Morgunblaðið - 29.06.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.06.1995, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C/D 144. TBL. 83. ÁRG. FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vilja vernda fánann Washington. Reuter. FULLTRÚADEILD Bandaríkja- þings samþykkti í gær tillögu um stjómarskrárbreytingu til að vernda fánann gegn hvers kyns saurgun með 312 gegn 120. Til að breytingin taki gildi þarf öldungadeildin einnig að samþykkja tillöguna með tveim þriðju hlutum atkvæða og minnst 38 af 50 ríkjum. And- stæðingar ríkjandi stjómvalda hafa oft tjáð reiði sína með því að brenna bandaríska fánann. Fyrir sex ámm nam hæstiréttur úr gildi öll lög sem sett höfðu verið gegn fánabrennslu og var forsendan sú að með þeim væri tjáningarfrelsið heft. Reuter Reuter Dagur heilags Vitusar TVÆR sprengjur féllu á út- hverfi í bænum Bijeljina í Bosníu í gær þar sem leiðtog- ar Bosníu-Serba, þ. á m. Radovan Karadzic og Ratko Mladic, voru samankomnir til þess að halda hátíðlegan dag heilags Vitusar sem jafnframt er dagur hersins. Engar fregnir bárust af manntjóni. í Sarajevó beið lögreglumað- ur bana og tugir manna særð- ust þegar umbreyttri loft- varnaeldflaug var skotið á sjónvarpsmiðstöðina þar. Eld- flaugarárásin olli miklum skemmdum á skrifstofum sem erlendir fréttamenn og bosn- íska ríkissjónvarpið notuðu. Að minnsta kosti 200 manns voru í byggingunni þegar árásin var gerð. Utanríkisráðherra Bosníu, Muhamed Sacirbey, sendi ör- yggisráði Sameinuðu þjóð- anna bréf í gær og fór fram á að hlutverk friðargæsluliðs- ins í landinu yrði endurskoð- að. Hann sagði liðið ekki tryggja öryggi íbúa á svo- nefndum griðasvæðum og léti hjá líða að kalla á aðstoð flug- véla Atlantshafsbandalagsins þegar þörf krefði. Stríðið á Sri Lanka 140 falla í árás Tamíla Colombo, Sri Lanka. Reuter. RÚMLEGA 140 manns létu lífið á Sri Lanka í gær þegar um eitt þús- und skæruliðar úr röðum Tamíla réðust á stjórnarherinn af sjó. Þetta var mesta mannfall á Sri Lanka frá því aðskilnaðarsinnar Tamíla rufu vopnahléð við ríkisstjórnina í Colombo 19. apríl. Að minnsta kosti 50 Tamílar og 75 hermenn féllu þegar árás var gerð á eyna Mandaithivu vestur af Jaffna-skaga, þar sem vígi skæru- liða er að finna. Útvarp skærulið- anna sagði að leiðtogi Tígrahreyf- ingar tamílskra skæruliða, Velupillai Prabhakaran, sem sagt er að sé varkár og sofi aldrei tvisvar í sama rúmi, hefði stjórnað árásinni. Að sögn stjórnarhersins hafði honum tekist að hrinda árásinni síð- degis í gær og hrekja skæruliðana á braut eftir að aukinn herafli barst frá nágrannaeyju. Um 50 þúsund fallnir Sagt er að Tamílamir hafi undan- farið verið að styrkja herafla sinn á hafi og séu nú að verða færir um að skáka hinum litla sjóher stjórnar- innar, sem og smáum og einangruð- um herstöðvum í landi. Mikill meirihluti íbúa Sri Lanka er af þjóðerni Sinhala en Tamílar eiga marga þjóðbræður á Indlandi. Rúmlega 50 þúsund manns hafa fallið í baráttu Tamíla fyrir sjálf- stjórnarsvæði á Sri Lanka frá því að átökin hófust árið 1983. Viðskiptastríði milli Bandaríkjanna og Japans afstýrt á síðustu stundu Japanska stjórnin lofar að opna bílamarkaðinn Genf, Washington, Brussel. Reuter. ESB segir samninginn brot á reglum um frjáls heimsviðskipti taki