Morgunblaðið - 10.12.1995, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Opinrt fundur með stjórnendum fyrirtækja
Þátttaka í
Evrópuverkefnum
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra efnir til opins
morgunverðarfundar með stjórnendum fyrirtækja
í Borgartúni 6 þriðjudaginn 12. des. kl. 8.10.
Kynnt verða Evrópuverkefni á sviði lítilla og
meðalstórra fyrirtækja og fyrirhugaðar aðgerðir til
að auðvelda íslenskum fyrirtækjum aðgang að
þeim. Að auki verður farið yfir helstu verkefni
nefndar um lítil og meðalstór fyrirtæki og
samkeppnisstöðu þeirra.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið.
Aflaðu þér bandarískrar
háskólagráðu
í London
Nám i viðskiptafræði, auglýsingateiknun, tískuhönnun,
markaðssetningu tískuvarnings, innanhússhönnun
og myndbandaframleiðslu.
Þér mun líða eins og heima í félagsskap annarra íslenskra
námsmanna, sem hafa valið The American College í London.
The American College býður uppá „master's-", „bachelor's-" ;
og sambærilegar háskólagráður.
Einnig heimavistir í Atlanta, Los Angeles og Dubai.
Ef þú vilt fá nánari upplýsingar eða kynningarbækling,
hafðu þá samband við:
n
110 Marylebone High Street,
London W1M 3DB Englandi.
Sími (0171 >486-1772.
Fax (0171)935-8144.
Námsannir hefast í október, janúar, mars, júní og júlí.
Ábendingar á mjólkiininibúðuni, nr. -16 af 60.
Byssustingur!
Ferskeytlan er langalgengasti bragarháttur
á íslandi. Varla er til það bam sem getur
ekki farið með „Fljúga hvítu fiðrildin“ eða
„Afi minn fór á honum Rauð“.
Ferskeytlan er Frónbúans
fyrsta bamaglingur,
en verður seinna í höndum hans
hvöss sem byssustingur.
(Andrés Bjömsson)
MJÓLKURSAMSALAN
íslenskufraðsla á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjótkursamsölunnar,
íslenskrar málnefntlar og Málrœktarsjóðs.
I DAG
BBIPS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
ÞEGAR opnað er á veikum
tveimur eða Tartan, getur
verið erfitt fyrir andstöðuna
að koma að tvílita hendi.
Þess vegna hafa sum reynd-
ari pörin tekið upp sérstakar
stökksagnir til að sýna slík
spil. Svo dæmi sé tekið,
myndi stökk í fjögur lauf við
opnum á tveimur spöðum
sýna a.m.k. 5-5 í laufi og
hjarta. Og fjórir tíglar 5-5
í tígli og hjarta. En þetta eru
tvíeggjaðar sagnir og alls
ekki í almennri notkun.
Austur gefur; enginn á
hættu. .. .
Norður
♦ D84
f G8742
♦ -
♦ KG1084
Vestur Austur
♦ 1076 * 5
♦ D10 IIIIH V ÁK953
♦ ÁDG107 111111 ♦ K93
♦ Á62 ♦ 9753
Suður
♦ ÁKG932
▼ 6
♦ 86542
♦ D
þetta spil kom upp í
Butler-tvímenningi BR síð-
astliðið miðvikudagskvöld.
Nokkrir austurspilarar
opnuðu í fyrstu hendi á
tveimur hjörtum, Tartan,
sem sýndi a.m.k. 5-4 í
hjarta og láglit og 6-10
punkta. Það leiddi til
óvæntra endaloka á einu
borðinu:
Vestur Norður Austur Suður
2 hjörtu 4 tíglari
Pass PassH Pass
NS höfðu stundum spilað
saman áður, en aldrei í föst-
um félagsskap, svo kerfis-
umræðan var að mestu
bundin við Stayman og
Blackwood. Suður spilaði
sína fjóra tígla í hljóði (og
þóttist reyndar góður að
sleppa fimm niður!), en þegar
búið var að færa töluna til
bókar gat hann ekki stillt sig:
Suður: Sýnir þetta ekki
spaða og tígul, makker?
Norður: Ég var ekki viss,
við höfðum ekkert talað um
þessa stöðu.
Suður. Ég hélt að allir betrí
spilarar landsins notuðu
þessa sagnvenju.
Norður: Já, þess vegna
sagði ég pass!
HÖGNIHREKKVÍSI
fHcmsi, hefttr natcá cuxruxb fwjert exrf ‘
SKAK
bmsjón Margcir
Pétursson
Hvítur á leik
STAÐAN kom upp í mikil-
vægri skák tveggja korn-
ungra stórmeistara í síð-
ustu umferð á rússneska
meistaramótinu í haust.
Peter Svidier (2.635)
hafði hvítt og átti leik, en
Alexander Morosjevitsj
(2.630) var með svart.
20. e5!! - Bh8 (20. - dxe5
er svarað með 21. Re4 —
Bh8 22. f6 og 20. — Bxe5
með 21. f6 með óstöðvandi
sókn í báðum tilvikum)
21. f6 — Hxc3 (örvænt-
ing) 22. bxc3 — Bc6 23.
exd6 - Hd8 24. Dg3 -
Bd5 25. a4! - Dc6 26.
axb5 — axb5 27. d7 —
Dxd7 28. De5 og auk
þess sem hvítur hefur
skiptamun yfir er
svarti biskupinn á h8
fangi, svo í raun er
hvítur hrók yfir.
Með þessum sigri
komst Peter Svidler í
efsta sætið á mótinu
ásamt fjórum öðrum.
