Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 8
J ■ MAGDEBURG, sem varð Evr- ópumeistari sl. sunnudag eftir stór- sigur á Valladolid, varð síðast Evr- ópumeistari fyrir 18 árum. ■ FLENSBURG sigraði í borga- keppni Evrópu, vann Ciudad Real í síðari leik liðanna á Spáni 21:26 á sunnudag og samanlagt 53:48. Jan Holpert, landsliðsmarkvörður Þjóð- verja, átti stórleik á Spáni. Þetta var í annað sinn á þremur árum sem Fleusburg sigrar í borgakeppni Evrópu. ■ BARCELONA varð Evrópu- meistari meistaraliða eftir stórsigur á Badel Zagreb frá Króatíu á heimavelli sínum, 29:18, á sunnudag. Fyrri leik liðanna lauk með jafntefli, 22:22. ■ PROSESA Ademar Leon frá Spáni varð Evrópumeistari bikar- hafa, vann Caja Santander 32:23 á sunnudag og samanlagt 51:43. ■ NORDHORN tryggði sér sæti í efstu deild þýska handboltans um helgina. Liðið sigraði Bielefeld í loka- umferðinni og það dugði í efsta sætið. Hameln, lið Alfreðs Gislasonar, hafnaði í öðru sæti norður-deildar, einu stigi á eftir Nordhorn og leikur við Willstadt um sæti í efstu deild. Það lið sem sigrar í þeirri viðureign, heima og heiman, fylgir Nordhorn og Dormagen upp í 1. deild. ■ JOCHEN Fraats fyiTverandi landsliðsmaður Þjóðverja og einn fremsti hornamaður heims um ára- bil tilkynnti eftir sigur Nordhorn að hann hyggðist ekki leika með félag- inu í efstu deild á næsta vetri. Fra- ats, sem er 35 ára, hefur leikið í þrjá vetur með Nordhorn en hann gerði garðinn frægan með Essen á árum áður og lék þar m.a. með Alfreð Gíslasyni. ■ WUPPERTAL gerði jafntefli við Grosswallstadt, 25:25, í þýsku 1. deildinni um helgina. Wuppertal lék sérstaklega vel í fyrri hálfleik og var staðan í leikhléi 12:16 fyrir Wupper- tal. ■ VALDIMAR Grímsson var markahæstur í liði Wuppertal með 7/3 mörk, Dagur Sigurðsson gerði þrjú og Geir Sveinsson eitt mark. Wuppertal er enn í þriðja neðsta sæti deildarinnar. Dagur fékk rauða spjaldið þegar 10 mín. voru til leiksloka og Stephan Sehöne, þjálf- ari, einnig og það fyrir mótmæli. Þeir eiga yfir höfði sér allt að tveggja leikja bann. ■ ESSEN sigraði Dutenhofen auð- veldlega 27:22 og Minden tapaði fyr- ir Niederwiirsbach 21:22. Þá vann Bad Schwartau loks eftir marga tapleiki, sigraði Nettelstedt 25:24. Gummersbach og Frankfurt skildu jöfn, 21:21, þar sem Kóreumaðurinn Yoon fékk rautt spjald fyrir ljótt brot á lokamínútunni sem kom hugs- anlega í veg fyrir sigur Frankfurt. ■ RÓBERT Sighvatsson skoraði 1 mark fyrri Bayer Dormagen er liðið gerði jafntefli, 24:24 við HG Er- langen í síðasta leik sínum í suður- hluta 2. deildar. Daði Hafþórsson og Héðinn Gilsson komust ekki á blað fyi'ir Dormagen sem nægði stigið til sigurs í deildinni.> ■ GÚSTAF Bjarnason var með 5/1 mark fyrir Willstatt er liðið lagði CSG Erlangen í lokaleik liðsins í deildinni. ■ WILLSTÁTT mætir Alfreð Gíslasyni og lærisveinum í Hameln í tveimur leikjum um sæti í 1. deild að ári. Fyrri leikurinn verður á fimmtudaginn og sá síðari laugar- daginn 1. maí. ■ FANNEY Rúnarsdóttir og félag- ar hennar í norska liðinu Tertnes töpuðu síðari leiknum gegn danska liðinu Viborg, 29:26, í undanúrslit- um um EHF-bikarinn. Viborg vann fyrri leikinn 36:25 og er komið í úr- slit keppninnar. Júlíus Jónasson meistari í Sviss? ST Ottmar, lið Júlíusar Jónassonar, tapaði fyrir Suhr 29:24 í öðr- uin úrslitaleik liðanua um svissneska meistaratitilinn um helg- ina. Júlíus gerði tvö niörk í leiknum. Liðin standa jöfn að vígi, 1:1, og þurfa því að ieika hreinan úrslitaleik og fer hann fram á heimavelli St Ottmar annað kvöld. Júlíus sagði að jafnræði hefði verið með liðunum fyrsta stund- arfjórðunginn, en Suhr hefði síðan náð þriggja marka forskoti fyrir leikhlé, 13:10. Munurinn var tvö til þrjú mörk þar til tíu nrinútur voru eftir að heimaliðið jók muninn og sigraði örugg- lega. „Við fáum hreinan úrslitaleik á heimavelli á miðvikudag og það er þegar orðið uppselt en húsið tekur fhnm þúsund áhorf- endur. Heimavöllurinn hefur verið okkur heilladrjúgur í vetur og við höfum ekki tapað heima síðan í nóvember. Vonandi höld- um við uppteknum hætti og það yrði mjög gainan að kveðja liðið með því að ná meistaratitlinum," sagði Júlíus, en félagið hans hefur ekki orðið meistari síðan 1986. ARON Kristjánsson og félagar hans í danska liðinu Skjern unnu bikarmeistara Kolding 23:18 í fyrsta leik liðanna í úr- slitum um danska meistaratitil- inn í handknattleik á laugar- daginn. Aron stóð sig vel og gerði þrjú mörk í leiknum. