Morgunblaðið - 07.03.1999, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Jón Ingvarsson hýður sig fram til áframhaldandi formennsku í SH
Stefnan einróma sam-
þykkt fyrir 22 mánuðum
JÓN Ingvarsson segist staðráðinn
í því að bjóða sig fram til áfram-
haldandi formennsku í Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna en eins og
fram kom í blaðinu í gær hefur Ró-
bert Guðfinnsson, stjórnarformað-
ur Þormóðs ramma-Sæbergs hf.,
ákveðið að bjóða sig fram til for-
mennsku á aðalfundi SH sem hald-
inn verður næstkomandi þriðju-
dag. Vegna gagnrýni á stefnu fé-
lagsins vekur Jón athygli á því að
Róbert hafi sem stjórnarmaður
tekið fullan þátt í mótun og sam-
þykkt stefnu félagsins fyrir aðeins
22 mánuðum.
„Eg hef gegnt formennsku í
þessu félagi á tímum mestu breyt-
inga sem á því hafa verið gerðar og
þær hafa orðið félaginu til farsæld-
ar. Framtíð félagsins verður reist á
þeim grunni og ég vonast til þess að
njóta stuðnings til að halda því
verki áfram. Eg er þess fullviss að
sú stjórn sem kosin verður á þess-
um fundi og fær mikil verkefni í
hendur muni ganga til þess verks
af fullum heilindum og af þeim
krafti sem lengst af hefur tryggt
þessu félagi farsæld í starfi,“ segir
Jón þegar leitað er viðbragða hans
við mótframboði Róberts. „Enn
sem fyrr verður stærsta eign fé-
Tillaga stjórnar VR
Foreldrar
fái 80%
launa í fæð-
ingarorlofí
STJÓRN Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur mun leggja
tillögu fyrir aðalfund félagsins
á morgun sem felur í sér að
allir foreldrar í fæðingarorlofi
fái 80% af mánaðarlaunum
sínum.
Gunnar Páll Pálsson, hag-
fræðingur VR, segir að gert sé
ráð fyrir að Sjúkrasjóður fé-
lagsins greiði mismuninn á
þeim styrk sem greiddur er af
Tryggingastofnun í fæðingar-
orlofi og 80% af meðallaunum
viðkomandi félagsmanna.
Verði tillagan samþykkt er
áætlað að um 300 félagsmenn
muni njóta þessa á þessu ári
og að greiddar verði um 40
milljónir kr. úr Sjúkrasjóði
VR til að tryggja að foreldri
fái 80% mánaðarlauna sinna í
fæðingarorlofi.
Gunnar Páll bendir á að í
dag fái allir greiddar um 71
þúsund kr. í fæðingarstyrk og
fæðingardagpeninga á mán-
uði. Sú greiðsla myndi
tryggja þeim sem er með
87.500 kr. á mánuði 80% af
launum en verði tillagan sam-
þykkt fá þeir sem hafa hærri
laun viðbótargreiðslur úr
sjúkrasjóðnum sem eiga að
tryggja að þeir haldi um-
ræddu hlutfalli launa sinna í
fæðingarorlofi.
Allir sitji við sama borð
Stjómendur VR benda á að
í dag njóti einungis hluti laun-
þega á Islandi þessa réttar
þar sem opinberir starfsmenn
haldi sínum launum í fæðing-
arorlofi. Allir eigi að sitja við
sama borð í þessum efnum. I
VR eru um 15.000 félagsmenn
og 70% þeirra eru konur.
lagsins sá mikli samtakastyrkur
sem felst í trú framleiðenda á því að
mæta viðskiptavinum sem stór og
öflug heild, sem skapað hefur sér
nafn fyrir gæði og áreiðanleika í
viðskiptum um áratugaskeið," segir
hann einnig.
Róbert staðið að stefnumótun
Róbert segist óánægður með
stefnu SH og segir nauðsynlegt að
breyta áherslum í rekstri. „Róbert
Guðfinnsson heldur því fram að fé-
lagið hafi ekki trúverðuga stefnu og
meðal annars þess vegna bjóði
hann sig fram til formennsku í fé-
laginu. Mér er spurn, hvar hefur
stjórnarmaðurinn Róbert alið
manninn?" segir Jón. Bendir hann
á að stjórn félagsins hafi síðast
unnið að stefnumótun fyrir félagið
um nokkuiTa mánaða skeið á árinu
1997, hún hafi verið samþykkt ein-
róma af stjórn í apríl 1997 og Ró-
bert tekið fullan þátt í mótun og
samþykkt stefnunnar. I stjórn hafi
þá setið fulltrúar fyrir meira en
70% hlutafjárins. „Eftir þeirri
stefnu ber félaginu að starfa þar til
stjórnin breytir henni. Eg hef talið
það eitt mitt meginverkefni sem
stjórnarfoi-maður í þessu félagi að
tryggja að stefna félagsins sé löguð
HÉRLENDIS er staddur 60
manna hópur Breta í boði nokk-
urra alþjóðlegra fyrirtækja sem
Bretarnir starfa hjá og með í för
er kvikmyndatökulið sem festa
mun á fiimu ævintýri þeirra á ís-
Iandi. Bretarnir komu hingað til
lands á fimmtudag og meðal þess
sem þeir gera sér til dægrastytt-
ingar er akstur á vélsleðum,
akstur á torfærujeppum, rallý-
kross, brun á dekkjaslöngum nið-
ur brekkur og svo kallað vírsig,
sem felst í að hundrað metra
langur vír er tengdur á milli
jeppa yfir gil og menn renna sér
þar á milli.
