Morgunblaðið - 18.04.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.04.1999, Blaðsíða 1
87. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Jamie Rubin talsmað- ur bandaríska utan- ríkisráðuneytisins Loftárásirn- ar farnar að skila árangri JAMIE Rubin, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneyt- isins, segir Bandaríkjastjórn hafa undir höndum upp- lýsingar um nýleg fjöldamorð af hálfu Serba og að fjögur hundruð þorp hafi verið eyðilögð. í samtali við Morgunblaðið segir hann þó að sterkar vísbendingar séu um að loftárárásirnar séu farnar að hafa áhrif á getu Milosevics til að framkvæma grimmdarverk. „Við teljum að 45 af þessum 400 þorpum hafi verið eyðilögð á undanfórnum tíu dögum og þær upplýsingar sem við höfum fengið um fjöldagrafir ná einnig til þess tímabils. Herferð Milos- evics heldur því áfram,“ sagði Rubin við Morgunblaðið. Bandarísk blöð greindu einnig frá því í gær að á gervi- hnattamyndum mætti sjá nýleg- ar fjöldagrafir vestur af Pristina í Kosovo og frásagnir flótta- manna bentu til að hundruð óbreytta borgara hefðu verið tekin af lífi að undanfómu. Þegar Rubin var spurður hvort nýjar upplýsingar um grimmdarverk Serba bentu til þess að loftárásir NATO hefðu ekki náð settu marki tO þessa sagði hann Bandaríkjastjórn hafa haldgóða vitneskju um að farið væri að þrengja að sveit- um Milosevics í Kosovo. „Þær eiga erfitt með að hreyfa sig um héraðið og þær eru ragar við að grípa til aðgerða vegna hætt- unnar á árásum af hálfu orr- ustuvéla NATO.“ I liðinni viku vörpuðu orr- ustuþotur NATO sprengjum á farþegalest og tveimur dögum síðar á bílalest flóttamanna frá Kosovo. Aðspurðm- hvort hann teldi hættu á að þetta myndi leiða til þess að drægi úr stuðn- ingi við aðgerðir bandalagsins sagði Rubin svo ekki vera. Þvert á móti teldi hann líkur á að stuðningur við loftárásirnar væri að aukast. Reuters Vaxandi óöld á A-Tímor HUNDRUÐ vopnaðra manna, sem hlynntir eru áframhaldandi yfirráðum Indónesíustjórnar á Austur-Tímor, fóru með báli og brandi um höfuðborgina, Dili, í gær og báru eld að húsum og bíl- um. Lýsti einn leiðtogi þeirra yf- ir, að nú skyldi „hreinsa" burt alla þá, sem vildu endurheimta sjálfstæði landsins. Sagði einn leiðtogi sjálfstæðissinna, að son- ur sinn og nokkrir menn aðrir hefðu verið skotnir er indónesískir hermenn gerðu árás á hús í borginni. Hér eru á ferð nokkrir stuðningsmenn Indónesíusljórnar en Indónesíu- her hefur verið sakaður um að útvega þeim vopn. Allt að 20.000 flóttamenn frá Kosovo á einum sólarhring Farið þorp úr þorpi og fólk- ið rekið burt með skothríð Tirana, Belgrad, Washington. Reuters. Júgóslavíustjórn hafnar friðartillögum Kofí Annans ÞUSUNDIR flóttamanna komu til Albaníu frá Kosovo í nótt mjög illa á sig komnar. Sagði fólkið að serbneskir hermenn hefðu farið þorp úr þorpi og rekið íbúana burt með skothríð. Júgóslavíustjórn hefur hafnað friðartillögum Kofi Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna en talsmenn NATO segja, að loftárásunum verði haldið áfram vik- um eða mánuðum saman ef þörf krefur. Bandaríkjaher hefur nú í haldi sínu fyrsta stríðsí'angann, for- ingja í serbneska hemum í Kosovo. Allt að 20.000 manns flúðu frá Kosovo í fyrrinótt og voru margir mjög aðframkomnir af vosbúð en miklar rigningar hafa verið í landinu. Þeir, sem komu til Kukes í Albaníu, sögðu, að Serbar hefðu komið í Mitrovica-hérað á miðvikudag og farið síðan þorp úr þorpi og rekið fólk allslaust úr húsum sínum með skothríð. Sagði einn flóttamannanna, Bedri Kadriu, að amma sín hefði ver- ið drepin er serbneskir hermenn skutu á bfla og dráttarvélar til að reka á eftir flóttanum. Segjast engan hafa rekið burt Júgóslavíustjórn hefur hafnað friðartillögunum, sem Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, lagði fram fyrir viku. Sagði í bréfi til hans frá Zivadin Jovanovic, utanríkisráð- herra Júgóslavíu, að það eina, sem ógnaði „friðinum í Kosovo“, væri loftárásir NATO. Fred Eckhard, talsmaður Annans, sagði, að við- brögð Júgóslavíusjjórnar hefðu ekki komið á óvart. I svari Jovanovie sagði hins vegar, að Serbar hefðu engan rekið frá Kosovo, heldur hefði fólkið flúið loftárásirnai-. William Cohen, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, og Carlo Scognamiglio, ítalskur starfsbróðir hans, sögðu að loknum viðræðum sínum í Washington í fyrrakvöld, að NATO væri reiðubúið að halda uppi árásum á Júgóslavíu mánuð- um saman eða þar til stjórnin í Belgrad gengi að skilmálum banda- lagsins. Bandaríska hermálaráðuneytið skýrði frá því í fyrrakvöld, að fyrsti serbneski stríðsfanginn væri nú í vörslu bandarískra hermanna í Tirana í Albaníu. Er um að ræða for- ingja í serbneska herliðinu í Kosovo en hann féll í hendur skæruliða Frelsishers Kosovo fyrir nokki'um dögum. Þýska tímaritið Focus hafði það í INDVERSKA ríkisstjórnin féll í gær en þá var samþykkt á hana vantraust með eins atkvæðis mun. Hafði hún setið í 13 mánuði og var fimmta ríkisstjórnin á þremur ár- um. Vantraustið á ríkisstjórn Janata- flokksins og Atal Behari Vajpayee forsætisráðherra var samþykkt í neðri deild þingsins með 270 at- kvæðum gegn 269. Ætlaði Vajpayee gær eftir Sergei Krylov, sendiherra Rússa í Bonn, að Rússar væru reiðu- búnir að taka þátt í alþjóðlegu gæsluliði í Kosovo á vegum Samein- uðu þjóðanna eða ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Skilyrði væri þó, að í gæsluliðinu yrðu ekki hermenn frá þeim NATO-ríkjum, sem nú stæðu að loftárásunum á Júgóslavíu. að afhenda forseta Indlands, K.R. Narayanan, afsögn sína og stjórnar- innar í gær og þykir ekki ólíklegt, að forsetinn muni þá fela Sonju Gandhi, leiðtoga Kongress-flokks- ins, stjómarmyndun. Hafa tals- menn hans þegar lýst yfir áhuga á því en takist ekki að mynda nýja stjórn mun forseti rjúfa þing og boða til þriðju kosninganna á þrem- ur árum. Indverska ríkis- stjórnin fallin Nýju Dclhi. Reuters. AÐ RANNSAKA MEÐ OPNUM HUG Vissi nákvæmlega hvernig heildarmyndin yrði 24 VAR VARAÐUR VIÐAÐ HEFJA BÓKAÚTGÁFU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.