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki verður meistari, en næst verð- ur leikið í Kolding á laugar- dag. Aron segir að árangur Skjern sé betri en nokkur hefði látið sig dreyma um fyrir tíma- bilið enda er liðið að spila í efstu deild í fyrsta sinn. „Við erum þegar búnir að tryggja okkur sæti í Evrópukeppninni, og aðeins spurning hvort það verður Evrópukeppni bikar- hafa eða meistaraliða. Það er mikill áhugi fyrir leikjum liðs- ins og það hefur verið troðfullt hjá okkur í öllum leikjum í úr- slitakeppninni," sagði Aron sem gerði tveggja ára samning við félagið í fyrra. Ólafur Stefánsson tryggði sér Evrópumeistaratitil með Magdeburg ÓLAFUR Stefánsson, landsliðsmaður í handknattleik, varð um helgina Evrópumeistari (EHF-bikarmeistari) með þýska liðinu Magdeburg. Lið hans vann spænska félagið Valladolid 33:22 í síðari úrslitaleik liðanna í Magdeburg á sunnudag og vann því samanlagt 54:47. Ólafur skoraði fimm mörk í ieiknum, öll í fyrri - hálfleik. Þetta var mjög gaman og titillinn kryddar tilveruna, en það var öðruvísi og mun skemmtilegra að vinna íslandsmeistaratitlana með Val. Það er ekkert sem jafnast á við það,“ sagði Ólafur við Morgunblað- ið. „Markmiðið hjá okkur var að vinna minnst einn titil í vetur og það hefur nú tekist. Við eigum ekki lengur möguleika í þýsku deildinni, en eftir þennan sigur á sunnudag eru allir sáttir við tímabilið.“ Hann sagði að íþróttahöllin í Magdeburg hefði verið troðfull á sunnudag, 7.500 manns, og uppselt fyrir mánuði. „Við tókum leikinn í okkar hendur strax í fyrri hálfleik og var munurinn orðinn fjögur mörk um miðjan hálfleikinn. Þegar sjö mínútur voru eftir var munurinn fimm mörk, en á lokamínútunum gekk allt upp og spænska liðið gaf eftir og játaði sig sigrað. Þó svo að munurinn hafi verið ellefu mörk gefur það ekki rétta mynd af gangi leiksins," sagði Ólafur sem var boð- ið í veislu til borgarstjórans í Mag- deburg í gær ásamt félögum sínum í liðinu. Hann sagði þennan titil mikil- vægan fyrir austurhluta Þýskalands því íþróttirnar í þeim landshluta hafi átt erfitt uppdráttar eftir að Berlínarmúrinn féll. Það eru knatt- spyrnuliðin Hertha Berlín og Hansa Rostock sem hafa verið helstu skrautfjaðrir íþróttanna í gamla Austur-Þýskalandi, en nú bætist handboltalið Magdeburgar við. Ólafur gerði tveggja ára samning við Magdeburg í fyrra og á því eitt ár eftir af samningi sínum við félag- ið. „Ég er mjög ánægður hjá félag- inu og get vel hugsað mér að fram- lengja samninginn á næsta ári,“ sagði Ólafur. Þess má geta að Al- freð Gíslason tekur við þjálfun liðs- ins af Peter Rost fyrir næsta tíma- bil. LANDSLIÐSMENNIRNIR Dagur Sigurðsson, sem á yfir höfði sér leikbann, og Geir Sveinsson og Ólafur Stefánsson, sem báðir hafa orðið Evrópumeistarar. B|g ;ði Evrópu- Islendinga ópumeistari félagsliða í u Magdeburg um helgina er liðið Ólafur er ijórði íslendingurinn tari í handknattleik. Hinir þrír Evrópumeistari bikarhafa með r árið 1990, en þá vann liðið Geir Sveinsson og Júlíus Jónasson icr.u uauu iucu sjjæuaiva iiumu Alzíra þegar það varð EHF- meistari 1994. Alzíra vann þá Linz frá Austurríki í úrslitum. Axel Axelsson og Ólafur H. Jónsson voru fyrstir íslendinga til að leika til úrslita í Evrópukeppni er þeir léku með þýska liðinu Dankersen gegn Granollers frá Spáni 1976, en töpuðu. Alfreð Gíslason lék tvívegis til úrslita í Evrópukeppninni, með Essen og Bidasoa, og tapaði í bæði skiptin. Valur er eina íslenska félagið sem náð hefur alla Ieið í úrslit Evrópukeppninnar. Það var árið 1980 gegn Grosswallstadt og tapaði stórt, 12:21. Aron og félagar í góðri stöðu HANDKNATTLEIKUR Kryddí tilveruna i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.