Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 26
irgus / NA011
MORGUNBLAÐIÐ
26 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999
RACHEL EMILY
GRIFFITHS WATSON
TILNEFNINGAR TIL
ÓSKARSVERÐLAUNA
Besta leilckona í aðalhlutverki
Besta leikkona í aukahlutverki
TVÆR®TUR. TVOLIF. EINAST
N SAGA:
14.990 kr.
Idag opnar ný Nautilus
líkamsræktarstöð í kjallara Suður-
bæjarlaugarinnar í Hafnarfirði
Þar munu faglærðir kennarar leið-
beina hverjum einstaklingi um þjálfun
í nýjustu og fullkomnustu Nautilus
tækjunum.
í tilefni opnunarinnar býður Nautilus
einstakt tilboó; árskort á
Nautilus á íslandi
Suðurbæjarlaug Hafnarfirði og Sundlaug Kópavogs
Innifalió er aðgangur aö sundlauginni
hvenær sem hún er opin, einnig má
nota kortið í Sundlaug Kópavogs
Tilboðið stendur aðeins til 21. mars. n.k.
VIÐSKIPTl
Kvartanir Miðlunar
á hendur Landssímanum
Öllum frjálst að
selja upplýsinga-
þjónustu í sínia
SAMKEPPNISRÁÐ hefur úr-
skurðað í tveimur málum sem rekja
má til kvartana fyiirtækisins Miðl-
unar ehf. á hendur Landssímanum.
Ráðið mælti fyrir um að Landssím-
inn skuli veita þeim, sem vilja reka
upplýsingaþjónustu í síma gegn
gjaldi, aðgang að þeirri aðstöðu
Landssímans sem nauðsynleg er til
þess að geta boðið upp á slíka þjón-
ustu auk þess sem samkeppnisráð
taldi ekki tilefni til íhlutunar á
grundvelli samkeppnislaga vegna
kvörtunar Miðlunar vegna ókeypis
aðgangs notenda að símaskrá
Landssímans á Internetinu.
Miðlun hafði kvartað yfir því til
Samkeppnisstofnunar, að upplýs-
ingaþjónustu Landssímans, 118,
væri heimilt að taka sérstakt auka-
gjald fyrir símtal í þjónustuna. Gulu
Línunni, upplýsingaþjónustu Miðl-
unar, væri hins vegar ekki unnt að
taka slíkt aukagjald, heldur yrði
fyrirtækið að byggja afkomu þjón-
ustunnar eingöngu á skráningar-
tekjum frá fyrirtækjum. Með þessu
taldi Miðlun að Gulu línunni væri
mismunað í samkeppni þar sem fyr-
irtækin tvö veitu að vissu leyti sams
konar þjónustu.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
Samkeppnisstofnun hafði Lands-
síminn ekki viljað veita þeim sem
annast upplýsingaþjónustu, eins og
Gulu línunni, aðgang að þeirri að-
stöðu fyrirtækisins sem nauðsynleg
er til þess að unnt sé að taka sér-
stakt gjald fyrir símtal í slíkar línur,
á sama hátt og gert er varðandi
sjálfvirkar upplýsingalínur á
svokölluðum símatorgum. Sam-
keppnisráð lítur svo á að synjun
Landssímans um aðgang að þessari
nauðsynlegu aðstöðu hafi skaðleg
áhrif á samkeppni og brjóti því
gegn samkeppnislögum. Fyrirtæki,
sem vilja koma á fót fyrmefndum
upplýsingalínum geti ekki leitað
annað en til Landssímans um að-
gang að þeirri aðstöðu sem nauð-
synleg er til starfseminnar. Með
synjun sinni telur ráðið að Lands-
síminn haldi fyrirtækjum frá við-
komandi markaði og takmarki þar
með valkosti neytenda en fyrirtæk-
ið reki sjálft upplýsingalínu um
símanúmer sem skarist að nokkru
leyti t.d. við starfsemi Gulu línunn-
ar. Samkeppnisráð mælir því fyrir
um að Landssíminn veiti þeim sem
vilja reka upplýsingaþjónustu með
svörun í síma gegn sérstöku gjaldi
fyrir símtalið, aðgang að nauðsyn-
legri aðstöðu hjá fyrirtækinu.
í málinu var því haldið fram af
hálfu Landssímans að ekki væri
hægt að veita aðgang að umræddri
aðstöðu f'yrr en búið væri að setja
opinberar reglur um þá þjónustu
sem hér um ræðir. I niðurstöðu
samkeppnisráðs er byggt á þeirri
niðurstöðu samgönguráðuneytis og
Póst- og fjarskiptastofnunar að
gildandi lög og reglugerðir standi
ekki í vegi fyrir því að Landssíminn
veiti aðgang að aðstöðunni og því
ekki þörf á sérstökum reglum um
þessa þjónustu.
Litlar tekjur
á móti kostnaði
I síðara málinu hafði Miðlun
kvartað til Samkeppnisstofnunar
yfir því að Landssíminn veiti ókeyp-
is aðgang að símaskrá fyrirtækisins
á Internetinu. Auk þess bjóði
Landssíminn upp á skráningu net-
og veffanga í netsímaskrána, en
Miðlun gefur m.a. út netfangaskrá.
Landssíminn opnaði fyrir endur-
gjaldslausan aðgang að netsímaskrá
sinni í júní 1998 og hóf að selja aug-
lýsingar í skrána í október sama ár.
Samkeppnisráð telur sýnt að litlar
tekjur hafi komið á móti kostnaði
við útgáfu og rekstur skrárinnar
þann tíma sem skráin hefur verið
aðgengileg á Internetinu og þannig
hafi Landssíminn enn sem komið er
haft óverulegar tekjur af þessari
starfsemi sinni. Pó lítur ráðið til
þess að viðskipti á Intementinu séu
í verulegri þróun. Ljóst sé að mark-
aðssetning upplýsingaveitu eins og
símaskrárinnar á Internetinu sem
auglýsingamiðils, taki nokkurn tíma
en fyrir liggja áætlanir Landssím-
ans um að auglýsingatekjur standi
undir rekstri netsímaskrárinnar i
framtíðinni. Þá bendir ráðið á að sú
skylda hvíli á Landssímanum skv.
eldri ákvörðunum samkeppnisyfir-
valda að mismuna ekki aðilum er
kaupa aðgang að gagnagrunni síma-
skrárinnar og nýta hann síðan til
útgáfu, m.a. á Internetinu. Með
vísan til þessa taldi samkeppnisráð
ekki ástæður til íhlutunar á grund-
velli samkeppnislaga vegna ókeyp-
is aðgangs að netsímaskrá Lands-
símans.
Viðskiptahalla spáð áfram
VIÐSKIPTAHALLINN var 33,5 milljarðar á árinu 1998 og
hefur hann ekki verið meiri á tíu ára tímabili. í ár er spáð
um 30 milljarða króna halla.
Eins og hér sést að ofan hefur viðskiptajöfnuðurinn
einungis þrisvar verið jákvæður, þ.e. á árunum 1993-95,
á tíu ára tímabili.
1998
-33,48