Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.04.1998, Blaðsíða 4
KÖRFUKNATTLEIKUR/LOKAHÓF KKÍ arsins ar, með 33,24 stig að meðaltali í leik. Anna María Sveinsdóttir var hins vegar stigahæst hjá konunum með 15,13 stig í leik að meðaltali. Hún átti einnig flest fráköst að meðaltali í leik, 6,3. Jesse Ratcliff, Þór Akureyri, náði flestum fráköst- um í DHL-deildinni. SNOKER Eiríkur í KR EIRÍKUR Önundarson, körfuknattleiksmaður úr ÍR, hefur ákveðið að leika með KR-ingum f úrvalsdeildinni næsta vetur. ÍR féll sem kunnugt er í 1. deild í vor. Eirfkur er sterkur bak- vörður og á eflaust eftir að styrkja lið KR-inga. Hann hefur verið með IR frá unga aldri. Kristján og Jóhannes B. keppa í Antwerpen Kristján Helgason og Jóhannes B. Jóhannesson keppa um helgina í Antwerpen í Belgíu í úrslitakeppni um sex laus sæti í „Main tour“ en svo kallast mótaröð atvinnumanna. Mótaröð atvinnumanna samanstend- ur af níu stigamótum og þar keppa 192 bestu atvinnuspilarar heims. Kristján og Jóhannes unnu sér rétt til að keppa í Antwerpen með því að leika til úrslita í „Iceland open“ sem fram fór á knattborðs- stofunni Klöpp í febrúar. 22 einstak- lingar verða í mótinu í Antwerpen og er spilað í þremur 8-manna riðlum og tryggja tveir efstu úr hverjum riðli sér þátttökurétt í mótaröð at- vinnumanna. Að loknu mótinu í Antwerpen fara þeir félagar, Kristján og Jóhannes, beint til Helsinki í Finnlandi þar sem þeir taka þátt í Evrópumóti atvinnu- og áhugamanna í snóker. Mótið fer fram dagana 7.-17. maí. Kristján hef- ur verið í úrslitum þessa móts sl. tvö ár. í fyrra tapaði hann í úrslitum fyr- ir Robin Hull, sem í dag er hátt skrifaður atvinnumaður í snóker. ■ REAL Madrid vill fá Sven Eriks- son, þjálfara Lazio, til að taka við stjórninni af Jupp Heynckes, sam- kvæmt frétt í spænska blaðinu As í gær. ■ HANS Krankl, þjálfari Salzburg frá 2. apríl sL, hefur fengið tilboð frá spænska félaginu Real Saragossa um að þjálfa lið þess. ■ MARC Keller, miðjumaður hjá Karlsruhe, fer til West Ham í sum- ar. Enska félagið þarf ekki að greiða fyrir franska miðjumanninn sem skipti úr Strasbourg í Karlsru- he 1996. ■ WEST Ham rak varnarmanninn Shane Nicholson í gær vegna lyfja- neyslu hans en hann viðurkenndi lyfjamisnotkun til margra ára í lið- inni viku. ■ ATTILIO Lombardo er samn- ingsbundinn Crystal Palace og sagði eftir 3:0 tapið fyrir Manchester United að hann vildi halda áfram að leika með liðinu og vinna að því að koma því upp í efstu deild á ný. ■ MICHAEL Klim, sem vann til sjö verðlauna á heimsmeistaramótinu í sundi í janúar sem leið, náði ekki að sigra í tveimur fyrstu greinum sín- um á ástralska meistaramótinu sem er jafnframt úrtökumót fyrir Sam- veldisleikana í Kuala Lumpur. ■ KLIM, sem er 20 ára, varð að láta í minni pokann fyrir Geoff Huegill í bestu grein sinni, 100 m flugsundi. Huegill synti á 53,20 en heimsmeist- arinn og heimsmethaflnn á 53,51. ■ ÁÐUR var Ian Thorpe, sem er 15 ára, á undan kappanum í 200 m skriðsundi. „Ég gáði ekki að mér og hugsaði fyrst og fremst um að tryggja sætið á Samveldisleikana,“ sagði Klim. ■ SUSIE O’Neill, ólympíu- og heimsmeistari í 200 m skriðsundi kvenna, sigraði á 2.00,60 mín. og hef- ur þar með orðið ástralskur meistari 28 sinnum. Metið á Frank Beaurepaire sem varð alls 29 sinn- um meistari. ■ LOKAHÓF HSÍ verður haldið á Hótel Sögu annað kvöld. ■ ÍSLENSKA landsliðið í borðtennis tapaði öllum leikjum sínum í riðla- keppni Evrópumótsins um helgina. Morgunblaðið/Halldór Lið ársins í lokahófi körfuknattleiksmanna var valið lið ársins í karia og kvennaflokki. Karialiðið er þannig skipað (efri röð f.v.): Teitur Örlygsson, Njarðvík, Baldur Ólafsson úr KR, sem var kosinn efnilegasti leikmaður deildarinnar, Helgi Jónas Guðfinnsson, Grindavík, Friðrik Stef- ánsson, KFÍ og Falur Harðarson, Keflavík. Á myndina vantar Sigfús Gizurarson, Haukum. f kvennaliðlnu eru (neðri röð f.v.): Guðbjörg Ama Sigurðardóttir úr ÍR, sem var koslnn efnilegust, Guðbjörg Norðfjörð, KR, Erla Reynisdóttir, Keflavík, Anna María Sveinsdóttir, Keflavík, Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík og Alda Leif Jónsdóttir úr ÍS. Þfjár keflvískar í liði Morgunblaðið/Halldór Þau voru best ANNA María Sveinsdóttir og Helgi Jónas Guðfinnsson voru bestu leikmenn vetrarins. LOKAHÓF körfuknattleiksfólks fór fram um síðustu helgi. Þar voru þeir sem sköruðu framúr í karla- og kvennaflokki heiðraðir. Anna María Sveinsdóttir úr Kefla- vík var útnefnd besti leikmaður kvenna og Helgi Jónas Guðfinnsson úr Grindavík besti leikmaður karla. Efnilegustu leikmenn karla og kvenna voru Baldur Ólafsson úr KR og Guðrún Arna Sigurðardóttir úr ÍR. í lið ársins í úrvalsdeild karla voru þessir valdir: Falur Harðarson, Keflavík, Teitur Ör- lygsson, Njarðvík, Helgi Jónas Guðfinnsson, Grindavík, Friðrik Stefánsson, KFÍ og Sigfús Gizurar- son, Haukum. í úrvalsliði kvenna voru Anna María Sveinsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir og Erla Reynis- dóttir, allai- úr Keflavík, Alda Leif Jónsdóttir, ÍS og Guðbjörg Norð- fjörð, KR. Urvalslið 1. deildar karla var þannig skipað: Jón Örn Guðmunds- son, Þór, Þorlákshöfn, Hrafn Krist- jánsson, Hamri, Atli Þorbjömsson, IS, Birgir Mikaelsson, Snæfelli, og Birgir Guðfinnsson, Selfossi. Þjálfari KR-inga, Jón Sigurðs- son, var valinn besti þjálfari karla og Karl Jónsson, IR, besti þjálfari kvenna. David Bevis, KFÍ og Jennifer Boucek, Keflavík, voru valin bestu erlendu leikmennirnir. Kristinn Óskarsson var valinn besti dómarinn og Jón H. Eðvaldsson sá efnilegasti. Þá var Birkir Mikaels- son, Snæfelli, valinn besti leikmað- urinn og þjálfarinn í 1. deild karla. Darryl Wilson, UMFG, var stiga- hæsti leikmaður DHL-deildarinn-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.