Morgunblaðið - 06.06.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.06.1997, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ - ___________________________________FRÉTTIR____________________________________ L Úrskurður Héraðsdóms um gæsluvarðhaldskröfu vegna árásar á skemmtistaðnum Vegas | Læknisvottorð o g framburður gefa ekki skýra mynd HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hafnaði á miðvikudag kröfu Rann- sóknarlögreglu ríkisins um að fram- lengja gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem setið hafa í gæslu- varðhaldi vegna árásar á ungan mann á skemmtistaðnum Vegas en maðurinn lést eftir ryskingarnar. Hér á eftir fer krafa Rannsókn- arlögreglunnar og úrskurður Hér- aðsdóms 5 máli Sverris Þórs Einars- sonar. Samskonar úrskurður var kveðinn upp í máli Sigurþórs Arnar- sonar en RLR hefur kært úrskurð- ina til Hæstaréttar. Krafa Rannsóknarlögreglu Hér með er þess krafizt að Sverri Þór Einarssyni verði með skírskot- un til a-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991, gert að sæta áfram gæzluvarðhaldi frá lokum fyrra gæzluvarðhalds þann 4. júní 1997 í 44 daga eða allt til föstu- dagsins 18. júlí 1997 kl. 16.00. Greinargerð Rannsóknarlögregla ríkisins hef- ur undanfarnar vikur unnið að rannsókn líkamsárásar á Sigurð Sigurmundsson, en hann lézt af áverkum árásarinnar þann 15. maí sl. Upphaf málsins er að lögregla var kölluð að veitingastaðnum laust eftir kl. 1.00 þriðjudaginn 13. maí sl. Þar var lögreglu vísað á mann, Sigurð Sigurmundsson, kt. 100371- 3169, sem lá hreyfingarlaus á gólf- inu. Sigurður var þá meðvitundar- laus og með veikan púls. Sjúkrabif- reið kom á vettvang um tíu mínút- um síðar og hófust lífgunartilraunir þegar í stað. Var hinum slasaða m.a. gefið raflost áður en hann var fluttur á Sjúkrahús Reykjavíkur. Samkvæmt læknum Slysadeildar var ástand Sigurðar mjög alvarlegt við komu á sjúkrahúsið. Hann komst aldrei til meðvitundar og var úrskurðaður látinn þann 15. maí sl. Samkvæmt framburði tveggja félaga hins látna, þeirra Eggerts Péturssonar og Bjarna Guðmanns Emilssonar, kom hann á umræddan skemmtistað ásamt þeim fyrr um kvöldið, m.a. til að fylgjast með dansi og sátu þeir saman við borð nálægt danssviðinu. Sigurður varð fljótt ölvaður og sofnaði. Bera vitni að vekja hafi þurft Sigurð til þess að flytja hann á milli sæta á staðn- um. Einhver orðaskipti virðast hafa átt sér stað milli þremenninganna annars vegar og Sverris Þórs Ein- arssonar, Sigurþórs Arnarssonar, Birkis Herbertssonar og Stig Lauridsen hins vegar, en þeir höfðu skömmu áður komið saman inn á skemmtistaðinn. Auk félaga Sigurðar urðu nokkr- ir starfsmenn vitni að atburðinum. Ber öllum saman um að líkamsárás- ina hafi borið skjótt að og staðið stutt yfir, þannig að Sigurður hafí verið barinn nokkrum höggum áður en hann datt máttvana harkalega í gólfið. Þar hafi verið sparkað nokkrum spörkum m.a. í höfuð hans. Ber vitnum saman um að kærðu Sverrir og Sigurþór hafi ráðist að Sigurði og barið hann þungum högg- um m.a. í andlit. Þá hafi Sigurþór sparkað í höfuð Sigurðar þar sem hann lá rænulaus í gólfinu. Þáttur Stig í árásinni er óljós en hann sást í kringum þá Sverri og Sigurþór þar sem þeir börðu á Sig- urði. Stig og Birkir snérust hins vegar gegn þeim Eggert og Bjarna þegar þeir stóðu upp úr sætum sín- um til þess að koma Sigurði til hjálp- ar. Kom til átaka sem lauk með því að starfsmenn veitingahússins blönduðu sér í átökin og stöðvuðu þau. Þá _ lá Sigurður rænulaus á gólfínu. Áverkar Eggerts og