Morgunblaðið - 05.04.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.04.1998, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ 1 > \ i \ i | i SKÍÐAMÓT ÍSLANDS Haukur Arnórsson og Sigríður Þorláksdóttir íslandsmeistarar í stórsvigi HAUKUR Arnórsson úr Ár- manni og ísfirðingurinn Sig- ríður B. Þorláksdóttir urðu ís- landsmeistarar í stórsvigi þegar keppt var í greininni í gærmorgun i Hlíðarfjalli við Akureyri þar sem landsmótið fer fram. Veður var frábært; sól og logn, skíðafærið einnig afar gott og aðstæður því eins og best verður á kosið. Enda rómuðu keppendur allir mjög aðstæður og skipuiagn- ingu mótsins. Haukur var með besta tíma karlanna í báðum ferðum og Sigríður lagði grunninn að sigri sínum með frábærri fyrri ferð; var þá einni og hálfri sekúndu á undan Brynju Þorsteinsdóttur frá Akureyri, sem var önnur, og þess má geta að tími Sig- ríðar hefði nægt henni til fimmta sætis í karlaflokki eft- ir fyrri ferð, en konur og karl- ar renndu sér í sömu braut. Sérstaklega gaman að vinna Kristin „Ég varð íslandsmeistari í fyrsta skipti í fyrra, í svigi, og nú hef ég bætt íslandsmeistaratitlinum í stór- svigi við. Þessi árangur minn hefur ekki fengið neinn skilning hjá Skíðasambandi íslands, stefna þess virðist aðeins að styrkja einn skíða- mann, Kristin Björnsson. Ég hef ekki fengið eina krónu frá skíða- sambandinu þrátt fyrir loforð þar um. Ég er orðinn ansi þreyttur á þessu og ef engin breyting verður á er ég hættur," sagði Haukur. Fyrirfram var búist við mikilli keppni milli Kristins og Björgvins Björgvinssonar, Dalvíkingsins unga sem sigraði í risasviginu á föstudag - og lýsti því yfir í Morgunblaðinu íyrir skömmu að hann ætlaði sér sigur í stórsviginu hér á landsmót- inu; ætlaði sér að sigra Kristin. En Kristinn Bjömsson varð að sætta sig við annað sætið annan dag- inn í röð á landsmót- Valur inu, en hann var í Jónatansson öðru sæti á eftir skrífar Björgvin Björgvins- syni í risasviginu á föstudag. Isfirðingurinn Amór Gunnarsson varð þriðji í gær. Hjá stúlkunum varð Brynja Þorsteins- dóttir önnur og í þriðja sæti varð KR-ingurinn Theódóra Mathiesen. Haukur var með besta tima Is- lendinganna eftir fyrri ferð, 53,76 sek., en fljótastur í mark varð reyndar Daninn Tejs Broberg, sem keppir sem gestur. Hann fór fyrri ferð á 53,70 sek. Kristinn var í öðm sæti Islendinganna á 54,31 sek. og Amór þriðji á 55,55 sek. Haukur fór síðari ferð á 55,17 og samanlagt á 1.48,93 mín. Daninn fékk annan besta samanlagðan tíma, fór síðari ferð á 55,50 og sam- tals á 1.49,20 en Kristinn fór seinni ferð á 55,91 og samanlagt á 1.50,22. Hann var því tæpri hálfri sekúndu á eftir Hauki. Amór Gunnarsson fór seinni ferðina á 56,03 sek. og fékk því samanlagðan tíma 1.51,58 mín. „Ég er alveg í skýjunum, átti alls ekki von á þessu,“ sagði Haukur Arnórsson eftir sigurinn í stórsvig- inu í gærmorgun. „Ég hef verið að ná mér mjög vel á strik á æfingum að undanfömu og er að toppa núna. Það var líka sérstaklega skemmti- legt að vinna Kristin Bjömsson sem af mörgum hefur verið talinn ósigr- andi,“ sagði Haukur við Morgun- blaðið eftir að sigur hans var í höfn. Morgunblaðið/Golli SIGRÍÐUR B. Þorláksdóttir í stórsviginu. Hún var frábær í fyrri ferðinni og hefði tími hennar nægt til fimmta sætis í karlaflokki. Morgunblaðið/Golli HAUKUR Arnórsson í stórsvigsbrautinni. „Ég hef verið að ná mér mjög vel á strik á æfingum að undanförnu og er að toppa núna.“ það fór á annan veg. Björgvin fór mjög vel af stað í fyrri ferðinni en þegar hann var kominn niður í miðja braut hrökk annað skíðið af honum. „Þetta voru mikil vonbrigði. Bindingarnar gáfu sig; þetta er bara ónýtt drasl,“ sagði Björgvin við Morgunblaðið og var greinilega mjög vonsvikinn. Jóhann Haukur Hafstein, sem líka var talinn líklegur til afreka í stórsviginu, féll einnig úr keppni í fyrri ferðinni. Kristinn Bjömsson sagðist vera mjög sáttur við annað sætið þrátt íyrir allt. „Mér gekk mjög vel og það var ekkert sem fór úrskeiðis. Haukur var einfaldlega betri en ég. Ég gat alveg eins búist við þessu, enda er þetta aðeins fjórði dagurinn sem ég fer í stórsvig í vetur og í þriðja sinn sem ég keppi í greininni á keppnistímabilinu," sagði Krist- inn. Hann kvaðst ekki vera í alveg jafn góðri æfingu og fyrr í vetur, þegar hann var í baráttunni í heims- bikarkeppninni og því hafi ekki mátt búst við því að hann hefði yfir- burði hér á mótinu. „Nú er svigið eftir [í dag, sunnudag] og auðvitað hlýt ég að teljast sigurstranglegur þar en ég ætla ekki að vera með neinar yfirlýsingar," sagði Kristinn Bjömsson, sem hefur nú tapað þeim tveimur íslandsmeistaratitlum sem hann vann til í fyrra. Hann sigraði þá í risasvigi og stórsvigi en lauk ekki keppni í svigi. íslandsmeistarinn í kvennaflokki er Sigríður B. Þorláksdóttir frá ísa- firði. „Ég er mjög ánægð með að hafa endurheimt íslandsmeistara- titilinn í stórsvigi frá 1996. Þá varð ég þrefaldur meistari og nú ætla ég mér að endurtaka leikinn.“ Þess má geta að hún rifbeinsbrotnaði tveim- ur dögum fyrir Islandsmótið í fyrra og var þess vegna ekki með þá. „Ég er mjög ánægð með fyrri umferðina en var svolítið taugaóstyrk þegar ég fór þá síðari," sagði Sigríður eftir að hún kom í mark sem sigurvegari. „Ég hef verið betri í svigi en stór- svigi hingað til en hef verið að ná mér vel á strik á stórsviginu í vet- ur.“ Sigríður upplýsti að hún hefði verið frá æfingum allan febrúar- mánuð vegna þess að hún hefði rist- arbrotnað. Hún keppti ekki í risa- sviginu í gær, sagðist ekki keppa bara til að vera með en hún hefði lít- ið æft þá grein. Tímar þriggja efstu kvenna voru sem hér segir: Sigríður 56,77 og 59,15 sek. Samanlagt 1.55,92 mín. Brynja 57,58 og 59,36 og samanlagt 1.56,94. Theodóra 59,13 sek. og 1.00,1 mín og því samanlagt 1.59,14.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.