Morgunblaðið - 19.11.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.11.1995, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ + Margrét Jóns- dóttir fæddist á Akranesi 26. júní 1914. Hún lést í Borgarspítalanum 9. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Jón Sigurðsson, skip- stjóri og síðar hafn- arvörður á Akra- nesi, f. 25. mars 1888 í Litla-Lamb- haga, Skilmanna- hreppi, Borg., d. 19. júlí 1971, og Ragn- heiður Þórðardótt- ir, f. 8. mars 1893 á Vegamótum á Akranesi, d. 26. október 1982. Jón og Ragnheiður bjuggu lengst af á Reynistað á Akra- nesi. Margrét var elst níu systk- ina. Hin eru Helga, f. 5. febrúar 1916; Sigurður, f. 5. mars 1917, d. 30. júní 1940; Þórður, f. 31. mars 1920, d. 29. september 1937; Jón S., f. 9. janúar 1923, Nú loga ljósin heima lýsa yfir sund Skagagötur geyma gullna æskustund. Eikin sterka er fallin. Amma var í huga okkar systkin- anna í senn eik og rós, sterk og traust, blíð og gefandi. Það er erf- itt að hugsa sér lífið án hennar, því hún var svo stór þáttur í okkar lífi, að við kölluðum hana ömmu stóru. Við ólumst upp í skjóli hennar og afa þar sem við áttum saman heim- ili á annan áratug. En þó við flytt- um annað var sambandið áfram náið og við erum þakklát fyrir að hafa átt hana svo lengi að. Amma var alla tíð Skagamaður. Og þó hún flytti rúmlega tvítug til d. 10. apríl 1924; Jón S., f. 20. janúar 1925; Ragnheiður, f. 11. maí 1927, d. 13. maí 1928; Rík- harður, f. 12. nóv- ember 1929; Þórð- ur, f. 29. nóvember 1934. Margrét giftist Hinrik Líndal Gíslasyni 28. nóv- ember 1935. Þau slitu samvistir. Þeirra dóttir er Ragnheiður Líndal, f. 18. júlí 1936. Seinni manni sínum Greipi Sveinssyni giftist Margrét 14. nóvember 1942. Þeirra sonur er Sigurður Greipsson, f. .1. ágúst 1949. Greipur lést 8. októ- ber 1971. Utför Margrétar Jónsdóttur fór fram í kyrrþey, að hennar eigin ósk, frá Fossvogskapellu föstudaginn 17. nóvember. Reykjavíkur, var hún alltaf með annan fótinn uppi á Skaga hjá for- eldrum sínum á Reynistað. Þær voru ófáar ferðirnar sem við fórum þangað með ömmu og afa og feng- um að njóta samvista við langömmu og langafa okkar á Reynistað. Er afi og langafi dóu með þriggja mánaða millibili voru þær mæðgur hvor annarri mikill styrkur. Oft horfði hún ástríkum augum upp á Skaga og við heyrðum hana segja: „Það held ég að ljósin logi heima núna.“ Ömmu var annt um allt sitt fólk og fylgdist vel með því, engin barns- fæðing í fjölskyldunni fór fram hjá henni. Það var henni afar þung- bært að horfa á eftir fjórum systkin- um sínum í dauðann. Það setti MIIMIMINGAR mark á hana að ársgömul systir hennar Ragnheiður dó að morgni fermingardags hennar og eftir að langamma hafði búið um barnið sitt látið, fór hún með elstu dóttur sinni til kirkju, sterk og stór. A örlagastundu í lífi eins okkar sagði hún: „Konur í okkar ætt brotna ekki, við getum bognað, en við brotnum aldrei, og við rísum upp á ný sterkari en áður.“ Amma var mjög ljóðelsk, hag- mælt sjálf en flíkaði því þó ekki. Við munum eftir því að hún bauð okkur öllum á Útsýnarkvöld þar sem velja átti besta ljóðið í auglýs- ingu fyrir ferðaskrifstofuna. Er vinningsljóðið var lesið upp, sáum við ömmu bæra varirnar sem hún kynni það. Og þegar við settum upp undrunarsvip blikkaði hún okkur bara og sagði lágt. „Ég á það.