Morgunblaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 84. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Nauðsyn á að bæta ímynd vísindanna Kennarar aki um á BMW og* Porsche London. The Daily Telegraph. KARLAR, sem kenna eðlis- fræði, ættu að aka um á sport- bflum og vera dálítið glaum- gosalegri til að freista ungra kvenna og fá þær til að leggja fyrir sig þessi vísindi og önnur. Kom þetta fram á ráðstefnu í Englandi og þar var vísinda- konunum ráðlagt að taka sér Kryddpíurnar til fyrirmyndar í stað þess að klæðast dýrum en oft heldur óspennandi fatnaði. Þessi heilræði eru komin frá Averil Macdonald, kennsluráð- gjafa og eðlisfræðikennara, en sjálf ekur hún um á BMW 320i og Porsche 911. Sagði hún á ársfundi bresku eðlisfræði- stofnunarinnar, að gera þyrfti vísindin nýtískulegri og eftir- sóknarverðari í augum ungs fólks. Macdonald leggur til, að öll- um eðlisfræðikennurum verði gefinn sportbfll og ýmislegt annað skemmtilegt til að sýna hve mikils samfélagið metur vísindin. „Ef við hvetjum ekki stúlkur til að leggja fyrir sig vísinda- nám, erum við að kasta á glæ hæfileikum helmings þjóðar- innar,“ sagði Macdonald. Macdonald lagði einnig til, að drengir og stúlkur yrðu aðskil- in í skóla eftir 11 ára aldur enda væri það fullsannað, að það auðveldaði þeim námið og sér- staklega stúlkunum. Tugir Kosovo-Albana fórust í árás á bflalest - ásakanir ganga á víxl Bjóða hlé á árásum gegn brottflutningi hersveita Brussel, Belgrad. Reuters. LEIÐTOGAR ríkja Evrópusam- bandsins (ESB) funduðu í Brussel í gær ásamt Kofi Annan, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, þar sem nýjar tillögur Þjóðverja um lausn á stríðsátökunum á Balkanskaga voru ræddar. Tillög- urnar, sem Þjóðverjar segja að njóti víðtæks alþjóðlegs stuðnings, miða að því að komið verði á tveggja sól- arhringa vopnahléi í Kosovo er Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti hefji brottflutning vopnaðra sveita sinna frá héraðinu. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, sagði að loftárásum NATO á Júgóslavíu myndi linna er hersveitir Serba hefðu yfirgefið Kosovo og serbnesk stjórnvöld féllust á þau fimm skilyrði sem vesturveldin hefðu gert þeim að samþykkja. Tillögur þýsku stjórnarinnar, sem nú gegnir formennsku í ESB, gera jafnframt ráð fyrir því að alþjóðlegar gæslusveitir muni, með umboði ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna, gæta friðar í héraðinu og auðvelda flóttamönnum að snúa til síns heima. Fjöldi leiðtoga ESB-ríkja hefur fagnað því að Sameinuðu þjóðirnar hafi verið með í ráðum við gerð til- lagnanna sem eru byggðar á fyrri friðartillögum Kofis Annans sem flestir eru sammála um að geti leikið lykilhlutverk við að koma á friði á Balkanskaga. Embættismaður ESB, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði í viðtali við fréttamann Reuters að Annan hefði tjáð leiðtog- um ESB á fundinum að ekki væri til nein hernaðarleg lausn á átökunum, varanleg lausn gæti eingöngu falist í pólitískri samningagerð - undfr merkjum Sameinuðu þjóðanna. James Rubin, talsmaður banda- ríska utanrfldsráðuneytisins, sagðist fagna því að umræður skyldu hafa hafist um varanlega lausn á átökun- um en sagði jafnframt að loftárásum yrði haldið áfram. Þá sagði Jamie Shea, talsmaður Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) að tillögumar væru „gagnlegar" og „verðar skoðunar“, en áréttaði að ekki þýddi að ræða vopna- hlé fyrr en Slobodan Milosevic hefði fallist á hin fimm skilyrði NATO. Joschka Fischer, utanríkisráð- herra Þýskalands, upplýsti í gær að Reuters FJÓRTÁN ára gamall drengur af albönskum ættum grætur sáran er hann gengur hjá vettvangi árásarinnar á bílalest flóttamanna í vesturhluta Kosovo í gærdag. Tugir manna fórust og var aðkomunni lýst sem hroðalegri. Rússar væru „nær algerlega“ fylgj- andi