Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 57 + Bogi Ingiberg Þorsteinsson fæddist 2. ágúst 1918 í Ljárskógaseli í Hjarðarholtssókn. Hann lést að morgni 17. desem- ber síðastliðins á Landspítalanum. Foreldrar Boga voru Þorsteinn Gíslason, f. 18.11. 1873, d. 9.11. 1940, og Alvilda María Friðrika Bogadótt- ir, f. 11.3. 1886, d. 22.3. 1955. Alsystk- ini Boga voru Ragnar, f. 1913, býr í Kópavogi, Ingveldur, f. 1915, býr í Mosfellsbæ, Sigvaldi Gísli, f. 1920, d. 1998, Gunnar Þorsteinn, f. 1921, iátinn, og EIís Gunnar, f. 1929, býr í Kópavogi. Hálfsystkini Boga voru Magnús Rögnvaldsson í Búðardal, sem er látinn, og Guðlaug Margrét, f. 1928, sem einnig er látin. Bogi ólst ekki upp með systk- inum sínum, hann ólst upp hjá afa sínum, Boga Sigurðssyni í Kveðja frá Körfuknattleiks- sambandi Islands Það er ekki að tilefnislausu að Bogi Þorsteinsson hefur verið nefndur afí körfuknattleiksins á Is- landi. Bogi var meðal aðalhvata- manna að því að iðkun íþróttarinnar hófst hér á landi, og var íyrsti for- maður sambandsins frá stofnun þess árið 1961. Gegndi Bogi Þor- steinsson því embætti í alls 8 ár samfleytt. Bogi var sæmdur heiður- skrossi Körfuknattleikssambands Islands, æðsta heiðursmerki sam- bandsins, og er eini aðilinn sem hlotnast hefur sá heiður. Bogi telst til flokks eldhuga og hugsjónamanna, sem því miður fer fækkandi í nútíma samfélagi. íþróttahreyfingin almennt væri ekki það sem hún er í dag án þess að byggja á þeim grunni sem slíkir menn lögðu. Störf þeirra sem taka við hljóma fátæklega þegar litið er til baka á þau afrek sem fólust í því frumherjastarfi sem menn á borð við Boga Þorsteinsson ýttu úr vör. Án þess værum við mun skemmra á veg komin. Ahugi og einlægni Boga á körfuknattleiksíþróttinni endur- speglaðist ekki síst hin síðari ár í samviskusamri mætingu á kapp- leiki. Þrátt fyrir að heilsu hans hafi augljóslega farið hrakandi lét hann það ekki aftra sér frá því að mæta á leiki íslenska landsliðsins og síns fé- lagsliðs í Njarðvík. Það hefur hlýjað mönnum um hjartarætur að sjá þá gagnkvæmu umhyggju sem ríkt hefur á milli Boga og félagsmanna Njarðvíkurliðsins í körfuknattleik, og er sérhannað sæti í íþróttahús- inu í Njarðvík gott dæmi þar um. Mér þótti vænt um að fá að verða þess heiðurs aðnjótandi að taka þátt í samsæti sem körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hélt Boga í tilefni átt- ræðisafmælis hans fyrr á þessu ári. Sú einlægni sem þar ríkti á milli Boga og félaga sinna af öllum kyn- slóðum í Njarðvíkurliðinu sagði mér mikið um báða aðila. Mér reyndist í boðinu hins vegar erfitt að veita Boga þá vegsemd eða þakklætisvott sem getur á nokkurn hátt gefið mynd af störfum hans í þágu okkar hreyfingar, en Bogi hefur þegar verið sæmdur æðsta heiðursmerki KKÍ eins og fyrr segir. Þakklæti er engu að síður það sem fulltrúum Körfuknattleikssambands íslands er efst í huga. Fyrir hönd stjórnar KKÍ og allra félaga okkar hreyfmgar vil ég senda aðstandendum Boga Þorsteinssonar samúðarkveðjur. Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ. Bogi Þorsteinsson, fyrrverandi foi-maður Körfuknattleikssambands Búðardal, og seinni konu hans, Ingi- björgu Sigurðardótt- ur frá Kjalarlandi, og urðu þess vegna lítil tengsl við ættingjana. Hann var í Reyk- holtsskóla 1933 til 1936, tók loftskeyta- próf 1941, starfaði sem loftskeytamaður, þar á meðal á es. Dettifossi er honuni var sökkt í febrúar 1945. Réðst til flug- málastjórnar 1946, tók próf til flugum- ferðarsljórnar 1947, fór til Bandaríkjanna í framhaldsnám 1951 til 1954, ásamt ýmsum námsferðum