Morgunblaðið - 23.06.1996, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 23.06.1996, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996 33 JONAS ÞORARINN ÁSGEIRSSON + Jónas Þórarinn Ásgeirsson fv. kaupmaður og sölu- fulltrúi var fæddur á Húsavík 25. ágúst 1920. Hann lést á heimili sínu í Kópa- vogi 14. júní síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sólveig Helga Gísla- dóttir húsmóðir, ættuð úr Svarfað- ardal, f. 31. október 1890, d. 14. maí 1968, og Ásgeir Jón- asson, kaupmaður á Siglufirði, ættaður úr Þingeyjarsýslu, f. 31 október 1890, d. 28. maí 1957. Þau hjón fluttu til Siglufjarðar árið 1922 og bjuggu þar alla tíð. Jónas var einkasonur þeirra hjóna. Hinn 13. júní 1945 kvæntist Jónas eftirlifandi eiginkonu sinni, Margréti Ólafsdóttur, f.v. læknaritara frá Hlíð í Siglu- firði, f. 1. september 1921. For- eldrar hennar voru Þorfinna Sigfúsdóttir matráðskona á Sjúkrahúsi Siglufjarðar, f. 3. maí 1903, d. 4. febrúar 1990, og Ólafur Vilhjálmsson, skrifstofu- maður, f. 25. mars 1898, d. 30. janúar 1947. Börn þeirra eru: 1) Sólveig Helga Jónasdóttir myndlistarkennari, f. 12. apríl 1945, eig- inmaður hennar er Einar Long Sigur- oddsson aðstoðar- skólastjóri, f. 2. nóv- ember 1944. Dætur þeirra eru: Margrét Einarsdóttir nemi í MHÍ, f. 2. maí 1967, og Fanney Long Einarsdóttir nemi í HÍ, f. 27. júlí 1974. 2) Ásgeir Jónasson, lærður stýrimaður, starfar hjá Osta- og smjörsölunni, f. 26. ágúst 1948. Eigin- kona hans er Ásdís Hinriksdótt- ir hjúkrunarfræðingur, aðstoð- ardeildarstjóri á Borgarspítala, f. 3. júlí 1955. Sonur þeirra er Jónas Ásgeir Ásgeirsson, f. 2. júlí 1993. Jónas Þ. Ásgeirsson rak versl- unina Ásgeir á Siglufirði ásamt konu sinni í ellefu ár. Þau flutt- ust til Reykjavíkur 1968. Þar vann hann sem sölufulltrúi hjá Sveini Egilssyni fram til ársins 1989 er hann lét af störfum. Útför Jónasar Þ. Ásgeirsson- ar fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, mánudaginn 24. júní, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Við barnabörnin viljum skrifa nokkur minningarorð um góðan afa og mann sem við fengum að njóta í mislangan tíma. Litli nafni hans sem aðeins er tæpra þriggja ára var lítill sólargeisli í lífi afa. Þeir voru nánir þrátt fyrir stutt kynni. Við systurnar höfum átt lengri samveru- stundir með honum og höfum margs að minnast. Okkur þremur þótti óumræðulega vænt um afa okkar. Hann var svo skemmtilegur og litríkur persónu- leiki, aukin heldur var hann góður vinur okkar. Það var alltaf gleði og léttleiki í kringum hann því þannig vildi hann hafa það. Hann Jónas afi var ekki fyrir lofræður um sjálfan sig og var snillingur í að gera grín að sjálfum sér og sjá spaugilegu hliðarnar á hlutum sem upp komu. Við gætum, þess vegna, skrifað heila bók bara um brandarana hans og ef hann sjálfur mætti ráða yrði þessi minningargrein að hans skapi ef hún væri í léttum dúr þannig að við mættum brosa og helst skellihlæja. Sumar sögur sagði afi okkur aftur og aftur í gegnum árin og alltaf gátum við hlegið að þeim. Hann hafði líka sérstaka tilburði í frammi. Þeim fylgdu miklar handsveiflur og eins og allir sögumenn kunni hann að bæta frásögnina með skemmti- legum ýkjum. Fastur liður var að hefja og ljúka frásögn með yfirlýs- ingu um að um sanna sögu væri að ræða. Við góðar undirtektir magnað- ist hann_ allur og á eftir fylgdu