Morgunblaðið - 04.06.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.06.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1995 17 LISTIR Ævintýri á vegg LISTAVERKIÐ Speglun eftir Ing- unni E. Stefánsdóttur var afhjúpað í Selásskóla á miðvikudag. Verkið sem er úr steinleir og málmi tákn- ar útsýni frá skólanum, þríhym- ingsform speglast í Rauðavatni og ferhymingar geta táknað bæði stofnana á tijánum eða húsin. Ævintýrin Ása Signý og Helga og Kerling vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn era á myndunum og er hver flís hluti af ævintýrinu. Nemendur geta síðan komið að veggnum og lesið og skoðað. Á myndinni er listakonan við verk sitt. Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju Orgeltónlist, vef- ari og list barna Á FYRSTU tónleikum Kirkjulista- hátíðar 1995 kl. 20 að kvöldi hvíta- sunnudags, leikur franski orgelleik- arinn Fran?ois-Henri Houbart. Á efnisskránni er frönsk orgeltónlist frá fjórum öldum. Árið 1979 var Houbart ráðinn org- anisti Madeleinekirkjunnar í París þar sem forverar hans voru meðal annars Fauré og Saint-Sanéns. Frá 1980 hefur Houbart kennt orgelleik við Tónlistarháskólann í Orléans. Else Marie Jakobsen NORSKI vefarinn Else Marie Jak- obsen sýnir á Kirkjulistahátíð. Hún er í hópi þekktustu listamanna Norð- manna, einkum á sviði kirkjulistar. Haft er eftir henni að kirkjan eigi ekki fyrst og fremst að vera sam- komustaður fyrir kristilegar prédik- anir, heldur einnig að rúma hið mannlega, fagra og ánægjulega í lífinu og í ljósi þess hafí hún helgað kirkjunni og kristnidóminum stóran hluta af list sinni. Síðastliðið haust unnu börn og unglingar í námi við Myndlistaskól- ann í Reykjavík verkefni sérvalið FRANQOIS-Henri Houbart orgelleikari í tilefni af þátttöku í Kirkjulistahá- tíð 1995. Verkefnið var englaí- myndin. Myndlistarsýning barnanna í and- dyri Hallgrímskirkju er hluti úr- lausnanna. Ólöf Ólafsdóttir, 14 ára nemandi Myndlistarskólans, veitti leyfi til afnota af engilverki sínu. Þar er engillinn sem prýðir dagskrá og er táknmynd Kirkjulistahátíðar 1995. Athyglisverðasta áhugaleiksýningin Kvennaskólaævintýr- ið í Þjóðleikhúsinu ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ býður nú annað árið í röð áhugaleikfélagi að sýna á Stóra sviði leikhússins og er þetta gert til þess að vekja athygli á starf- semi áhugaleikfélaga. Alls sóttu átta leikfélög um að koma til greina við valið á „athyglis- verðustu áhugaleiksýningu leikárs- ins“. Valin var sýning Freyvangsleik- hússins á Kvennaskólaævintýrinu eftir Böðvar Guðmundsson í leik- stjórn Helgu E. Jónsdóttur. Höfund- ur tónlistar eru Eiríkur Bóasson, Jóhann Jóhannsson og Garðar Karls- son. Leikritið lýsir einu ári í skólanum frá því námsmeyjar koma að hausti þar til þær yfírgefa skólann að vori, samskiptum þeirra innbyrðis og við íbúa sveitarinnar, ekki síst piltana ungu. Mikil tónlist er { sýningunni. Hljómsveitarstjóri er Reynir Schiöth. Freyvangsleikhúsinu hefur verið boðið að sýna Kvennaskólaævintýrið á Stóra sviði Þjóðleikhússins sunnu- daginn 11. júní kl. 20. Þegar er orðið uppselt á sýninguna og hefur verið ákveðið að hafa aðra sýningu mánu- dagskvöldið 12. júní á sama tíma. Aðeins verða þessar tvær sýningar. 18 BSS ■■■pr m SIMANÚMER SEMGOTTER AÐMUNA: S í M I : F A X : sm v? SILFURBUÐIN Kringlunm S-12 S:56S <K)6ó Öskalisti B ruðkjónatma Gjafa- þjónmtm fyvir Silfurbúðin kynnir kosti óskalistans: Brúðhjón fá þœr brúðargjafir sem þau hafa óskað sér. Bmðkaupsgestir geta valið úr fjölbreyttu úrvali Silfitrbúðarinnar og jafnframt verið vissir um að gefa rétta gjöf. Brúðhjón og brúðkaupsgestir njóta ráðgjafar og upplýsinga Silfurbúðarinnar. Sumarleikur Silfurbúðarinnar „Heppin brúðbjón“ ' Prjú heppin brúðhjón verða dregin iit og vinna flugferð til einlwers áfangastaðar Flugleiða í Evrópu. (Farseðillin gildir í eitt ár.) " Þegar viðskipti óskalistans ná krónur S0.000.- fara nöfn viðkomandi brúðhjóna ípottinn „Heppin brúðhjón". * Dregið verður úr pottinum þann 7. októbcr 1995. * Gildistími leiksins er 1. maí 1995 til 1. október 1995.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.