Morgunblaðið - 23.04.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.04.1995, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Óhlutbundin viðhorf i Z3 Kristján Guðmundsson: Brotinn sjóndeildarhringur, 1993. Kalkipappír 240x570 sm. MYNPLIST Kjarvalsstaðir ÍSLENZK ABSTRAKTLIST -ENDURSKOÐUN. Opið frá 10-18 alla daga til 7. maí. Aðgangur 300 kr. Sýningarskrá 1600 kr. SÝNINGIN „íslenzk abstraktlist - endurskoðun" í vestursal Kjarvals- staða vekur öðru fremur upp ýmsar vangaveltur um stöðu íslenzkra nú- lista. Það er sitthvað sem breytt hefur um merkingu í ræðu og riti í áranna rás og þannig hefur hugtakið „ab- strakt“ mikið til verið afmarkað við ákveðna tegund myndlistar eftir- stríðsáranna, þótt allri list sem al- menningur skilur ekki gefi hann þetta samheiti. Síður ber að rugla hugtakinu við hinar byggingarfræði- legu listhugmyndir svonefndra kons- trúktívista, svo sem rússanna Tatlin, Malevitch Gontcharovu og Laironoff. Og þó að í eðli sínu sé alveg rétt að nefna óhlutlæga list abstrakt, koma einnig fram sértækar eigindir í ýms- um gerðum hlutlægra mynda eins og allir málarar vita. Og „impressi- on“ kemur t.d. fram í málverkum 200 árum áður en nafnið varð að Hstastefnu og sérstöku hugtaki, eins og viðurkennt er, og ég hef áður bent á í skrifum mínum. Og á iíkan hátt hefur hugtakið „módernismi" í höfuðdráttum ein- skorðað sig við ákveðið tímabil í list Parísarskólans þótt svo að upphaf hans sé að finna í Katalóníu, eins og öli uppsláttarrit fræða forvitna um. Þannig tala menn um post-módem- isma og jafnvei post- post-módem- isma er visað er til þessa tímabils líkt og að módemisminn hafi verið ákveð- in listastefna eða stílbrot á afmörkuðu tímaskeiði, og við em komnir að þeim endamörkum og vegamótum að mód- emisminn er fordæmdur og fram kemur and-módemismi og allt sem tengist módemismanum er víða orðið skammarorð me"ðal ungra listspíra. Það væri svo alveg eins hægt að nefna þessa sýningu „Módemismi - endur- skoðun, því strangt til tekið var með módemismanum auðvitað átt við nú- tímann, ný og fersk viðhorf, eins og aliir vita, og telst það nokkur öfugþró- un að vera andsnúinn slíku og gera þau stefnumörk að núlistum dagsins. Framfarasinnuð viðhorf í Iistum geta menn svo náttúruiega ekki alfarið einangrað við ákveðið tímabil, því ást dagsins í dag er önnur en ást morgun- dagsins. Teldist jafn rétt sem rangt í þeim fræðilega hugmyndavaðli og útlistunarleikfími sem eru einkenni ýmissa seinni tíma kenningasmiða, sem hafna i senn fortíðinni sem fm- meigindum sköpunarverksins og jafn- framt öllu samanlögðu tilfinninga- sviðinu. Það kemur manni þannig spanskt fyrir sjónir, og telst nokkuð loðið og misvisandi, að nefna sýning- una að Kjarvalsstöðum „íslenzk ab- straktlist - endurskoðun", því að hún rís í eðli sínu hvorki undir því nafni í umræðu dagsins né að það geti kallast heppileg og fullkomlega rétt skilgreining á því sem valið hefur verið á veggina. Jafnframt er valið mjög einstrengingslegt og gefur mjög óskýra hugmynd um það sem gerst hefur frá blómaskeiði stefnunnar á fimmta og sjötta áratugnum og allt þar til hugmyndafræðilega listin skyggði á hana um stund. Þegar sýningin „Islenzk abstraktl- ist“ á sama stað um árið reyndist afar sundurlaus og ómarkviss fram- kvæmd, þar sem reynt var að troða sem flestu undir hugtakið á síðasta snúningi, er þessi líkt og hin fyrri í hnotskum. Með þeim formerkjum þó, að nú vantar margt sem hefur verið að þróast á undanförnum árum. Hugtakið abstrakt og abstraksjón ná yfir víðara svið en einungis óhlut- bundna list, og þannig greindu menn sértæk viðhorf í málaralist fyrir síð- ustu aldamót og menn tala um að „abstrahera" í myndverki, sem þó telst hlutlægt. Þá er ekki verið að endurskoða íslenzka abstraktlist í Ijósi þeirra Svavars Guðnasonar og Þorvaldar Skúlasonar, sem báðir byggðu upp á ríkri tilfínningu fyrir íslenzkum