Bjarna voru ekki taldir umtalsverðir. Þegar dyraverðir staðarins komu að til þess að stöðva slagsmálin hurfu þeir Sverrir Þór, Sigurþór, Birkir, Stig og eiginkona Sverris Þórs, Björg Birgisdóttir, af staðnum. Vitni gátu gefíð upplýsingar um árásarmennina sem leiddu til hand- töku Sverris og Birkis en Sigurþór og Stig gáfu sig fram við lögreglu. Kærði ber að hafa lent í átökum á staðnum. Frásögn hans um atvik og hlut í átökunum er afar óljós og í grundvallaratriðum í ósamræmi við frásögn vitna. Rannsókn þessa máls er á loka- stigi. Enda þótt fyrir liggi að blæð- ing inn á heila hafi verið banamein Sigurðar er ólokið endanlegri skýrslu réttarkrufningarlæknis. Kærðu eru undir rökstuddum grun um brot gegn 2. mgr. 218 gr. almennra hegningarlaga með því að hafa án tilefnis ráðist með fólskulegum hætti að Sigurði Sigur- mundssyni, barið hann m.a. í andlit þannig að hann féll máttvana í gólfið og þá sparkað í höfuð hans þar sem hann lá bjargarlaus, allt með þeim afleiðingum að bani hlauzt af. Brot kærðu getur varðað allt að 16 ára fangelsi. Með vísan til þess sem að framan er rakið, rannsóknargagna og a-lið- ar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála í þágu rannsóknar og meðferðar málsins, og með vísan til 2. mgr. 103 gr. sömu laga er þess krafizt að kærða verði með úrskurði gert að sæta gæzluvarðhaldi svo sem að framan er krafizt enda þykir brot kærðu svo alvarlegt og varðhald nauðsyn- legt með tilliti til almannahags- muna. Einar Baldvin Stefánsson, lögfr. Málið tekið fyrir í Héraðsdómi Ár 1997, þriðjudaginn 3. júní, er dómþing Héraðsdóms Reykjavík- ur sett og haldið í dómshúsinu við Lækjartorg af Áslaugu Björgvins- dóttur dómarafulltrúa. Fyrír er tekið: Mál nr. R- 144/1997: Krafa Rannsóknariög- reglu ríkisins um að Sverri Þór Ein- arssyni verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi. Kl. 14.10 kemur í dóminn Einar Baldvin Stefánsson lögfræðingur, og leggur fram kröfu um að Sverri Þór Einarssyni, kt. 020562-4639, Rauðagerði 54, Reykjavík verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 18. júlí nk. kl. 16.00 vegna gruns um brot gegn 211. og/eða 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Krafan er þingmerkt nr. 1. Rann- sóknargögn málsins liggja frammi. Upplesið, staðfest. Kl. 15.26 er færður í dóminn kærði, Sverrir Þór Einarsson, kt. 020562-4639, Rauðagerði 54, Reykjavík. Á sama tíma kemur í dóminn Páll Arnór Pálsson hrl., veij- andi kærða. Kærða er bent á að honum sé óskylt að svara spurningum sem varða brot það sem honum er gefið að sök, sbr. 3. mgr. 32. gr. laga nr. 19/1991 og er kærði ennfremur áminntur um sannsögli, sbr. 1. mgr. 33. gr. sömu laga. Honum er jafnframt bent á að honum sé heim- ilt að ráðfæra sig við skipaðan veij- anda meðan á þinghaldi stendur, sbr. 3. mgr. 33. gr. laga nr. 19/1991. Kærða er kynnt krafan á dskj. nr. 1. Hann mótmælir kröfunni. Sakarefnið er borið undir kærða. Um sakarefnið segir kærði að það sé alrangt að hann hafi valdið dauða Sigurðar. Kærði fullyrðir að hann hafi ekki lent í átökum við Sigurð heldur hafi það verið aðrir menn sem hann hafi beitt harðræði til að stöðva átök þeirra. Kærði segist furða sig á því að það liggi ekki enn fyrir krufningarskýrsla í málinu en hún myndi sanna hans mál. Kærði segir að hinn látni hafi einungis hlotið einn áverka, það hafi verið spark aftan í höfuðið frá Sigurþóri. Kærða eru sýndar lögreglu- skýrslur sem hann gaf 13. maí sl. og 29. maí sl. Kveður hann rétt eftir sér haft í skýrslunum og kann- ast við nafnritun sína