Morgunblaðið - 04.03.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.03.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 52. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Arftaki •• Ocalans valinn SKÆRULIÐAR Kúrda hafa valið arftaka Abdullahs Öcalans, sem nú situr í varðhaldi í fangelsi í Tyrk- landi, að sögn tyrkneska dagblaðs- ins Milliyet í gær. Greindi blaðið frá því að á fundi Verkamanna- flokks Kúrdistans (PKK) hefði háttsettur foringi, Cemil Bayik, verið útnefndur „æðsti yfirmaður" skæruliðanna. Haft var eftir kúrdískum heimild- armönnum að Bayik væri ekki bein- línis ætlað að feta í fótspor Öcalans en að nýr titill hans væri viðurkenn- ing á því að hann hefði nú enn mikil- vægara hlutverki að gegna en áður í baráttu Kúrda fyrir sjálfstæði í Suðaustur-Tyrklandi. Að sögn blaðsins telst upphafning Bayiks nokkurt áfall fyrir Osman, bróður Öcalans, sem gert hafði sér vonir um að taka við af bróður sínum. Með frá upphafi hernaðarátakanna Bayik, sem er á fimmtugsaldri, var meðal stofnfélaga PKK árið 1978 og þvi er haldið fram að hann hafi átt þátt í að skipuleggja árás á tyrkneska herinn árið 1984 sem markaði upphaf vopnaðra átaka PKK og tyrkneskra öryggissveita. Er talið að hann hafi síðan þá dvalist í fjöllum Tyrklands og Norð- ur-íraks og tekið virkan þátt í að- gerðum PKK, ólíkt Öcalan sem fjar- stýrði samtökunum frá Sýrlandi þar sem hann bjó við ágætan aðbúnað um átján ára skeið, allt þar til Sýr- lendingar vísuðu honum úr landi seint á síðasta ári. Vonir glæðast um undir- ritun friðarsamninga Júgóslavneski her- inn tekur sér stöðu við landa- mæri Makedóníu Pristina, General Jankovic. Reuters. TALSMENN Bandaríkjastjórnar sögðu í gær að góður árangur hefði náðst í að telja leiðtoga albanska meirihlutans í Kosovo á að undir- rita friðarsamninga. Benti því allt til þess að Kosovo-Albanar myndu samþykkja friðartillögur Tengsla- hópsins. Haft var eftir Rexhep Qosja, lykilmanni í forystusveit Kosovo-AIbana, að hann teldi nær fullvíst að allir fulltrúar Kosovo- Albana mundu ganga að tillögum Tengslahópsins á fyrirhuguðum samningafundi í Frakklandi 15. mars nk. Ef Albanar samþykkja tillögur Tengslahópsins formlega, er talið að þrýstingur á Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseta aukist til muna vegna hótunar Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) um loftárásir. Alþjóðlegir eftirlitsaðilar á veg- um Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) lýstu í gær yfír áhyggjum af átökum serbneskra hersveita og albanskra skæruliða, sem staðið hafa að undanförnu í suðurhluta Kosovo. Sögðu þeir að átökin, sem brotist hafa út öðru hverju á mörkum Kosovo-héraðs og Makedóníu, geti verið að þróast út í skipulegar hernaðaraðgerðir. Júgóslavneski herinn hefur tekið sér stöðu á makedónsku landamær- Reuters ALBANSKIR unglingar hjálpa aðframkominni móður sinni eftir að fjölskyldan flúði átakasvæði í bænum Kacanik, 55 km suður af Pristina. unum, á slóðum er NATO-sveitimar, sem eru í Makedóníu, myndu fara um á leið sinni inn í Kosovo. Hefur herinn lagt sprengjugildrar á a.m.k. eina brú á landamærunum. Flóttamenn af albönskum upp- rana leituðu sér skjóls og matar í þorpum nálægt landamærum Mak- edóníu í gær. Höfðu þeir flúið átök serbneskra öryggissveita og al- banskra skæruliða í fjalllendinu umhverfis bæinn General Jankovic. Tugir Albana stóðu í röðum fyrir utan vörugeymslur í bænum og biðu þess að verða gefinn matur. A meðan var júgóslavneski herinn með miklar heræfingar fyrir utan bæinn. Flóttamenn era alls taldir um 4.000 og hefur stór hluti þeirra gist í tjöldum í skógi vöxnum hlíðum suð- urhluta Kosovo. Talið er að u.