fleiri sögur. Úr varð oft mikili spuni og skemmtan fyrir okkur í fjölskyld- unni. Eitt okkar bjó úti á landsbyggð- inni um tíma og þurfti fólk að fara nokkuð langa leið til að komast í sundlaug. Afi kom í heimsókn og vildi gjarnan gleðja dótturdóttur sína með sundferð. Tilhlökkunin var mik- il og miklar umræður um sund komnar af stað. Þegar komið var á áfangastað vildi ekki betur til en að sama sem ekkert vatn var í laug- inni. Afi hugsaði um það eitt að barnabarnið yrði ekki fyrir vonbrigð- um og fór í sund með þeirri stuttu og lét eins og laugin væri full af vatni. Hann lét vatnsskortinn ekki aftra sér heldur gerði úr mikla skemmtan. Þessi sundlaugarferð er sú eftirminnilegasta laugarferð sem þessi fyrrnefnda hnáta hefur farið á sínum yngri árum. Þennan atburð kunni afi að nota og bjó til lifandi frásögn sem enn er í minnum höfð innan fjölskyldunnar. Hann sá alltaf spaugilegu hliðarnar á öllum málum og naut þess líka í ríkum mæli að koma okkur til að hlæja með því að skrýða hversdagsleikann fyndni og skemmtilegum frásögnum. Afi var alltaf tilbúinn að gera allt sem hann gat fyrir okkur og bar hag okkar fyrir bijósti. Við vissum alltaf að hann fylgdist með okkur og hafði áhuga á því sem við gerð- um. Ef einhvetjir dagar liðu og við höfðum ekki haft samband hringdi hann og spurði hvort allt væri í lagi. Hann hefði sennilega viljað hafa lengri tíma til að fylgjast með nafna sínum en við vitum að hann gerir það þótt á annan hátt sé. Við tvær sem eldri erum munum vera ósparar á að fræða hann um þann góða og skemmtilega afa sem við fengum tækifæri á að kynnast svo vel. Við munum reyna að viðhalda sögunum sem hann bjó til og komu sannarlega frá hjartanu. Þær munu lifa með okkur í minningunni. Skíði áttu mikinn þátt í lífi afa okkar og sá hann um að við lærðum plóginn og á gönguskíði og nafni hans var varla farinn að standa í fæturna þegar skíðakennslan byijaði frammi á gangi, allt í rólegheitum, mikilvægt var að spara asann og gefa sér frekar meiri tíma í lærdóm- inn. Hann var góður kennari og spar- aði okkur ekki hólið hvort sem það var um að ræða skíðakunnáttu okk- ar eða einfaldlega það annað sem við tókum okkur fyrir hendur. Viðmótið sem maður fékk frá honum og sem hann sýndi börnum sérstaklega, var einstaklega hlýtt. Það er börnum svo mikils virði þeg- ar fullorðnir sýna þeim virðingu og athygli sem væru þau sjálf fullvaxin og þessa viðhorfs nutum við í ríkum mæli. Slík framkoma ætti að vera öllum sjálfsögð. Við systur erum mjög þakklátar fyrir að fá að eyða dýrmætum stund- um með honum síðustu mánuðina í lífi hans og fyrir að hafa fengið að hjúkra honum þegar hann var sem veikastur. Það var okkur einkar ljúf skylda. Nú orðið er það fágæt reynsla að fá að vera með ættmenn- um síðustu andartök í lífi þeirra. Kynnin við þig hafa að stóru leyti gert okkur að þeim manneskjum sem við erum í dag og með þessum orðum viljum við kveðja þig, elsku afi: Öll list er tileinkuð gleðinni, og ekki er til neitt háleitara eða brýnna ætlunarverk en að fjörga mannkynið. (Friedrich Schiller.) Margrét, Fanney og Jónas Ásgeir. Ei glóir æ á grænum lauki sú gullna dögg um morgunstund, né hneggjar loft af hrossagauki, né hlær við sjór og brosir grund. Guð það hentast í heimi fann, það hið blíða blanda striðu; allt er gott er gjörði hann. Svo orti Sveinbjörn Egilsson og þannig