viðvíkjandi starfinu á árunum 1951 til 1957, var skip- aður flugumferðarstjóri 1948 og yfirflugumferðarstjóri á Kefla- víkurflugvelli 1951 og gegndi því starfi þar til hann fór á eftirlaun í ágúst 1985. Bogi var einnig sett- ur flugvallarsljóri 1955-1956 og svo oftar í styttri tíma. Bogi var einhleypur og helg- aði Iíf sitt margvíslegum félags- íslands, er látinn. í huga okkar, eldri leikmanna, sem störfuðum með honum meðan hann var for- maður KKI, skipar hann stóran sess. Körfuknattleikssamband íslands var stofnað árið 1961. Bogi var aðal hvatamaður að stofnun þess, fyrsti formaður og gegndi því starfi í 8 ár. Þó að körfuknattleikurinn hafi verið stundaður áður en Bogi hóf störf sem formaður þá urðu þáttaskil með tilkomu þess. Bogi var heims- maður og hafði breiðari yfirsýn yfir íþróttina og betri sambönd en al- mennt tíðkaðist. Má í þessu tilviki nefna að með starfi sínu sem flug- umferðarstjóri á Keflavíkurflugvelli var hann í góðu sambandi við yfir- menn hersins á Vellinum og með þessu samstarfi kom hann á keppni milli hermanna Nato á Keflavíkur- flugvelli og Reykjavíkurúrvals en í þá daga voru allir landsliðsmennirn- ir úr Reykjavíkurliðunum. Þannig opnaðist leið körfuknattleiksmanna að glæsilegu íþróttahúsi á Keflavík- ui-flugvelli. Var þetta ómetanleg reynsla fyrir þá leikmenn sem vald- ir voru í landslið því á íslandi var ekkert löglegt keppnis- eða æfinga- hús í körfuknattleik fyrr en með opnun íþróttahallarinnar árið 1965. Hingað fékk hann þjálfara frá Bandaríkjunum sem héldu hér þjálfaranámskeið. Með störfum sín- um innan Alþjóða körfuknattleiks- sambandsins opnaði hann nýjar leiðir. Unglingalandsliðið í körfuknatt- leik var sent í Evrópukeppni sumar- ið 1963 og landslið karla í æfinga- ferð til Bandaríkjanna um áramót 1964- 65. Með þessum ferðum und- irbjó Bogi framtíð körfuboltans um ókomna tíð. Aður en Bogi hóf störf sem formaður körfuknattleikssam- bandsins hafði íþróttin aðallega ver- ið iðkuð af Islendingum sem störf- uðu á Keflavíkurflugvelli, nemend- um á Laugarvatni, framhaldsskól- málum: Hann var formaður IKF 1951 til 1969, formaður KKÍ 1961 til 1969, formaður UMFN 1970 til 1978, í stjórn íþróttabandalags Suðurnesja 1952 til 1953, í stjórn FRÍ 1952 til 1954, í knattspyrnudómstól KSÍ 1956 til 1958 og fulltrúi KKÍ í ólympíunefnd um árabil, fararstjóri landsliðsins í körfuknattleik og sat í ótal nefndum. Að auki var Bogi for- maður sjálfstæðisfélagsins Mjölnis á Keflavíkurflugvelli frá 1955 til 1961, einnig for- maður sjálfstæðisfélagsins Njarðvíkings í tvö ár ásamt fréttaritarastarfi fyrir Morg- unblaðið um árabil. Fyrir allt þetta ofangreint tók hann aldrei nein laun, en hlaut þess í stað ýmsar viður- kenningar, þar á meðal af- mæliskross ISÍ, gullkross KKÍ, gullmerki frá KSI og Val ásamt Club-de-Luxembourgh, silfur- merki frá FRÍ og körfuknatt- leikssambandi Danmerkur. Ar- ið 1994 hlaut hann svo Hina ís- lensku fálkaorðu. Bogi var heið- ursfélagi hjá KKÍ, UMFN og Lionsklúbbi Njarðvíkur. Utför Boga fer fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Innri-Njarðvíkur- kirkjureit. um í Reykjavík auk Ámianns, ÍR og KR. í dag hefur hún þróast í að verða næstvinsælasta íþróttagrein- in á Islandi, ekki síst fyrir þá fyrir- hyggju og áhuga sem hann lagði í íþróttina. Eftir að Bogi hætti sem formaður hafði hann sem áður brennandi áhuga á íþróttinni. Sem dæmi um framsýni hans vann hann að stofnun Minniboltanefndar árið 1971. Ein meginstefna nefndarinnar var að hvert lið yrði að hafa 10 leik- menn, hver leikmaður mætti ekki leika allan leikinn