja flokka ríkis- stjóm er að mati Osk- ars Bergssonar engin forsenda fyrir stöðugu stjórnarfari. Dæmin úr núverandi ríkisstjórn sanni það. bíða eftir að fari. Meira að segja Jóhanna gat ekki lengur beðið, hún var alveg búin að fá nóg eins og reyndar öll þjóðin. Óþolið hjá Jóhönnu gagnvart ríkisstjórninni hefur orðið meira og meira áberandi eftir að hún hætti sem félagsmálaráðherra. Þjóðvaki feinn flokka hefur lýst því yfir að hann útiloki samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og kemur það að mörgu leyti talsvert á óvart, því að á meðan Jóhanna sat í ríkisstjórninni var Davíð sá eini sem hún gat orðið talað við á stjórnarheimilinu. Það var ekki út af Davíð og Sjálfstæðisflokkn- um sem Jóhanna fór úr ríkis- stjórninni. Það var vegna þess að hún gat ekki unnið með einum manni, Jóni Baldvin Hannibals- syni. Samt sem áður nú, níu mánuðum seinna, útilokar Jó- hanna samstarf við Sjálfstæðis- flokkinn en ekki samstarf við Jón Baldvin. Ríkisstjórn stj órnarandstöðuf lokkanna í þessum kosningum sem öðr- um ganga flokkarnir óbundnir til kosninga að Þjóðvaka undan- skildum. Þrálát umræða hefur verið um það að Sjálfstæðisflokk- ur og Framsóknarflokkur verði í næstu stjórn og hafa reyndar aðrir flokkar minnt á sig í hugs- anlegu samstarfi við Sjálfstæðis- flokkinn. Enda ef svo fer frám sem horfir að Sjálfstæðisflokkur- inn fái á bilinu 35-40% í kom- andi kosningum þá getur hann valið sér samstarfsflokk nokk- urnveginn að vild. Formaður Framsóknarflokksins hefur marglýst því yfir að hann vilji reyna að koma á ríkisstjórn þeirra flokka sem nú eru í stjórnar- andstöðu. Hann hefur lýst sig reiðubúinn til að veita slíkri stjórn forystu. En hann hefur einnig bent á það grundvallaratriði að til þess að slík ríkisstjóm geti orðið verða stjómarandstöðuflokkarnir á Al- þingi að vinna kosningasigur í vor. Vonum að svo verði. Ég mæli með xB. Höfundur er formaður FUF í Reykjavík. Óskar Bergsson Það sem máli skiptir STJÓRNMÁL snúast einkum LtMi tvenna hluti, þ.e. trúverðug- leika og árangur. Trúverðugleiki byggist á því að stjórnmálaflokk- ur hafi skýra stefnu í landsmál- um, .styrkleika til að hrinda. stefnumálum sínum í framkvæmd og trausta forystu til að standa af sér ýmis pólitísk moldviðri og allar þær stórhættulegu skamm- tímalausnir sem bjóðast til lausn- ar erfiðum pólitískum viðfangs- efnum. Árangur er mælikvarði sem kjósendur eiga að nota þegar til þeirra kasta kemur að velja sér landsstjórn því með verkum stjóm- málaflokkanna verða þeir dæmdir. ■A'yósendur verða því að leggja mat á hvort stefnumál flokkanna hafi náð fram að ganga og hvort ár- angurinn hafi lagt grunn að betri framtíð landsins. Það er því mikilvægt að fólk skoði stefnuskrár flokkanna fyrir þessar kosningar og athugi hvort styrkleiki flokkanna gefi það til kynna að stefnumið þeirra nái fram að ganga á næsta kjörtímabili. I mínum huga stendur valið um tvennt í þessum kosningum. Valið stendur um þriggja eða fjögurra d'ijókka vinstristjórii eða um tveggja flokka ríkisstjórn með þátttöku Sjálfstæðisflokksins og undir forystu Davíðs Oddssonar. Við þekkjum öll sögu síðustu rík- isstjórnar sem samanstóð af Framsóknarflokki, Alþýðubanda- lagi, Borgaraflokki og Alþýðu- flokki. Sú ríkisstjórn var stofnuð af hræðslu við Sjálf- stæðisflokkinn og hún afrekaði það að hverfa aftur til pólití- skrar hentistefnu við