Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 B 9
Aukaleik þarf í viðureign Man. Utd. og Arsenal en Newcastle komið áfram
Dómarar voru
DÓMARARNIR voru í sviðsljós-
inu í undanúrslitaleikjum ensku
bikarkeppninnar sem fram fóru
á laugardag. Markalaust jafn-
tefli varð í viðureign Manchest-
er United og Arsenal á Villa
Park og verða liðin því að mæt-
ast öðru sinni annað kvöld og í
hinum leiknum komst
Newcastle áfram með tveimur
mörkum í framlengingu gegn
Tottenham. Þar með er
Newcastle komið í úrslit bikars-
ins á Wembley annað árið í röð.
Fyrri viðureign dagsins var leikur
Man. Utd. og Arsenal, efstu lið-
anna tveggja í úrvalsdeildinni. Leik-
urinn sá var lengstum í jafnvægi og
sóknarmenn United áttu í vandræð-
um gegn hinni sterku vöm Englands-
og bikarmeistara Arsenal, sem fyrir
leikinn hafði ekki fengið á sig mark í
673 mínútur. Þegar Roy Keane náði
svo að hamra knöttinn í netið sjö mín-
útum íyrir leikhlé fengu meistaramir
óvænta aðstoð frá aðstoðardómai-an-
um og fyrir vikið var mai'kið dæmt af.
Ótrúleg ákvörðun
Alex Ferguson, knattspymustjóri
Man. Utd., sparaði síst stóm orðin
eftir leikinn er hann ræddi ákvörðun
dómarans og aðstoðardómarans, sem
hann kallaði „ótrúlega“. „Þetta var
furðuleg ákvörðun og svona sést ekki
oft í nútíma knattspymu," sagði
hann. Starfsbróðir hans, hinn franski
Arsene Wenger hjá Arsenal, sagði
hins vegar að flagg aðstoðardómai-
ans hefði verið uppi og síðan hefði
hann tekið það aftur niður. „Svo
flaggaði hann aftur og það er það eina
sem deilt er um. Eg fæ ekki séð
hvemig menn ætla að kvarta yfir
þessari dómgæslu,“ bætti hann við.
Hvoragu liðinu tókst að brjóta ísinn
í seinni hálfleik og engu skipti þótt
Argentínumaðm’inn Nelson Vivas í
liði Arsenal liti rauða spjaldið í upp-
hafi framlengingarinnar. Tíu leik-
mönnum Ai'senal tókst að verjast af
eldmóði og tryggja sér þannig auka-
leik. Þar kemur aftur inn í liðið
Frakkinn Emmanuel Petit, sem tekið
hefur út leikbann, og verður eflaust
mikill styrkur.
Wenger jós vamarmenn sína lofi
eftir leikinn. „Við voram að vanda
sterkir og skipulagðir í vöminni.
Martin Keown var framúrskarandi,
en það hefur hann líka verið í allan
vetur,“ sagði þjálfarinn.
Aukaleikur liðanna fer fram annað
kvöld og þá verður ekki hætta á al-
gjöra markaleysi, þar eð gripið verður
til vítaspymukeppni verði jafnt eftir
hefðbundinn leiktíma og framleng-
ingu. Ljóst er að lið Man. Utd. var lít-
ill greiði gerður með aukaleiknum,
næg vora verkefiii liðsins fyrir, t.d.
seinni undanúrslitaleikur Meistara-
deildarinnar í Tórínó í næstu viku og
deildai'leikur um helgina. Ferguson,
stjóri liðsins, viðurkenndi að vissulega
væri þetta strembið, en alls ekki óyfir-
stíganlegt. „Ekki vanmeta bresku
seigluna,“ sagði hann. „Juventus verð-
ur að eiga stórleik til að vinna okkur.“
Man. Utd. á enn möguleika á sögu-
legri þrennu á leiktíðinni, þ.e. sigri í
deild og bikar heima fyrir og í Meist-
aradeild Evrópiú Ljóst er þó að fjöldi
leikja liðsins í apríl getur sett strik í
reikninginn og sá möguleiki er fyi-u-
hendi - líkt og í fyrra - að liðið eigi
möguleika á mörgum titlum en vinni
þó ekki neinn.
