Morgunblaðið - 29.04.1995, Blaðsíða 1
72 SIÐUR LESBOK/C/D
96. TBL. 83. ÁRG.
LAUGARDAGUR 29. APRÍL1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Mikið mann-
tjón í gas-
sprengingu
SUÐUR-kóreskur karlmaður
virðir fyrir sér leifar strætis-
vagns sem brann í gasspreng-
ingunni í borginni Taegu í suð-
urhluta landsins í gær. Um-
hverfis bifreiðina og allt í kring
liggja sundurtætt bílflök og
málmstykki sem þeyttust í allar
áttir í sprengingunni með þeim
afleiðingum að yfir 100 manns
biðu bana, rúmlega helmingur-
inn unglingar á leið í skóla.
Flestir létust er þeir urðu fyrir
skæðadrífu fljúgandi málm-
stykkja.
■ Skæðadrífa málmstykkja
dró flesta til dauða/19
Bandaríkin
Hægir á
hagvexti
Washington. Reuter.
MINNI neysla olli því, að hag-
vöxtur í Bandaríkjunum minnk-
aði verulega á fyrstu þremur
mánuðum þessa árs. Vegna
þess hafa óseldar birgðir hlaðist
upp hraðar en í meira en áratug.
Hagvöxtur á fyrsta fjórðungi
þessa árs var 2,8% en var 5,1%
á síðustu þremur mánuðum
1994. Er þetta minnsti ársfjórð-
ungsvöxtur í hálft annað ár og
allnokkru minni en spáð hafði
verið. Þá er birgðasöfnun talin
valda því, að enn dragi úr hag-
vexti á öðrum ársfjórðungi.
Auk minni hagvaxtar eru
ýmis merki um, að verðbólga
sé að aukast en hún mældist
3,1% á fyrstu mánuðum ársins.
Reuter
Óvíst að vonir Jeltsíns um vopnahlé í Tsjetsjmju 9. maí rætist
Vilja að Clinton mót-
mæli „arrimmd“ Rússa
Moskvu. Reuter.
VOPNAHLÉIÐ, sem Rússar lýstu
yfir í Tsjetsjníju í fyrradag, fór út
um þúfur eftir að hafa staðið að-
eins í nokkrar klukkustundir. Kváð-
ust Rússar hafa neyðst til að svara
tveimur árásum tsjetsjenskra að-
skilnaðarsinna en töldu ekki útilok-
að, að um hefði verið að ræða ein-
angraða atburði. Mannréttinda-
samtök í Bandaríkjunum hafa skor-
að á Bill Clinton, forseta Bandaríkj-
anna, að mótmæla „grimmdarverk-
um“ Rússa í Tsjetsjníju.
Pavel Gratsjov, varnarmálaráð-
herra Rússlands, sagði í viðtali við
rússnesku fréttastofuna Interfax,
að tilkynning Borís Jeltsíns, forseta
Rússlands, um vopnahléið hefði
augljóslega farið framhjá einhverj-
um. Hann kvaðst vona, að það yrði
virt en það á að standa til 12. maí.
Gestkvæmt í
Moskvu 9. maí
Jeltsín ákvað vopnahléið í von
um, að bardagar lægju niðri meðan
á hátíðahöldunum stendur 9. mai
en þá munu Rússar minnast þess,
að hálf öld er liðin frá sigri banda-
manna á Þjóðvéijum í síðari heims-
styrjöld. Um 50 þjóðhöfðingjar víðs
vegar að munu þá verða í Moskvu.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch í New York skoruðu
í gær á Clinton Bandaríkjaforseta
að nota Moskvuheimsóknina 9. maí
til að mótmæla „grimmdarverkum"
rússneskra hermanna í Tsjetsjníju
og hóta Moskvustjórninni efna-
hagslegum refsiaðgerðum yrði
þeim haldið áfram. Segja þau, að
Tsjetsjníjustríðið eigi sér varla hlið-
stæðu á síðari tímum fyrir grimmd
enda meti „rússneskir hermenn líf
óbreyttra borgara einskis".
„Orðug-
Ieikar“
hjá EES
Brussel. Reuter.
AÐEINS ein ákvörðun var tekin
á fundi sameiginlegu EES-
nefndarinnar í Brussel í gær og
var borið við áframhaldandi
„tæknilegum örðugleikum". Olli
það vonbrigðum meðal fulltrúa
EFTA-ríkjanna en þeim hefur
helst skilist, að um sé að ræða
einhver þýðingavandamál hjá
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, ESB.
