Morgunblaðið - 03.06.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.06.1995, Blaðsíða 1
72 SIÐUR LESBOK/C/D 124. TBL. 83. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Búist við að yfirborð Öyeren-vatns í Noregi muni hækka um 11 metra Mörg þúsund heimilí í hættu FLÓÐIN í Noregi halda áfram að vaxa og gangi spár eftir má búast við að vatnsborðið í Öyeren-vatni hækki um 11 metra. Þá mun bærinn Lilleström, við norðurenda vatnsins, fara í kaf og mörg þúsund íbúar hans verða að yfirgefa heimili sín. Gro Harlem Brundt- land, forsætisráðherra Noregs, skoðaði flóða- svæðin í gær og sagði fulla ástæðu til að lýsa yfir neyðarástandi á svæðunum. Þá yrði að koma í veg fyrir að farsóttir brytust út. Forsætisráðherrann hét því að ríkisstjórnin myndi veita þeim sem yrðu fyrir tjóni af völdum flóðanna alla þá aðstoð sem unnt yrði. Allir, sem ekki væru tryggðir fyrir af- leiðingum náttúruhamfara, fengju skaðabæt- ur úr viðlagasjóði. Brundtland vísaði á bug gagnrýni þess efnis að hjálparstarf hefði hafíst of seint og stjórnvöld hefðu ekki brugð- ist við nógu snemma. Kjell Dalviken, vatnafræðingur hjá Lands- virkjun Noregs, segir við blaðið Aftenposten að yfirborð Oyeren-vatns hafi í gær verið 5,8 metrum hærra en venjulega og búist væri við að í dag myndi hækkunin nema 6,2 metrum; á morgun 7,6 metrum og á fimmtudag í næstu viku verði hækkunin orðin um 11 metrar. Það er einum metra hærra en mest hefur áður orðið, sem var 1967. Yfirborð Mjösu-vatns stóð í gær tæpum sex metrum hærra en venjulega og er búist við að á fímmtudag í næstu viku verði hækkunin orðin rúmlega átta metrar. Vatnafræðingar búast við að vatnsborðið í Mjösu muni hækka um níu metra áður en yfír lýkur. Spár vatna- fræðinganna eru byggðar á úrkomumælingum og eru skekkjumörk all mikil. Ottast farsóttir Fylkislæknirinn í Heiðmörk óttast að far- sóttir kunni að bijótast út á svæðum um- hverfis ána Glommu, þar sem erfítt hefur reynst að koma í veg fyrir að skólp blandist drykkjarvatni. íbúar á svæðunum eru hvattir til að sjóða neysluvatn. í einu byggðarlagi hefur ekkert drykkjarvatn verið að hafa síðan á þriðjudag. Alls hafa flóðin fært um eitt prósent alls ræktarlands í Noregi á kaf og eru það um 10 þúsund hektarar. Verst er ástandið í Heiðmörk, þar sem 7-8 þúsund hektarar eru í kafí. Sjö þúsund hermenn og björgunarsveitar- menn eru til reiðu við hjálparstarfið. Liðs- auki hefur verið kallaður til og hvítasunnu- leyfí hermanna aflýst. Tvö hundruð hermenn eru nú þegar að störfum á flóðasvæðunum, en aðrir eru viðbúnir útkalli frá björgunar- stöðvum á svæðunum. Þá hafa björgunar- sveitir á að skipa um 3.000 sjálfboðaliðum sem ýmist eru þegar að störfum eða í við- bragðsstöðu. Að sögn forsvarsmanna hjálpar- sveita er þetta viðamesta björgunarstarf sem nokkurn tíma hefur verið skipulagt vegna náttúruhamfara i Noregi. ■ Ógnvekjandi á að horfa/20 ‘ 7-* Mestu flóð í Noregi í 125 ár Reuter NEYÐARASTAND ríkir víða í Austurdal í Noregi vegna gífurlegra vatnavaxta. Áin Glomma hefur brotist yfir bakka sína og stór landbúnaðarhéruð voru eins og risastórt stöðuvatn yfir að líta í gær. Sömuleiðis hækkar ört í Mjösu og ógnar flóðið byggð í Hamar. 75 ára karlmaður fórst rétt þjá Lillehammer er flóðið hreif bíl hans með sér. Flóðin eru hin mestu sem orðið hafa í Noregi í 125 ár. Serbar sleppa 120 friðargæsluliðum Belgrad, Sarajevo. Reuter. Reuter FRIÐARGÆSLULIÐAR, sem sleppt var úr haldi í gær. Óvíst er hvar þeir voru þegar myndin var tekin. HERLIÐ Bosníu-Serba sleppti í gær úr haldi 120 friðargæsluliðum Sam- einuðu þjóðanna. Var þetta gert fyr- ir tilmæli forseta Serbíu, Slobodans Milosevic og sagt að með þessu vildu Bosníu-Serbar sýna vilja sinn til að leysa gísladeiluna með friðsamlegum hætti. Fyrr í gær skutu Bosníu-Serb- ar niður bandaríska F-16 orrustu- þotu er tók þátt í að framfylgja flug- banni yfír Bosníu. Frakkar staðfestu í gærkvöldi að gæsluliðarnir 120 hefðu verið af- hentir fulltrúum Serbíustjórnar. Bandarískur sendimaður, Robert Frasure, hefur í tvo daga verið í Belgrad og átt viðræður við Mil- osevic en stórveldin hafa lagt hart að honum að viðurkenna landamæri Bosníu og fá aflétt viðskiptaþving- unum SÞ í staðinn. Flugmaður í haldi Flugmaður þotunnar mun hafa komist lífs af en Serbar tekið hann höndum. Krafðist yfirmaður heija Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Suður-Evrópu þess að honum yrði þegar sleppt. NATO gerði í gær- kvöldi út leiðangur til að reyna að frelsa manninn sem talið var að væri í haldi skammt frá borginni Banja Luka í norðurhluta Bosníu en henni ráða Serbar. Varnarmálaráðherrar og yfir- hershöfðingjar 14 aðildarríkja NATO og Evrópusambandsins hitt- ast í París í dag til að ræða tillögu Frakka um að stofnað verði 4.000 manna sérþjálfað hraðlið er hægt verði að senda á vettvang í Bosníu þegar upp komi mál á borð við gísla- tökuna. ■ Evrópumenn áhyggjufullir/21 Aðstoð á 17.braut London. Reuter. BRESKUR kylfingur var ný- lega ótrúlega heppinn í upp- hafshögginu á 17. braut Southerndown-klúbbsins í Wales. Kúlan festist undir dindlinum á kind sem rölti með hana 30 metrum nær holunni. Völlurinn liggur að hag- lendi og þar er oft sauðfé á beit. „Rollan virtist dálítið undrandi en við vorum ærir af fögnuði,“ sagði kylfingur- inn, Peter Croke. „Hún gekk af stað og í átt að 17. holu, síðan virtist hún hrista kúluna af sér eins og hún væri að verpa.“ Croke vann keppnina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.