er nú komið, að Þórarinn Ásgeirsson hlær ekki lengur við ver- öldinni, en þannig minnist ég helst Jónasar tengdapabba, glettinn á brá með spaugsyrði á vörum. Sendandi frá sér beinskeyttar athugasemdir um menn og málefni og koma þann- ig þeim er með honum voru í um- ræðuham. Oftar en ekki voru háv- aðasamræður einkenni á afmælis- boðum á mínu heimili þar sem tek- ist var á um dægurmál líðandi stund- ar. Hann hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum en fáa hef ég hitt sem hafa haft jafn ríka tilfinn- ingu fýrir að allir menn ættu að vera jafnir fyrir Guðs og manna lögum og ættu jafnan rétt til lífsins gæða og möguleika í lífinu. Réttsýni hans var viðbrugðið og honum fannst sem fleirum að ýmislegt mætti betur fara í okkar litla þjóðfélagi. Þátttöku Jónasar í íþróttum, eink- um skíðakeppnum og árangri hans í þeim geri ég ekki skil, það vita aðrir betur um, en hitt veit ég að ýmsir munu minnast þátttöku hans í ýmsum öðrum íþróttagreinum. Það var honum mikið ánægjuefni á 70 ára afmælinu að hljóta gullmerki ÍSÍ sem verðskuldaða viðurkenningu fyrir störf sín að íþróttamálum á Siglufirði. Það var með miklum söknuði sem Jónas varð að hverfa frá verslun SuöurlanásbrauMO 108 Reykjavík • Sími 553 1099 Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um hclgar. Skrcvtingar íyiir oll tílcfni. : t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, ELÍNBORGAR K. STEFÁNSDÓTTUR, Kleppsvegi 120, Reykjavík. Þórður Sveinbjörnsson, Guðbjörg Kristjánsdóttir, Þórarinn Sveinbjörnsson, Þórgunnur Jónsdóttir, Grima Sveinbjörnsdóttir, Stefnir Helgason, Vilborg Sveinbjörnsdóttir, Kenneth Wilson, Stefanía Þ. Sveinbjörnsdóttir, Raymond Dignum, barnabörn og barnabarnabörn. sinni á Siglufirði, en flutti suður og hóf störf við bílasölu hjá kunningja sínum og skíðafélaga, Þóri Jónssyni, 1967, og hjá fyrirtæki hans starfaði hann þar til hann ákvað að hætta störfum og njóta elliáranna. Fljótlega eftir að suður kom festu þau Magga kaup á íbúð í Vestur- bergi 8 og þar undu þau vel í nærri 20 ár. Árið 1992 fluttu þau í Kópa- voginn. Hreyfing og útivera voru aðal- áhugamál Jónasar eftir að suður kom. Skíðin voru sem fyrr í fyrsta og öðru sæti. Þegar vinnu lauk settu langir göngutúrar um nágrenni heimilisins einnig lit sinn á líf hans sem og lestur góðra bóka. Hér að framan er ótalinn þáttur Jónasar í lífi fjölskyldu sinnar, dótt- urdætranna og síðar sonarsonarins. Hann var ávallt boðinn og búinn að gera það sem hann hafði tök á til að létta okkur lífið, að snúast eitt og annað. Það voru einkum stelpurn- ar sem nutu þessarar ósérhlífni hans og þær nutu ástar og umhyggju hans meðan heilsan leyfði. Litíi sól- argeislinn í fjöiskyldunni, Jónas Ás- geir, varð strax eftirlæti afa síns. Einhvern veginn fannst mér Jónas aldrei verða gamall. Hann var ætíð ungur í anda og naut þess að vera með ungu fólki. Það hægði að vísu eitthvað á hreyfingum hans en hann var ávallt kvikur og snar í snúning- um og tígulegur á velli. En nú ertu burt kallaður, en eftir stendur minning um skemmtilegan, ógleymanlegan persónuleika sem fylgir okkur ætíð. Hafðu kæra þökk fyrir samfylgdina. Einar Long Siguroddsson. Það er margs að minnast þegar litið er yfir farinn _veg af kynnum mínum af Jónasi Ásgeirssyni, vini mínum og svila. Jónas var litríkur persónuleiki, fjölhæfur íþróttamaður og mikill keppnismaður. Hann