Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ „í fjörunni heima“ SUMARSÝNING þriggja ísfirskra myndlistarmanna verður opnuð á Hótel ísafirði laugardaginn 17. júní. Það eru þau Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Sara Vilbergsdóttir og Ólafur Már Guðmundsson sem sýna olíumálverk, akrílverk og pa- stelmyndir. Þau eru borin og barnfædd á ísafirði en búa nú og starfa í Reykjavík. Sýninguna kalla þau „í fjör- unni heima“ en Hótelið stend- ur á uppfyllingu þar sem áður var fjara sem m.a. var leik- vangur ísfirskra bama. Sýningin stendur til 31.ág- úst. Guðbjörg Lind, Sara og Ólafur Már opna sýningu á Isafirði 17. júní. Stíllinn í list Asmundar Sveinssonar ÁSMUNDARSAFN - Lista- safn Reykjavíkur hefur gefið út listaverkabók um list Ás- mundar Sveinssonar. Bókin er jafnframt sýning- arskrá gerð í tilefni af opnun sýningarinnar Stíllinn í list Ásmundar Sveinssonar, sem opnuð var laugardaginn 27. maí síðastliðinn. í bókinni er að finna grein um Stílinn í list Ásmundar Sveinssonar eftir Gunnar B. Kvaran forstöðu- mann Listasafns Reykjavíkur og fjölda mynda af verkum hans. Allur texti í bókinni er bæði á íslensku og ensku. í bókinni er ætlunin að gefa yfirlit yfir ólíkar myndgerðir í list Ásmundar og draga fram þau sérkenni sm einkenna list hans. Ásmundarsafn er opið alla daga frá kl. 10-16 og Kjarv- alsstaðir alla daga frá kl. 10-18. Verslanir safnanna eru opnar á sama tíma. „Heilagur andi“ MYNDLISTARSÝNINGU Þóru Þórisdóttur „Heilagur andi“ í Listhúsinu Við Hamar- inn, Strandgötu 50 Hafnar- firði, lýkur nú á sunnudag. Á sýninguni eru innsetning- ar og málverk. Táknmyndir eru fengnar úr biblíunni og meðal verka eru lifandi friðar- dúfur og útsaumuð glugga- tjöld. Aðgangur er ókeypis. LISTIR Morunblaðið/Björn Myndverkasýning barnanna Sauðárkróki. Morgunblaðið. NÝVERIÐ var opnuð í Safna- húsinu á Sauðárkróki sýning á myndverkum nemenda í leik- skólanum að Furukoti, en um er að ræða árvsissan viðburð eftir vetrarstarfið. Fjöldi gesta mætti við opnunina til að skoða verkin, sem eru með allra líf- legasta og litskrúðugasta móti, en einnig til að heyra og sjá skemmtiatriði sem nemendur önnuðust. Fjölbreytni er í verkum nemendanna og mörg þeirra unnin meðal annars úr endurunnum pappír, sem nem- endur unnu sjálfir, skartgripi úr óvenjulegum efnum svo sem úr pasta og margt fleira. Skólaslit hjá Tónskóla Sigursveins TÓNSKÓLA Sigursveins D. Kristinssonar var slitið í Lang- holtskirkju 24. maí síðastlið- inn, í 31. skipti. Starfsár skólans hófst 1. september, Hann var fullskip- aður 620 nemendum sem störfuðu undir stjórn 59 kenn- ara auk skólastjóra. 650 stunda kennsluheimild var nýtt að fullu. Tónfundir á veg- um kennara voru 212 og sam- eiginlegir fundir voru 19, en í byrjun vorannar var tekin upp sú nýbreytni að halda vikulega tónfundi á vegum skólans. Skólinn hélt 17 tónleika ogþar af 3 utanbæjar. Próf og útskriftir. 165 nemendur luku stigs- prófi frá skólanum og 10 nem- endur úr Suzuki-deild luku námsáföngum. í ár eru tíu ár liðin frá stofn- un kennaradeildar við skólann en í ár luku þrír nemendur fyrri áfanga kennaraprófs. Þrír nemendur luku prófi frá skólanum á þessu vori. Ingi- björg Guðlaugsdóttir lauk fullnaðarprófi í básúnuleik. Guðjón Steingrímur Birgisson gítarleikari og Finnur Bjarna- son baritonsöngvari luku burtfararprófi. BÓKMENNTIR Erindi, grcinar, ávörp, Ijóð I önnum dagsins f ÖNNUM DAGSINS eftir Sigurð Gunnarsson. 