Óiöf Einarsdóttir, starfsmaður
innanlandsdeildar Úrvals-Útsýn-
ar og leiðsögumaður, segir að
auk þessarar dægradvalar Bret-
anna sæki þeir heim veitingahús-
in Þrjá Frakka, Viðeyjarstofu og
Perluna, skemmti sér á Kaffi
Reykjavík og baði sig í Bláa lón-
inu. Fyrirmynd ferðarinnar sé að
miklu Ieyti sótt til bresks sjón-
varpsþáttar sem gerður var hér-
lendis og sýndur ytra fyrir um
fjórum árum.
Víðtæk skipulagning að baki
„I þessum þætti var fjallað um
jeppa, vélsleða, rallý-kross og tor-
færubfla, svo eitthvað sé nefnt, og
þeir sem skipulögðu ferðina ytra
höfðu séð þáttinn og ákváðu í
framhaldinu að hafa samband við
Félag íslenski-a akstursíþrótta-
manna,“ segir Ólöf.
„Félagið ræddi við Úrval-Út-
sýn í kjölfarið og við hófum und-
irbúning hér á Iandi. Við erum að
reyna að bjóða útlendingum upp
á eitthvað nýtt hérlendis, á þeim
árstima sem þeir sækja landið
sjaldnast heim. Undirbúningur-
inn hefur því verið gríðarlegur
og höfum við átt mikið samstarf
við meðal annarra Félag ís-
að aðstæðum hvers tíma. Nú síðast
í september síðastliðnum hélt
stjórnin sérstakan fund um stöðu
félagsins og stefnu í framtíðinni og
í framhaldi af því voru ráðnir
rekstrarráðgjafar til að huga að
endurskipulagningu félagsins og
skila tillögum á vormánuðum," seg-
ir Jón.
Hann minnir á að þau ár sem
hann hafi gegnt formennsku hafi
SH tekið stakkaskiptum. Félagið
hafi breyst úr því að vera sölusam-
lag, þar sem hver framleiðandi hafi
aðeins haft eitt atkvæði án tillits til
eignarhluta og framleiðslustærðar.
Breytingar á því hafi verið háðar
samþykki hvers einasta félags-
manns. Segir Jón að með mikilli
vinnu hafi tekist að fá algera sam-
stöðu um breytinguna sem hafi ver-
ið alger forsenda þeirra breytinga
sem síðan hafí verið gerðar. Félag-
inu hafi verið breytt í lokað hlutafé-
lag, síðan opnað og loks skráð á
Verðbréfaþingi íslands. „Ég get
upplýst það nú að hefði ég reynt að
knýja fram breytinguna í hlutafé-
lag ári áður en það var gert, hefði
félagið klofnað vegna andstöðu
stóira eigenda," segir Jón.
Róbert telur að SH hafi alla
möguleika til að verða í fararbroddi
lenskra akstursíþróttamanna,
fyrirtækin Fjallamenn og Lang-
jökul, auk fjölmargra annarra.
Mörg fyrirtæki eiga fulltrúa í
ferðinni en hún er alfarið farin
undir nafni eins þeirra, banda-
ríska fyrirtækisins Lucent
Technologies sem selur m.a. sím-
tæki um allan heiin. „Um svokall-
aða hvataferð er að ræða og fyr-
irtækin sem eiga í hlut greiða ali-
an kostnað samfara ferðinni,
meira að segja kostnað hópsins á
barnurn," segir ÓJöf.
Þá er að sögn Ólafar væntan-
legur 23 manna hópur frá fyrir-
tækinu BMW í Belgíu, 120 manna
hópur frá fyrirtækinu Daiken í
Belgíu, ríflega þrjátíu manna
hópur frá hollensku tryggingafé-
lagi og fleiri slíkir, sem boðið
verður upp á svipaða dagskrá og
Bretarnir liafa notið. Einnig
standi til að reyna að auka íjöl-
breytnina með því að leita fleiri
inöguleika á afþreyingu fyrir
þessa ferðamenn hérlendis að
vetrarlagi.
fyrirtækja í markaðssetningu sjáv-
arfangs á alþjóðlegum mörkuðum.