stjórn landsins þar sem sjóðasukk og of- stjórn stjórnmála- manna átti að leysa landið úr viðjum efna- hagskreppunnar. Árangur ríkisstjórnar Steingríms Her- mannssonar var því sögulegur því hún dýpkaði efnahags- kreppuna og olli því atvinnuleysi sem hér ríkir í dag. Ofsköttun á einstakl- inga og fyrirtæki rýrði lífskjörin og dró þrótt úr íslensku atvinnu- lífi. Þetta fyrrum ríkisstjórnarfyrir- komulag getum við auðveldlega Valið í kosningunum stendur milli Sjálfstæð- isflokksins, segir Guð- laugnr Þór Þórðar- son, og fjögurra flokka vinstri stjórnar. kosið aftur yfir okkur. Við getum kosið yfir okkur vinstriflokkana sem í nokkur ár hafa reynt að sameinast en ekki tekist það sök- um djúpstæðs póli- tísks ágreinings og leitt forystumenn þessara flokka til valda sem allir hafa lýst því yfir að þeir séu hentugastir til að leiða nýja vinstri- stjórn. Enginn sem hefur áhuga á því að horfast í augu við raunveru- leikann vill kjósa svona vinstri óskapn- að yfir sig. Vinstri flokkarnir hafa hvorki sýnt. trúverðugleika né árangur með störf- um sínum en það hefur Sjálfstæð- isflokkurinn gert. Ríkisstjórn Dav- íðs Oddssonar hefur snúið vörn í sókn í baráttu sinni við eina mestu efnahagskreppu Islandssögunar. Því er kosið um hvort áfram skuli haldið á sömu framfarabraut und- ir styrkri forystu Sjálfstæðis- flokksins með Davíð Oddsson við stýrið eða stjórnleysi margflokka vinstri stjórnar undir forystu þriggja eða fjögurra sjálfskipaðra sameiningartákna félagshyggju- aflanna á Islandi. Valið er því skýrt. Við skulum vera þess minnug að kosið er um framtíð okkar allra þann 8. apríl næst komandi og skora ég á þig, lesandi góður, að kjósa vor en ekki vinstra hret. Höfundur er formaður Sambands ungra sjálfstœðismanna. Guðlaugur Þór Þórðarson Peningar af himnum? Síðastliðinn laugar- dag birti ég grein með spurningunni hvort velferðarkerfið væri að gera alla jafn fátæka. Síðan hef ég rætt við margt fólk, sem segir sínar farir ekki sléttar vegna skattlagningar. Mun ég koma að því hér á eftir. Ögmundur Jónas- son sér sig knúinn til þess að svara þessari grein og býður mér til málfundar um velferð- arþjónustuna. Tek ég því fagnandi og er greinarstúfur þessi innlegg í þá umræðu. Ögmundur gerir mér og þjóðinni upp allskonar skoðanir. Hann segir mig vilja hverfa frá þeirri hugsun sem velferðarkerfið er byggt á. Þetta er ekki rétt. Ég varpaði ein- ungis fram spurningum. Ég vil forða velferðarkerfinu frá hugsan- legu skipbroti. Ef velferðarkerfið verður of víðtækt og sífellt færri og færri eigi að standa undir því með sífellt hærri og hærri sköttum muni það sliga efnahagslífið. Það er betra að rýja rolluna en flá hana. Vill þjóðin meiri skatta og meiri velferð? Ögmundur segir þjóðina vilja öfluga velferðarþjónustu og vísar til margs konar kannana. Þegar spurt er hvort menn vilja fá nýtt elliheimili eða nýtt barnaheimili er þess ætið gætt að geta þess ekki hvemig dýrðin skuli borguð. Fólk vill að sjálfsögðu fá ókeypis þetta og hitt. En ef þess væri getið í leiðinni að fólkið ætti að greiða fyrir þetta með nýjum og auknum sköttum er hætt við að tvær grím- ur rynnu á marga. Ef fólk væri spurt hvort það vildi lægra vöru- verð með lækkun virðisaukaskatts eða lægri tekjuskatta jafnvel þó það bitnaði að einhveiju leyti á félagslegri þjónustu er ég sann- færður um að margir mundu svara öðruvísi. Fólk