Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 B 3 Hafhfirðingar klárir í bátana Morgunblaðið/Golli FH-ingar léku sterkan varnarleik undir stjórn Kristjáns Arasonar, sem hér stöðvar Gunnar Berg Viktorsson ásamt Knúti Sigurðssyni. Afturelding í úrslitakeppni: 28^14^,14« 8-liða úrslit: Undanúrslit: Úrslit: 4AQA Þjálfarj: 1 99** Guðmundur Þ. Guðmundsson 0-2 Haukar'f *T|fíl?Íf 4 QQC Þjálfari: 1 999 Guðmundur Þ. Guðmundsson 2-1 FH 44- 0-2 Valur 4 4 QAC Þjálfari: I99v EinarÞorvarðarson # 2-1 Stjarnan 44 1-2 Valur 4 4 007 Þiálfari: ^ 1 jjk. 1 99 f Einar Þorvarðarson 2-0 FH 44 2-1 Fram ! 1-3 KA 1 4 000 ÞjáUari: 1990 Skúli Gunnsteinsson 0-2 Valur 4 4 000 pjá>,ari: 1999 Skuli Gunnsteinsson 2-1 HK ^4 2-1 Haukar 44 gegn FH HAFNFIRÐINGAR í FH eru klár- ir í bátana í úrslitakeppni ís- landsmótsins í handknattleik karla. Með sanngjörnum og sannfærandi 18:22-sigri á Frömurum á útivelli í oddaleik liðanna í gærkvöldi sýndu þeir og sönnuðu að þeir eiga skilið að fá tækifæri til að leika til úrslita við deildar- og bikar- meistara Aftureldingar úr Mos- fellsbæ. Með gleði í hjarta og viljann að vopni unnu þeir bug á slöku liði Framara sem rétt eins og oft áður brotnaði sam- an þegar mest á reyndi. Framganga FH-inga í úrslita- keppninni hefur verið lygasögu líkust. Lengst af leiktíðar var mark- mið liðsins einfaldlega Björn Ingi að komast í úrslita- Hrafnsson keppnina og lengi vel skrifar leit vart út fyrir að það tækist. Það tókst þó - liðið end- aði í 7. sæti deildarinnar og hefur síðan svo sannarlega slegið í gegn í úrslitakeppninni, fyrst með frábær- um sigri úr þremur viðureignum við silfurlið Stjörnunnar úr Garðabæ og nú sama uppskera eftir frábæra leiki gegn Frömurum, bronsliði deildarinnar. í báðum rimmunum lék fyrirfram enginn vafi á því hvert sigurstranglegra liðið væri - eða svo töldu „sérfræðingarnir". Hinir gamalreyndu leikmenn Hafnar- fjarðarliðsins létu það þó ekki á sig fá og sýndu gífurlega baráttu, kraft og vinnusemi og uppskáru eftir því. Með framgöngu FH-inga í úrslita- keppninni nú hefur enn og aftur sannast að aldrei skyldi vanmeta lið eins og FH, þar sem heimamenn eru í flestum stöðum og leikið er með hjartanu, eins og sagt er. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, en Framarar höfðu þó frumkvæðið og náðu mest þriggja marka forystu, 6:3. Greinileg tauga- spenna var í herbúðum beggja liða og báðir markverðirnir náðu að verja vítakast snemma leiks. Gest- irnir komust þó aftur inn í leikinn, minnkuðu muninn jafnt og þétt og nýttu sér vandræðalegan sóknarleik Framara. I stöðunni 6:7 fengu Hafnfirðingamir hvorki fleiri né færri en sjö tækifæri til að jafna metin og nýttu eitt þeirra að lokum. Liðin gerðu svo þrjú mörk hvort fyrir leikhlé og í hálfleik var staðan því 10:10 og útlit fyrir hörkuspenn- andi síðari hálfleik. Gunnar Beinteinsson gerði fyrsta mark síðari hálfleiks af línunni fyrir Hafnfírðinga og Björgvin Þór Björgvinsson svaraði strax í næstu sókn fyrir Framara úr sömu stöðu. í næstu sókn misnotaði Valur Arn- arson annað vítakast sinna manna er hann skaut framhjá og það nýttu heimamenn sér til að ná aftur for- SÓKNARNÝTING Annar leikur liðanna í undanúrslitum, leikinn i Hafnarfirði 10. apríl 1999 FH Fram Mörk Sóknir % Mörk Sóknir % 10 26 38 F.h 13 25 52 13 24 54 S.h 12 25 48 23 50 46 Alls 25 50 50 5 Langskot 4 4 Gegnumbrot 3 1 Hraðaupphlaup 4 4 Horn 6 2 Lína 4 7 Víti 4 ystu með marki Magnúsar Arnar Arngrímssonar sem nýkominn var til leiks. Gunnar Beinteinsson jafn- aði metin strax aftur og þannig gekk taflið um sinn. Tvær brottvís- anir Lámsar Long í röð færðu Frömurum tveggja marka forystu, 14:12, og svo aftur 15:13. Þá var eins og allt hrykki í baklás hjá leik- mönnum liðsins - sóknarleikur þeiira var hvorki fugl né fískur gegn framliggjandi vörn Hafnfirð- inga sem gengu á lagið og skoruðu glaðbeittir fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 15:16. Á undra- skömmum tíma var