Tottenham úr leik
Newcastle sigraði Tottenham, 2:0,
í seinni undanúrslitaleik sunnudags-
ins, en framlengingu þurfti til að
Reuters
DÓMARINN David Elleray sýnir Argentínumanninum Nelson Vivas rauða spjaldið, eftir brot hans á
Nicky Butt. Vivas hafði fengið að sjá gula spjaldið fyrr í leiknum.
knýja fram úrslit. Þá kom fyrirliði
Newcastle Alan Shearer sterkur inn
og gerði bæði mörk liðsins, hið fyrra
úr vítaspyrnu en hið seinna með
þrumuskoti utan teigs.
Jafhræði vai' með liðunum lengst af,
en Tottenham átti þó að fá vítaspymu
í seinni hálfleik er Grikkinn Nikos Da-
bizas sló til knattarins innan vítateigs
eftir aukaspymu Andys Sintons.
Hvorki dómarinn né aðstoðarmenn
hans sáu neitt athugavert og leikurinn
hélt því áfram, þrátt fyrir kröftug mót-
mæli leikmanna Tottenham.
Mai'kalaust var eftir hefðbundinn
leiktíma og því varð að grípa til fram-
lengingar, rétt eins og í hinum undan-
úrslitaleiknum. I upphafi seinni helm-
ings hennar rétti Sol Campbell, varn-
armaður Tottenham, út höndina í eig-
in vítateig og vítaspyma var réttilega
dæmd. Ur henni skoraði Alan Shear-
er af miklu öryggi og þá forystu létu
leikmenn Newcastle ekki af hendi,
þrátt fyrir tvö mjög góð færi fram-
herjanna Chris Armstrong og
Steffens Iversen hjá Tottenham.
Undir lokin náði Shearer svo að inn-
sigla sigurinn með seinna marki sínu
- sannkölluðu þrumuskoti sem sleikti
samskeytin og fór þaðan í netið.
Newcastle er þannig komið í úrslit
bikarkeppninnar annað árið í röð.
Tottenham verður hins vegar að láta
sigur í deildarbikarkeppninni nægja
þetta árið og knattspymustjóri liðs-
ins, George Graham, var sýnilega
ekki sáttur við það eftir leikinn. „Mi-
stök dómarans kostuðu okkur sæti í
úrslitunum,“ sagði hann öskuvondur.
„Þeir fengu víti en við ekki og þó var
um nákvæmlega eins atvik að ræða.
Ég er viss um að dómarinn gerir sér
grein fyrir mistökum sínum, en þau
voru allt of mörg í þessum leik að
mínu mati. Við áttum að fá víta-
spyrnu í hefðbundnum leiktíma og
hún hefði tryggt okkur sigur. Á því
er enginn vafi í mínum huga,“ sagði
Graham.
Graham viðurkenndi þó að akki-
lesarhæll Tottenham í leiknum hefði
verið bitleysið í fremstu viglínu. „Við
sköpum okkur fullt af færum í leikj-
unum og vængmennirnir koma
knettinum oft fyrir markið. Það sem
okkur vantar er alvöra markaskorari
- maður sem skorar reglulega og
ógnar sífellt í framlínunni," sagði
hann og bætti við að margir sterkir
leikmenn yrðu keyptir til Tottenham
fyrir næstu leiktíð.
Owen semur
um ævisögu
ENSKI markahrókurinn Michael Owen er aðeins nítján ára
að aldri, en samt gerði hann fyrir helgi samning um ritun
ævisögu sinnar í þremur bindum. Að auki hyggst breska rík-
issjónvarpið gera sögu hans skil í sex þáttum. Talið er að
samningurinn færi Owen ríflega 120 milljónir króna í sinn
hlut.