er í auknum mæli farið að átta sig á því að það borg- ar sjálft fyrir velferðarkerfið. Pen- ingunum rignir ekki af himnum! Minnkandi fjárfesting - atvinnuleysi Þess sjást þegar merki að at- vinnulífið sé að sligast undan skött- um. Fjárfesting hefur minnkað hættulega mikið og jafnvel svo að við íslendingar erum að afskrifa vélar og verksmiðjur, sem veita okkur atvinnu, meira en sem nem- ur ijárfestingunni. Afleiðingin er aukið atvinnuleysi, sem er atvinnu- leysingjum mikið böl og kostar þjóðina allt of mikið. Þessu þarf að snúa við. Við verðum að örva vilja fyrirtækja og einstaklinga til að fjárfesta í atvinnulífinu með •lægri skattheimtu til þess að vinna bug á atvinnuleysisvofunni. Og við verðum að örva frumkvæði og dugnað einstaklinga í stað þess að drepa hvort tveggja með of háum sköttum. Skattbyrði launafólks Undanfarið hef ég hitt margt launafólk, sem kvartar sáran undan þungri skattbyrði. Menn geti sig ekki hreyft. Sumir sögðust hafa haft það fjárhagslega best meðan þeir voru í námi. Ef menn leggja á sig yfir- vinnu fer stór hluti launanna í skatta. Skattbyrði er slík að menn, sem hafa háar tekjur, segjast ekki hafa efni á því að fara i bíó. Yngra fólk talar um að yfirgefa skerið. Erum við að flæma fólk í burtu? Allt er orðið tekju- og eignatengt. Vaxta- bætur, barnabótar- auki, meðalakostnað- ur, námslán og húsa- leigubætur. Eins og fólk sé ekki búið að borga skatta af tekjum sínum og eignum. Sýnu verst __ er almannatrygg- ingakerfið. Áratuga iðgjalda- greiðslur gefa lítið sem ekkert í aðra hönd. Spurning mín er hógvær. Getur verið að við höfum gengið of langt á þessari braut? Getum við hagr- ætt meira í velferðarkerfinu? Hver passar upp á kostnaðinn þegar fólk greiðir lítið sem ekki neitt fyrir Er gætt þeirrar spar- semi og ráðdeildar hjá ríkinu, spyr Pétur H. Blöndal, sem við þurf- um að gæta heima hjá okkur? opinbera þjónustu, t.d. sjúkrahús- vist og skólagöngu og veit ekki einu sinni hvað hún kostar? Er gætt þeirrar sparsemi og ráðdeild- arsemi, sem við þurfum að gæta heima hjá okkur? Nokkur svör Ögmundur spyr hvað ég eigi við með því að sá sem njóti velferðar- þjónustunnar megi aldrei bera meira úr býtum en sá sem greiðir hana með sköttum sínum. Velferð- arkerfið er tekjujöfnun. Það þarf að gæta þess að tekjujafna ekki um of, þannig að sá sem fær t.d. bætur frá félagsmálastofnun sé betur settsiy en verkamaður, sem er skattlagður til þess að greiða bæturnar. Þetta er því miður orðið of algengt og dregur verulega úr vilja manna til þess að leggja sig fram. Ögmundur spyr hvort ég vilji láta ríkið hætta þátttöku í dýrum læknisaðgerðum. Það nefndi ég hvergi í grein minni og verð ég að kreija Ögmund um að lesa ekki meira út úr orðum mínum en ég segi og gera mér ekki upp skoðan- ir. Hins vegar spyr ég á móti hvers vegna ríkið borgi mér ekki tjónið ef ég klessukeyri bílinn minn? Eða ef ég tapa aleigunni vegna fjárfest- inga í áhættusömu atvinnulífi? (Fjárfestingu, sem skapar störf!) Mundi fólk ekki hafa sömu fyrir- hyggju gagnvart sjúkrahúsvist og þegar það kaskótryggir bílinn sinn? Tryggja sig hjá tryggingafélagi. Eða erum við fyrirhyggjulaus börn sem ríkið verður að hafa vit fyrir? Höfundur er stærðfræðingur og skipar 8. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Pétur H. Blöndal * * \WREVF/£Z/ 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.