Morgunblaðið - 07.05.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996 B 7
URSLIT
Stangarstökk karla:.............metrar
1. Sergei Bubka (Úkraínu).........5,75
2. PatManson (Bandaríkj.).........5,70
3. Tim Bright (Bandaríkj.)........5,60
•Spjótkast karla:...............metrar
1. Tom Pukstys (Bandaríkj.)......84,14
2. Todd Riech (Bandaríkj.).......80,22
3. Emeterio Gonzales (Kúbu)......77,46
•200 m hlaup karla:...............sek.
1. Michael Johnson (Bandaríkj.)..20,27
2. Jeff Willianms (Bandaríkj.)...20,47
3. Robson da Silva (Brasilíu)....20,70
ÍSHOKKÍ
IMHL-deildin
AUSTURDEILDIN
Philadelphia - Florida.........3:2
■Staðan er 1:1 og það lið kemst í úrslit
austurdeildar sem fyrr sigrar í fjórum leikj-
um.
Pittsburgh - NY Rangers........3:6
■Staðan er 1:1.
VESTURDEILDIN
Colarado - Chicago.............5:1
■Staðan er 1:1 og það lið kemst í úrslit
vesturdeildar sem fyrr sigrar i fjórum leikj-
um.
Detroit - St Louis.............8:3
■Detroit hefur 2:0 yfir.
KAPPAKSTUR
FORMULA 1
Staðan eftir fimm mót:
1. Damon Hill (Bretlandi)......... 43
2. Jacques Villeneuve (Kanada)......22
3. Michael Schumacher (Þýskalandi)..16
4. Jean Alesi (Frakklandi)..........11
5. Eddie Irvine (Bretlandi)..........9
6. Rubens Barrichello (Brasilíu).....7
6. Gerhard Berger (Austurriki).......7
8. Mika Hakkinen (Finnlandi).........5
9. David Coulthard (Bretlandi).......4
10. Mika Salo (Finnlandi).............3
11. Olivier Panis (Frakklandi)........1
11. Jos Verstappen (Hollandi).........1
11. Martin Brundle (Bretlandi)........1
Staða framleiðenda:
1. Williams..........................65
2. Ferrari...........................25
3. Benetton..........................18
4. McLaren............................9
5. Jordan.............................8
6. Tyrrell............................3
7. Ligier.............................1
7. Footwork...........................1
GOLF
Opið mót á Hellu
Án forgjafar:
Sigurpáll G. Sveinsson, GA..
„70
Hannes Eyvindsson, GR.................71
Guðlaugur Georgsson, GSE Með forgjöf: Þorsteinn Ö. Gestsson Bergþór Jónsson, GR 71 62 63
Guðjón Daníelsson, GK 64
Úrval-Útsýn í Portúgal Punktakeppni sem haldin var á Salgados
velli í Algarve: Lájrforgjafarflokkur: Stefán Gunnarsson 41
Vilhjálmur Guðmundsson 41
Bragi Agnarsson •. 37
Háforgjafarflokkur: Jóhanna Torarensen 31
Pétur Sigurðsson 31
Jón Björnsson 29
Andrés Guðmundsson 29
HAND-
KNATTLEIKUR
Landsleikir
Kvennalandsliðið í handknattleik er í
Bandaríkjunum, þar sem liðið lék tvo vin-
áttuleiki gegn Bandaríkjamönnum um helg-
ina - tapaði þeim báðum, 20:29 og 17:22.
Ikvöld
Knattspyrna
Deildarbikar karla
A-riðill:
Eyjar: ÍBV -Fram...............19
B-riðill:
Kópavogur: FylkirBreiðablik...19.30
FELAGSLIF
Málþing HSK
Málþing HSK um fijálsíþróttir verður hald-
ið í Selinu fimmtudaginn 9. maí og hefst
kl. 20.30. Fulltrúar allra ungmennafélaga
eru hvattir til að mæta svo og aðrir sem
áhuga hafa á uppbyggingu fijálsíþrótta.