“ í þann mund var sagt að vinningshaf- inn hefði óskað nafnleyndar, en hann gæti komið við á skrifstofunni og fengið sinn ferðavinning. Sem hún og gerði. Fótboltaáhugi ömmu var mikill. Það var alltaf tilhlökkunarefni hjá okkur systkinum er Skagamenn spiluðu hér fyrir sunnan, því þá dró amma fram stærsta pottinn, eldaði ofan í alla sem komu ofan að fyrir leik. Svo græjaði hún sig með kaffi- brúsa, brælur og teppi á völlinn og úr stúkunni stjórnaði hún leiknum, eins og hún ætti hvert bein í Skaga- liðinu. Afi var alltaf í stæði, við vitum eiginlega ekki af hveiju! Eftir að amma hætti að fara á völlinn, tóku útvarp og sjónvarp við. Aldrei hvarflaði að okkur að trufla hana með símhringingum eða heimsóknum þegar knattspyrna var á dagskrá, því þetta voru henni sannar helgistundir. Fótboltinn fyllti hana kappi og lífi og er þess skemmst að minnast er við heimsóttum hana á spítalann með mömmu, þá stuttu eftir aðgerð og vissum ekki betur en að hún væri mjög slöpp. Þegar við litum inn í herbergið, sat hún upprétt í rúminu, í ham, með útvarpið við eyrað, öll stíf í framan, og í stað þess að heilsa okkur sagði hún með áfergju: „Þeim tekst bara ekki að skora, strákunum." Þá sagði mamma: „Það er greinilega í lagi með hana.“ Amma hélt bæði andlegri heilsu og húmor fram á síðustu stund en líkamlegur þróttur þvarr. Við vitum að dauðinn var henni líkn en þó söknum við hennar óskaplega sárt. Við sjáum hana nú fyrir okkur glaða og umvafða kærleika sinna nánustu sem farnir voru á undan henni. Svífðu guðs um geima góð var kveðjustund. Nú loga ljósin heima lýsa yfir sund. Blessuð sé minning ömmu stóru. Margrét, Jóna Ágústa og Óli. Vin sínum skal maður vinur vera og gjalda gjöf við gjöf. Hlátur við hlátri. Veistu ef þú vin átt, þann þú vel trúir, og vilt þú af honum gott geta, geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta - fara að fmna oft. Þessi orð úr Hávamálum voru sannarlega einkunnarorð hennar Möggu á Reynistað sem nú hefur lokið sinni lífsgöngu á þessari jörð. Hún skyldi það svo vel að hver dagur er dýrmætur og okkur því skylt að nýta hann til að gleðjast með öðrum og gleyma ekki að rækta vináttuna í dagsins önn. Okkur hættir mörgum hveijum til þess. Og einmitt þess vegna þökk- um við fyrir að hafa átt hana Möggu, því hún gleymdi aldrei mik- ilvægj þess að vera vinur vina sinna. Mættum við mörg hver, sem of sjaldan gefum okkur tíma til að rækta þá vináttu sem við viljum þó halda í og njóta þegar okkur hent- ar, taka hana Möggu okkur til eftir- breytni og muna, að maður ræktar ekki vináttuna seinna. Hún þarf MARGRET JÓNSDÓTTIR t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Stórholti 22, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum 9. nóvember sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Ragnheiður L. Hinriksdóttir, Skarphéðinn Sigursteinsson, Sigurður Greipsson, barnabörn og barnabarnabörn. íl t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR JÓNASSON, Álftamýri 4, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. nóvember kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á að láta Krabbameinsfélagið njóta þess. Svava Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns og föður, NILS HAUGEN, Ljósheimum 22. Sérstakar þakkir til starfsfólks B 4, Borgarspítala. Herborg Haugen, Anni G. Haugen. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför ástkærar móð- ur minnar, tengdamóður og ömmu, GUÐBJARGAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Hjarðarhaga 64. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Krabbameinslækningadeildar Landsspítalans. Sigurður Emil Pálsson, Piret Laas, Páll Kaarel Laas Sigurðsson. