Morgunblaðið - 04.07.1996, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1996 C 5
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Eyjasigur
í hörkuleik
Sigurgeir
Guötaugsson
skrifar
Eyjamenn tryggðu sér í gær-
kvöldi farseðilinn í 8-liða úrslit
Bikarkeppni KSÍ þegar þeir lögðu
Þróttara að velli í
hörkuleik á Val-
bjamarvelli í Laug-
ardal.
Eyjamenn hófu
leikinn af miklum krafti en greini-
legt var þó að Þróttarar ætluðu
ekki að gefa þumlung eftir og ekki
leið á löngu þar til heimamenn
náðu að komast ágætlega inn í
leikinn. Þeir náðu samt ekki að
koma í veg fyrir að Steingrímur
Jóhannesson kæmi Eyjamönnum
yfir á 28. mínútu með laglegu
marki eftir góðan undirbúning
FOLK
■ BJARKI Pétursson, leikmaður
Skagamanna, skrifaði í gær undir
tveggja ára samning við Fylki. Hann
verður löglegur með félaginu í næsta
deildarleik gegn Leiftri eftir viku.
■ RADENKO Maticic lék í fyrsta
sinn með Breiðabliki í gærkvöldi
en varnarmaðurinn er 36 ára og
stóð sig mjög vel.
■ SÆMUNDUR Víglundsson,
dómari, fékk boltann í höfuðið í bi-
karleik KR og Breiðabliks. Hann
vankaðist, stöðvaði leikinn í mínútu
á meðan hann var að jafna sig.
■ PORTÚGALSKI knattspyrnu-
maðurinn Paulo Futre gekk á
þriðjudaginn frá tveggja ára samn-
ingi við West Ham með möguleika
um að framlengja honum þriðja árið.
Futre var hjá AC Milan en lék að-
eins fjóra leiki með félaginu á sið-
ustu leiktíð vegna meiðsla í hné. „Ég
hef æft að krafti síðan í mars og
ekkert bendir til annars en ég hafi
náð fullum bata,“ sagði Futre er
samningurinn var undirritaður.
■ FUTRE bætist í fríðan hóp út-
lendinga hjá West Ham - Króatans
Slaven Bilic, Danans Marc Riepers,
Tékkans Ludek Mikloskos og Rúm-
enans Ilie Dumitrescus.
■ WEST Ham er áttunda liðið sem
Futre leikur með, hefur áður leikið
með Sporting Lisbon, Atletico
Madrid, Porto, Benfica, Marseille,
Reggiana og AC.Miian.
■ RICHARD Hall, sem er varnar-
maður, var einnig kynntur til leiks
sem leikmaður með West Ham
næsta vetur. Hann var áður í her-
búðum Southampton. Kaupverð
hans er um 150 milljónir króna.
■ FYRRUM leikmaður og knatt-
spyrnustjóri Liverpool, Graham
Souness, var í gær ráðinn knatt-
spymustjóri enska úrvalsdeildarliðs-
ins Southampton.
■ SOUNESS mun taka við stjórn-
inni af Dave Merrington, sem var
látinn fara frá Southampton í júní
síðastliðnum, en auk þess að hafa
verið við stjórnvölinn hjá Liverpool
var Souness einnig knattspyrnu-
stjóri Glasgow Rangers í Skotlandi
og Galatasaray í Tyrklandi, þaðan
sem hann var látinn fara í lok síð-
asta keppnistímabils.
■ SAMKVÆMT fréttum frá Eng-
landi er hinn nýi knattspymustjóri
enska 1. deildarliðsins Birmingham
City, Trevor Francis, nú á höttun-
um á eftir franska sóknarmanninum
Jean-Pierre Papin, sem lék á síð-
asta keppnistímabili með Bayern
MUnchen í Þýskalandi. Fregnir
herma að Birmingham hafí boðið
83 milljónir króna í kappann en ekki
alls fyrir löngu gekk fyrmm fyrirliði
Manchester United, Steve Bruce,
til liðs við Birmingham.
Rúts Snorrasonar og þannig var
staðan í leikhléi.