hann aðeins til bandarískra fyrirtækja Myndlistar- apinn Nonja ÓRANGÚTANAPYNJAN Nonja sleikir pensil í Schönbrunn-dýra- garðinum i Vín áður en hún lýkur við enn eitt listaverkið. Nonja er afkastamikill málari en verkum hennar er líkt við myndir tveggja til þriggja ára barna. Þau hafa engu að síður vakið mikla athygli og selst á allt að 10.000 Banda- ríkjadali eða tæpar 650.000 kr. • • Oldungur í fangelsi Tœpei. Reuter. ELSTI Fangi á Tævan er Chang Ming-yuan sem getur átt von á reynslulausn í fyrsta lagi eftir rúm 10 ár. Hann er 96 ára. Chang myrti þijá menn 1977 og var dæmdur í lífstíðarfang- elsi en látinn laus til reynslu 1987. Hann slasaði mann og var þá aftur settur inn eftir að læknar höfðu úrskurðað að hann þyldi lífið bak við rimlana. Embættismaður í fangelsinu sagði Chang krefjast þess að fá „sérstaka rétti “á borð við harðsoðin egg og ávaxtasafa. BANDARIKIN og Japan komust að samkomulagi í Genf í gær í deilu ríkjanna um bílaviðskipti og þvi kemur ekki til þess að refsitollar verði lagðir á sumar gerðir jap- anskra bifreiða í Bandaríkjunum. Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði að samkomulagið væri „mikil- vægt fyrir fijáls viðskipti um allan heim“ og gengi dollarans hækkaði í kjölfarið. Talsmenn Evrópusam- bandsins, ESB, segja hins vegar að samkomulagið verði að ná til alls bílainnflutnings í Japan, ekki aðeins innflutnings frá Bandaríkj- unum. „Japanir hafa samþykkt að byija á því í alvöru að opna japanska bíla- og bílavarahlutamarkaðinn fyrir bandarískum fyrirtækjum,“ sagði Clinton á fréttamannafundi í Hvíta húsinu þegar hann skýrði frá samkomulaginu. „Hér er um að ræða mjög sérgreindan samning, sem mun bera raunverulegan árangur." Mikil efnahagsleg áhrif Clinton sagði að vegna samn- ingsins, sem náðst hefði í viðræðum ríkjanna í Genf, yrðu ekki lagðir neinir refsitollar á 13 gerðir jap- anskra lúxusbíla en þeir áttu að koma til framkvæmda á miðnætti sl. nótt að staðartíma í Washington. Mickey Kantor, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, lofaði samninginn í Genf í gær og sagði að hann myndi hafa mikil efnáhagsleg áhrif í báð- um ríkjunum og ekki aðeins í bíla- iðnaðinum. Á fréttamannafundinum skýrði Clinton ekki frá samningnum í smáatriðum en sagði að Japanir hefðu fallist á að fjölga bílasölum, sem seldu erlenda bíla, um „200 á næsta ári og úm 1.000 á næstu fimm árum“. Þá sagði hann að Japanir hygð- ust grisja reglugerðafrumskóginn, sem umlyki varahlutamarkaðinn, og japönsku bílaverksmiðjurnar ætla að auka framleiðslu sína í Bandaríkjunum og kaupa meira af bandarískum bílahlutum. Ryutaro Hashimoto, iðnaðar- og utanríkisviðskiptaráðherra Japans, sem innsiglaði samkomulagið ásamt Kantor, virtist ekki vera al- veg jafn ánægður með það og Bandaríkjamennirnir en sagði að Japanir hefðu ekki hvikað frá meg- inkröfu sinni, andstöðunni við ákveðinn kvóta fyrir innflutning erlendra bifreiða og varahluta til Japans. Bangemann óánægður Martin Bangemann, sem fer með iðnaðarmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sagði í gær að yrði japanski markaðurinn að- eins opnaður bandarískum bifreiða- framleiðendum væri um að ræða brot á grundvallarreglum um fijáls heimsviðskipti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.