Morgunblaðið - 17.04.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.04.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 B 3 Morgunblaðið/Ásdis i stakk búinn að takast á við þetta verkefni, en síðar kom í Ijós að bækurnar 5 mis fyrir ferðir út á landsbyggðina." FRJALSIÞROTTIR Sveinn í framför Seinn Margeirsson, hlaupari úr UMSS, bætti sig í mfluhlaupi á móti í Austin í Texas á dögunum, hljóp á 4.11,00 mínútum. Nokkrum dögum síðar bætti hann sig um tvær sekúndur í 800 m hlaupi á móti í Little Rock í Arkansas í Bandaríkjunum. Sveinn hljóp á 1.55,40 mínútum. Að sögn Gísla Sigurðssonar, þjálfara Sveins, eru þetta jákvæð teikn hjá Sveini fyrir sumarið, en því miður hefði hann ekki fengið tækifæri til þess að hlaupa 3.000 metra hindrunarhlaup í þessari ferð sinni vestur um haf eins og til stóð. Sveinn hefur síðustu misseri einbeitt sér að lengri hlaupum, s.s. 3.000 metra hindrunarhlaupi og 5.000 metra hlaupi. Gísli segir að tími Sveins í míluhlaupinu jafngildi um 3,53 mínútum í 1.500 metra hlaupi. „Eg tel að Sveinn hafi alla burði til þess að fara nærri íslandsmeti Jón Dið- rikssonar í 3.000 metra hindrunarhlaupi og jafnvel bæta það á þessu ári. Æfingar hafa gengið vel þótt þessi keppnisferð hafi ekki verið með þeim hætti sem til stóð,“ sagði Gísli. Islandsmet Jóns er 8.49,58 mínútur. Sveinn hafði skráð sig til keppni í hindrunarhlaupi á mótinu í Austin en þegar á hólminn var komið var þetta lok- að boðhlaup og því varð hann að skrá sig í mfluhlaup til þess að fá eitthvað út úr ferðinni. „Reyndar gat hann hlaupið hindrunar- hlaupið í Little Rock, en leist ekki á hindranirnar á brautinni sem hann skoð- aði fyrir hlaupið, Þær virtust fúnar enda kom það í ljós að hún brotnaði er einn hlauparinn stökk upp á hana á þriðja hring. Ur því að svo var var eins gott að Sveinn tók ekki þátt í keppninni því hlaupið var merkingarlaust þegai' allt kom til alls,“ sagði Gísli ennfremur. Stórtap á Strömsgodset STÓRTAP vai- á rekst.ri norska úrvalsdeildarfélagsins Strömsgodset á síð- asta ári. Alls nam tapið ríflega 70 milljónum króna, að því er fram kemur í Drammens Tidende í gær. Með liðinu ieika bræðurnir Valur Fannar og Stefán Gíslasynir og aukinheldur er Óskar Hrafn Þorvaldsson skráður leik- maður liðsins, þótt hann hafi nýlega orðið að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. „Talan er vissulega há, en þetta er þó ekki óyfirstíganlegt. Við vissum af þessari slænm stöðu og höfuin enn fulla stjóm á þróun mála,“ segir Finn Grundt, stjórnarformaður liðsins. „Það er þó ljóst að hér er mikið verk að vinna,“ sagði stjórnarformaðurinn. Hlutafélagið Strömsgodset var stofnað 1997 og er höfuðmarkmið þess kaup og sala leikmanna. Á síðasta ári fóru ellefu leikmenn frá liðinu, en samkvæmt bókhaldi félagsins yfir síðasta ár fengust aðeins ríflega Ijórar milljónir króna fyrir þá. Eigið fé hlutafélagsins er ennþá jákvætt sem nemur 100 milljónum króna, en með sama árangri á næstu leiktíð er ljóst að það verður fijólt að fara. Fréttir af slæmri afkomu liðsins koma ekki á óvart í Noregi þar sem hvert knattspyrnufélagið af öðru hefur átt í ijárhagserfiðleikum að undan- förnu. ÍÞROTTIR HANDKNATTLEIKUR Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Aftureldingar FOLK Okkur lang- ar ekkert síður til að