eins og allt færi í handaskolum í Fram-liðinu og það nýttu reynslumiklir andstæðingar þeirra sér til fullnustu. Á þessum kafla leiksins, um mið- bik seinni hálfleiks og eftir það réð- ustu úrslitin. Ótrúlegt var að sjá draga í sundur með liðinum - sjá hið unga og sterka lið Framara brotna saman í höndunum á „gömlu“ mönnunum í FH-liðinu. SÓKNARNÝTING Þriðji leikur liðanna í undanúrslitum, leikinn i Reykjavík 12. apríl 1999 Mörk Sók'nir %______Mörk Sóknir % 10 25 40 F.h 10 25 40 8 24 33 S.h 12 24 50 18 49 37 Alls 22 49 45 5 Langskot 4 3 Gegnumbrot 4 1 Hraðaupphlaup 6 4 Horn 3 4 Lína 4 1 Víti 1 Engu skipti þótt gæfan snerist stundarkorn heimamönnum í hag og þeir kæmust yfir í 17:16. Guðjón Árnason braust í gegn og jafnaði metin þótt FH-ingar væru manni færri og í kjölfarið misstu Framar- ar boltann og Valur Arnarson gerði fyrsta mark sitt úr hraðaupphlaupi. Á eftir komu fimm misheppnaðar sóknir heimamanna í röð og FH- ingar styrktu stöðu sína - komust í 17:20. Þar með var björninn unninn, sætið í úrslitaleikjunum tryggt og lokamínúturnar voru leiknar í takt við stríðsdans gestanna sem sigr- uðu að lokum, 18:22. Engum vafa er undirorpið að sig- ur FH-inga í einvígjunum tveimur, gegn Stjörnunni og síðar Fram, eru einhver merkilegustu og óvæntustu úrslit í íslenskum handknattleik á seinni árum. í báðum tilfellum er um að ræða sigur „minni“ spá- manna á „stórurn" peningaliðum þar sem sterkir aðkomumenn eru í flestum stöðum. Eftir hvern leik í einvígjunum tveimm- var sagt: „Nú springa þeir, FH-ingai' geta ekki haldið þetta út,“ en alltaf sigruðust gömlu mennirnir í „Hafnarfjarðar- hraðlestinni“ á hindrununum og uppskáru að lokum eins og til var sáð. „Fernan“ óborganlega, Krist- ján þjálfari Arason, Guðjón Árna- son, Hálfdán Þórðarson og Gunnar Beinteinsson, var tilbúin í átökin og meðferðis höfðu þeir vaska sveina, unga og fríska menn eins og Val Arnarson og Lárus Long, sem óhætt er að telja eina skærustu stjörnu úrslitakeppninnar til þessa eftir framgöngu hans sem fremsta manns í píramídavörninni 3-2-1. Hvergi var gefið eftir í baráttunni og við mistök félaganna var ekki skammast, heldur bitið á jaxlinn og betur gert í næstu sókn. Við hvert mark var síðan fagnað vel og inni- lega og smám saman hefur leikgleði liðsins smitað út frá sér - skilað til- ætluðum árangri. Ekki er að efa að fyrir úrslita- viðureignimar gegn Áftureldingu eru deildar- og bikarmeistararnir taldir sigurstranglegri. Menn munu einnig minnast bikarúrslitaleiks lið- anna, þar sem FH var í hlutverki músarinnar gegn Mosfellsbæjar- kettinum. Það eru hins vegar engin ný tíðindi - sannindi - fyrir Hafn- firðinga. Þeir hafa áður séð það svart og sigrast á því. Og hugsa sér eflaust gott til glóðarinnar að takast enn á ný á við ofureflið og gera heiðarlega tilraun til að bera sigur úr býtum. Um leið er ljóst að vonbrigði Framara hljóta að vera mikil. Enn einu sinni rann vonin um verðlaun liðinu úr greipum, enn einu sinni voru lærisveinar Guðmundar Guð- mundssonar nálægt því að vinna til verðlauna, eða allténd leika til úr- slita um þau, en samt svo fjarri. Þótt vissulega megi segja að meiðsli hafi plagað Framliðið í vetur og lyk- ilmenn hafi lengi verið fjami góðu gamni, er jafnljóst að hinn sterki leikmannahópur liðsins átti að vera undir átökin búin. Meiðsli á vetur skýra ekki litla stemmningu innan liðsins - skortinn á leikgleðinni nauðsynlegu. Meiðslin skýra ekki heldur kraftleysið og að því er viðist algjöran skort á skynsemi þegar mest á reynir. Og meiðslin skýra ekki heldur hvers vegna baráttan hverfur þegar neyðin er sem stærst og mest er undir. Þá reynir nefni- lega á að leika með „hjartanu", sem kallað er, finna köllunina koma inn- an frá. Þegar slíka lykilþætti skortir er ekki von á góðu og því situr Safa- mýrarliðið nú eftir með sárt ennið. vonbrigði Eg hefði svo sannarlega viljað skila liðinu að minnsta kosti í úrslit og helst alla leið í efsta þrep, þess vegna er niðurstaðan nú mikil jvar vonbrigði," sagði Guð- Benediktsson mundur Þ. Guðmunds- skrifar son, þjálfari Fram. „Leikur okkar að þessu sinni var með þeim hætti að nú verða menn að spyrja sig þeirra spurningar hvort við áttum nokkurt erindi í úr- shtaleikina eftir að hafa tapað tvisvai' á heimavelli fyrir FH. Með þessu er ég ekki að kasta rýrð á leik FH-liðsins, sem lék vel og af skynsemi.