tillögunum en enn væri ágrein- ingur um hvaða þjóðir yrðu í því al- þjóðlega friðargæsluliði sem hugsan- lega yrði sent inn í Kosovo. Árás á bílalest flóttamanna Júgóslavneska Tanjug-fréttastof- an sagði fyrst frá því í gær að NATO hefði gert loftárás á bflalest Kosovo- Albana á þjóðveginum milli Prizren og Djakovica í Kosovo í gærdag. Sögðu Serbar að 64 flóttamenn á leið frá albönsku landamærunum til síns heima hefðu farist í árásinni og full- yrtu að NATO væri ábyrgt. Tals- menn NATO viðurkenndu að orr- ustuvélar bandalagsins hefðu gert árás á svipuðum slóðum en of snemmt væri að segja hvort þær eða sveitir júgóslavneska hersins gert árás á bílalestina. Myndavélar NATO-vélanna yrðu rannsakaðar um leið og flugmenn sneru til baka. I Washington sagði Ken Bacon að orr- ustuþotur NATO hefðu ráðist á serbneskar hersveitir sem hefðu ver- ið hvor við sinn enda bflalestar flóttamanna og hefði Wesley Clark, æðsti yfirmaður herdeilda NATO, tjáð sér að upplýsingar bandalagsins bentu til þess að serbneskir her- menn hefðu, eftir árásina, farið úr vögnum sínum og ráðist á flóttafólk- ið. Rudolf Scharping, varnarmála- ráðherra Þýskalands, sagði í gær- kvöldi að allt benti til þess að serbneskar stórskotaliðssveitir hefðu skotið á fólkið og látið svo að því liggja að um mistök flugmanna NATO hefði verið að ræða. ■ Landhemaður/24 Forsetakosningarnar í Alsír í uppnámi Sex hætta við framboð Algeirsborg. Reuters. í GÆRDAG lýstu sex af sjö fram- bjóðendum til embættis forseta AJsír því yfir að þeir hefðu hætt við framboð vegna kosningamis- ferlis. Sögðu þeir að stjórn Li- amine Zerouals, forseta landsins, og herinn hefðu ráðgert víðtækt kosningasvindl til að tryggja sín- um manni, Abdelaziz Bouteflika, fyrrverandi utanríkisráðherra landsins, öruggan sigur. Forsetinn brást við hinni nýju stöðu í gær- kvöldi og sagði í ávarpi til þjóðar- innar að kosningarnar myndu fara fram þrátt fyrir að aðeins einn maður væri í kjöri. „Eg mun ekki líða að kosningunum sé stefnt í voða, hver svo sem hindrunin er,“ sagði Zeroual í ávarpinu. Yfirlýsing frambjóðendanna kom síðdegis í gær eftir að Zerou- al forseti neitaði að ræða við fram- bjóðendurna um ásakanir þeirra. Frambjóðendurnir sex kröfðust þess í gær að utankjörfundarat- kvæði sem þegar hafa verið greidd, yrðu ógilt vegna upplýs- inga sem þeir höfðu undir höndum þess efnis að öryggislögreglan hefði átt við kjörkassana. Bou- teflika á stuðning hersins vísan og um 85% þingmanna alsírska þings- ins hafa opinberlega lýst yfir stuðningi við hann. Landið hefur verið á barmi borgarastyrjaldar undanfarin sjö ár og vonuðust menn til að kosn- ingarnar kynnu að binda enda á átök stjórnarhersins og skæruliða heittrúaðra múslima sem talið er að hafi kostað um 70.000 manns lífið. Reuters Vistaskipti þýzku stjórnarinnar hafin STJÓRNARSTOFNANIR Þýzka- lands hófu í gær hinn sögulega flutning austur á bóginn er starfs- menn ráðuneyta ríkisstjórnarinnar í Bonn hófu að hlaða öllum sínum gögnum í jámbrautarlestir, sem flytja allt góssið til Berlínar. Nærri heilum hillukílómetra gagna úr ráðuneytum fjármála og innanríkismála var hlaðið í gáma á flutningalest á Eifeltor-lestarstöð- inni í Köln. Þaðan var lagt upp í hið 560 km langa ferðalag austur, frá rósemdarborginni við Rín til stór- borgarinnar með hina prússnesku fortíð, sem Gerhard Schröder kanzl- ari álítur vera miðpunkt „Berlínar- lýðveldis" komandi aldar. Stærsta verkefnið í kringum flutninga stjórnarsetursins verður að sögn talsmanns þýzku jámbraut- anna að koma öllum gögnum neðri deildar þingsins austur. Því fylgja 38 hillukílómetrar af skjölum og 120.000 húsgögn úr 81 byggingu í Boim til hins endurbyggða þing- húss í Berlín, en þingið mun koma þar saman í fyrsta sinn eftir um- fangsmikla endurbyggingu nk. mánudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.