Morgunblaðið - 07.04.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.04.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 77. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Einhliða vopnahlésyfírlýsingu sljórnvalda í Belgrad vísað á bug sem ófullnægjandi Arásir halda áfram þar til gengið er að kröfum NATO Belgrad, Brussel. Reuters. STJÓRNVÖLD í Belgrad lýstu yfir einhliða vopnahléi í átökum sínum við Frelsisher Kosovo (UCK) í gær. Talsmenn bandarískra stjómvalda og NATO sögðust hafa búist við slíkum yfirlýsingum af hálfu Serba. Bill Clinton Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í gær að „hálfgildingsloforð" myndu ekki koma í veg fyrir auknar loftárásir NATO og Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, sagði að yfirlýsingar Júgóslavíustjómar næðu „alls ekki nógu langt“. I yfirlýsingu Serba sagði að vopnahléð væri boðað vegna páska- hátíðar rétttrúnaðarkirkjunnar sem nú gengur í garð. Kom þar fram að öllum hemaðaraðgerðum Serba í Kosovo yrði hætt einhliða, að Serb- ar myndu ráðfæra sig við Ibrahim Rugova, leiðtoga Kosovo-Albana, um friðsamlega lausn á málefnum héraðsins og að reynt yrði að gera Kosovo-Albönum kleift að snúa aft- ur til Kosovo. Yfirlýsingunni var algerlega hafnað af bandarískum stjómvöld- um í gær og sögðu talsmenn Hvíta hússins að enginn áhugi væri á „innantómum loforðum". William Cohen, vamarmálaráðherra Banda- ríkjanna, sagði að yfirlýsing Serba um einhliða vopnahlé væri „ekki einungis algerlega ótæk, heldur hreint fráleit". Sagði hann að ef NATO myndi fallast á vopnahlé nú væri bandalagið að afsala sér allri ábyrgð. Milosevic verður að ganga að þremur skilyrðum Clinton sagði í gær að Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti gæti bundið enda á loftárásimar ef hann gengi að þremur skilyrðum. I fyrsta lagi að draga her- og öryggislög- reglusveitir sínar til baka frá Kosovo. I öðm lagi að fallast á að al- þjóðlegt friðargæslulið verði í hér- aðinu og að síðustu að öllum flótta- mönnum verði gert kleift að snúa aftur til héraðsins. Gerhard Schröd- er, kanslari Þýskalands, var sama sinnis, líkt og aðrir leiðtogar NATO-ríkja, og sagði að vopnahlés- yfirlýsingin væri alls ekki nægjan- leg. Fyrst yrði Milosevic að ganga að kröfum NATO. Talið er að vopnahlésyfirlýsingin í gær hafi verið gerð með það að markmiði að forða frekari loftárás- um og sýna júgóslavneskum al- menningi fram á að stjómvöld í Belgrad hafi áhuga á að finna lausn á átökunum án þess að ganga að kröfum vesturveldanna. ■ Sjá umfjöllun á bls. 30-33 Reuters SERBNESKA borgin Aleksínac varð illa úti í loftárásum NATO í gærmorgun. Hermdu fregnir að fímm óbreyttir borgarar hefðu fallið og allt að 30 særst. Talsmenn NATO hörmuðu mannfallið og sögðu að sjald- gæf bilun hefði komið upp í tæknibúnaði og valdið því að flugskeyti fór af leið. Deilt um gildi þess að flytja flóttamenn frá Balkanskaga Ahersla á að brottflutning' ur fólks sé tímabundinn Reuters MAKEDÓNÍSKUR hermaður leiðbeinir Kosovo-Albönum við flótta- mannabúðir nærri landamærum Júgóslavíu og Makedóníu. Brusscl, Gcnf, París, Bonn, Washington. Reuters. EKKI em öll aðildarríki Evrópu- sambandsins (ESB) og Atlantshafs- bandalagsins (NATO) á eitt sátt um að mynda eigi loftbrú frá Makedón- íu og Albaníu, svo hægt sé að flytja flóttafólk frá Kosovo í öryggt skjól á Vesturlöndum. Flest ríki eru þó reiðubúin til þess að veita takmörk- uðum fjölda flóttamanna tímabundið hæli af mannúðarástæðum. Haft var eftir háttsettum