Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sj álfstæðisstefnan
í nutíð og framtíð
FUNDARGESTIR í Ársal Hótel Sögu í fyrrakvöld.
ÞRÍR málefnafundir í fundaröð
undir yfirskriftinni Sjálfstæðis-
flokkurinn í sjötíu ár voru haldnir á
Hótel Sögu í fyrrakvöld í tengslum
við 33. landsfund Sjálfstæðisflokks-
ins.
Flestir virtust kjósa að sækja
fund um sjálfstæðisstefnuna í nútíð
og framtíð í þéttsetnum Ársal en
færri þátttakendur voru á fundi
um Frelsi og framfarir í 70 ár og
fundi undir yfírskriftinni Frjáls
þjóð í frjálsu landi.
Sigríður Anna Þórðardóttir, for-
maður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins, stiklaði á stóru í sögu
flokksins á fundi um Frelsi og
framfarir í 70 ár og umræður urðu
um kjörorð flokksins, Stétt með
stétt og Frelsi einstaklingsins.
Drífa Hjartardóttir sagði að af-
stæði frelsishugtaksins hefði gefið
fundarmönnum tilefni til
ígrundana. Einnig bar á góma
hvemig umhverfí flokkurinn var
stofnaður í fyrir 70 ámm þegar
haftastefna og kreppa var í þjóðfé-
laginu og aðstæðurnar þá bornar
saman við árangurinn í dag sem er
verðbólguhjöðnun og kaupmáttar-
aukning.
,^Allir sem til máls tóku á fundin-
um voru á einu máli um að bæta
þurfí kjör öryrkja og aldraðra og
tóku undir orð formannsins við
setningu Landsfundar," sagði
Drífa. Aðrir frummælendur á fund-
inum vom Þorgerður K. Gunnars-
dóttir lögfræðingur, Eyþór Am-
alds framkvæmdastjóri og Þórann
Gestsdóttir sveitarstjóri.
Erfitt að spá um
þróun heimsmála
Bjöm Bjamason menntamála-
ráðherra vék að sögu Islendinga á
fundinum Frjáls þjóð í frjálsu landi
og hélt því fram að íslendingai
hefðu í raun aldrei litið á sig í öðm
ljósi en sem frjálsa þjóð. Einnig
gerði hann að umtalsefni hvemig
Sjálfstæðisflokkurinn gegndi for-
ystuhlutverki í sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar. Hann lýsti þeirri
skoðun sinni að ástandið í Evrópu
væri í raun ótryggara eftir lok
kalda stríðsins. Nefndi hann að lík-
lega hefði Persaflóastríð aldrei get-
að brotist út á dögum Kalda stríðs-
ins vegna andstöðu Sovétríkjanna
við hemaðaríhlutun Bandaríkj-
anna.
Bjöm sagði óvarlegt að spá
langt fram í tímann um þróun
heimsmála og benti á í því sam-
hengi að ekki hefðu menn geta
spáð um fall Berlínarmúrsins 1989
né heldur að Ólafur Ragnar
Grímsson yrði sá forseti íslands
sem færi til Póllands þegar Pól-
verjar gengju í Atlantshafsbanda-
lagið eða að Svavar Gestsson yrði
sendiherra árið 1999. Aðrir fmm-
mælendur á fundinum vora Tómas
Ingi Olrich alþingismaður, Stefan-
ía Óskarsdóttir stjórnmálafræð-
ingnr og María E. Ingvadóttir við-
skiptafræðingur.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
prófessor gerði m.a. að umræðu-
efni frjálsa samkeppni, sérhags-
muni og almannahagsmuni. Hann
sagði að hugsuðir átjándu aldar
hefðu séð það strax að manninum
verður ekld breytt með samþykkt-
um og frómum óskum. Maðurinn
Morgunblaðið/Porkell
væri að sumu Ieyti eigingjarn og að
öðru leyti óeigingjarn. Hann keppti
að sérhagsmunum sínum af meiri
krafti en almannahagsmunum ekki
síst vegna þess að hann hefði oft og
tíðum ekki mikla vitneskju um
hverjir almannahagsmunimir em.
Eftir ákveðnum leikreglum fæm
þó sérhagsmunir hans í sama far-
veg og almannahagsmunir og þá
sprytti friður því þá væra hags-
munir launþega, vinnuveitenda,
karla og kvenna, ungra og gamalla,
þéttbýlisfólks og landsbyggðar-
fólks, þeir sömu. „Það er slík brú
sem er aðalatriðið í sjálfstæðis-
stefnunni," sagði Hannes Hólm-
steinn.