3. bindi. Skógar 1995 — Oddi prentaði SIGURÐUR Gunnarsson fv. skólastjóri er ekki iðjulaus maður 82 ára. Enn er hann að tína upp úr skúffum sínum og setja á prent. Það tekur yfir heila blaðsíðu, með smáu letri, allt sem hann hefur sent frá sér á prenti eða lesið í útvarp um dagana - bæði þýtt og frumsamið. Þetta er þriðja bók hans í sama flokki. Efni hennar er skipt í sex kafla. Þar eru ferðaþættir frá Evrópu veigamestir. Þeir bera vitni glögg- skyggnum manni. Ferðalangi sem lætur sér ekki nægja að heyra og sjá, heldur les sér til bæði á undan og eftir ferðalögum. í þeim þáttum er marga fróðleiksmola að finna. Má þar einkum nefna Búlgaríuferð 1978. Ljóðakaflinn er af Sigurður Gunnarsson ýmsum toga spunn- inn. Sum frumraun æskumanns - allt frá 1932-33 tvö lengstu ljóðin. Fjórði kaflinn geymir erindi og greinar. Fegurð jarðarinnar og lífríkis hennar er með nýrri skrifum höfundar. Þar er byggt á verkum Ara Trausta og Náttúru- fræðingnum 1.-2. hefti 1993. Gamlar skólaslitaræður frá Húsavík eru meðal greina í þessum kafla. Minningar- og afmælisgreinar eru nokkrar í bókarlok. Sem fyrr bera öll skrif höfundar með sér hve vandaður hann er á íslenska tungu. Hins vegar verður alltaf spurn- ing um efnisval í bækur sem þessa. Enda veltir höfundur sjálfur því fyrir sér - en lætur samt freistast. Aðdáunarverð eru elja hans og vilji til að gefa öðrum hlutdeild í öllum skrifum sínum - og það eitt kveikir einlæga ósk um að hann eigi sér tryggan lesendahóp. Ljósmyndir prýða bókina, sem er innbundin í kápu og öll hin smekklegasta í útgáfu. Jenna Jensdóttir Morgunblaðið/ÁgÚ8Í FRÁ landsmóti Sambands íslenskra skólalúðrasveita sem haldið var á Neskaupstað um hvítasunnuhelgina. Skólalúðrasveitamót Sumardagskrá Norræna hússins Neskaupstad. Morgunblaðid. LANDSMÓT Sambands íslenskra skólalúðrasveita var haldið á Neskaupstað um hvítasunnu- helgina. 16 lúðrasveitir víðsveg- ar af landinu tóku þátt í mótinu sem fram fór í nýja íþróttahúsinu og er það í fyrsta skipti sem það er notað opinberlega, en það verður ekki fullklárað fyrr en í haust. Á milli fimm og sex hundr- uð aðkomumanna voru í bænum á meðan á mótinu stóð og gerðu þeir sér ýmislegt til skemmtunar annað en að spila á hljóðfæri sín, t.d. var þeim boðið í skemmtisigl- ingu og fleira. í SUMAR stendur Norræna húsið fyrir fjölbreyttri dagskrá þar sem myndlist, tónlist, kvikmyndir og fyrirlestrar koma m.a. við sögu. Sænskur kórsöngur 17.júní Hluti af kórfélögum í Óratóríukór Gustav Vasa kirkjunnar í Stokk- hólmi mun koma í Norræna húsið á þjóðhátíðardaginn 17.júní og syngja fyrir gesti kl.16.30 í fundar- sal hússins. Kórinn hefur starfað frá árinu 1988. Kórstjóri er Anders Ohlson. Sunnudaginn 18.júní verða haldnir tveir fyrirlestrar. Sænski listamaðurinn Sune Nordgren held- ur fyrirlestur í fundarsal hússins kl. 14 og ber hann heitið Jarðlist heimslist; fyrirlestur um umhverf- islist. Hann er haldinn í tengslum við sýninguna Norrænir brunnar sem stendur yfír í sýningarsal og umhverfis Norræna húsið. Seinni fyrirlesturinn ber nafnið Island i dag og hefst hann kl.17.30. Þar flytur Einar Karl Haraldsson yfirlit á sænsku um íslenskt samfé- lag og gang þjóðmála á íslandi. Kynning á Norræna húsinu og norrænu samstarfi verður alla mánudaga kl.17.30 í umsjón Nor- ræna hússins og Torbens Rasmuss- en. Georg Guðni og víkingahandverk íslenskt kvikmyndakvöld verður alla mánudaga kl.19.00. Þá verður sýnt úrval íslenskra kvikmynda frá síðastliðnum árum. Myndirnar verða með enskum texta. Opið hús verður á dagskrá alla fimmtudaga kl.20. Þá er boðið upp á fyrirlestra um íslenska menningu, náttúru, sögu o.fl. Samnorræna sýningin Norrænir brunnar er opin daglega frá 12-19 og stendur til 9.júlí. Sumarsýning hússins verður á verkum eftir Georg Guðna og verð- ur opnuð 15.júlí og stendur til 13.ágúst. í anddyrinu stendur nú yfir sýn- ing er tengist ferð sænska lista- mannsins Alberts Engströms til ís- lands 1911. í júlímánuði verður sýning á víkingahandverki í anddyrinu og er hún sett upp í samvinnu við Vík- ingahátíðina í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.