veruleika, þrátt fyrir náin tengsl við erlenda strauma. Mun frekar er ver- ið að vísa til listrænnar hreinræktun- ar í takt við fjarstýrðar erlendar fyr- irmyndir og án tengsla við landið og þróun íslenzkrar abstraktlistar, svo sem hún er skiiin og meðtekin af málurum. Jafnframt er verið að upp- hefja list sem „firrt er öllum tilfinn- ingum“, þó manni sé spurn hvort sitthvað sem haldið er fram í for- mála, sem skarar kímni og ýmsar hliðar skynsviðsins vísi ekki einmitt til lífrænna kennda? Nýjar uppgötvanir seinni ára á sviði vísinda hafa á nákvæmlega sama hátt haft áhrif á núlistamenn, og merkar tæknilegar nýjungar og áður óþekktar hugmyndir gerðu í upphafi aldarinnar. Þær hafa svo ekki síður kollvarpað fyrri hugmynd- um og aukið sjálfstæði myndlistar- manna, sem nú hafna í auknum mæli að vera taglhnýtingar kenn- ingasmiða á borð við Michael Seup- hor, André Bloc og Leon Degand eftir stríð, en byggja á sjálfstæðri reynslu líkt og listamennirnir gerðu, studdir af hugmyndaríkum rithöf- undum. gagnrýnendum og listhöndl- urum. En nú hefur ný kynslóð sýn- ingarstjóra og listheimspekinga ruðst fram og gerir kröfu til að hafa frumkvæðið með þeim árangri að listin er orðin að kaldri tilfinninga- lausri stærðfræði annars vegar, og taumlausu siðleysi hins vegar, sem hvorutveggja er fært í háleitan heim- spekilegan búning. I ljós hefur komið, að mannslíkam- Ragna Róbertsdóttir: Án titils, 1995. Blekteikning á skilrúm. 125x125 sm. inn leysir fyrrum óleysanlega reikn- ingsþraut og er þannig fullkomnasta „geometría" jarðarinnar, og að hinn mesti miskilningur var að hafna fíg- úrunni í myndlist, þótt það kunni að hafa haft tilgang á afmörkuðu tíma- skeiði. Þá hafa menn komist að því að jafnvel hinn veikasti gróður hefur tilfínningar og skynsvið, sem gerir honum kleift að lifa af og verja sig gegn ýmsum plágum er á herja. Grasið undir fótum okkar hefur þannig jafnvel minni, sem fyrrum hefði þótt mikil býsn og firra að halda fram. Það hefur líka verið bent á, að hin örfáu frumform sem allt þekkjanlegt byggist á eru síbreytileg í umhverf- inu og að hið hlutlæga er þannig í frumeðli sínu abstrakt. Myndir þær sem t.d. Caspar David Friedrich (1774-1840) málaði, er ekki unnt að mála lengur nema með því að „impro- visera", því að ómengað landslagið er ekki lengur til. Náttúran er í stöð- ugri mótun líkt og himingeimurinn allur, en að baki eru mjög rökvís og fullkomin öfl, sem manninum hefur ekki enn tekist að skilgreina til fulls. List sem byggist á tilfínningum og getur verið í senn blíð og grimm sækir nú í sig veðrið svo sem sjá má í listsölu heimsborganna hvað sem prédikað er á útjöðrum heimsins, og sækir visku sína í menningarlegar hliðargötur og listpólitísk öngstræti. Útilokað er að hægt sé að afskrifa tilfinningasviðið og vísað skal til, að guðfaðir súrrealistanna, André Bre- ton, sagði eitt sinn: „Það þarf að takmarka listina við einföldustu form hennar, sem er kærleikur. Það þýðir að allt sem er óekta er ijarlægt uns ekkert er eftir nema sjálfur lífskraft- urinn, tilvist mannsins." Ég nefni þetta hér vegna þess, að hinn sértæki heimur súrrealismans getur alveg eins talist „abstrakt" og t.d. geometrísk form í ljósi skilgrein- ingar Gunnars Kvarans. Rétt telst að á sýningunni að Kjarvalsstöðum er um óhlutbundið myndmál að ræða, og abstrakt vísun svo sem hún var skilin og meðtekin hér áður fyrr kem- ur fram í myndum Daníels Magnús- sonar, Erlu Þórarinsdóttur og Þóreyj- ar Jónsdóttur. Hins vegar er mun meira af humyndafræðilegri list, sem einmitt tók afstöðu gegn abstrakt tjáningu, í myndverkum Haralds Jónssonar, Ingólfs Amarssonar, ívars Valgarðssonar, Kees Visser, Kristjáns Guðmundssonar, Kristjáns Steingríms Jónssonar, Rögnu Ró- bertsdóttur, Ráðhildar Ingadóttur, Sigrúnar Ólafsdóttur, Svövu Bjöms- dóttur og Tuma Magnússonar. Gunn- ar hefur látið svonefnt „formleysis- málverk", sem