undir þær. Fulltrúi RLR ítrekar gerða kröfu um gæsluvarðhald og vísar til greinargerðar og gagna málsins um rök fyrir henni. Hann segir að krufningarskýrsla liggi ekki fyrir sökum þess að læknirinn sem ann- ast hafi krufninguna bíði eftir að- stoð heilasérfræðings til að ljúka henni. Það sé alveg ljóst að það séu almannahagsmunir að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi. Aðspurður segir fulltrúi RLR að kærði liggi ekki aðeins undir grun um brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga heldur sé einnig hugsanlegt að um sé að ræða brot gegn 211 gr. almennra hegningar- laga. Aðspurður hvort vitni hafí borið um að kærði hafi sparkað í höfuð hins látna þá segir fulltrúi RLR að vitni hafí einungis borið um högg kærða í höfuð hins látna. Veijandi kærða áréttar mótmæli hans gegn gæsluvarðhaldskröfunni og til vara krefst hann þess að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. Hann leggur áherslu á að samkvæmt læknisvottorði, sem liggi frammi í málinu, séu engir áverkar sjáanlegir framan á höfði hins látna, þannig að framburður um höfuðhögg frá kærða fái ekki staðist. Því sé Ijóst að kærði hafi ekki veitt hinum látna höfuðhögg sem hafi leitt til dauða hans. Veij- andi telur að það sé ekkert í málinu sem tengi kærða við lát Sigurðar. Það sé einfaldlega ekki uppi rök- studdur grunur um brot kærða gegn 211. gr. eða 2. mgr. 218. gr. al- mennra hegningarlaga. Loks segir veijandinn að engir rannsóknar- hagsmunir séu í málinu lengur. Upplesið, staðfest. Málið er tekið úrskurðar. Úr- skurður verður kveðinn upp kl. 10.20 í fyrramálið. Kærði víkur frá til gæslu kl. 15.46. Aðrir víkja frá á sama tíma. Dómþingi slitið. Áslaug Björgvinsdóttir. Vottur: Kristbjörg Steingrímsdóttir. Ár 1997, miðvikudaginn 4. júní er dómþing Héraðsdóms Reykjavík- ur sett og haldið í Dómhúsinu við Lækjartorg af Áslaugu Björgvins- dóttur dómarafulltrúa. Fyrir er tekið: Mál nr. R- 144/1997: Krafa Rannsóknarlög- reglu ríksins um að Sverri Þór Ein- arssyni verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi. í dóminum er kveðinn upp svo- hljóðandi Úrskurður: Ár 1997, miðvikudaginn 4. júní, er á dómþingi Héraðsdóms Reykja- víkur sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Áslaugu Björgvins- dóttur dómarafulltrúa, kveðinn upp úrskurður þessi: Rannsóknarlögregla ríkisins hef- ur krafist þess með vísan til a-liðar Upplýsingar um vinningsnúmer í Happdrætti heyrnarlausra 1997 Dregið var 30. maí 1997 1.-2. vinningur: Utanlandsferð m/Flugleiðum, hver vinningur að verðmæti kr. 230.000. 5604 11038 3.-7. vinningur: Vöruúttekt frá Einari J. Skúlasyni, hver vinningur að verðmæti kr. 125.000. 46 1938 3516 6452 12215 8.-9. vinningur: Utanlandsferð m/Flugleiðum, hver vinningur að verðmæti kr. 80.000. 2619 14221 10.-24. vinningur: Vöruúttekt frá Bónus Radíó, hver vinningur að verðmæti kr. 40.000. 343 865 1892 2107 3020 3089 4458 5612 5752 6491 10338 11530 11731 13474 13716 25.-44. vinningur: Vöruúttekt frá Bónus Radíó, hver vinningur að verðmæti kr. 20.000. 125 127 569 1531 2267 2326 4763 5014 5861 6094 6354 6379 11277 11790 12494 12697 13822 13924 14509 14764 45.-75. vinningur: Vöruúttekt frá IKEA, hver vinningur að verðmæti kr. 10.000. 740 1451 1139 1595 1945 2250 3059 3166 3183 4332 4438 4924 5708 6031 6184 7431 7437 7743 8709 8720 8765 10185 10951 11763 12173 12726 12965 13159 13161 13211 14431 Hægt er að vitja vinnings á Laugavegi 26, (4. hæð), 101 Reykjavík. Vinninga ber að vitja innan árs frá drætti. Upplag miða 15.000 sk. Þökkum veittan stuðning. 