Davíð Oddsson
um forystu
næstu ríkisstjórnar
Líta þarf
til styrks
og stærðar
flokka
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði í svari við fyrirspurn á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins í gær að
ekki ætti að gera kröfu til þess fyr-
irfram að Sjálfstæðisflokkurinn
færi með forsætisráðuneytið yrði
flokkurinn aðili að næstu ríkis-
stjóm, enda væri það samningsat-
riði á hverjum tíma. A hinn bóginn
þyrfti þó að líta til styrks og stærð-
ar flokka.
Þetta kom fram í svari við fyrir-
spurn Þorvaldar Þorvaldssonar,
sem spurði hvort kæmi til greina að
afhenda framsóknarmönnum for-
sætisráðuneytið ef flokkarnir end-
urnýjuðu stjórnarsamstarf sitt.
Oskynsamlegt að leiða
ekki ríkisstjómina 1983
„Við göngum ekki fram og gerum
kröfu til þess í stjómarmyndunar-
samningum fyrirfram að Sjálfstæð-
isflokkurinn fari með forsætisráðu-
neytið. Á hinn bóginn þarf að líta til
styrks og stærðar flokka. I megin-
atriðum er það eðlilegra að sá flokk-
ur sem hefur meira fylgi á bak við
sig í stjórnarsamstarfi leiði ríkis-
stjórn. Þetta hefur verið samnings-
atriði. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
gengið í ríkisstjórnarsamstarf án
þess að hafa forsætisráðherra. Það
var gert 1983. Eg tel reyndar að
það hafi ekki verið skynsamleg ráð-
stöfun þá. Engu að síður hefur
þetta verið gert. Þetta er samnings-
staða og ég held að við eigum ekki
að ganga fram á völlinn fyrirfram
og segja að það eitt komi til greina
að Sjálfstæðisflokkurinn leiði ríkis-
stjóm. Það er dálítill frekjutónn í
því, þó að rök getið hnigið í þá átt-
ina. Við göngum opnir til allra
samningaviðræðna um stjórnar-
myndun, við hverja sem það nú
verður,“ sagði Davíð.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
Skipulagsreglur
flokksins verði
endurskoðaðar
MIÐSTJÓRN Sjálfstæðisflokksins
hefur lagt til við landsfund flokks-
ins að henni verði falið að skipa
sérstaka nefnd til þess að endur-
skoða skipulagsreglur Sjálfstæðis-
flokksins og leggja tillögur að nýj-
um reglum fyrir næsta landsfund.
Við endurskoðun skipulagsregln-
anna verði sérstakt tillit tekið til
þeirra breytinga sem orðið hafa á
skipan sveitarfélaga í landinu og
þeirra breytinga sem væntanlega
verða á kjördæmaskipan landsins
um næstu alþingiskosningar. Jafn-
framt verði hugað að þeim þáttum
sem snerta félagslega uppbygg-
ingu flokksins í því augnamiði að
starf hans megi ávallt verða sem
öflugast.
Bjöm Bjamason menntamála-
ráðherra fagnaði þessari tillögu
miðstjómar á landsfundinum í
gær, en hann hefur eins og kunn-
ugt er komið fram með þá hug-
mynd að kosin verði fímm manna
framkvæmdanefnd er starfí við
hlið formanns flokksins. „Við kjós-
um hér miðstjóm á þessum lands-
fundi, en ég hef einnig varpað því
fram hvort ekki sé eðlilegt að kjósa
sérstaka framkvæmdastjórn sem
starfí með umboði landsfundarins
að ályktunum flokksins við hlið for-
manns flokksins," útskýrði hann.
Síðar sagði Bjöm: „Mál hafa
verið skýrð þannig m.a. að ég hafi
lagt til að embætti varaformanns
yrði lagt niður. Að sjálfsögðu þarf í
Sjálfstæðisflokknum að vera skýr
staðgengill formanns flokksins ef
til þess kemur að menn þurfa að
hlaupa í skarðið fyrir hann en það
er hægt að leysa það mál með öðr-
um hætti heldur en að kjósa vara-
formann hér á landsfundinum. En í
sjálfu sér var það ekkert höfuð-
atriði í mínum tillögum hvort hér
yrði kjörinn varaformaður eða
hvort þeirri skipan yrði háttað með
öðram hætti, heldur hitt að lands-
fundurinn kysi framkvæmdastjórn
sem starfaði við hlið flokksleiðtog-
ans að því að vinna að stefnumálum
flokksins," sagði hann.
Morgunblaðið/Þorkell í
KARLAKÓR Reykjavíkur söng fyrir sjálfstæðiskonur. í einu laganna fóru þeir á hnén fyrir samkomugesti og
sagðist Sólveig vonast til að slíkt hið sama yrði uppi á teningnum á landsfundinum. „Þetta er sérstakt tæki-
færi þar sem allir þessir karlmenn falla að fótum okkar,“ sagði Sólveig og jafnframt vonaðist hún til að það I
yrði góður fyrirboði fyrir kjörið. i
i
I