Vegna þessara ummæla segir Jón
að SH sé í dag viðurkennt af keppi-
nautum sínum sem eitt öflugasta
félag á þessu sviði í heiminum. „Fé-
lagið nýtur mikillar virðingar og af-
ar mikils trausts og margir líta til
þess með öfundaraugum, hve vel ís-
lenskum fiskframleiðendum hefur
tekist að koma fyrir markaðsmál-
um sínum. Bestu dæmin um þetta
er áhugi erlendra fiskframleiðenda
að komast í viðskipti við SH. Vissu-
lega höfum við nálgast þá flesta og
boðið þeim að komast í viðskipti við
okkur en sumir hafa líka leitað okk-
ur uppi og óskað eftir þjónustu
okkar vegna góðs orðspors fyrir-
tækisins," segir stjórnarfoi-maður
SH.
Tölurnar tala sínu máli
Hann segir að á þessum áratug
hafi velta félagsins aukist á fóstu
verðlagi úr 20 milljörðum kr. á ári í
yfir 30 milljarða, eða um 50% og
þar af nemi aukningin síðustu fjög-
ur árin um 30%. A sama tímabili
hafi félagið skilað yfir þrem millj-
örðum í hagnað á fóstu verðlagi.
„Þessar tölur tala sínu máli,“ segir
Jón.
-----------------
Formúla-1
á mbl.is
NÝJUM vef um formúlu-1 kapp-
aksturinn verður hleypt af stokk-
unum á Fréttavef Morgunblaðs-
ins, mbl.is, en í dag fer fyrsti
kappakstur ársins fram í
Melbourne í Ástralíu.
Á vefnum er að finna ýmsan
fróðleik um formúlu-1. Ásamt
fréttum af mótum og æfingum og
öðru fréttnæmu milli móta, er þar
að finna ítarlegar upplýsingar um
ökuþóra, keppnisliðin, kappakst-
ursbrautirnar, úrslit og árangur
fyrri ára svo og upplýsingar um
bílana og umgjörð keppninnar.
Hægt er að komast á formúluvef
mbl.is með því að smella á hnapp á
forsíðu Fréttavefjar Morgunblaðs-
ins, en vefinn er annars að finna á
slóðinni:
http://www.mbl.is/sport/formula
► l-64
Vilja vernd en
deila um leiðir
► Umdeild frumvörp um stækkun
þjóðgarðsins á Þingvöllum og
verndun vatnasvæðis
Þingvallavatns. /10
Meta forsetann meira
en sjálfstæðið
► Hvit-Rússar hafa ekki
tilfinningu fyi-ir því að þeir séu
sérstök þjóð á tímamótum. /12
Guð launar fyrir
hrafninn
► Flatt kom upp á marga að
krummi skuli vera talinn í
útrýmingarhættu. /20
Engin lægð svo djúp...
► Kristinn Björnsson í viðtali um
vetur vonbrigðanna. /22
Flaga tekur flugið
► í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Helga
Kristbjarnason í Flögu. /30
► 1-16
Færandi hendi
► Með Rauða krossinum í Rúss-
landi./i&8-ll
Hálffullt vatnsglas
eða hálftómt
► Rætt við Jón Hlöðver Áskels-
son tónskáld á Akureyri. /4
Úr heimi
harmonikunar
► Hannonikan hefur skipað veg-
legan sess í skemmtanalífi Islend-
inga. /6
C#FERÐ4LÖG
► l-4
Quito
► Lítil heimsborg á miðbaug. /2
Hafnarsvæðið eftir-
sóknarverðast
►Viðhorfskönnun meðal erlendra
ferðamanna í Hafnarfirði. /4
D
BILAR
► l-4
Rover 75 hefur
útlitið með sér
► Rover kynnti nýjan lúxusbíl í
Sevilla í síðustu viku. /2
Reynsluakstur
►Frísklegur Ford Focus og
snöggur. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-24
Ársreikningar fyrir-
tækja á Netinu
► Átján þúsund reikningar á
skrá. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak ídag 50
Leiðari 32 Brids 50
Helgispjall 32 Stjömuspá 50
Reykjavíkurbréf 32 Skák 50
Skoðun 34 Fólk í frétturn 54
Viðhorf 36 Útv/sjónv. 52,62
Minningar 36 Dagbók/veður 63
Myndasögur 48 Mannl.str. 12b
Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 14b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6
60 Bretar í ævintýraferð á íslandi
Fyrirmynd sótt í bresk-
an sjónvarpsþátt
Mogunblaðið/Golli
BRETARNIR í torfæruakstri í Jósefsdal í gærmorgun.