vinna „VIÐ ætlum ekki að látar staðar numið nú eftir að hafa unnið tvo bikara í vetur. Leikmenn mínir ætla sér meira og við stefnum að því að vinna þetta einvígi,“ segir Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Aft- ureldingar, um einvígi UMFA og FH um íslandsmeistaratitilinn, en fyrsti leikurinn fer fram í Mosfellsbæ, annað kvöld. „Við ætlum okkur að vinna fyrsta leikinn en það verður líka stefnan í næsta leik þar á eftir og svo framvegis, en eitt er hins vegar Ijóst; það kemur enginn upp í Mosfellsbæ til þess að vinna okkur.“ Skúli sagði að síðustu dagar hefðu verið kærkomnir til þess að búa liðið undir átökin sem ■■■■■■ framundan væru. Ann- ívar ars hefur undirbúning- Benediktsson urinn verið líkur þeim skrifar gem yerjg hefur fyrir hina leikina í úrslita- keppninni. „Við höfum farið yfir leik andstæðinganna en einnig og ekki síður okkar eigin leik til þess að leita eftir því sem betur má fara jafnt í vöm sem sókn. Við verðum klárir í slaginn þegar stundin rennur upp annað kvöld.“ Savukynas Gintaras, leikstjóm- andi Aftureldingar, meiddist í annarri viðureigninni við Hauka á dögunum og lék ekkert í oddaleikn- um og segir Skúli að ekki sé líklegt að hann leiki stórt hlutverk í liði Mosfellinga í úrslitaleikjunum. „Gintaras hefur fengið þann úrskurð hjá lækni að það eina sem dugi til þess að ná heilsu á ný sé hvfld næstu sex vikumar. Þar með er ljóst að hann kemur aldrei til með að vera mikið með okkur og jafnvel ekki neitt. Auðvitað vill maður aldrei missa menn úr liðinu vegna meiðsla en við þessu er ekkert að gera og hjá okkur kemur maður í manns stað, þeir sem eftir standa þjappa sér betur saman og leggja allir á eitt. Við eigum nokkra kosti til þess að leysa Gintaras af hólmi og mun- um að sjálfsögðu nýta okkur þá.“ Auk Gintaras hefur Galkauskas Gintas verið meiddur en hann hefur verið á batavegi og ekki óttast að það kom í veg íyrir að hann geti beitt sér að fullu í viðureignunum. ,A-ð öðmm leyti emm við eins og fleiri að glíma við smá meiðsli.“ Afturelding og FH áttust einnig við í bikarúrslitum fyrr í vetur og þá hafði Afturelding betur og segir Skúli það vissulega vera gaman að þessi lið eigist við að nýju sem undir- striki að þetta séu tvö bestu lið landsins um þessar mundir. „Það sýnir sig nú að það var engin tilviljun að Afturelding og FH komust í úrslit og FH-ingar em verðugir mótherj- ar,“ segir Skúli. Þrátt fyrir að Mos- fellingar hafi unnið þægilegan sigui- þá hafi það ekkert að segja nú. „Þegar út í þessa úrslitaleiki um Islandsmeistaratitilinn er komið er allt annað upp á teningnum og liðin standa jafnt að vígi. Það stendur ekki allt og fellur með einum leik. það eram við líka og bæði lið hafa sýnt það í vetur að þau búa yfir miklum persónuleika sem hefur átt sitt þátt í að koma þeim í þau spor sem þau standa í. Okkur langar ekkert síður en þá til þess að vinna og við ætlum okkur að vinna einvígið þrjú eitthvað, það er alveg skýrt og ég tel okkur hafa allt til þess að bera til að verðskulda sigur.