Gestimir byijuðu síðari hálfleik-
inn af krafti og ekki liðu nema níu
mínútur þangað til Rútur Snorrason
hafði bætt við öðm marki fyrir
Eyjamann eftir fallega stungusend-
ingu inn fyrir vörn Þróttar, en
heimamenn neituðu þó að gefast
upp og aðeins tveimur mínútum
síðar minnkaði Þorsteinrt Halldórs-
son metin eftir góðan undirbúning
Ingvars Ólasonar.
Þróttarar sóttu svo af krafti eftir
markið og vom óheppnir að jafna
ekki metin um miðjan síðari hálf-
leik en glæsileg markvarsla Friðriks
í Eyjamarkinu kom í veg fyrir það.
Eyjamenn áttu á köflum í vök að
veijast og ekki bætti úr skák fyrir
þá að dómari leiksins, Ólafur Ragn-
arsson, sýndi Rúti Snorrasyni annað
gula spjald hans í leiknum fimmtán
mínútum fyrir leikslok og þurftu
Eyjamenn því að leika tíu það sem
eftir var. Þeir náðu þó að bæta við
þriðja markinu nokkuð gegn gangi
leiksins þegar skammt var til leiks-
loka. Þar var að verki Steingrímur
Jóhannesson eftir að Fjalar Þor-
geirsson í marki Þróttar hafði
hlaupið langt út úr vítateig sínum
og ætlað að hreinsa frá en misreikn-
að knöttinn og misst hann yfir sig.
En seigla Þróttar skilaði þeim
þó marki á síðustu mínútu leiksins
og var þar að verki Ingvar Ólason,
en markið kom of seint og það voru
því Eyjamenn, sem tryggðu sér rétt-
inn til áframhaldandi þátttöku í
Bikarkeppninni en Þróttarar sitja
eftir með sárt ennið.
Morgunblaðlð/Ámi Sæberg
EYJAMAÐURINN Rútur Snorrason á hér í harðri baráttu vlð Þróttarana
Zoran Micovic og Arnald Loftsson en Rútur kom mikið við sögu í leik
ÍBV og Þróttar í 16-liða úrslitum Bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi. Rútur
lagði upp fyrsta markið, skoraði sjálfur annað og var svo rekinn af
lelkvelli um miðjan síðari hálfleik.
Glæsimörk komu
Keflvíkingum áfram
Glæsimark Eysteins Haukssonar
beint úr aukaspymu í síðari hálf-
leik og gott mark Ragnars Marteirs-
sonar á lokamínútu
Björn leiksins gegn FH í
Keflavík voru nánast
það eina sem uppúr
stendur eftir leik lið-
anna í 16-liða úrslitum Mjólkurbikar-
keppninnar í Keflavík í gærkvöldi og
verðskulduðu að koma Keflvíkingum
áfram.
Leikur liðanna bauð að öðru leyti
ekki uppá mikla skemmtun né tilþrif.
Blöndal
skrifar frá
Keflavik.
Keflvíkingar virkuðu þreyttir lengst-
um, það sama má reyndar segja um
FH-inga. Fyrri hálfleikur var ákaflega
daufur, svo ekki sé meira sagt, en í
síðari hálfleik færðist heldur meira líf
í heimamenn eftir að þeir höfðu skipt
hinum unga og sókndjarfa Hauki Inga
Guðnasyni inná. Haukur Ingi fór strax
að hrella vörn FH-inga með hraða sín-
um og baráttugleði. Fyrra mark Kefl-
víkinga kom einmitt eftir aukaspyrnu
sem Haukur Ingi vann rétt fyrir utan
vítateig. Eysteinn Hauksson tók spyrn-
una og skoraði með glæsilegu skoti
efst í markvinkilinn án þess að Daði
Lárusson í marki FH kæmi nokkrum
vörnum við.
Eftir markið gerðust FH-ingar
ágengir við mark heimamanna og
hefðu allt eins getað jafnað með smá
heppni. En það voru heimamenn sem
áttu síðasta orðið með marki Ragnars
Margeirssonar á síðustu mínútu leiks-
ins. Ragnar fékk boltann inn í vítateig
og skaut góðu skoti í stöngina og inn
- fallegt mark hjá Ragnari og sýnir
hversu hættulegur hann getur verið
fái hann tíma og rúm.