1. mgr og 2. mgr. 103 gr. laga nr. 19/1991 að Sverri Þór Einarssyni, kt. 020562-4639, Rauðagerði 54, Reykjavík verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 18. júlí nk. kl. 16.00 vegna gruns um brot gegn 211. „og eða“ 2. mgr. 218. gr. almennra hegningar- laga nr. 19/1940. Með úrskurðum kveðnum upp í Héraðsdómi Reykja- víkur 14. maí sl. var kærða og þrem- ur öðrum mönnum gert að sæta gæsluvarðhaldi til 4. júní 1997 með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Kærði er grunaður um að hafa valdið dauða Sigurðar Sigumiunds- sonar með fólskulegri líkamsárás á skemmtistaðnum Vegas aðfaranótt þriðjudagsins 13. maí sl. Átök urðu á veitingastaðnum þessa nótt milli kærða og félaga hans annars vegar og Sigurðar heitins og félaga hans hins vegar. í átökunum féll Sigurður í gólfíð meðvitundarlaus og andaðist hann 15. maí sl. án þess að hann kæmist til meðvitundar að nýju. Kærði hefur neitað sakargiftum, en vitni hafa borið að kærði hafí slegið Sigurð í höfuðið og önnur vitni hafa borið að Sigurþór Arnarson, sem lögreglan grunar einnig um að hafa valdið dauða Sigurðar, hafi sparkað í höfuð Sigurðar. Enn eitt vitnið kveðst hafa séð mann beija höfði Sigurðar í hiilu, en hefur bor- ið að það muni ekki hver það var. Kærði og Sigurþór hafa borið hvor annan sökum. Nokkur vitni voru að átökunum á skemmtistaðnum, en þau sáu ekki aðdraganda þessa að Sigurður féll í gólfið. Samkvæmt greinargerð Rann- sóknarlögreglunnar er rannsókn málsins á lokastigi og hefur ekki verið sýnt fram á að rannsóknar- hagsmunir krefjist þess að kærði sæti gæsluvarðhaldi, sbr. a-lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Skýrslu um niðurstöður krufn- ingar hins látna er ekki lokið, en í læknisvottorði frá 14. maí sl. segir að Sigurður hafi fengið stóra heilablæðingu. í vottorðinu kemur fram að við líkamsskoðun hafi ekki komið í ljós „nein áverkamerki fyr- ir utan smá blóðkýli á hnakka með léttri húðblæðingu". I áverkavott- orði læknis frá 26. maí sl. kemur fram að við komu á slysadeild 13. maí sl. hafi Sigurður ekki verið „með nein sjáanleg áverkamerki á andliti, hvorki með skrámu, mar eða bólgu neins staðar á andliti eða höfði fyrir utan smáskrámu aftan á hnakka“ og að engin önnur áverkamerki hafi verið „sjáanleg á útlimum eða bol fyrir utan minni háttar mar yfir vinstra viðbeini". Enn fremur kemur fram að ekki finnist „nein bein eða örugg merki um áverka á höfuð eða heila“. Með hliðsjón af þessum læknis- vottorðum og því að framburður vitna og grunaðra gefur ekki skýra mynd af atburðarás umræddra átaka og þætti hvers og eins í þeim þykir skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 ekki fullnægt. Kröfu Rannsóknarlögreglu ríkisins er því hafnað. Úrskurðarorð t. i » t I i l: I i c i ■ Kröfu Rannsóknarlögreglu ríkis- ins um að kærða, Sverri Þór Einars- syni, verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi er hafnað. Áslaug Björgvinsdóttir. Úrskurðarorðið er lesið í heyr- anda hljóði kl. 10.35 að viðstöddum , kærða, veijanda hans og fulltrúa RLR. • @ Fulltrúi RLR lýsir yfir kæru úr- Q skurðarins til Hæstaréttar þar sem þess verði krafist að fallist verði á kröfu RLR eins og hún kemur fram í greinargerð. Gögn málsins verða send Hæsta- rétti í dag. Veijandi kærða segir að hann muni senda Hæstarétti greinargerð þar sem þess verði krafist að niður- j staða Héraðsdóms verði staðfest. , Dómþingi slitið. Áslaug Björgvinsdóttir. % Vottur: Kristbjörg Stein- grímsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.