Morgunblaðið - 01.03.1996, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.03.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1996 C 3 ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Ásdís tliki til vinstri og Dwight L. Stewart úr boltann í Smáranum í gærkvöldi. Stew- tvö af 22 stigum sínum í leiknum. Þórsarar tryggðu sætið en Skagamenn í aukaleiki Þórsarar áttu ekki í erfiðleikum með að sigra ÍA á heimavelli í gær og tryggja sér þannig sæti í F*WH‘MTW Úrvalsdeildinni á Stefán Þór næsta tímabili. Sæmundsson Skagamenn verða skrifarfrá hins vegar að kljást Akureyri við lið úr 1. deild um laust sæti á meðal þeirra bestu. Menn bjuggust við mikilli baráttu um örugga sætið en baráttan var aðeins til staðar hjá heimamönnum sem höfðu mikla yfírburði eins og lokatölurnar, 106:82, bera með sér. Mótspyma ÍA var ótrúlega lítil. Eftir tíu mínútna leik var staðan 23:13 fyrir Þór og Fred Williams kominn með 17 stig en Milton Bell aðeins 1 fyrir ÍA. Forskot Þórsara jókst enn og leikmenn ÍA stein- gleymdu að spilá vöm. Liðið fékk aðeins dæmdar á sig 4 villur í öllum fyrri hálfleik og stemmningin eng- in. Leikmenn hittu illa og Þórsarar tóku 20 varnarfráköst í hálfleikn- um. Staðan í leikhléi var 51:25. Leikur IA skánaði lítið í seinni hálfleik. Reyndar fór Bell að skora grimmt og endaði í 35 stigum eftir að hafa aðeins gert 7 í fyrri hálf- leik. Aðrir vom daprir, nema helst Bjarni Magnússon. Um miðjan hálf- leikinn voru Williams, Konráð og Birgir komnir með 4 villur hjá Þór en forystan var ávallt yfir 20 stig. Leikmenn ÍA fóru nú að pressa og beijast. Villunum fjölgaði óðfluga en Þórsarar héldu haus, léku góða vörn og ijölbreyttan sóknarleik og sigur þeirra var aldrei í hættu. All- ir leikmenn liðsins komust á blað. Williams gerði 29 stig, Kristján sýndi góð tilþrif og skoraði 22 og Böðvar 16. Þá lék Björn Sveinsson einn af sínum betri leikjum á löng- 17. sigur IMjard- víkinga í röð NJARÐVÍKINGAR sigruðu í sínum 17. leik í röð þegar þeirtóku á móti ÍR-ingum í Ljónagryfjunni í Njarðvík ígærkvöldi. En sigur Njarðvíkinga var langt frá því að vera sannfærandi því ÍR-ingar léku þá lengstum grátt og það sem gerði gæfumuninn var góð- ur leikkafli hjá Njarðvíkingum í síðari hálfleik þar sem þeir settu 20 stig í röð þegar staðan var 79:66 fyrir ÍR - og náðu þar með að snúa leiknum sér ívil. Lokatölur urðu 97:93, en í hálfleik var staðan 46:58. Eftir leikinn var Njarðvíkingum afhentur deiidarbik- arinn sem þeir höfðu þegar tryggt sér. Það sem mest kom á óvart í þessum leik var ágætur leikur ÍR-inga sem lengstum áttu alls ■■■■ kostar við Njarðvik- Björn inga. En um miðjan Blöndal síðari hálfleik var ^ferfrá ejns 0g a[jj. pngur væn buið hja Reykjavíkurliðinu og það voru heimamenn fljótir að nýta sér. „Ég hef sagt það áður að við þurfum að leika vel í 40 mínútur til að sigra lið eins og Njarðvíkinga og við sýnd- um það í þessum leik að liðið er í mikilli sókn miðað við síðasta leik hér. Núna er bara að halda áfram og standa sig í úrslitakeppninni," sagði John Rhodes, þjálfari og Ieik- maður ÍR. „Við erum búnir að leika tvo erfiða leiki að undanförnu, gegn Keflvíkingum og síðan gegn Hauk- um, þannig að menn voru hálfslæpt- ir, við vorum á hælunum í fyrri hálfleik en tókum okkur á í þeim Úrslitakeppni úrvalsdeildar- innar hefst 7. mars