Sigþór
Eiriksson
skrifar
frá Akranesi
Öraggt
hjálA
Skagamenn töpuðu 1:0 á móti
Frömurum í 16 liða úrslitum
bikarkeppni KSÍ í fyrra en hefndu
ófaranna í gærkvöldi
með 3:0 sigri á
Skaganum. Þrátt
fyrir öruggan sigur
þurftu Skagamenn
að hafa þó nokkuð fyrir sigrinum.
Framarar börðust vel og áttu þó
nokkur góð marktækifæri en þeim
tókst ekki að setja punktinn yfir i-ið.
Leikurinn byijaði fjörlega og eft-
ir þunga sókn heimamanna skoruðu
þeir á 6. mínútu. Haraldur Ingólfs-
son átti góða fyrirgjöf og Bibercic
var réttur maður á réttum stað,
skallaði í stöng og inn. Aðeins 30
sekúndum síðar munaði aðeins
hársbreidd að Framarar jöfnuðu.
Þá átti Hólmsteinn skot úr þröngri
stöðu af stuttu færi en Steinar
bjargaði á marklínu. Eftir þetta
voru heimamenn mun sterkari og
bættu öðru marki við á 28. mínútu.
Haraldur tók horn og gaf fyrir
markið, Zoran átti hörkuskalla að
marki, Ólafur varði vel en hélt ekki
knettinum og markahrókurinn ungi,
Bjarni Guðjónsson, var ekki lengi
að átta sig og afgreiddi boltann í
netið. Bjarni var aftur á ferðinni
10 mínútum síðar þegar hann átti
hörkuskalla að marki eftir enn eina
fyrirgjöf frá Haraldi en Ólafur varði
meistaralega alveg úti við stöng.
Framarar neituðu að gefast upp,
sóttu í sig veðrið á lokakafla hálf-
leiksins og tvívegis þurfti Þórður
markvörður að taka á honum stóra
sínum þegar hann varði með stuttu
millibili frá Þorbirni Atla eftir að
sá síðarnefndi hafði komist inn fyr-
ir vörn heimamanna.
Seinni hálfleikur var frekar slak-
ur. Framarar fengu fljótlega mark-
tækifæri en enn varði Þórður meist-
aralega, að þessu sinni frá Þorvaldi
Ásgeirssyni. Eftir þetta var leikurinn
mjög þófkenndur og fátt markvert
gerðist þar til um miðjan hálfleikinn
þegar Skagamenn náðu loks að rífa
sig upp úr doðanum. Ólafur Þórðar-
son átti þrumuskot á markið eftir
vel útfærða sókn en nafni hans Pét-
urson varði meistaralega. Mínútu
síðar var dæmd vítaspyrna á Fram-
ara þegar Ólafur Adolfsson var
hindraður í vítateignum. Haraldur
tók spyrnuna og skoraði af öryggi
en Stefán Maríasson dómari sá að
Bibercic var innan teigs þegar víta-
spyrnan var framkvæmd. Hann lét
því taka spyrnuna aftur og gaf mið-
heijanum gult spjald. Haraldur lét
ekki slá sig út af laginu og skoraði
aftur af öryggi.
I liði Skagamanna voru Haraldur
Ingólfsson, Þórður Þórðarson, Alex-
ander Högnason og Sigursteinn
Gíslason bestir en hjá Frömurum
voru Ólafur Pétursson, Anton B.
Markússon og Ágúst Ólafsson í aðal-
hlutverkum.
Þolinmæðin þrautir vinnur
Valur B.
Jónatansson
skrifar
Orðatiltækið „þolinmæðin þrautir
vinnur allar“ átti vel við í
Frostaskjólinu í gær er bikarmeistar-
ar KR mættu Breiða-
bliki í 16-Iíða úrslitum
bikarkeppninnar.
Þrátt fyrir yfírburði
KR-inga frá fyrstu
mínútu náðu þeir ekki að skora fyrr
en 8 mínútur voru til leiksloka og
var Heimir Guðjónsson sem það gerði
með þrumuskoti af 20 metra færi.
