Morgunblaðið - 17.04.1999, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA
LANDSMANNA
J® a rjjEttMa&iö
1999
■ LAUGARDAGUR 17. APRÍL
BLAD
CITIZEN
FYRSR UTIVISTAR-
QS ÍÞRÚTTAFQLK
200m
vatnsþétt stáfúr
meö vekjara
Úr eru tolltrjáls.
URSMIÐUR I
Laugavegi 62 - Sírni: 551 4100
I
ALÞJÓÐLEGT STIGAMÓT í SVIGI
Morgunblaðið/Golli
KRISTINN Björnsson á ferðinni á Skíðamóti íslands á ísafirði. Hann varð sigurvegari í sinni síðustu
svigkeppni á árinu - í Noregi.
Krístinn vann o
Ole Furuseth í Ál
Björgvin Björgvinsson náði sínum besta árangri í svigi
KRISTINN Björnsson náði sér vel á skrið í svigbrekkunni í Ál í
Noregi í gær, þar sem hann náði bestum tíma og skaut norska
skíðakappanum Ole Christian Furuseth ref fyrir rass; hann varð
að sætta sig við annað sætið. Furuseth varð annar í svigi á
Óiympíuleikunum í Nagano.
Hermann
og Eiður
Smári
ekki
til Möltu
GUÐJÓN Þórðarson lands-
liðsþjálfari í knattspyrnu
þm-fti í gær að gera tvær
breytingar á landsliðshópi
sínum sem mætir Möltu í
vináttulandsleik ytra síðar í
þessum mánuði. Félög Eiðs
Smára Guðjohnsens, Bolton,
og Hermanns Hreiðarsson-
ar, Brentford, óskuðu eftir
því að leikmennirnir þyrftu
ekki að leika leikina og var
orðið við því. I stað þeirra
valdi Guðjón Helga Kolviðs-
son, Mainz, og Heiðar
Helguson, framherja hjá
Lilleström.
essi árangur Kristins, sem náði
sér ekki á strik í svigkeppninni
í heimsbikarkeppninni, styrkir
stöðu hans fyrir næsta vetur.
Haukur Bjarnason, þjálfari Krist-
ins, sagði að árangurinn væri
móralskur sigur fyrir Kiistin, enda
var þetta hans síðasta svigkeppni
fyrir sumaræfingar. Kristinn mun
taka þátt í tveimur stórsvigskeppn-
um í Noregi um helgina.
Þá var það merkilegt við árang-
ur Kristins, að hann var að prófa
ný skíði, sem eru 1,75 m löng.
Hann var áður með skíði sem voru
1,98 m löng, sem hann var ekki
ánægður með, en þar áður var
hann á skíðum sem voru 1,95 m
löng.
Kristinn fékk tímann 48,64 sek.
í fyrri ferð, 48,51 sek. í seinni ferð
- samtals 1.37,05 mín., en Furu-
seth fékk tímann 1.37,75 sek. -
49,19 og 48,56. Þriðji varð Svíinn
Charlie Bergendahl með 1.38,55
mín.
Björgvin stóð sig vel
Dalvíkingurinn efnilegi Björgvin
Björgvinsson náði sínum besta ár-
angri í svigi og fékk 26,63 alþjóð-
leg stig fyrir sjöunda sæti í mót-
inu, sem var 12,45 stig að styrk.
Hann fór fyrri ferðina á 50,88 sek.
og seinni á 50,73 sek., samtals
1.41,61 mín.
Kristinn Bjömsson mun verða
við æfingar á jöklum í Noregi í
sumar.
Atli til
æfinga hjá
Örgryte
ATLI Þórarinsson, 18 ára
knattspyrnumaður hjá KA, fer
utan til æfinga með aðalliði Ör-
gryte í Svíþjóð í eina viku, síð-
ar í þessum mánuði. Er þetta
fyrsta skrefið í samstarfi þess-
ara tveggja félaga, að sögn
Jóns Péturs Róbertssonar,
starfsmanns knattspyrnudeild-
ar KA.
„Við erum komnir í samstarf
við Örgryte um flest það sem
tengist knattspyrnu og fyrsta
skrefið í því er að þeir buðu
okkur að senda efnilegan
knattspyrnumann til æfinga
hjá félaginu í eina viku og við
ákváðum að senda Atla, enda
framtíðarmaður á ferð og auk
þess unglingalandsliðsmaður,"
sagði Jón Pétur.
Þegar kemur fram á sumarið
stendur til að senda fleiri efni-
lega knattspyi'numenn félags-
ins til æfinga hjá Örgryte. „Eg
reikna með því að Kjartan Þór-
arinsson fari út í viku í júlí og
einnig leikmaður úr þriðja
flokki."
Jón sagði ennfremur að
þessar heimsóknir væru aðeins
fyrsti liðurinn í þessu samstarfí
sem félögin væru nýbúin að
taka upp. Einnig stæði til að
þjálfarar og stjórnarmenn fé-
lagsins hefðu tök á því að
kynna sér starfsemi félagsins
og læra af því sem sænska fé-
lagið væri að gera.
Þess má geta að Brynjar
Björn Gunnarsson landsliðs-
maður leikur með Örgryte.
Létt hjá
Bæjurum
BAYERN Miinchen átti ekki í
vandræðum með Frankfurt á
Ólympíulkeikvanginum í
Miinchen í gærkvöldi fyrir
framan 46 þús. áhorfendur.
Bæjarar unnu 3:1 með mörk-
um Hasan Salihamidzic,
Alexander Zickler og Thom-
as Strunz, en Jan Áge Fjor-
toft skoraði fyrir gestina.
Hansa Rostock tryggði sér
þrjú dýrmæt stig í fallbar-
áttu með því að leggja Ka-
iserslautem heima, 2:1.
HANDKNATTLEIKUR: MEISTARARIMMA AFTURELDINGAR OG FH / B3,B4