Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Metframleiðsla í Straumsvík í fyrra fimmta árið í röð Hagnaður ísal 1.300 milljónir á síðasta ári HAGNAÐUR af rekstri íslenska álfélagsins hf. á síðasta ári nam 1.290 milljónum króna fyrir skatta, samkvæmt niðurstöðum ársuppgjörs, sem lagt var fram á aðalfundi félagsins 19. júlí. Er þetta 33% hærri hagnaður en árið 1994 en þá var hagnaður fyrir skatta 966 milljónir króna. Hagn- aður eftir skatta lækkaði þó, og nam 338 milljónum króna í fyrra en 721 milljón árið áður. Astæðan fyrir minnkandi hagn- aði eftir skatta milli áranna 1994 og 1995 eru hærri skattgreiðslur. ísal greiðir skatta í formi fram- leiðslugjalds til íslenska ríkisins og nam það 633,8 milljónum á síðasta ári. Það er að nokkru leyti reiknað af tekjum fyrirtækisins fyrir skatta en fylgir einnig heims- markaðsverði á áli. 33% meiri hagn- aður miðað við árið 1994 í skýrslu stjórnar kemur fram að rekstrarhagnaður ársins nam 338 milíjónum króna eftir gjald- færslu framleiðslugjalds, afskrifta að fjárhæð 750,9 milljónir króna, 318,1 milljón króna skattskuld- bindinga og 190 milljóna króna vaxtagjalda. Metf ramleiðsla í fyrra fór framleiðsla ísal í fyrsta sinn yfir 100 þúsund tonn í kerskálunum og er það fimmta metárið í röð. Markið er sett enn hærra á þessu ári og segir dr. Christian Roth, forstjóri ísal, að gert sé ráð fyrir 3% framleiðslu- aukningu á árinu. Hagnaður á fyrri helmingi þessa árs varð um 400 milljónir króna eftir gjald- færslu framleiðslugjalds að fjár- hæð 180 milljónir og 35 milljóna króna skattskuldbindingar. Stjórn félagsins endurkjörin Stjórn félagsins var endurkjörin- fram að næsta aðalfundi. í henni sitja Ragnar Halldórsson, Olafur B. Thors og Páll Kr. Pálsson,_ til- nefndir af Alusuisse, Magnús Osk- arsson og Valdimar K. Jónsson, tilnefndir af íslenska ríkinu og Kurt Wolfensberger, yfirmaður áldeildar Alusuisse, og dr. Wolf- gang Stiller, yfirmaður ál- og for- skautaframleiðslu Alusuisse, full- trúar Alusuisse. Morgunblaðið/RAX ÁLVERIÐ í Straumsvík í gær. Þriðji kerskálinn er í byggingu og sést hann lengst til vinstri á myndinni. Dagblöðin Dagur á Akureyri og Tíminn í Reykjavík sameinuð í Degi-Tímanum Nýtt blað á að líta dagsins Ijós um miðjan ágúst Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson SAMEINING Dags og Tímans á að ganga hratt og fyrsta dagblað- ið undir heitinu Dagur-Tíminn að koma út um miðjan ágúst. I gær fóru sunnanmenn norður til að kanna aðstæður. Hörður Blöndal, framkvæmdastjóri Dagsprents, lengst til vinstri, tók á móti þeim Má Halldórssyni, dreifingarstjóra DV og Tímans, Hrólfi Olvis- syni, framkvæmdastjóra Tímans og Árna Haukssyni, fjármála- stjóra Frjálsrar fjölmiðlunar, á Akureyrarflugvelli síðdegis í gær. TÍMINN var málgagn Fram- sóknarflokksins, en flokkur- inn varð fyrir búsifjum vegna kostnaðar við útgáfuna og gekk á ýmsu. Þannig var um tíma reynt að gefa Tímann út undir nafn- inu Nútíminn, eða NT, en sú saga var stutt. Framsóknarflokkurinn dró sig út úr rekstrinum og var þá haft eftir forsvarsmönnum flokksins að hann hefði tapað öllum sínum eigum á útgáfunni. Stofnað var hlutafélagið Mótvægi, sem tók að sér að halda