Blikar komu í Frostaskjólið til að
veijast og gerðu það vel. Þeir héldu
sig á sínum vallarhelmingi og lokuðu
vel svæðum þannig að sóknarmenn
KR-inga fengu lítið rými. Fyrsta
færið í leiknum fengu KR-ingar á
34. mínútu er Guðmundur Benedikts-
son átti hörkuskot af 25 metra færi
sem fór rétt framhjá. Besta færi
þeirra fékk Hilmar Bjömsson er hann
slapp í gegnum vörn Blika en gott
skot hans small í þverslánni. Sigurður
Örn Jónsson var síðan nálægt því að
setja boltann í netið er hann óð í
gegnum vörnina undir lok hálfleiks-
ins, en Cardaklikja náði að veija í
horn.
KR-ingar fóru sér engu óðslega í
upphafi síðari hálfleiks þó svo að enn
væri ekki komið mark. Þeir voru
þolinmóðir, enda Blikar ekki líklegir
til að skora. Ríkharður Daðason var
klaufi að skora ekki eftir að Guð-
mundur vippaði yfir varnarvegg Blika
úr aukaspyrnu. En markið lá í loftinu
og það kom á 82. mínútu. Hilmar
+
Björnsson lék þá upp hægri kantinn,
sendi boltann fyrir og þar náði varn-
armaður Blika að skalla frá. Heimir
var fljótur að átta sig og skoraði með
viðstöðulausu utanfótarskoti af 25
metra færi, skoti sem hafnaði í blá-
hominu vinstra megin.
„Það var kominn tími til að ég
næði almennilegu skoti á markið.
Eg smell-hitti boltann og það var
ánægjulegt að sjá hann í netinu,“
sagði Heimir Guðjónsson, hetja KR-
inga. „Þetta var góður sigur. Það
er góðs viti þegar við erum farnir
að vinna leiki sem við spilum illa.
Blikar hugsuðu eingöngu um að spila
vörn. Við lékum við Magnamenn í
32-liða úrslitum og þeir sóttu meira
en Blikar gerðu í þessum leik. Ég
lu
spren
Dæmisaga frá síðustu viku
Reykvíkingur spilaði fyrir 3000 kr.
og vann 938.190 krónur,
hann setti miðann tvisvar í gegn
og tvöfaldaði upphæðina.
Annar spilaði fyrir 1000 kr.
og vann 515.980 krónur.
Sá þriðji spilaði fyrir 1000 kr.
og vann 312.720 krónur.
var aldrei hræddur um að við mynd-
um tapa þessum leik og við áttum
að vera búnir að gera út um hann
miklu fyrr.“
KR-ingar léku af yfirvegun og
gerðu aðeins það sem þurfti. Þeir
geta leikið mun betur, en það kom
ekki að sök gegn slöku liði Breiða-
bliks, sem fékk ekki eitt einasta
marktækifæri í leiknum.
Heimir var besti leikmaður KR-
inga og það hlýtur að vera kominn
tími til að hann fái nú að spreyta sig
með landsliðinu. Þorsteinn Jónsson
lék einnig vel. Hjá Breiðabliki var
Júgóslavinn Radenko Maticic bestur.
Hann lék sem aftasti maður í vörn
og stöðvaði ófáar sóknarlotur KR-
inga.
LENGJ
4 C FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1996
ÚRSLIT
KR-Breiðablik 1:0
KR-völlur, bikarkeppni KSÍ — 16-liða úr-
slit, miðvikudaginn 3. júlí 1996.
Aðstæður: Völlurinn góður, veðrið eins og
best verður á kosið; logn og sól, hiti um
12 gráður.
Mark KR: Heimir Guðjónsson (82.).
Gult spjald: Hreiðar Bjamason (70.) - fyr-
ir brot, Radenko Maticic (86.) - fyrir brot,
báðir úr Breiðabliki.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Sæmundur Víglundsson. Dæmdí
vel.
Aðstoðardómarar: Smári Víglundsson og
Einar Guðmundsson.
Áhorfendur: 1.012 greiddu aðgangseyri.
