Morgunblaðið - 28.04.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.04.1995, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C/D 95. TBL. 83. ÁRG. FÖSTUDAGUR 28. APRÍL1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Fulltrúar SÞ segja allt stefna í allsheijarstríð íBosníu Vopnahléð að renna út Sarajevo. Reuter. BARIST var á mörgum vígstöðvum í Bosníu í gær og talsmenn Sameinuðu þjóðanna segja allt stefna í allsheijarstríð þegar vopnahlénu lýkur um mánaða- mótin. Forsætisráðherra Bosníu ítrekaði í gær fyrri yfirlýsingar um að vopnahléð yrði ekki framlengt og Serbar hafa lýst yfir því sama. Bosníu-Serbar þvinguðu í gær starfsmenn SÞ, sem komu frá Zagreb í Króatíu, til að hverfa aftur á brott með sömu vél frá flugvellinum í Sarajevo. Ser- bamir kröfðust þess einnig að fá aukin yfirráð á vellinum, þá myndu þeir leyfa á ný flug með hjálpar- gögn. Alexander Ivanko, talsmaður SÞ, sagði að múslim- ar jafnt sem Serbar virtu vopnahléð frá því í desem- ber að vettugi og væri víða barist í landinu. Hafa Serbar hafið sókn í Brcko-héraði en stjórnarherinn í Bosníu sækir fram fyrir vestan Bihac og beinir skeytunum að mikilvægum fjarskiptaturni Serba á Pljesevica-fjalli. Gagnkvæmur ótti og tortryggni ríkja Haris Silajdzic, forsætisráðherra Bosníu, sagði að vopnahléð yrði ekki framlengt en múslimar telja að hléið verði aðeins til þess að Serbar treysti tök sín á þeim 70% landsins sem þeir ráða nú. Leiðtogar Serba hafa einnig hafnað lengra vopnahlé og óttast að múslimar noti það til að vígbúast betur. Frakkar og Rússar hótuðu í fyrradag að kalla gæsluliða sína heim yrði ekki samið um nýtt vopna- hlé og geri þeir það, er hlutverki SÞ í Bosníu lokið að flestra dómi. Reuter Deilt um skjöl Churchills SKJALFRÆÐINGURINN Alan Kucia sést hér með skjöl úr bréfa- og ræðu- safni Winstons Churchills, forsætisráð- herra og þjóðhetju Breta á stríðsárun- um. Alls er um að ræða hálfa aðra millj- ón skjala. Opinber sjóður keypti þau af erfingjunum í gær á 12,5 milljónir punda, nær 1.300 miHjónir króna. Féð var tekið af lottó-tekjum sjóðsins. Stjórnarandstæðingar og fjölmiðlar gagnrýndu kaupin harðlega. Fullyrt var að um spillingu væri að ræða, ekki síst er í ljós kom að útgáfurétturinn fylgdi ekki með, en John Major forsætisráð- herra varði ákvörðunina. Dóttursonur og alnafni Churchills, sem er þingmaður fyrir Ihaldsflokkinn, sagði í gær að fengist hefði tvöfalt meira fyrir skjölin á frjálsum markaði. Breskir hjúkrun- arfræðingar Verkföll leyfð á ný London. Reuter. FORYSTA helstu samtaka hjúkrun- arfræðinga í Bretlandi ákvað í gær 'að nema úr gildi bann við verkfalls- aðgerðum en samtökin settu það sjálf fyrir 79 árum. Christine Hancock, framkvæmda- stjóri samtakanna, sagði, að nú væri hjúkrunarfræðingum heimilt að fylgja kaupkröfum eftir með að- gerðum en lagði áherslu á, að þær myndu ekki bregðast sjúklingum. Þær myndu mæta til vinnu en ekki sinna ýmsum stjórnunarstörfum eins og skýrslugerð. Hjúkrunarfræðingar krefjast 3% kauphækkunar en stjórnvöld hafa aðeins boðið þeim eitt prósent. -----» ♦ ♦---- Kóngulær undir áhrifum London. Reuter. ÞAÐ leynir sér ekki lengi ef kóngu- lær eru undir áhrifum maríjúana eða annarra fíkniefna. Þá verða vefimir hinir skringilegustu og augljóst, að ein- beitingin er rokin út í veður og vind. Hefur þetta komið í ljós við rannsóknir bandarískra vís- indamanna og telja þeir, að kóngulær geti verið hentugar við að prófa eituráhrif af nýjum lyfj- um. Vísindamenn við bandarísku geim- ferðastofnunina, NASA, komust að því, að kóngulærnar spunnu vefinn með ýmsum hætti eftir því hvaða fíkniefni þær fengu. Þær sem voru á maríjúana byijuðu vel en misstu síðan áhugann og hættu við hálfnað verk. Þær, sem fengu koffín, spunnu bara