Það er útgáfurisinn HarperCollins sem hyggst gefa bækurn-
ar þrjár út. Fyrsta bókin á að útskýra knattleikni hans og æf-
ingar einn með boltann strax á unga aldri, önnur bókin verður
að mestu myndskreytt lýsing á æsku hans og hin þriðja verður
formleg ævisaga, rituð af ónefndum blaðamanni.
Owen var sjálfur glaðbeittur er hann kynnti samninginn
og kvaðst hreint ekki of ungur til að miðla af reynslu sinni.
„Þetta er frábært tækifæri til að miðla því sem ég hef lært til
ungra knattspyrnumanna um allan heim. Svo vildi ég einnig
segja sögu mína frá eigin bijósti,“ sagði knattspyrnumaður-
inn ungi.
FOLK
■ NELSON Vivas, hinn argent-
ínski varnarmaður Arsenal, var tí-
undi leikmaður liðsins til þess að
líta rauða spjaldið á þessari leiktíð
er hann var rekinn af vell í fram-
lengingunni gegn Man Utd.
■ ARSENAL hefur nú leikið í ell-
efu klukkustundir án þess að fá á
sig mark.
■ SIGURÐUR Jónsson lék með
Dundee United gegn Celtic í und-
anúrslitum skosku bikarkeppninn-
ar. Celtic sigraði 2:0 með mörkum
frá Regi Blinker og Mark Vidura.
■ RANGERS vann St. Johnstone í
hinum undanúrslitaleiknum 4:0.
■ EIÐUR Smári Guðjóhnsen var í
byrjunarliði Bolton sem tapaði 2:1
fyrir Watford í ensku 1. deildinni.
Guðni Bergsson var á bekknum en
kom ekki inn á. Watford er í 7.
sæti, en Bolton í 6. sæti. Lið í 3.-6.
sæti komast í úrslitakeppni um eitt
laust sæti í úrvalsdeild.
■ BJARNÓLFUR Lárusson var í
liði Walsall sem tapaði fyrir
Colchester 1:0. Walsall er í 2. sæti
2. deildar.
■ STOKE, lið Lárusar Orra Sig-
urðssonar, er í 8. sæti, en það tap-
aði fyrir Bristol Rovers 4:1 á
heimavelli um helgina. Lárus Orri
var að venju í liði Stoke.
■ HERMANN Hreiðarsson lék
með Brentford sem gerði marka-
laust jafntefli við Scunthorpe. Lið
Hermanns er í 3. sæti 3. deildar.
■ HIBERNIAN, lið Ólafs Gott-
skálkssonar, hefur 17 stiga forskot
í skosku 1. deildinni. Liðið vann
Raith Rovers 3:1 um helgina.
■ LÖGREGLA í Hollandi handtók
134 aðdáendur hollenska liðsins
Vitesse Arnheim fyrir að hlýða
ekki fyrirmælum vegna öryggis-
reglna á leik gegn FC Twente.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
um 150 aðdáendur liðsins hefðu
verið til vandræða í undanförnum
leikjum. Lögreglan hefði varað
hópinn við en enginn hefði tekið
mark á viðvörunum.
■ PIERRE Van Hooijdonk gæti
átt yfir höfði sér leikbann fyrir að
gefa Vas Borokis, varnarmanni
Derby, olnbogaskot í andlitið í leik
liðanna um helgina. Dómari leiksins
refsaði ekki Hooijdonk fyrir athæf-
ið, sem sást vel í sjónvarpi. Tals-
maður dómarasambandsins segir
að beðið verði eftir skýrslu frá
dómaranum áður en lengra verður
haldið í málinu.
■ SUNDERLAND hefur svo gott
sem tiyggt sér sigur í 1. deildinni.
Liðið hefur 12 stiga forystu í deild-
inni þegar fimm leikjum er ólokið.
Sunderland lagði Huddersfield 2:0
um síðustu helgi.
mp m m ■ jr ■
i svidsljosmu