KR: Kristján Finnbogason — Ólafur Krist-
jánsson (Bjarni Þorsteinsson 85.), Þor-
steinn Guðjónsson, Þormóður Egilsson,
Sigurður Jónsson (Brynjar Gunnarsson
60. ) — Einar Þór Daníelsson, Heimir Guð-
jónsson, Þorsteinn Jónsson, Hilmar Bjöms-
son — Ásmundur Haraldsson (Ríkharður
Daðason 60.), Guðmundur Benediktsson.
Breiðablik: Hajrudin Cardaklija — Theód-
ór Hervarsson, Radenko Maticic, Hreiðar
Bjamason, Pálmi Haraldsson — Guðmund-
ur Þ. Guðmundsson, Hákon Sverrisson
(ívar Sigurjónsson 84.), Þórhallur Hinriks-
son (Gunnlaugur Einarsson 60.), Arnar
Grétarsson — Kjartan Einarsson (Anthony
Karl Gregory 67.).
ÍA - Fram 3:0
Akranessvöllur, 16 liða úrslit í bikarkeppni
KSÍ, miðvikudaginn 3. júlí 1996.
Aðstæður: Austan andvari, sól. Gott knatt-
spyrnuveður.
Mörk ÍA: Mihajlo Bibercic (6.), Bjami Guð-
jónsson (28.j, Haraldur Ingólfsson (70.
vsp.).
Gult spjald: Mihajlo Bibercic, ÍA, fyrir brot
(70.), Olafur Adolfsson, f A, fyrir brot (63.).
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Guðmundur Stefán Maríasson átti
slakan leik.
Aðstoðardómarar: Einar Sigurðsson og
Hallgrímur Friðgeirsson.
f A: Þórður Þórðarson - Steinar Adolfsson,
2oran Miljkovic, Ólafur Adolfsson, Sigur-
steinn Gíslason - Ólafur Þórðarson, Jóhann-
es Harðarson (Sturlaugur Haraldsson 69.),
Alexander Högnason, Haraldur Ingólfsson
- Mihajlo Bibercic (Stefán Þórðarson 75.),
Bjami Þórðarson.
Fram: Ólafur Pétursson - Sævar Guðjóns-
son, Jón Þ. Sveinsson, Kristinn R. Jónsson
(Steinar Guðgeirsson 64.), Þórhallur Vík-
ingsson - Hóímsteinn Jónasson, Anton B.
Markússon,_ Ágúst Ólafsson, Þorvaldur Ás-
geirsson, Ásgeir Halldórsson - Þorbjöm
Atli Sveinsson.
Áhorfendun Um 500.
Þróttur R. - ÍBV 2:3
Valbjamarvöllur:
Aðstæður: Sól og hlýtt, gott knatt-
spyrnuveður og góður völlur.
Mörk Þróttar: Þorsteinn Halldórsson (56.),
Ingvar Ólason (90.).
Mörk ÍBV: Steingrímur Jóhannesson 2
(28., 85.), Rútur Snorrason (54.).
Gult spjald: Þróttaramir Arnaldur Loftsson
(45.) og Zoran Micovic (83.) fyrir brot og
Eyjamaðurinn Rútur Snorrason, fyrst fyrir
að fara úr treyjunni eftir mark sitt (54.)
og svo aftur fyrir brot (75.).
Rautt spjald: Eyjamaðurinn Rútur Snorra-
son vegna tveggja gulra spjalda.
Dómari: Ólafur Ragnarsson.
Aðstoðardómaran Róbert Róbertsson og
Guðmundur Jónsson.
Áhorfendur: 220.
Þróttur: Fjalar Þorgeirsson ■ Brynjólfur
Schram, Amaldur Loftsson (Ámi Pálsson
61. ), Zoran Micovic, Þorsteinn Halldórsson,
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Gunnar Gunnars-
son, Willum Þór Þórsson (Óskar óskarsson
61.), Páll Einarsson, Heiðar Siguijónsson -
Ingvar Ólason.