embættismönnum innan Evrópusambandsins í gær að allt kapp yrði lagt á að halda flótta- mönnum frá Kosovo nærri heim- kynnum sínum í stað þess að hefja mikla flutninga flóttafólks til aðild- arrílqa ESB. Sadako Ogata, framkvæmdastjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, boðaði til neyðarfundar með fulltrúum 50 hjálparstofnana og ríkisstjórna í gær til þess að ræða hinar miklu hörmungar sem flótta- fólk frá Kosovo má líða og hvernig best verði brugðist við þeim. „Það er skelfilegt til þess að vita að þessari öld skuli ljúka með nauðungarflutn- ingum fjölda fólks,“ sagði Ogata á fundinum sem haldinn var í Genf. Stjórn Frakklands ákvað í gær að veita tilteknum hluta flóttamanna frá Kosovo tímabundið hæli í land- inu en áður hafði Lionel Jospin, for- sætisráðherra Frakklands, sagt móttöku flóttamanna jafngilda upp- gjöf gagnvart Slobodan Milosevic, forseta Júgóslavíu, og þjóðernis- hreinsunum hans. Jospin lagði áherslu á að aðeins væri um tíma- bundið hæli að ræða og sagði stjómvöld myndu þrefalda neyðar- aðstoð við löndin á Balkanskaga vegna flóttamannavandans. Emma Bonino, yfirmaður hjálpar- stofnunar ESB, geldur varhug við því að fljúga með fjöldann allan af flóttamönnum frá nágrannaríkjum Kosovo og til annarra landa, að því er talsmaður hennar greindi frá í gær. I grein eftir Bonino sem birtist í spænska dagblaðinu E1 Mundo í gær segir Bonino samfélag þjóðanna verða að tryggja að Kosovo-Albanar geti snúið aftur til síns heima, elleg- ar væri lagst á árar með nauðungar- flutningum stjórnvalda í Belgrad. Ríkisstjórn Bandaríkjanna sagð- ist í gær mundu hýsa 20.000 flótta- menn frá Kosovo í flotastöð Banda- ríkjahers við Guantanamo-flóa á Kúbu. Að sögn embættismanna verður enn nokkun-a daga bið á því að móttaka þeirra geti hafist. Stjórnvöld í Þýskalandi sögðust í gær vera reiðubúin til þess að hýsa um 10.000 flóttamenn tímabundið en það er aðeins fjórðungur þess fjölda sem talsmaður Atlantshafsbanda- lagsins hafði áður tilgreint sem hugsanlegan fjölda flóttamanna til Þýskalands. „Það er forgangsmál að veita neyðaraðstoð á staðnum," sagði formælandi innanríkisráðu- neytis Þýskalands. A Spáni eru stjórnvöld tilbúin til þess að veita 7-10.000 flóttamönnum hæli. Norðmenn hófu móttöku flóttafólks í gær en ríkisstjórnin hef- ur lofað að veita 6.000 manns frá Kosovo hæli. • • Oflugar sprenging- ar víða um Júgóslavíu Belgrad. Reuters. FJÓLMARGAR öflugar sprenging- ar heyrðust í Belgrad í gærkvöldi, nokkrum stundum eftir að júgóslav- nesk stjórnvöld höfðu lýst yfir ein- hliða vopnahléi sem hefjast átti klukkan 20 að staðartíma. Einnig bárust fréttir um að sprengingar hefðu heyrst í Podgorica, höfuðborg Svartfjallalands. Talið er að aðal- flugvöllur landsins hafi verið skot- markið. Arásirnar á Belgrad hófust um klukkan níu í gærkvöldi og fóru þær harðnandi fram eftir kvöldi. Sögðu heimildarmenn að sprengingarnar kæmu frá Batajnica-herflugvellin- um, í útjaðri höfuðborgarinnar, og að hvítar rákir eftir skot úr loft- varnafallbyssum sæjust yfir allri borginni. Tíu mínútum eftir að vopnahlé það sem Serbar höfðu lýst yfir gekk í garð, heyrðist í loft- varnaflautum í Belgrad. 200 íbúar höfuðborgarinnar höfðu þá myndað varðskjöld á einni af aðalbrúm borg- arinnar í þeirri von að NATO myndi falla frá loftárásum. NATO hefur boðað hertar loft- árásir gegn Júgóslavíu, og að þeim verði haldið áfram uns Slobodan Milosevic fallist skilyrðislaust á kröfur NATO.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.