“ Enn er framliggjandi vörn FH að koma ykkur í opna skjöldu ? „Við vissum mætavel að þeh- myndu leika þessa framliggjandi vörn og þess vegna höfum við lagt mikla vinnu í að þróa sóknarleik á móti henni. Við lögð- um nærri viku vinnu í að vinna á sókn- aratriðum til þess að vera undir þessa varnaraðferð búnir. I öðrum leiknum á laugardaginn voram við með mjög góð svör við þessari vörn. Það sem gerðist hins vegar í kvöld var að menn unnu alltof mikið upp á eigin spýtur í stað þess að leika sem ein heild, en það gerðum við á laugardaginn. Alla yfir- vegun vantar í sóknarleikinn. Framan af fannst mér sóknarleikur- inn í lagi, við opnuðum vörnina og feng- um færi. Tíu mörk í fyrri hálfleik var í lagi, en það sem ég ósáttastur við í fyrri hálfleik var aragrúi tæknimistaka sem var til dæmis verið að gera í hraðaupp- hlaupum. Flýtirinn var alltof mikið þeg- ar engin ástæðan vai' til. Pað virðist líka vanta allt hungui■ í leikmenn þína, ekki satt? „Ég get tekið undir það. Sumir leik- menn mínm, ég vil ekki nafngreina þá, verða að fara í naflaskoðun og athuga sinn gang og sýna frammistöðu í þess- um síðustu leikjum." Getur það skipt máli að þarna léku uppaldir FH-ingar gegn liði Fram þar sem hver kemur úr sinni áttinni? „Ég veit það ekki, það er eflaust af- skaplega misjafnt og engin einhlít skýring á. Við sjáum lið eins og Aftur- eldingu þar sem hver kemur úr sinni áttinni en samt næst upp barátta fyrir félagið. Ég held að þetta sé ekki ástæðan." Eftir fjegurra ára starf hjá Fram þá hefur þú stjórnað liðinu hér í síðasta skipti, að minnsta kosti í bili og upp- skeran er rýr. „Ég get ekki tekið undir það að upp- skeran sé rýr. Þegar ég tók við liðinu var það í annarri deild og fátt benti til þess að það yrði þar áfram. Það að koma hingað og breyta hugarfari var gríðalegt átak. Á fýrsta árinu mínu með liðið í fyrstu deild komumst við í fjögurra liða úrslit 9g vorum nærri því að komast í úrslit. Árið eftir lékum við til úrslita í bikar og einnig á Islands- mótinu og í ár er liggur niðurstaðan fyrir. Titlar hafa vissulega ekki skilað sér, en það er stórátak að koma liði í fremstu röð og vera á meðal þeirra bestu. Það tekur einnig langan tíma að byggja upp sigurlið eins og sést best hjá Aftureldingu. Menn skulu átta sig á það er stórá- tak að koma liði í fjögurra liða úrslit ár eftir ái' og sum hafa aldrei komist svo langt. Ég nefni sem dæmi Stjörnuna. Ég vil hins vegar halda því fram að hjá Fram sé nú búið að byggja upp mjög sterkan grunn sem á að vera auðvelt að byggja enn frekar ofan á. Það er ekki hægt að byggja upp stórlið í einum hvelli, það þarf að taka það skref fyrir skref.“ Nú stendur þú á ákveðnum kross- götum eftir 10 ára þjálfaraferil hér heima og lítur til baka, hefur þú ekki orðið fyrir vonbrigðum með að þar vantar titla? „Ég vil ekki ræða störf mín á þess- um nótum eða verja starf mitt hér og nú. Því er hins vegar ekki að leyna að hlutskipti mitt er að taka við liðum og byggja þau upp, Víking á sínum tíma, þar sem við vorum í fallhættu er ég tók við og ég gerði þá að deildar- og bikarmeisturum. Ég byggði upp grunn hjá Aftureldingu og Framliðinu hef ég komið í fremstu röð á ný eftir mögur á þar á undan. Nú tekur við annað upp- byggingarstarf hjá Bayer Doramgen í Þýskalandi, liði sem er að koma upp í fyrstu deild á ný og þarf að vinna ákveðna undirbúningsvinnu. Ég ætla ekki að gerast dómari í eigin sök, hver og einn getur haft sína skoð- un en ég fer sáttur úr þjálfún á Is- landi.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.