þ.b. eitt þúsund manns hafi flúið yfir til Makedóníu. Tyrkir gagn- rýna loftárásir Ankara, Bagdad. Reuters. Nýstárlegt fiskveiði- eftirlit Ósló. Morgunblaðið. NORSK stjórnvöld munu á næsta ári hefja gervihnattaeft- irlit með fiskveiðiflota Norð- manna, að sögn Peter Angel- sen, sjávarútvegsráðherra Noregs. Gervihnattaeftirlitið verður notað sem stjómtæki, samhliða afladagbókum og skrám sem fiskveiðiflotanum er skylt að halda, segir Angelsen í viðtali við norska dagblaðið NRK Dagsnytt. Útgerðum verður gert skylt að koma fyrir sendi- búnaði í skipum sínum, sem gefur færi á að veita nákvæm- ar upplýsingar um staðsetn- ingu skipanna. Útgerðarmenn efast hins vegar stórlega um ágæti hins nýja búnaðar, sem margir telja í ætt við „Stóra bróður" í sögu George Orwells, 1984. Era þeir uggandi um að samkeppnisað- ilarnir geti, með tilkomu bún- aðarins, komist að hvar feng- sælustu fiskimið þeirra séu. Þar íyrir utan hafa þeir af því áhyggjur að stöðugt eftirlit, skýjum ofar, geti valdið sjó- mönnum auknu álagi. Morðingj- unum verði náð „lífs eða liðnum“ Kampala. Reutcrs. YOWERI Museveni, forseti Úg- anda, hét því í gær að ná rú- andísku skæruliðunum, sem myrtu á hrottalegan hátt átta erlenda ferðamenn í Bwindi- þjóðgarðinum, „lífs eða liðnum“. Sagði hann að úgandísk sljóm- völd hefðu ekki gert nægilega mikið til að vemda ferðamenn- ina og baðst afsökunar á atburð- unum. I skeyti frá AP-fréttastofunni í gærmorgun var því haldið fram að tveir íslendingar hefðu verið staddir í þjóðgarðinum er skæruliðarnir réðust inn. Eftir- grennslan Morgxinblaðsins bend- ir til þess að um misskilning hafi verið að ræða. Var haft sam- band við danska sendiráðið í Kampala, eina norræna sendi- ráðið í Úganda, og talsmenn danska utanríkisráðuneytisins, sem sögðust ekki hafa heyrt um neina Islendinga er lent hefðu í klóm skæruliða. Haft var samband við Kristján Reuters YOWERI Museveni fellir tár á blaðamannafundi í Kampala Erlingsson, sem vinnur við fisk- sölu í Kampala. Hafði hann ekki heyrt um að neinir íslendingar hefðu verið í þjóðgarðinum. Helga Þórólfsdóttir, sendifull- trúi Rauða kross íslands, sem býr í Kampala, hafði sömu sögu að segja. Helga sagði að stjórn- völd í Úganda leyfðu starfs- mönnum Rauða krossins ekki að fara í þjóðgarðinn vegna hætt- unnar. ■ Morðin sögð skilaboð/22 SULEYMAN Demirel, forseti Tyrklands, sagði í gær að árásir Bandaríkjamanna fyrr í vikunni á olíuleiðslu milli Iraks og Tyrklands hefðu verið ótækar. Tyrkland, eitt aðildarríkja Atlantshafsbandalags- ins (NATO), hefur leyft bandarísk- um og breskum flugsveitum afnot af Incirlik-herflugvellinum í suður- hluta Tyrklands í tengslum við eft- irlit bandamanna á flugbannssvæð- inu yfir Norður-írak. Hafa Tyrkir að undanfómu lýst áhyggjum sínum af stefnu Bandaríkjamanna gagn- vart írak. Demirel var spurður hvort hann væri sáttur við árásir Bandaríkjamanna á olíuleiðslumar og svaraði forsetinn: „Nei, þær era óviðunandi.“ Varnarmálaráðherra Tyrklands, sem er á ferð í Bandaríkjunum, sagði hins vegar í gær að um eðli- lega sjálfsvöm af hálfu bandarísku flugmannanna hafi verið að ræða. Bandarikjastjórn brást við gagn- rýni Demirels í gær og sagði James Foley, talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins, að árásimar hefðu ekki verið gerðar með það að markmiði að eyðileggja olíuleiðsl- una og verið væri að kanna tildrög málsins. Olían, sem flutt er frá Kirkuk- héraði í Irak til tyrknesku hafnar- borgarinnar Ceyhan, hefur verið notuð til að greiða fyrir matar- og hjálpargögn til handa íröskum al- menningi. í árásinni eyðilagðist dælustöð nálægt borginni Mosul í norðurhluta Iraks og hefur flutn- ingur á olíu því legið niðri síðan á sunnudag. Var því lýst yfir í gær að gert hafi verið við leiðsluna og að eðlilegu rennsli olíunnar hafi verið komið á. Loftárásir Bandaríkjamanna og Breta á fjarskiptamiðstöðvar og loftvamastöðvar íraka, í tengslum við eftirlit með flugbannssvæðunum yfir írak, hafa verið nánast dagleg- ur viðburður síðan í desember sl. Tyrknesk stjómvöld, sem í síðasta mánuði höfnuðu umleitunum Tareq Ariz, aðstoðarforsætisráðherra Iraks, um að rifta samningum við Bandaríkin og Bretland um afnot af flugvöllum, hafa lýst því yfir að þau hafi orðið af tekjum sem samsvara 2.100 mOljörðum ísl. króna vegna viðskiptabannsins á írak.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.