“ í leikjum sem þessum er mikil- vægt að halda sínu strild, að mati Skúla og láta ekki slá sig út af laginu þótt eitthvað kunni að ganga í mót og þó misjafnlega gangi að láta alla hluti ganga upp. Skúli sagðist ekkert óttast fram- liggjandi vöm FH-inga þrátt fyrir að hún hafi reynst þeim vel í síðustu leikjum. Afturelding hafi verið að leika gegn framliggjandi varnarleik upp á síðkastið, t.d. gegn Haukum, og tekist að brjóta hann á bak aftur. „Eins og ég segi, við höfum verið að fara yfir leik okkar andstæðinga og við óttumst það ekki hvernig þeir leika. Þeh- hafa verið að leika góða framliggjandi vöm, en við höfum einnig verið að leika ágætlega okkar varnaraðferð og hún hefur farið batnandi eftir því sem á úrslita- keppnina hefur liðið og ég tel okkur enn geta gert betur.“ Skúli vildi lítið gefa út á hvaða ása hann ætti upp í erminni nú þegar Gintaras væri meiddur og ef Bjarka Sigurðssonar yrði gætt vel, en ljóst er að þessi tveir menn hafa svo sannarlega leikið stórt hlutverk í sóknarleik Aftureldingar á leiktíð- inni. „Við munum leita svara við því upp kann að koma jafnóðum." ■ JÚLÍUS Jónasson skoraði eitt mark er hð hans St. Otmar vann Sulir, 21:20, í fyrsta leik liðanna í úrslitaleikjum um svissneska meistaraitilinn í fyrrakvöld. Leik- urinn fór fram á heimavelli St. Ot- mar. Liðin eigast við öðm sinni í Aarau á morgun en það hð sem fyrr vinnur þrjá leiki verður sviss- neskur meistari. ■ ARON Krisljánsson og sam- herjar hans í danska liðinu Skjem leika í dag fyrsta leik sinn við Kolding um danska meistaratitlinn í handknattleik. Leikurinn fer fram á heimavelli Skjern og er löngu uppselt á hann. ■ ANJA Andersen, fremsta hand- knattleikskona heims, segir vem- legar líkur vera til þess að hún yf- irgefi herbúðir norska hðsins Bækkelaget í vor. Hún hafi fengið tilboð frá félögum á Spáui, Þýska- landi og Danmörku sem séu nokk- uð áhugaverð. ■ ÞÓRÐUR Þórðarson átti slæm- an leik í marki Norrköping er liðið tapaði 3:0 fyrir Gautabrog í sænsku bikarkeppninni í fyrra- kvöld. Dagblaðið Dagens Nyheter sagði Þórð vera sekan um tvö marka Gautaborgar og líklega vildi hann gleyma leiknum sem fyrst. ■ ARSENE Wenger gekk í gær til liðs við Kevin Keegan og sagði það ekki vera neit vit að enska landshð- ið léki vináttulandsleik við Ung- verja 28. aprfl. Hætta væri á að lið misstu bestu leikmenn sína vegna meiðsla fyrir lokasprett deildar- keppninnar auk þess sem Keegan hefði sagt að þessi leikur þjónaði ósköp litlum tilgangi. ■ LORENZO Sanz, forseti Real Madrid, sagði í gær að félag sitt hefði áhuga á að fá Zinedine Zida- ne væri það einlægur ásetningur leikmannsins að fara frá Juventus. Zidane lýsti því yfir í vikunni að eiginkonu hans líkaði ekki lífið í Tórínó og vildi gjarnan flytjast til heimalands síns, Spánar. BARMMERKI BIKARAR VERÐLAUNAPENINGAR FANNAR LÆKJARTORGI S:551-6488 Guðmundur E. Stephensen, íslandsmeistari í MFL. karla. Einvígi sem þessi verða öðravísi en aðrir leikir því liðin mætast oft á stuttum tíma og hafa því góð tök á að aðlagast hvort öðra sem gerir að verkum að leikimir verða yfirleitt mjög jafnir og kannski fátt sem kemur á óvart í leikjum liðanna.“ Skúli sagðist ekkert óttast það hungur sem greinilega væri fyrir hendi hjá leikmönnum FH eftir að hafa lagt Stjömuna og Fram að velli. „FH er með mjög gott lið, en Úrslit Grand Prix mótaraöar BTÍ í TBR-húsinu sunnudaginn 18. aprfl kl. 11.30. Úrslitaleikir karla og kvenna hefjast kl. 14.00. leika til úrslita. ÍSLANDSFLUG cjenr Tietrum rærr ao njuga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.