ÁTTÁ liða úrslitakeppni úrvals- deildarinnar hefst 7. mars en þá taka deildarmeistarar Njarðvík- inga á móti Tindastólsmönnum og Haukar fá ÍR í heimsókn. Sömu lið mætast aftur laugardag- inn 9. mars og þriðja viðureignin verður 11. mars ef á þarf að halda. Keflvíkingar eiga heimaleik gegn KR-ingum föstudaginn 8. mars og á sama tíma Grindavík og Skallagrímur í Grindavík. Annar leikur þessara liða verður 10. mars og ef kemur til þriðja leiks verður hann þriðjudaginn 12. mars. Lið þarf að sigra í tveimur leikjum til að komast áfram í undanúrslit. Leikir á virkum dögum hefjast kl. 20 en helgarleikir byrja kl. 16. Undanúrslitin hefjast fimmtu- daginn 14. mars, en til að komast í úrslit þarf þijá sigra. Úrslita- rimman hefst síðan 30. mars og liðið sem sigrar í fjórum leikjum verður Islandsmeistari. Björn Björnsson skrifar frá Sauðárkróki TENNIS Danimir slerkari í Kópavogi TENNISSAMBAND íslands gekkst fyrir móti um síðustu helgi í Tenn- ishöllinni í Kópavogi. Mótið var liður í undirbúningi fyrir Federation Cup og Davis Cup, sem íslendingar taka nú þátt í í fyrsta sinn. Danska Tennissam- bandið sendi hingað 2 spilara, Mikkel Jakobsen, 22 ára, sem er nr. 14 í Dan- mörku og Kicki Demand, 19 ára, sem er nr. 40 á styrkleikalistanum. Danirn- ir sigruðu í öllum sínum viðureignum, en í mörgum tilvikum var um jafnan og spennandi leik að ræða. Helstu úrslit urðu þau að í kvenna- flokki vann Kicki Stefaníu Stefánsdótt- ur í þriggja setta leik 6/7, 6/1, 6/2. Hún vann einnig Hrafnhildi Hannes- dóttur 6/3, 6/4 í jöfnum og skemmtileg- um leik. í karlaflokki sigraði Mikkel Atla Þorbjörnsson 6/2, 6/2 í bráðijörugum leik. Mikkel er mjög sterkur tennisleik- ari eins og staða hans í Danmörku sýnir. Hann vann einnig Stefán Pálsson 6/2, 6/2 og núverandi íslandsmeistara Gunnar Einarsson 6/0, 6/4, en þeir léku til úrslita í einliðaleik á síðasta Islandsmóti. Af innbyrðis viðureignum kom mest á óvart sigur Arnars Sigurðssonar á Stefáni Pálssyni 7/6, 7/6. Arnar er aðeins 14 ára gamall og verður spenn- andi að fylgjast með þessum bráðefni- lega tennisleikara. Breiddin er að auk- ast og þau yngri farin að velgja þeim eldri undir uggum. í úrtökumóti fyrir Federation Cup nýlega sigraði hin 15 ára íris Staub bæði Stefaníu og Hrafn- hildi. Næsta verkefni Tennissambandsins er Unglingameistaramót íslands sem haldið verður í næsta mánuði. um ferli og gerði 15 stig. Konráð Oskarsson, fyrirliði Þórs, var ánægður með endasprettinn en sagði að ef liðið hefði unnið helm- inginn af þeim leikjum sem töpuð- ust á síðustu mínútunum hefðu Þórsarar flogið inn í úrslitakeppn- ina. „Við lékum oft ljómandi vel gegn betri liðunum en illa gegn þeim slakari og töpuðum mörgum leikjum á því að vera skrefi á eftir. í þessum leik fórum við ekki á sama plan og andstæðingarnir og þetta var mun auðveldara en ég bjóst við,“ sagði Konráð. síðari og við höfðum heppnina með okkur undir lokin,“ sagði Hrannar Hólm, þjálfari Njarðvíkinga. Bestu menn hjá UMFN voru Teitur Örlygsson og Rondey Robin- son en hjá ÍR-ingum þeir Herbert Arnarson, Eiríkur Önundarson og John Rhodes. Baráttaá Sauðár- króki Haukar þurftu verulega að hafa fyrir 66:60 sigri sínum á Tindastóli á Sauðárkróki í gær- kvöldi. Heimamenn léku án Torrey Johns, sem er meiddur, gáfu ekk- ert eftir og fylgdu Haukum eftir sem