þráð og þráð hér og þar en þær, sem fengu benzedrín (,,speed“), sýndu af sér mikinn dugnað. Skipu- lagið var hins vegar ekkert og vefur- inn var með stórum götum. Vísindamennirnir vonast til að með því að hafa velferðina til viðmið- unar geti þeir sagt fyrir um hugsan- leg eituráhrif af lyfjum. Tafia gegn óþef Tókýó. Reuter. UNGAR konur í Japan not- færa sér óspart nýjar töflur sem eyða óþef frá hægðum. Taflan er tekin með mat og virkar á þrem dögum hjá Asíu- fólki, talið að hún sé fljótvirk- ari hjá hvítum vegna styttri þarma, að sögn fyrirtækisins Dairen K.K. Upphaflega var lyfið fram- leitt til að gera störf þeirra sem annast gamalt, rúmfast fólk léttari en 40% sölunnar hafa verið til ungra kvenna. Tals- maður framleiðenda telur að þær séu oft feimnar við að nota þröng salerni á vinnu- stöðum. Komið hefur á óvart að lyfið selst einnig vel meðal nemenda á táningsaldri sem virðast þannig reyna að kom- ast hjá háðsglósum félaga sinna vegna daunillra hægða. Hlaupið frá Hvatt til að hátíðarhöld í Moskvu 9. maí verði hundsuð Jeltsín boðar vopna- hlé í Tsjetsjníju Moskvu, Washington, Bonn, París. Reuter. Hanoi til Ho Chi Minh BANDARÍKJAMAÐURINN Michael Liscio (fremstur) frá Los Angeles og víetnamskir vinir hans koma inn á aðaltorg- ið í Ho Chi Minh-borg, áður Saigon, í gær. Svonefnt „vináttuhlaup" Liscios var alls 2.080 kílómetr- ar og hófst í höfuðstaðnum Hanoi í norðri. Bandaríkjamaðurinn er upp- gjafahermaður og vill hann reyna að bæta tengsl þjóðanna en þess verður minnst í Víet- nam í lok mánaðarins að 20 ár eru liðin frá því að kommún- istar sigruðu í Víetnamstríðinu og tóku Saigon. Milljónir manna féllu í átökunum, þ.á m. um 58.000 Bandaríkjamenn. Stjórn kommúnista leggur nú allt kapp á að koma á markaðs- búskap og auka viðskipta- tengslin við vestrænlönd. BILL Clinton Bandaríkjaforseti og Borís Jeltsín Rússlandsforseti ræddust í gær við í síma í hálfa klukkustund um mikilvæg mál sem fjallað verður um á fundi þeirra í Moskvu í maí. Clinton mun þá ásamt um 50 öðrum þjóðarleiðtog- um taka þátt í hátíðarhöldum í til- efni þess að 9. maí fagna Rússar því að hálf öld verður liðin frá lok- um stríðsins gegn Þýskalandi Adolfs Hitlers. Nokkrir heims- þékktir listamenn og mannréttinda- frömuðir hvetja til þess að hátíðar- höldin verði hundsuð vegna stríðs- reksturs Rússa í Tsjetsjníju. Áskorunina undirrita m.a. rúss- neski andófsmaðurinn Vladímír Búkovskíj, er barðist gegn sovét- stjórninni gömlu og þýski rithöfund- urinn Giinther Grass. Þar segir að það væri móðgun við þá sem fóm- Þjóðverjar vara Rússa viðað standa ekki við samninga um afvopnun uðu lífinu í stríðinu gegn nasistum „í Stalíngrad og á ströndum Norm- andie“ að fara til Moskvu. Jeltsín forseti ákvað í gær að hersveitir Rússa í Tsjetsjníju myndu gera hlé á árásum sínum í Kákasus- héraðinu frá miðnætti að staðar- tíma í gær fram til 12. maí í von um að ekki yrði barist meðan hátíð- arhöldin standa yfir. Minnkandi eindrægni Áður en Clinton ræddi við Jeltsín átti hann fund með Andrej Kozyrev, utanríkisráðherra Rússlands, í Hvíta húsinu og sagði talsmaður Bandaríkjaforseta að þessar við- ræður hefðu verið mjög gagnlegar. Ljóst þykir að á fundinum í Moskvu muni ríkja minni eindrægni en verið hefur milli leiðtoganna tveggja fram til þessa, ágreinings- mál Vesturveldanna og Rússlands verða æ alvarlegri. Rússar hafa lýst því yfir að vegna Tsjetsjníju- stríðsins geti þeir ekki staðið við CFE-samningana um fækkun hefð- bundinna vopna. Þjóðverjar vöruðu þá við í gær og sagði Klaus Kinkel utanríkisráðherra að samningarnir væru grundvöllur öryggis í Evrópu. Þeim bæri ekki að stofna í hættu með einhliða aðgerðum. ■ Þvert á gerða samninga/18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.