IÞROTTIR
AFLRAUNIR
Bryndís
sterkust
BRYNDÍS Ólafsdóttir vann titil-
inn Sterkasta kona íslands í
Laugardalshöll á sunnudaginn.
Bryndís, sem er betur þekkt
sem sundmeistari, fór að
stunda kraftlytingar og keppti
í aflraunamóti ífyrsta skipti í
fyrra. Hún vann ítveimur grein-
um af sex á mótinu um helg-
ina, en Sigrún Hreiðarsdóttir
varð í öðru sæti í keppninni og
Unnur Sigurðardóttir þriðja.
Fimm keppendur skiptust á að
vinna einstakar greinar móts-
ins. Sigrún var fljótust í hleðslu-
grein, en Bryndís vann bæði sekkja-
drátt - dró hraðast 160 kg sekk -
°g jeppadrátt, þar sem 1800 kg
Nissan Patrol var dreginn. Nína
Óskarsdóttir, íslandsmeistari í
vaxtarrækt vann, í drumbalyftu,
lyfti 65 kg upp fyrir haus. Halla
Heimisdóttir vann bílburðinn, þar
sem gengið var með Nissan Micru
GOLF
eins og um hjólbörur væri að ræða.
Dauðagönguna, göngu með tvær
50 kg tösku í sitt hvorri hendi vann
síðan Unnur. Sigrún varð að láta
titilinn sem hún vann í fyrra af
hendi og kvaðst hafa verið sterkari
í fyrra en Bryndís hefði greinilega
komið betur undirbúin.
„Eg æfði mikið og breytti alveg
um æfingaaðferð, æfði kraftþol
meira og lyfti minna. Fékk mikla
hjálp frá kærasta mínum, Heinz
Ollesch, sem er vanur aflraunamað-
ur. Það er mikill styrkur í því að
við höfum bæði sama áhugamál,"
sagði Bryndís í samtali við Morgun-
blaðið. „Ég hef bætt tíu kílóum af
vöðvum á mig síðustu tvö ár, en
gæti þess þó að verða ekki of mik-
il, vil halda kvenleikanum, en vera
samt sterk. Ég er búin að stefna
að því að vinna þennan titil í tvö
ár og æfi nú grimmt fyrir Sterk-
ustu konu heims, ef sú keppni fer
fram. Það kemur í ljós á næstunni."
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Reynt á kraftana
STERKASTA kona íslands, Bryndís Ólafsdóttir, burðast hér
með bíl, en þaS var eitt af því sem stúlkurnar þurftu aS gera.
Björgvin og Ólöf best
Kylfingar, þeir sem leika í meist-
araflokki, héldu uppskeruhátíð
sína fyrir skömmu, en þar kjósa þeir
meðal annars bestu kylfinga ársins,
þá vinsælustu og tilkynnt er um
björtustu vonina auk þess sem verð-
laun eru veitt fyrir bestan árangur
á hinum ýmsu sviðum golfsins.
Hafiifirðingarnar Björgvin Sig-
urbergsson og Ólöf María Jónsdóttir
voru kjörin bestu kylfingar síðasta
árs og Órn Ævar Hjartarson úr Golf-
BLAK
klúbbi Suðurnesja sá efnilegasti.
Kolbrún Sól Ingólfsdóttir úr Vest-
mannaeyjum var valin bjartasta von-
in og vinsælasti félaginn í kvenna-
flokki var valin Ragnhildur Sigurðar-
dóttir úr GR og hjá körlunum var
það Birgir Leifur Hafþórsson frá
Akranesi.