skuggi. Heima- menn komu mjög grimmir til leiks í upphafi, tóku forystuna og voru 11:4 yfir eftir sjö mínútur. Haukar tóku þá leikhlé og endurskipulögðu leik sinn. Að hléinu loknu náðu þeir fljótlega að jafna og komast yfir þegar sex mínútur voru eftir af hálfleiknum. Munaði þar mest um góðan leik Jason Willifords og Jóns Arnars Ingvarssonar. Tinda- stólsmenn léku mjög sterka vörn þar sem Pétur Guðmundsson og Hinrik Gunnarsson voru atkvæða- miklir. Haukar komust yfir en Tindastólsmenn réðu hraðanum, Iéku mjög langar sóknir og drógu vörn gestanna fram á völlinn. Pétur Ingvarsson átti siðasta orðið fyrir hlé með þriggja stiga körfu. Staðan í hálfleik var 30:22. Haukar komu grimmir til siðari hálfleiks og ætluðu að ná öruggri forystu en heimamenn héldu upp- teknum hætti í sókninni og gáfu hvergi eftir. Svo fór þó að lokum að Haukar höfðu betur en sigurinn var ekki fyrirhafnarlaus. Það var skarð fyrir skildi hjá heimamönnum á lokamínútunum að bæði Arnar Kárason og Hinrik Gunnarsson voru farnir af leikvelli með 5 villur. Allir leikmenn Tindastóls léku mjög vel en Pétur og Hinrik voru þó fremstir meðal jafningja. Hjá Haukum voru Williford og Jón Arn- ar geysisterkir í sókninni og Sigfús Gizurarson átti stórleik í vörninni Heimamenn á hælunum í Borgarnesi Þetta voru vonbrigði,“ sagði Tómas Holton, þjálfari og leik- maður Skallagríms. „Byijunin var góð en við náðum Theodór ekki að fylgja henni Þórðarson eftir og vorum á Borgarnesi hælunum. Eftir að KR-ingar komust yfir, spiluðu. þeir mjög vel og erfitt var fyrir okkur að ná þeim aftur. Úrslitinkeppnin er framundan og við verðum tilbúnir eftir viku.“ „Það er gott að fara héðan með 15 stiga sigur,“ sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari KR-inga. „Það er ekkert grín að vinna hérna, enda einn erfiðasti völlurinn heim að sækja. Við ætlum okkur að gera usla í úrslitakeppninni. Heimamenn léku mjög vel í um 16 mínútur. Þá lokuðu KR-ingar vörninni og þá var eins og allur vindur væri úr heimamönnum sem voru á hælunum það sem eftir var leiks. Eini maðurinn sem stóð upp úr var Alexander Ermolinskij. KR-ingar sóttu í sig veðrið eftir því sem á leið og yfirspiluðu heima- menn með afbragðsgóðri vörn. Her- mann Hauksson og Osvald Knudsen voru bestir hjá KR en Jonathan Bow náði sér ekki á strik í sókninni en skilaði sínu í vörninni. Sindri Bergmann Eiðsson skrifar Grindavík í 3. sæti Valur sigraði í seinni hálfleik með 12 stiga mun en það var því miður ekki nóg fyrir heimamenn þar sem Grindavík vann þann fyrri með 26 stigum. Lokatöl-. ur leiksins urðu 88:74 og Grindavík var þar með í þriðja sæti í deildinni. Valsmenn byijuðu fyrri hálfleik- inn betur, komust fjórum stigum yfir, 12:8. En eftir það hrukku Grindvíkingar í gang, skoruðu 32 stig á móti 6, og breyttu stöðunni í 18:40. Þar fór Hörður Bragason fremstur Grindvíkinga. Það var hins vegar ekki sjón að sjá Valsmenn á þessum kafla. Ekkert gekk upp, boltanum var oftar en ekki hent til andstæðinganna og hittnin var við mínusinn. Seinni hálfleikurinn var allt ann- að. Valur spilaði þó á köflum ágæt- lega og fór Ragnar Þór Jónsson þar fremstur, raðaði niður 3ja stiga körfum og kom liðinu á bragðið. Leikurinn var á heildina litið ekki slæmur á að horfa, liðin spiluðu á köflum ágætlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.