fylgd- ist vel með þjóðmálum og voru um- ræður um íþróttir og hin margvísleg- ustu dægurmál oft íjörlegar á heim- ili þeirra Möggu og Jónasar í Hlíð á Siglufirði í gamla daga þegar fé- lagamir komu saman. Skíðaíþróttin átti hug hans allan og varð hann fyrst íslandsmeistari aðeins átján ára gamall. Hann var stórhuga og áræðinn. Á árinu 1947 keppti hann á Holmenkollen-pallin- um í Noregi ásamt félaga sínum Jóni Þorsteinssyni. Hann tók þátt í fyrstu vetrarólympíuleikum, sem ís- lendingar tóku þátt í, en það var í St. Moritz í Sviss árið 1948. Jónas' varð sjö sinnum íslandsmeistari í skíðastökki og fimm sinnum í nor- rænni tvíkeppni. Hann var einstak- lega laginn og leikinn, en í stökkinu naut sín hans alkunna öryggi og áræði sem við hinir yngri dáðumst að. Jónas þreyttist aldrei á því að segja okkur sem yngri vorum til í stökkinu og sá áhugi hans dvínaði aldrei. Jónas gaf mér fyrstu stökk- skíðin á árinu 1950, þá tólf ára göml- um, en erfitt var að ná í slík skíði þá. Síðan eignuðumst við bræður skíðin sem hann hafði stokkið á í St. Moritz og voru þau mikið notuð. Hann var sífellt að hvetja okkur til dáða og leiðbeina hinum yngri. Jónas fór yfirleitt ekki troðnar slóðir heldur hafði sinn stíl til orðs og æðis, líka sinn sérstæða en ör- ugga stökkstíl. Hann var hrókur alls fagnaðar á keppnisferðum og hvar sem hann fór og var hvergi neinn meðalmaður. Jónas var myndarlegur á velli, alltaf snyrtilegur, bæði innan vallar sem utan, og drengilegur í allri framgöngu í íþrótt sinni. Á Siglufirði stundaði Jónas lengst af verslunaretörf og ráku þau hjónin Verslunina Ásgeir á Siglufírði í rúm- an áratug. Jónas hóf síðan störf hjá Ford-umboðinu, Sveini Egilssyni hf. í Reykjavík á árinu 1967, þar sem hann starfaði í rúm 20 ár. Hann sat í stjórn Skíðafélags Reykjavíkur og í Skíðaráði Reykjavíkur. Á árinu 1990 var hann sæmdur gullmerki íþróttasambands íslands. Við systkinin, Anna, Bogi og Gústav og fjölskyldur okkar sendum Margréti, börnum og barnabörnum innilegar samúðarkveðjur og þakkir fyrir ógleymanlegar stundir á liðnum árum. Minningin um góðan dreng mun lifa um ókornin ár. Ólafur Nilssou. • Fleiri minningprgreinar um Jónas Þórarinn Ásgerisson bíða birtingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. t Hugheilar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HRAFNHILDAR SVEINSDÓTTUR (STELLU). Sérstakar þakkir til Agústu og Margrétar, starfsmanna Félags húseigenda á Spáni fyrir hlýhug og einlæga vináttu. Kristín Eyþórsdóttir, Hartmann Guðmannsson, Lilja Dóra Eyþórsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Margrét Óskarsdóttir, Björn H. Einarsson, Hrafnhildur Eyþórsdóttir, Sævar Ástráðsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okk- ur samúð og hlýhug við andlát og útför RÍKARÐS REYNIS :,,Á STEINBERGSSONAR. ■ ^ f f \ Valdís Garðarsdóttir, Sumarrós Snorradóttir, Jóna Steinbergsdóttir, Steinberg Ríkarðsson, Ásta Óskarsdóttir, Hildur Rikarðsdóttir, Ellert Már Jónsson, Heimir Ríkarðsson, Reynir Ríkarðsson, Ingimundur Bergmann, Þórunn Kristjánsdóttir, Matthildur Guðmundsdóttir, Garðar Skaptason, W. Klarstam, Birgir Skaptason, Kristin Blöndal Magnúsdóttir, Þóroddur Skaptason, Brynja Þorbergsdóttir, Steinunn Skaptadóttir, Mogens Lundahl, Unnur Dís Skaptadóttir, Guðmundur R. Guðmundsson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.