Morgunblaðið - 11.05.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.05.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1996 JMófigtittttlð&tö ■ LAUGARDAGUR 11. MAÍ BLAÐ íslendingamir sigruðu báðir í fyrstu umferð KRISTJÁN Helgason íslandsmeistari og Jóhannes B. Jóhannesson bytjuðu vel í Evrópukeppni einstakl- inga í snóker sem hófst í Antwerpen í Belgíu í gær. Strákamir sigruðu mótheija sína örugglega en önnur umferð fer fram í dag. Kristján vann Belgann Bart Van Ginneken 4:1 og sömu úrslit urðu í leik Jóhannesar gegn Finn- landsmeistaranum Rysto Vyraneu. „Við byijuðum báðir mjög vel og þetta var sannfærandi," sagði Jóhannes við Morgunblaðið í gærkvöldi. Keppt er í átta sex manna riðlum og fara tveir efstu í hveijum riðli áfram í 16 manna úrslit en riðlakeppninni lýkur á þriðjudag. Kristján mætir Danmerkurmeistaranum Rune Kampe í 2. umferð og Jóhannes spilar við Finnann Marku Hamnlinen. ÍA og Breiða- blik leika til úrslita Morgunblaðið/Porkell SUND Eðvarð og Ragnheiður þjálfa lið Keflvíkinga AKURNESINGAR sigruðu Fram- ara 5:0 í deildarbikarkeppninni á Valbjamarvelli í gærkvöldi og Breiðablik sigraði lið Grindavíkur 3:0 í Kópavogi. ÍA og Breiðablik leika því fyrsta úrslitaleik keppn- innar í karlaflokki og fer sú viður- eign fram á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði næsta miðvikudag kl. 20.00. Mihajlo Bibercic, sem er í herbúðum IA á ný eftir árs dvöl hjá KR, gerði þijú mörk gegn Fram en Bjarai Guðjónsson og Bjarki Pétursson sitt markið hvor. í Kópavogi skoruðu Pálmi Har- aldsson, Kjartan Einarsson og Amar Grétarsson fyrir Breiða- blik. Á myndinni er Bibercic með knöttinn, Valur Fannar Gíslason sækir að honum. Til hægri sést í bak Haraldar Ingólfssonar. ■ Lelklrnlr / D4 Eðvarð Þór Eðvarðsson og Ragn- heiður Runólfsdóttir hafa verið ráðin þjálfarar hjá Sunddeild Kefla- víkur. Eðvarð, sem hefur þjálfað unglingaflokka deildarinnar, tekur við eldri keppendunum af Þjóðveij- anum Martin Rademacher, sem senn flyst úr landi og fer að þjálfa í Lúxembourg og Ragnheiður tekur við unglingaflokkum af Eðvarð. „Það stóð alltaf til að Eðvarð Þór tæki við þegar Martin færi. Eðvarð hefur verið hjá okkur í tvö ár, nú gerðum við þriggja ára samning við hann til viðbótar en sömdum til tveggja ára við Ragnheiði,“ sagði Birgir Ingibergsson, formaður Sunddeildar Keflavíkur við Morg- unblaðið í gær. EðvarA Þór RagnhelAur „Það er mikill fengur fyrir okkur í því að ráða þau. Við höfum alltaf lagt áherslu á að vera með íþrótta- menntað, gott fólk við þjálfun, bæði unglingaflokkanna og þeirra eldri og það hefur alltaf skilað sér. Það hefur sýnt sig að þetta borgar sig, Eðvarð hefur til dæmis unnið mjög gott starf og skilað mörgum efnilegum krökkum frá sér upp í eldri flokkana." Eðvarð Þór og Ragnheiður voru bestu sundmenn íslands um árabil og hafa t.d. bæði hlotið sæmdar- heitið íþróttamaður ársins í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna. Eð- varð hefur þjálfað í Keflavík undan- farið, eins og áður greinir, en Ragn- heiður hefur þjálfað á Akranesi, í Mosfellsbæ og er nú á Akureyri þar sem hún tók við þjálfarastarfi hjá Óðni sl. haust. Hún kemur til starfa 1. ágúst og þá tekur Eðvarð form- lega við af Rademacher. Gullit tek- ur við af Hoddle HOLLENDINGURINN Ruud Gullit var f gær ráðinn knatt- spyrnustjóri enska úrvals- deildarliðsins Chelsea og mun einnig leika með iiðinu. Hann tekur við af Glenn Hoddle, sem verður næsti landsliðsþjálfari Englands og tekur við af Terry Venables eftir Evrópu- keppnina í sumar. Leikmanna- samningur Gullits rennur út í júní 1998. „Þegar við vissum að Glenn Hoddle væri að fara frá okkur kom nafn Gullits strax upp í hugann og stjórn félagsins ákvað að bjóða honum starf- ið,“ sagði Colin Hutchinson, framkvæmdastjóri Chelsea. Gullit, sem er i Hollandi ásamt fjölskyldu sinni og verð ur þar fram yfir helgi, hefur verið nyög vinsæll á Stamford Bridge frá því hann kom frá Ítalíu sl. sumar. Á sfðasta leik liðsins í deildinni, gegn Black- bura, eftir að \jóst var að Hoddle færi, létu stuðnings- menn Chelsea f ljós áhuga á að Gullit yrði ráðinn þjálfari - héldu á loft stórum borðum með kröfum þar að lútandi. Þeim hefur nú orðið að ósk sinni. Tilkynnt var í gær að Gull- itt myndi einvörðungu sjá um þjálfun liðsins en fjármál varð- andi leikmannakaup og annao vafstur í þeim efnum yirði al farið á herðum áðurnefnds Hutchinson. Kristinn á leið til Eyja KRISTINN Hafliðason, knatt- spyrnumaður sem lék með Fram í fyrra, mun að öllum lfkindum leika með í B V í sum- ar. Hann hefur æft með liðinu að undanf örau og er reiknað með að hann gangi frá félaga- skiptum eftir helgina. „Kristinn hefur sjálfur sýnt áhuga á að leika með okkur í sumar. Hann væri ekki að æfa með okkur ef hann ætlaði sér ekki að skipta um félag. Ég reikna raeð að hann skrifiund- ir leikmannasamning við ÍBV á allra næstu dögum," sagði Jóhannes Ólafsson, formaður knattspyraudeildar ÍBV. BIKARÚRSUTALEIKSIIMS í EIMGLANDIBEDIÐ MED MIKILU EFTIRVÆIMTINGU / D3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.