ÍBV: Friðrik Friðriksson - ívar. Bjarklind,
Lúðvík Jónasson, Hermann Hreiðarsson,
Magnús Sigurðsson (Jón Bragi Arnarsson
31.) - Steingrímur Jóhannesson, Nökkvi
Sveinsson, Bjamólfur Lárusson, Hlynur
Stefánsson (Tryggvi Guðmundsson 84.) -
Rútur Snorrason, Leifur Geir Hafsteinsson
(Kristinn Hafliðason 84).
Keflavík-FH 2:0
Keflavíkurvöllur:
Aðstæður: Hægviðri sól og þurrt.
Mörk Keflavíkur: Eysteinn Hauksson (74),
Ragnar Margeirsson (90).
Gult spjald: Georg Birgisson (19. mín.) -
fyrir brot.
Rautt spjald: Enginn.
Ahorfendur: Um 250.
Dómari: Kristinn Jakobsson.
Aðstoðardómarar: Gfsli Björgvinsson og
Erlendur Eiríksson.
Keflavík: Ólafur Gottskálksson, Jakob Jón-
harðsson, Kristinn Einarsson, Ragnar Stein-
arsson, Gestur Gylfason, (Arni Vilhjálmsson
88.), Karl Finnbogason, Georg Birgisson,
Jón Þór Stefánsson, (Haukur Ingi Guðnason
56.), Ragnar Margeirsson, Eysteinn Hauks-
són, (Sverrir Þór Sverrisson 81.), Guðmund-
ur Oddsson.
FH : Daði Lárusson, Níels Dungal, Daniel
Einarsson, Róbert Magnússon, Halldór
Hilmarsson, (Jóhann Sigurðsson 61.), Ian
MacCall (Jón Gunnarsson 42.), Hrafnkel!
Kristjánsson, Davíð Ólafsson, Arnar Viðars-
son, Hallsteinn Amarson, Hörður Magnús-
son.
NM stúlkna
Haldið í Finnlandi.
ísland - Svíþjóð..................1:2
• Anna B. Bjömsdóttir skoraði markið.
Frjálsíþróttir
Stigamót Alþjóða frjálsíþróttasambandsins
fór fram í Lausanne í Sviss í gær, helstu
úrslit vora sem hér segir:
100 metra hlaup karla:
1. Frankie Fredericks (Namibíu)...9,86
2. Donovan Bailey (Kanada)........9,93
3. Ato Boldon (Trinidad)..........9,94
4. JonDrummond (Bandar.).........10,00
5. Linford Christie (Bretl.).....10,04
6. Bmny Surin (Kanada)...........10,05
7. Leroy Burrell (Bandar.).......10,05
8. Dennis Mitchell (Bandar.).....10,15
100 metra grindahlaup kvenna:
1. Lyudmila Engqvist (Sviþjóð)...12,52
2. Brigita Bukovec (Júgóslavíu)..12,71
3. Aliuska Lopez (Kúbu)..........12,87
1.500 metra hlaup kvenna:
1. Anita Weyermann (Sviss).....4.03,45
2. Naomi Mugo (Kenýju).........4.04,29
3. Fernanda Ribeiro (Portúgal).4.07,09
110 metra grindahlaup karla:
1. Allen Johnson (Bandar.).......13,08
2. Colin Jackson (Bretl.)........13,13
3. Emilio Valle (Kúbu)...........13,38
3.000 metra hindrunahlaup karla:
1. Joseph Keter (Kenýju).......8.14,17
2. Gideon Chirchir (Kenýju)....8.15,79
3. Matthew Birir (Kenýju)......8.16,92
100 metra hlaup kvenna:
1. GwenTorrence (Bandar.)........10,97
2. Zhana Pintusevich (Úkraínu)...11,07
3. Inger Miller (Bandar.)........11,11
200 metra hlaup karla:
1. Ato Boldon (Trinidad).........19,85
2. Linford Christie (Bretl.).....20,40
3. Patriek Stevens (Belgíu)......20,42
400 metra hlaup kvenna:
1. Marie-Jose Perec (Frakkl.)....49,45
2. Falílat Ogunkoya (Nígeríu)....49,60
3. Pauline Davis (Bahamas).......49,83
Spjótkast kvenna:
1. Steffi Nerius (Þýskal.).......66,70
2. Rita Romanauskaite (Litháen).65,46
3. Tanja Damaske (Þýskal.).......63,84
400 metra hindrunahlaup kvenna:
1. Tonja Buford (Bandar.)........53,61
2. Kim Batten (Bandar.)..........53,85
3. Tonya Williams (Bandar.)......54,17
3.000 metra hlaup karla:
1. DanielKomen (Kenýju)........7.13,33
2. Khalid Boulami (Marokkó)....7.34,02
3. Thomas Nariuki (Kenýju).....7.34,04
1.500 metra hlaup:
1. Nourredine Morceli (Alsír)..3.30,99
2. Stephen Kipkorir (Kenýju)...3.31,87
3. Elijah Kipmto Maru (Kenýju).3.32,35
Hástökk karla:
1. SteinarHoen (Noregi)...........2,31
2. Steve Smith (Bretl.)...........2,28
Tennis
Wimbledon-mótið
Karlar, átta manna úrslit:
Richard Krajicek (Hollandi) gegn 1-Pete
Sampras (Bandar.) 7-5 7-6 (7-3) 1-1, verð-
ur framhaldið í dag.