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 - sími 587 1960 ERFIDRYKKJUR • Glœsilegir salir • Gómsœtar veitingar • Góö þjónusta Upplýsingar í síma 588 2300 Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. stöðuga næringu ef hún á að blómstra og bera ávöxt. Og sam- kvæmt því lifði hún og ávaxtaði sitt pund. Margrét var fædd og uppalin á Akranesi. Hún var dóttir hjónanna Ragnheiðar Þórðardóttur og Jóns Sigurðssonar og alltaf kennd við Reynistað. Hún var elst níu systk- ina, fjögur þeirra lifa systur sína, þrír bræður, Jón, Ríkharður og Þórður, og systirin Helga. Þær syst- ur, Margrét og Helga, ræktuðu alla tíð systraböndin mjög vel og sýndu hvor annarri í verki að hver dagur er dýrmætur og gleymdu ekki mikil- vægi þess að vera vinur vina sinna. Þeir Islendingar sem Jifað hafa meginhluta 20. aldarinnar hafa lif- að meiri ævintýri en nokkur kynslóð áður. Það er ótrúlegur munur á öllum sviðum, hvert sem litið er, frá því sem var og þess sem er. Það sem einkennir þetta fólk er jákvætt lífsviðhorf, kjarkur, dugnaður, ósér- hlífni og heiðarleiki. Því var annt um mannorð sitt og lagði mikið á sig til að halda því hreinu. Þetta lífsviðhorf gerði því mögulegt að halda reisn sinni hveijar sem að- stæðumar voru. Þegar ég, sem þetta rita, lít yfir lífsferil hennar Möggu mágkonu minnar, þann hluta sem ég þekkti, þá er mér vel ljóst að líf hennar var ekki alltaf dans á rósum. Og oft hefur hún þurft að bíta á jaxl- inn, en jákvætt lífsviðhorf og æðru- leysi bar hana yfir erfiðustu hjall- ana. Það var aldrei auður í garði á veraldlega vísu hjá þeim hjónum Möggu og Greip en því meira af einlægri hlýju og ekta íslenskri gestrisni. Þótt húsakynnin væru ekki stór skipti engu máli hvort fleiri eða færri þyrftu að gista eina nótt eða margar, eða hvort fleiri eða færri settust að matborði, allir voru hjartanlega velkomnir. Og eins og ein dætra minna sagði: „Hún Magga föðursystir var ekki mikil vexti, en hún var stór kona með stórt og hlýtt hjarta og breiðan, hlýjan faðm.“ Og eitt er víst að frá henni fór enginn bónleiður til búðar. Hið liðna í lífi hvers manns mót- ast af minningum um atburði og samferðamenn sem við höfum kynnst á lífsleiðinni og bundist tryggðaböndum. Hið liðna flýgur um hugskotið, oftast minningabrot þar sem skiptast á skin og skúrir. Það eru mörg minningabrot sem sækja á hugann nú þegar þessi vin- fasta, trygga og góða kona er kvödd. Og þegar maður lætur hug- ann reika, er það glaðværðin og æðruleysið sem einkenndu hana svo mjög og smituðu út frá sér til þeirra sem hún umgekkst og gerði þeim ljóst að „betra er að kveikja á einu kerti en formæla myrkrinu". Þegar líkaminn gaf sig og henni var þungt um spor, sönnuðust á henni hin fornu orð: „Sóttin er hamla á líkamanum en ekki á viljan- um nema hann kjósi að svo sé. Helti hamlar fætinum að vísu, en viljanum ekki. Segðu sjálfum þér þetta hvert sinn er á bjátar og þú munt komast að raun um að atburð- irnir hamla einhveiju öðru en þér.“ Hún var sterk kona, hún Magga mágkona mín. Ekkert er eins víst og óvíst eins og dauðinn. Við erum öll dauða- dæmd, en við vitum ekki hvenær þeim dómi verður fullnægt. Flestra okkar bíður mótlæti og margvísleg- ir erfiðleikar og allra bíður hel. Nokkur kostur fylgir slíku hlut- skipti. Hann er sá að beijast af hugprýði og vaskleik. Sá er mikill sigurvegari, mikil hetja, sem sigrast á miklu mótlæti og erfiðleikum, en starfar og þjónar landi sínu og líf- inu sem áður. Trúlega er sú lífs- gleði sterkust og dýpst sem sigrað hefur við slíkar aðstæður. Slík er yfirskrift lífsferils hennar Möggu á Reynistað. Já, víst er það að eitt sinn skal hver deyja. Sá örlagadómur er óum- flýjanlegur eins og dagur fylgir nótt og vor vetri. Þegar við nú kveðjum hinstu kveðju látna heið- urskonu skulum við hafa það í huga að hún hefur gengið þá sömu göngu og við göngum nú. Hún hefur lifað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.