Björgvin Sigurbergsson úr Keili
hlaut Júlíusarbikarinn fyrir lægsta
meðalskor síðasta sumars, en Björg-
vin lék hringinn á 72,64 höggum að
meðaltali og Birgir Leifur varð annar
á 73,14 högg á hring. Sigurður Haf-
steinsson hitti flestar brautir í upp-
hafshögginu og þykir það ekki
fréttnaæmt því hann hefur haldið
þessum titli alveg frá því byijað var
að halda upplýsingunum saman. Sig-
urður hitti 64% brauta í fyrrasumar
og hjá konunum hitti Þórdís Geirs-
dóttir 66% brauta.
Nafnarnir Björgvin Þorsteinsson
úr GA og Sigurbergsson úr Keili léku
báðir snurðulaust á 57% brauta (reg-
ulation) en þar sem Þorsteinsson
hafði leikið fleiri hringi sigraði hann.
Öm Arnarsson úr Golfklúbbi Ak-
ureyrar notaði fæst pútt að með-
altaii í fyrra, hann púttaði 30,29
sinnum á hringnum en Björgvin Sig-
urbergsson varð annar með 30,46
pútt. Björgvin fékk hins vegar flesta
fugla á stigamótunum sjö í sumar,
38 talsins og Birgir Leifur varð ann-
ar með 31 fugl.
Rúmlega 500 blaköldungar reyndu
með sér í Stykkishólmi
Norðanliðin
voru sterkust
ÚRSLITALEIKUR
riilOI/A rm#i
niSSCA BIKJ
\DII\ly
ÞAÐ var mikið fjör í Stykkjs-
hólmi á dögunum þegar Öld-
ungamótið í blaki fór þar fram,
en til leiks mættu um 500 btak-
arar á aldrinum 30 til 80 ára.
Hólmarar tóku vel á móti gest-
um sínum og jókst íbúatala
byggðarlagsins um 40%
keppnisdagana.
Keppt var í átta flokkum og alls
voru 59 lið með í keppninni.
Konurnar voru heldur fjölmennari,
en þær sendu 35 lið til keppni.
Keppnin hófst á miðvikudegi og
lauk á laugardegi og voru menn
að frá því snemma morguns og
fram undir miðnætti.
KA-menn sigruðu í 1. deild karla,
lögðu Þrótt að velli í tveimur hrinum
í úrslitaleik, en Framarar urðu í
þriðja sæti. Völsungur sigraði í 1.
deild kvenna, Eik varð í öðru sæti
og HK í því þriðja. Norðanmenn
voru enn á ferðinni í 2. deild karla.
Þar hafði Hyrnan frá Siglufirði sig-
ur, Þróttur varð í öðru sæti og
Snæfell í því þriðja. Freyjur frá
Akureyri unnu í 2. deild kvenna,
Krækjur frá Sauðárkróki kræktu í
annað sætið og B-lið Völsungs það
þriðja. Góður árangur blakara af
Norðurlandi í efstu deildunum.
Þróttarar sigruðu örugglega í
öðlingaflokki karla en þar varð ÍS
í öðru sæti og Óðinn í því þriðja.
Ljúflingarnir í HK í Kópavogi smöl-
uðu í lið með skömmum fyrirvara
og sigruðu auðveldlega í ljúflinga-
flokki. Þar í liði eru margir fyrrum
landsliðsmenn og frumkvöðlar
blaksins. Skautar frá Akureyri urðu
í öðru sæti og Þróttur í því þriðja.
Stúlkurnar í Eik frá Akureyri sigr-
uðu í 3. deild kvenna, B-lið Þróttar
í öðru sæti og Austri frá Eskifirði
í því þriðja. Dalvíkurstúlkur í Rim-
um komu, sáu og sigruðu í fjórðu
deild kvenna, en það var fjölmenn-
asta deildin og þar þurfti að keppa
í tveimur riðlum. Rimar unnu Bresa
frá Akranesi 2:1 í úrslitum og
íþróttafélag kvenna vann B-lið
Freyja 2:0 í leik um þriðja sætið.
Hringdu strax og viö sendum þé r
loftnet aö láni. Áskriftarsími 533 5633