I sameiginlegu EES-nefndinni
sitja fulltrúar framkvæmdastjórn-
arinnar, ESB-ríkja og EFTA-ríkj-
anna og er það verkefni hennar
að sjá til þess að ESB-reglur komi
til framkvæmda innan EES, Evr-
ópska efnahagssvæðisins. EFTA-
ríkin eru nú aðeins tvö, Noregur
og ísland, og verða þjóðþing þeirra
ávallt að samþykkja viðkomandi
ESB-reglur.
Málin hrannast upp
Að sögn eins embættismanns
EFTA hafa óafgreidd mál varð-
andi EES hrannast upp að undan-
förnu en hann vildi ekki tjá sig
um þýðingarvandann, sem emb-
ættismenn ESB bera fyrir sig. Að
þeirra sögn eru það þýðingar á
Evrópusambandsskjölum yfir á
finnsku og sænsku sem hafa tafið
fyrir störfum í sameiginlegu
nefndinni.
Eivinn Berg, sendiherra Noregs
hjá ESB, hefur rætt þetta mál við
fulltrúa Finna í framkvæmda-
stjórninni, Erkki Liikanen, og
hann segir, að betur verði að
ganga á næsta fundi nefndarinnar
19. maí. Eina málið, sem fékkst
afgreitt í gær, var um einkaleyfis-
skráningu.
Evrópskir pappírsframleiðendur
Asakanirum
hringamyndun
Helsinki, Brussel. Reuter.
GERÐ var húsleit í gær hjá nokkr-
um pappírsframleiðendum í Finn-
landi en Evrópusambandið, ESB,
hefur hafið rannsókn á því hvort
evrópskir pappírsframleiðendur
hafi sammælst um að hækka verð
af aukinni eftirspurn og benda á,
að þrátt fyrir hana sé verðið enn
lægra en það var 1991.
Segir rannsóknina
byggða á gögnum
á dagblaðapappír umfram það, sem
eðlilegt getur talist. Nær rannsókn-
in til 40 fyrirtækja í sjö löndum.
Starfsmenn fínnsku sam-
keppnisstofnunarinnar skoðuðu
bókhald þriggja fyrirtækja og einn-
ig samtaka fínnskra pappírsfram-
leiðenda og sams konar rannsókn
hefur farið fram hjá fyrirtækjum í
Svíþjóð. Talsmenn fyrirtækjanna
vísa hins vegar á bug ásökunum
um hringamyndun og segjast raun-
ar fagna rannsókninni. Segja þeir,
að verðhækkunin stafi eingöngu
Karel Van Miert, sem fer með
samkeppnismál í framkvæmda-
stjórn ESB, skýrði frá rannsókninni
fyrr í vikunni og sagði, að hún
byggðist á gögnum, sem komið
hefðu í ljós við athugun á nokkrum
fyfirtækjum. Sagði hann, að ábend-
ingar hefðu komið fram um „svik-
samlegt athæfi“ sumra pappírs-
framleiðenda og grunsemdir um
hringamyndun. Fyrrnefnd 40 fyrir-
tæki eru í Bretlandi, Svíþjóð, Finn-
landi, Frakklandi, Austurríki, Ítalíu
og Þýskalandi.
Reuter
Saddam
Hussein
58 ára
SADDAM Hussein, forseti íraks, átti 58
ára afmæli í gær og var mikið um dýrðir
víða um landið af því tilefni. Um 100.000
manns söfnuðust saman í fæðingarbæ
hans og hétu að fórna lífinu fyrir afmælis-
barnið ef með þyrfti. Allir fjölmiðlar í
landinu sungu Saddam lof og prís, fæðing-
ardagur leiðtogans væri hátíðlegur öllum
Irökum, hann væri hin eilífa uppspretta
landsins og milli atriða i sjónvarpinu söng
barnakór um „föður Saddam“. Almenn-
ingur í írak þjáist af hungri og vannær-
ingu, meðal annars vegna refsiaðgerða
Sameinuðu þjóðanna, en Saddam hefur
hafnað boði um takmarkaða olíusölu til
að bæta úr skortinum. Saddam lagði í gær
hornstein að tveimur moskum í Bagdad
og önnur sögð sú stærsta í sögu íslams.