Hraðskákmót Kópa-
vogs 1995 fer fram í fé-
lagsheimili Taflfélags
Kópavogs, Hamraborg 5 í
dag, sunnudaginn 10. des-
ember og hefst taflið klukk-
an 14. Tefldar eru fimm
mínútna skákir.
Hlutavelta
ÞESSI duglegu börn héldu hlutaveltu nýlega og söfn-
uðu 1.700 krónum í söfnun vegna kvenna og barna í
neyð. Þau heita Sylvía Björg og Páll Ammendrup.
ÞESSAR glaðlegu stúlkur héldu hlutaveltu nýverið og
söfnuð 1.794 krónum i söfnun handa litla barninu sem
fór í hjartaaðgerð. Stúlkumar heita Brynja Dögg
Guðmundsdóttir (til vinstri) og Guðrún Hrönn Jóns-
dóttir (til hægri).
Víkverji skrifar...
FJÖISKYLDAN er homsteinn
samfélagsins! Þessi gamal-
kunnu sannyrði hljómuðu enn og
aftur í sal Alþingis í nýlegri um-
ræðu um opinbera flölskyldustefnu.
Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, vék þar að tvenns
konar fjölskylduvanda í íslenzku
samfélagi: atvinnuleysi og lágum
launum.
„Ég ætla ekki að lýsa fyrir ykkur
þeirri stöðu,“ sagði þingmaðurinn,
„sem er á þeim heimilum er búa
við atvinnuleysi. Það er ekki já-
kvætt fyrir fjölskylduna. Það er
ekki jákvætt fyrir börnin þegar
heimilisfaðir eða heimilismóðir eru
atvinnulaus.“
Síðan sagði þingmaðurinn:
„Ég neita að viðurkenna það sem
eitthvert náttúrulögmál að atvinnu-
leysi eigi að vera til. Atvinnuleysið
er í mínum huga skipulagsvandi -
og ekkert annað.
Það þarf að leysa þennan vanda
og til þess að auka atvinnuna þarf
að auka fjárfestinguna... Aukin
fjárfesting í atvinnulífínu er um
leið fjöldskyldustefna...“
XXX
VIÐ BÚUM við allt of lág laun,“
sagði þingmaðurinn, „og það
kemur líka niður á fjölskyldunni.
Það er ekki gott fyrir fjölskylduna
þegar heimilisfaðirinn eða heimílis-
móðirin þurfa að vinna myrkranna
á milli og geta ekki átt samneyti
við börn sín. Það er mjög slæmt
og þessu þarf að breyta.“
En það er Þrándur í Götu. Pétur
Blöndal heldur áfram:
„Því verður ekki breytt nema hér
á landi rísi upp fyrirtæki sem eru
arðbær og gróðavænleg, skili hagn-
aði og geti borgað há laun. Það
þarf að snúa frá þeirri stefnu að
öll fyrirtæki séu rekin á núlli og
helzt fyrir neðan það. Við þurfum
að lofa þá menn sem skila fyrirtækj-
um sínum með hagnaði — gróða.
Það er líka fjölskyldustefna því að
þau geta þá borgað mannsæmandi
laun og þeir sem eru með mann-
sæmandí laun þurfa ekki að vinna
myrkranna á milli...
Það sem er aðalatriðið núna er
ekki það, hvemig eigi að dreifa tekj-
unum, heldur þurfum við öll saman
að vinna að því að stækka kökuna.
Það er ijölskyldustefna að stækka
kökuna, sem við öllum lifum af, það
er atvinnulífið.“
XXX
VELFERÐ er tízkuorð. Stjórn-
málamenn slá gjaman um sig
með orðum eins og velferðarþjóðfé-
lag, almannatryggingar, heilbrigð-
isþjónusta, félagsleg aðstoð og svo
framvegis. Það sem á bak við þessi
hugtök stendur verður þó orðin tóm
ef baklandið, undirstaðan, er ekki
til staðar.
Og hvert er þessi kostnaðarlega
undirstaða sótt? Hver er uppspretta
aficomu okkar og efna, lífskjara og
velferðar? Uppsprettan er atvinnu-
lífíð, þau verðmæti sem þar verða
til. Þijóti þau verðmæti þrýtur vel-
ferðina. Svo einfalt er það.
Með öðrum orðum: Við verðum
fyrst að byggja upp arðvænlegt
atvinnulíf. Arðsemi atvinnulífsins
er óhjákvæmilegur undanfari var-
anlegrar velferðar, hvernig svo sem
hún er skilgreind eða sundurliðuð.
Það þarf tekjur til að mæta eyðslu.
Tekjur eða skuldsetningu. Og lífs-
kjör byggð á skuldasöfnun endast
skammt!
Víkverji er þeirrar skoðunar að
Pétur Blöndal hafi hitt staðreynda-
naglann á höfuðið í þingræðu sinni
um málefni íslenzkra fjölskyldna.
Atvinnuöryggi og viðunandi laun
em ómissandi þættir farsællar fjöl-
skyldustefnu. Leiðin til að útrýma
atvinnuleysi er að styrkja sam-
keppnisstöðu, framleiðni og verð-
mætasköpun atvinnugreina okkar.
Leiðin til að bæta greiðslu-
getu/kaupgetu atvinnulífs/almenn-
ings er hin sama. Menntun, þekk-
ing, framtak og framsýni eru þær
árar, sem róa þarf með.
Raunverulegur og varanlegur
lffskjarabati verður aðeins sóttur í
stækkun þeirrar þjóðarköku sem til
skiptanna verður. Lýðskrumiö eitt
er létt í maga, bæði í bráð og lengd.