útgáfunhi áfram. Að félaginu stóðu ýmsir forystumenn flokksins. Leitað til DV í árslok 1993 óskaði stjórn Mót- vægis hf. eftir gjaldþrotaskiptum á búi félagsins, eftir nokkurra mánaða rekstur. Steingrímur Hermannsson, þáverandi formaður Framsóknar- fiokksins, leitaði eftir samstarfi við útgefendur DV og varð árangurinn sá, að í ársbyrjun 1994 tóku Tíma- mót hf. við útgáfunni. Það hlutafé- lag er dótturfélag Ftjálsrar fjölmiðl- unar hf., útgefanda DV. í samningi Framsóknarflokksins og DV-manna var kveðið á um að Tímamót annaðist rekstur Tímans að öllu leyti og fyrir eigin reikning, en Framsóknarflokkurinn leigði fé- laginu nafn blaðsins og áskrifenda- skrá. Þá fékk flokkurinn fulltrúa í stjórn Tímamóta og kveðið var á um að Tímamót og Framsóknar- flokkurinn stæðu sameiginlega að ráðningu ritstjóra. Hjá Tímamótum starfar nú um tugur manna, flestir á ritstjórn, en félagið hefur þjónustusamning við Fijálsa fjölmiðlun, sem annast bók- hald, innheimtu o.fl. Samkvæmt upplýsingum frá Tímanum er hann nú prentaður í 6-7000 eintökum á dag. Því hefur verið lýst yfir, að starfsmönnum Tímans verði boðið starf hjá fyrirtækjum innan vébanda Fijálsrar fjölmiðlunar, ef fækka þurfi í hópi starfsmanna Dags- Tímans. Samkvæmt neyslu- könnun, sem Félagsvjs- indastofnun Háskóla ís- lands vann fyrir Morg- unblaðið í maí og júní sl., lásu 2,5% lands- manna Tímann ailtaf, 2% lásu biað- ið oft, 2,7% stundum, 5,8% sjaldan og 87% aldrei. Dagur réttir úr kútnum Á Akureyri gekk einnig á ýmsu í rekstri Dags. Blaðið, sem á ættir að rekja til framsóknarmanna líkt og Tíminn, var lengi vel gefið út einu sinni í viku og prentað hjá Dagur-Tíminn verður heiti dagblaðs, sem hef- ur göngu sína um miðj- an ágúst. Blaðið byggir á gömlum grunni, í því sameinast Dagur á Ak- ureyri, sem rekur sögu sína allt afturtil 1918 og Tíminn, sem stofnað- ur var í Reykjavík 1917. Ragnhildur Sverris- dóttir kynnti sér for- söguna og hugmyndir um sameiningu dag- blaðanna tveggja. POB, Prentsmiðju Odds Björnsson- ar. Árið 1980 var Dagsprent stofn- að, en rekstur blaðs og prentsmiðju var aðskilinn, enda eigendur ekki að öllu leyti þeir sömu. Dagur fór að koma út tvisvar í viku, svo þrisv- ar, en um haustið 1986 varð Dagur dagblað. Um leið var ráðist í að byggja nýtt hús undir starfsemina, en það varð rekstrinum ofviða. Árið 1989 var svo komið að bæði útgáfufélagið og prentsmiðjan voru í greiðslustöðvun. Þá var stokkað upp, Dagsprent keypti útgáfufélagið og stofnað var almenningshlutafélag um rekstur- inn. Illutafé var aukið og KEA og Kaffibrennsla Akureyrar eignuðust meirihluta hlutafjár. Fyrir tveimur árum syrti enn í álinn, húsnæðið var selt, greiðslustöðvun fengin á ný og nú var hlutafé fært niður um 95%. Um leið lauk endanlega af- skiptum Framsóknarflokksins af rekstri félagsins, því framsóknarfé- lögin í heimabyggð, sem átt höfðu hlut í Dagsprenti, höfðu ekki haft bolmagn til að fylgja hlutafjáraukn- ingunni eftir á sínum tíma og með niðurfærslu hlutafjár hvarf þeirra hlutur. Dagur hefur hins vegar rétt úr kútnum, því á síðasta ári og það sem af er þessu, er hagnaður af rekstrinum og á síðasta aðalfundi var samþykkt að greiða hluthöfum arð. Þessi