Jason Stoltenberg (Astralíu) gegn 4-Goran
Ivanisevic (Króatíu) 6-3 7-6 (7-3) 6-7 (3-7),
verður framhaldið í dag.
Hjólreiðar
Frakklandskeppnin
Fjórði áfangi, alls 232 km frá Soissons
til Lac de Madine:
1. Cyril Saugrain (Frakkl.) Aubervilliers
5.43,50
2. Danny Nelissen (Hollandi) Rabobank
3. Rolf Jaermann (Sviss) MG Technogym
4. Stephane Heulot (Frakkl.) GAN
5. Mariano Piccoli (Ítaiíu) Brescialat
■Allir á sama tíma og Saugrain.
6. Claudio Camin (íta.) Brescialat.4,33
7. Emmanuel Magnin (Frakkl.) Festina
8. D. Abdoujaparov (Úsbekistan) Refin
9. Arvis Piziks (Litháen) Rabobank
10. Fabio Baldato (ítaliu) MG Technogym
11. Frederic Moncassin (Frakkl.) GAN
12. Mario Traversoni (Ítalíu) Carrera
13. Mario Cipollini (Ítalíu) SAECO
14. Francois Simon (Frakkl.) GAN
15. Erik Zabel (Þýskal.) Telekom
16. Valentino Fois (ítaliu) Panaria
17. Tony Rominger (Sviss) Mapei
18. Sergei Ouslamine (Rússl.) Refin
19. Bo Hamburger (Danmörku) TVM
20. Cedric Vasseur (Frakkl.) GAN
■Allir og sama tima og Camin.
Staðan
1. Heulot......................22.53,55
2. Piccoli...............22 sek á eftir
3. Saugrain.........................34
4. Jaermann....!....................34
5. Nelissen.......................1,35
6. Moncassin......................3,54
7. Alex Zuelle (Sviss) ONCE.......4,05
8. Yevgeny Berzin (Rússl.) Gewiss 4,08
9. Abraham Olano (Spáni) Mapei........4,12
10. Bjarne Riis (Danmörku) Telekom ....4,16
11. Miguel Indurain (Spáni) Banesto.4,17
12. Laurent Jalabert (Frakkl.) ONCE....4,20
13. Chris Boardman (Bretl.) GAN....4,22
14. Rominger.....................4,24
15. Jan Svorada (Tékkl.) Panaria...4,24
í kvöld
Knattspyrna
Bikarkeppni KSÍ, 16-liða úrslit:
Fyliksv.: Fýlkir - Skallagrímur.20
Grindavík: Grindavík - KA...........20
Akureyri: Þór Ak. - Leiftur.........20
Valsvöllur: Valur - Stjaman.........20
4. deild karla:
Varmá: Afturelding - KSÁA...........20
Isafjörður: Emir- Bl................20
Hofsós: Neisti - Tindastóll.........20
Melar, Hörgárdal: SM-KS.............20