Morgunblaðið - 17.07.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.07.1998, Blaðsíða 4
Hiddink tekur óvænt við Real GUUS Hiddink, þjálfari hol- lenska landsliðsins á Heims- meistaramótinu í knatt- spyrnu, gerði í gær tveggja ára samning við Real Madrid. Kom þesi tilkynning á óvart þar sem Italinn Nevio Scala var efstur á blaði forráða- manna Madrid-liðsins og hafði hann átt í viðræðum við félag- ið. Scala sagði hins vegar í gær að hann hefði afþakkað boðið vegna þess hve stutt ■■ væri í að leiktíðin hæfist og hann hefði viljað fá lengri tíma til undirbúnings. ,^AJIt frá því forseti Real Madrid hafði samband við mig var ég vongóður að verða ráðinn og nú er það í höfn og ég er ánægður," sagði Hidd- ink í gær. Hiddink er sjötti þjálfarinn sem ráðinn er til liðsins frá því Lorenzo Stanz tók við starfi forseta í nóvem- ber 1995. Stanz sagðist vonast -1 til þess að Hiddink skilaði ár- angursríku starfi og yrði leng- ur hjá félaginu en næstu tvö árin. Hiddink kemur til vinnu á föstudaginn. Hann er ekki ókunnugur þjálfun á Spáni því hann var hjá Valencia fyrir sex árum eitt keppnistímabil. Morgunblaðið/Arnaldur SIGURÐUR Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, hafðí betur í viðureigninni við Ólaf Þórðarson, þjálfara Fylkis. Þeir náðu ekki að nýta vítaspyrnur er liðin mættust - Ólafur átti skot sem hafnaði á stöng, en vítaspyrna Sigurðar var varin. Besti bikarárangur Blika í fimmtán ár BLIKARNIR, undir stjóm Sig- urðar Grétarssonar, eru komnir í undanúrslit Bikarkeppni KSI í fyrsta skipti í fimmtán ár. Þeir léku síðast í undanúrslitum 1983 - máttu þá þola tap íyrir Skagamönnum, sem urðu bikarmeistarar, 4:2. Sig- urður Grétarsson skaut þá Blikun- um í undanúrslit með því að skora sigurmark gegn Víkingi, 1:0. Sigurð- ur lék með Blikum gegn Fylki, þar sem hann hitti fyrir Ólaf Þórðarson, þjálfara liðsins, sem var bikarmeist- ari með Skagamönnum 1983. Þetta ár lék ekkert lið frá Reykja- vík í undanúrslitum og hefur það ekki gerst síðan, fyrr en nú. Liðin sem leika í undanúrslitum eru IBV, Grindavík, Breiðablik og Leiftur. Eyjamenn eiga möguleika á að leika til úrslita þriðja árið í röð, en íslandsmeistarar hafa tapað tveim- ur síðustu bikarúrslitaviðureignum sínum, fyrir Skagamönnum 19% og í fyrra fyrir Keflvíkingum í eftir- minnilegri viðureign, þar sem Kefl- víkingar fögnuðu sigri í vítaspyrnu- keppni eftir annan leik liðanna. Leiftursmenn hafa aldrei leikið til úrslita. Grindavík lék til úrslita 1994, tapaði þá fyrir KR, 2:0. Breiðablik hefur einu sinni leikið til úrslita, tapaði fyrir Víkingi 1971, 1:0. Eyjamenn hafa átta sinnum leikið til úrslita, unnið þrisvar, tapað fimm sinnum. Dregið verðir í undanúrslitum bikarkeppninnar að Hótel Loftleið- um í hádeginu í dag. Einar Kari nálgast ís- landsmetið ÍR-ingurinn ungi, Einar Karl Hjartarson, sigraði í há- stökki á Eyrarsundsleikun- um í Helsingborg um síðustu helgi. Einar stökk yfir 2,07 m og hafði nokkra yfírburði í keppninni. Hann gerði sið- an tilraun til að fara enn hærra en tókst ekki að þessu sinni. Einar keppir nú um helgina á Laxaleikunum í Halmstadt og kemur að þeim loknum heim til þess að keppa á Meistaramóti ís- lands um aðra helgi. í fréttatilkynningu frá frjálsíþróttadeild IR segir að Einar hafí æft af kostgæfni í sumar og sé líklegur til þess að gera harða hrfð að sex ára gömu íslandsmeti Einars Kristjánssonar úr FH, 2,16 m á næstunni. Einar Karl náði íslandsmetinu innanhúss sl. vetur. Þá hefur hann tryggt sér keppnisrétt á heims- meistaramót unglinga í Frakklandi um næstu mán- aðamót. Þar keppir einnig Sveinn Þórarinsson, FH, í 400 m grindahlaupi. FOLK ■ GERARD Houllier fyrrverandi leikmaður franska landsliðsins í knattspyrnu og tæknilegur ráðgjafí landsliðsins síðustu 10 ár hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Roy Evans knattspyrnustjóra Liverpool. ■ CELTIC hefur verið að bera vi- urnar í Houllier en hann ákvað að taka tilboði Liverpool, ræður þar miklu kunnigsskapur hans og vara- forseta Liverpool, Peter Robinsons. ■ ANDREI Kanchelskis, landsliðs- maður Ukraínu og fyrrum leikmað- ur Man. Utd., er orðinn dýrasti knattspymumaður í sögu Skotlands. Glasgow Rangers borgaði Fiorent- ína 5,25 millj. pund fyrir hann. ■ COLIN Hendry, fyrirliði skoska landsliðsins, sem leikur með Black- burn, segir að hann myndi ekki ganga til liðs við Rangers. ■ ARSENE Wanger, knattspymu- stjóri Arsenal, sagði að það væri ómögulegt að spá í framtíðina í sam- bandi við knattspymu, er hann var spurður hvort hann tæki við landsliði Japans fyrir HM 2002, sem fer fram í Japan og Suður-Kóreu. „Það væri heiður fyrir mig að þjálfa landslið Japans," sagði Wenger, sem kann vel við sig þar í landi, þar sem hann þjálfaði áður en hann tók við Ar- senal. ■ AÐRIR þjálfarar sem hafa verið nefndir sem þjálfarar landsliðs Japans eru Mario Zagalio, þjálfari Brasilíu og Ossie Ardiles, sem þjálf- ar japanska liðið Shimizu S-Pulse. ■ WALTER Smith, knattspymu- stjóri Everton, festi kaup á ítalska miðverðinum Marco Materazzi frá Perugia á þrjár milljónir punda. ■ SMITH hefur ráðið Dave Watson sem þjálfara, en hann hefúr leikið lengi í vöminu hjá liðinu. ■ LAN Rush æfir nú með Wrexham, en Wigan hefur áhuga að fá hann sem knattspymustjóra. ■ RONNIE Whelan er orðinn þjálf- ari gríska liðsins Panionios. ■ TEDDY Sheringham vill ekki fara frá Manchester United að sögn Barry Nevilles umboðsmanns hans. Middlesbrough, Crystal Palace og Tottenham hafa sýnt honum áhuga, m.a. hefur Palace gert United tilboð um skipti á Sheringham og Matt Jansen leikmanni ungmennalands- liðs Englands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.