bætta staða Dags varð til þess að forsvarsmenn Fijálsrar fjölmiðjunar litu hýru auga til Akur- eyrar. í júní á síðasta ári var útgáfu- tíma Tímans breytt, þannig að hann barst áskrifendum á höfuðborgar- svæðinu að kvötdi, en var kominn norður á Akureyri snemma morguns næsta dag. í viðtali við Morgunblað- ið í fyrra, vegna þessara breytinga, kvaðst Hrólfur Ölvisson, fram- kvæmdastjóri Tímans, viðurkenna að með þessum breytingum væri horft mjög til þess lesendahóps norðan heiða sem keypti Dag reglu- lega. Hjá Dagsprenti eru nú 28 stöður, þar af er um einn tugur blaða- manna. Dagur er prent- aður í 5.500 eintökum á dag, en Dagsprent tekur jafnframt að sér ýmiss konar prentþjónustu. Nýjasta viðbótin í slíkum verkefnum er samningur við Bændablaðið, sem verður framvegis prentað á Akur- eyri. Samkvæmt könnun Félagsvís- indastofnunar, sem áður er vitnað í, lesa 5,9% landsmanna Dag alltaf, 1,4% oft, 1,7% stundum, 5,4% sjald- an og 85,6% aldrei. Prentað á tveimur stöðum? Sameining Dags og Tímans hefur áður komið til tals. Þannig var skýrt frá því í Morgunblaðinu í janúar 1990 að hugmyndinni hefði verið hreyft innan Framsóknarflokksins, í kjölfar mikilla erfiðleika í rekstri Blaðaprents, prentsmiðjunnar sem Tíminn, Þjóðviljinn og Alþýðublaðið ráku. Þáverandi framkvæmdastjóri Tímans, Kristinn Finnbogason, bar þessar fréttir að vísu til baka, en kvað það alveg rétt að vel væri unnt að prenta Tímann hjá Degi fyrir norðan. Nú virðist loks komið að því, en þó eru aðstandendur nýja blaðsins enn að velta fyrir sér hvort prenta eigi hluta upplags Dags- Tímans í Reykjavík, til að auðvelda dreifingu blaðsins. Bent er á, að tæknilega sé lítill vandi að flytja unnar síður í tölvum suður yfir heið- ar og prenta. Slíkt gæti hins vegar haft aukakostnað í för með sér. Svo hraðar hendur hafa menn við sameininguna, að búist er við að ákvörðun um þetta liggi fyrir síðar í dag, miðvikudag. Hlutafé aukið í 47 milljónir Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins fer sameiningin þannig fram að nafnverð hlutafjár Dags- prents verður aukið úr tæpum 23,5 milljónum króna í 47 milljónir, eða um rúmar 23,5 milljónir. Stærstu hluthafarnir ætla að mæla með því á hluthafafundi í næstu viku að Fijáls ijöimiðlun eignist alla hluta- fjáraukninguna og verði þannig meirihlutaeigandi. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins ætla forsvarsmenn Fijálsrar fjölmiðlunar að leggja fram fé fyrir hlutafjáraukningunni, en á móti kemur, að eftir að þeir liafa náð meirihlutaeign kaupir Dagsprent hf. rekstur Tímans. Ekki fékkst uppgefið hve hátt sá rekstur er metinn og hvað Fijáls fjölmiðlun þarf því að greiða á milli í raun. Hörður Blöndal, framkvæmdastjóri Dagsprents, verður framkvæmdastjóri Dags-Tímans, en ekki hefur verið ákveðið hver sest í ritstjórnarstól hins nýja blaðs. Ritstjóri Tímans er Jón Kristjánsson, en bræðurnir Jó- hann Ólafur og Óskar Þór Halldórs- synir ritstýra Degi. Framsóknarflokkur ræður ekki ritstjóra Eins og áður sagði átti Framsókn- Kaupa Dags- prent og selja því Tímann Enn óvíst hver sest í stól ritstjóra c c í í i i i i i i i i i i li

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.