og allir að leika að minnsta kosti fjórðung leiksins. Ekki var keppt um gull og silfur heldur fengu prúðasta liðið og leik- maðurinn sérstaka viðurkenningu og allir sem þátt tóku í mótinu minjagrip. Þetta er í dag einn meg- inþátturinn í stefnumótun ÍSÍ sem samþykkt var á ársþingi ÍSÍ árið 1996. Þetta lýsir framsýni Boga Þorsteinssonar, sem með réttu má nefna föður körfuknattleiksins á Is- landi. Fyrir framlag sitt til íþróttamála hlaut Bogi æðstu viðurkenningu Körfuknattleikssambands íslands, eða heiðurskross, auk þess sem hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Fyrir hönd okkar KR-inganna sem ólust upp undir handleiðslu hans þá virðum við hann fyrir hans ómetanlegu störf. Fyrir okkur var Bogi heimsmaðurinn, hvort sem hann kom fram fyrir hönd íslands á erlendri grund, eða í samskiptum við okkur sem leikmenn. Við mun- um minnast Boga sem mikils heið- urspanns. Eg get ekki látið hjá líða að senda nánasta vini hans, Inga Gunnars- syni og konu hans, sem hafa reynst honum ómetalegur styrkur í veik- indum hans samúðarkveðjur. Fyrir hönd eldri KR-inga, Kolbeinn Pálsson. SJÁ NÆSTU SÍÐU t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ALBERTJÓHANNSSON, Skógum, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands að kvöldi föstu- dagsins 26. desember. Erla Þorbergsdóttir, Eyvindur Atbertsson, Margrét Friðriksdóttir, Anna Guðlaug Albertsdóttir, Sigurður Einarsson, Jóhann Albertsson, Sigríður Lárusdóttir, Þorbergur Albertsson, Anna Guðrún Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. BOGI ÞORSTEINSSON t Faðir okkar og tengdafaðir, BJARNI BJARNASON frá Hoffelli, Vestmannaeyjum, lést á Hrafnistu Hafnarfirði á annan dag jóla. Jónína Bjarnadóttir, Magnús Karlsson, Helga Bjarnadóttir, Hjalti Jóhannsson, Einar Bjarnason, Ester Ólafsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGVARÞÓRÐARSON, Neðstaleiti 4, Reykjavík, lést sunnudaginn 27. desember. Ingibjörg Svava Helgadóttir, Dóra Ingvarsdóttir, Ólafur Oddgeirsson, Helgi Ingvarsson, Bára Sóimundsdóttir, Bragi Hannibalsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HANNES INGÓLFUR GUÐMUNDSSON, áður Ránargötu 6, Reykjavík, til heimilis á Hrafnistu, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík sunnudáginn 27. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Helga Anna Hannesdóttir, Inga Hanna Hannesdóttir, Ómar Jóhannesson, Hafdís Hannesdóttir, Jóhann Örn Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, BIRGIR BREIÐFJÖRÐ PÉTURSSON, Egilsgötu 18, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í dag, þriðjudaginn 29. desember, kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlegast bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Erla Gísladóttir Lovísa Birgisdóttir, Hanna Ingibjörg Birgisdóttir, Guðmundur Jónasson, Pétur Birgisson, María Aðatbjarnardóttir, Gísli Kristján Birgisson, Anna Kristín Kristinsdóttir, Ágústa Hera Birgisdóttir, Haukur Sigurðsson, Hiynur Freyr Birgisson, Stefanía Arnardóttir og barnabörn. * + Eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, MAGNÚS GUÐLAUGSSON húsasmiður, Frostafold 30, Reykjavík, lést á heimili sínu 22. desember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðviku- daginn 30. desember kl. 15.00. Ingibjörg Magnúsdóttir, Örn Magnússon, Guðlaug Guðsteinsdóttir, Svanhvít Magnúsdóttir, Skúli Jónsson, Hrafnhildur Magnúsdóttir, Svavar Baldursson, Magnús Magnússon, Ingibjörg Sigurðardóttir, Kristín Magnúsdóttir, Jón K. Arnarson, barnabörn og barnabarnabörn. •* Jt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.