er misvísandi nafngift á óformlegri myndtjáningu í fijálsri mótun, og það sem hann nefnir á frekar niðrandi vísu „landslagsab- straktmálverk" sem hann jafnframt segir „að nokkuð hafi borið á hér á landi á síðustu misserum" liggja á milli hluta. Dæmir þar með úr leik. Ekki veit ég hvernig Gunnar fer að því að skilgreina allt tímabilið frá Svavari og Þorvaldi sem nokkur misseri, en það er í ætt við ýmsar aðrar skilgreiningar hans, sem ég á afar erfítt með að meðtaka fyrir hönd íslenzkrar samtímalistar. í sjálfu sér er þetta fullgild sýn- ing, sem sækir hugmyndir áratugi aftur í tímann eins og svo margt sem stífast er haldíð fram af róttækum sýningastjórum austan hafs og vest- an nú um stundir. Þannig séð er hún fullgild rannsókn á möguleikum óhlutbundinnar tjáningar, en minna í takt við lífið allt um kring. Sýning- arskráin er að þessu sinni vel úr garði gerð og allur frágangur mun vandaðri en áður. Áhugasamir um þessa tegund myndlistar geta svo ornað sér við ítarlegan og á köflum skilvirkan formála Gunnars Kvaran. Bragi Ásgeirsson. Leggnrog skel til Vest- mannaeyja HVUNNDAGSLEIKHÚSIÐ hefur að undanförnu sýnt barna-söng- spilið Legg og skel eftir Ingu Bjamason og Leif Þórarinsson í húsnæði Kaffileikhússins í Hlað- varpanum og á sunnudag 23. apríl verður Hvunndagsleikhúsið með sýningar á Legg og skel í Vest- mannaeyjum. í leikhópnum eru fjórir leikarar, sem leika ýmis hlutverk og stjórna brúðum, J)au Hinrik Ólafsson, Sig- rún Sól Ólafsdóttir, Halla Margrét Jóhannesdóttir og Gunnar Gunn- steinsson. Tveir hljóðfæraleikarar eru í sýningunni, þau Una Björg Hjartardóttir, flauta, og Leifur Þórarinsson, píanó. Leikstjóri er Inga Bjarnason. Höfundur tónlist- ar er Leifur Þórarinsson og leik- mynd, búningar og brúður eru verk Guðrúnar Svövu Svavarsdótt- ur. Næsta verkefni Hvunndagsleik- hússins verður Tijójudætur eftir Evrípídes í þýðingu Helga Hálf- danarsonar. -----♦ ♦ ♦----- Gúmmí Tarzan DANSKA kvikmyndin Gúmmí Tarzan verður sýnd í Norræna hús- inu í dag kl. 14. Myndin fjallar um átta ára gaml- an strák sem getur ekki fullkomlega lifað upp til væntinga föður síns og er enginn Tarzan eins og pabbi hans vildi gjarnan að hann væri. En dag nokkur kynnist hann krana- stjóra og þar eignast hann góðan vin. Þessi mynd hlaut Bodil-verðlaun- in í Danmörku 1981 og er gerð eftir barnabók Ole Lund Kirkee- gaard. Leikstjóri er Soren Kragh- Jacobsen. Myndin er 89 mín. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. -----♦ ♦ ♦----- Vortónleikar Karlakórs Reykjavíkur Sigrún Hjálm- týsdóttir syng- ur með kórnum SIGRÚN Hjálmtýsdóttir (Diddú) syngur einsöng með Karlakór Reykjavíkur á vortónleikum kórs- ins, sem verða haldnir síðustu vik- una í apríl. Kórinn heldur fimm tónleika að þessu sinni. Femir tónleikar verða í Langholtskirkju í Reykjavík, mánudaginn 24. apríl, miðvikudag- inn 26. apríl og fimmtudaginn 27. apríl kl. 20 og lokatónleikarnir verða laugardaginn 29. apríl kl. 16. Stjórnandi Karlakórs Reykjavík- ur er Friðrik S. Kristinsson og und- irleikari á tónleikunum er Anna Guðný Guðmundsdóttir. Gerðu það gott með He Tæknival býðurþér hágæða Hewlett-Packard litaprentara, geislaprentara og litaskanna á e'mstöku verði. Takmarkað magn. Kynntu þér málið. HP DeskJet 520 prentarinn fyrir svarta litinn. Hljóðlátur, sterkurog hraðvirkur. Gæðaútprentun 300x600 dpi í svörtu. Tilboösverö: kr. 29.900 stgr. HP DeskJet 320 litaprentarinn. Hljóðlátur og fyrirferðalltill. Gæðaútprentun 300x600 dpi í svörtu og 300 dpi í lit. Tilboðsverð: kr. 32.000 stgr. HP DeskJet 560C litaprentarinn. Hraðvirkur prentari með gæöaútprentun 300x600 dpi í svörtu og 300 dpi í lit. Tilboðsverð: kr. 49.900 stgr. HP DeskJet 1200C litaprentarinn. Öflugur. Hraövirkur. Gott minni. Hágæðaútprentun 300x600 dpi í svörtu og 300 dpi í lit. Tilboðsverð: kr. 105.900 stgr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.