Morgunblaðið - 22.04.1999, Blaðsíða 1
90. TBL. 87. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fótknúið
sjónvarp
gegn offítu
New York. The Daily Telegraph.
VÍSINDAMENN, sem stunda
rannsóknir á offítu við sjúkra-
hús í New York, hafa hannað
sjónvarp sem fer ekki í gang
nema börn stígi æfingahjól
sem sér sjónvarpinu fyrir raf-
magni. Um leið og börnin
hætta að hjóla slokknar á sjón-
varpinu.
Rannsókn vísindamannanna
náði til of feitra barna á aldrin-
um átta til tólf ára og leiddi í
ljós að börn sem þurfa að hjóla
til að geta horft á eftirlætis
sjónvarpsþættina sína horfa
ekki aðeins miklu sjaldnar á
sjónvarp heldur léttast þau
einnig verulega.
David Ailison, sem stjórnaði
rannsókninni, sagði að 13%
bandarískra barna væru álitin
of feit og að þeim færi fjölg-
andi. Rannsóknin hefði leitt í
ljós að börnin, sem þurftu að
nota fótknúið sjónvarp, horfðu
að meðaltali í eina klukkustund
á viku á sjónvarpið, en hvert
barn í viðmiðunarhópnum í
rúmar 20 klukkustundir.
Allison hefur einnig lagt til
að fólki verði gert að greiða
fyrir að nota lyftur til að hvetja
það til að ganga frekar upp og
niður stigana.
Morgunblaðið/Sverrir
Gleðilegt sumar!
NATO nálgast
ákvörðun um
landhernað
Fimmtán létust í harmleiknum í Colorado
30 sprengjur
fínnast á
skólalóðinni
Sofía, Brussel, Tirana. Reuters.
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ
(NATO) virtist í gær hafa tekið
skref í þá átt að hefja landhernað í
Kosovo en talsmenn bandalagsins
sögðu að yfirmenn herja NATO
myndu endurnýja áætlanir um
innrás í Kosovo, sem gerðar voru í
fyrra, þegar þess gerðist þörf. A
sama tíma komu fyrstu Apache-
árásarþyrlurnar loksins til Alban-
íu en þyrlurnar, sem geta flogið
mjög nálægt jörðu, munu gefa
NATO tækifæri til að miða
nákvæmlega út hersveitir Serba,
sem starfa í litlum einingum í
Kosovo, og gera árásir á þær.
Joe Loekhart, talsmaður Hvíta
hússins, sagði að bandarísk stjórn-
völd myndu verða samþykk því að
yfn-menn NATO endurnýjuðu
áætlanir um landhernað, en því
færi fjarri að það þýddi að búið
væri að taka ákvörðun um innrás í
Kosovo. Javier Solana, fram-
kvæmdastjóri NATO, hafði fyrr
um daginn látið hafa eftir sér að
landhernaður væri útilokaður fyrr
en búið væri að veikja varnir Serba
enn frekar. Engu að síður sögðu
fréttaskýrendur að ummæli ráða-
manna í gær bentu til að líkurnar á
landhemaði hefðu heldur aukist
fremur en hitt.
Jean Chretien, forsætisráðherra
Kanada, sagði aukinheldur í gær-
kvöldi að þótt hann kysi helst að
loftárásir yrðu látnar duga þá
myndi hann styðja landhemað á
seinni stigum, yrði slíkt talið nauð-
synlegt. Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, hafði áður viðhaft
svipuð ummæli en dagblaðið The
Guardian hafði haldið því fram í
gærmorgun að Blair þrýsti nú á
um að gerðar yrðu áætlanir um
landhernað í Kosovo.
Höfuðstöðvar Sósíalistaflokks
Milosevics sprengdar
Ivan Kostov, forsætisráðherra
Búlgaríu, sagði í gær að svo gæti
farið að Búlgarar myndu strax á
mánudag leyfa NATO að fljúga um
lofthelgi Búlgaríu, en Solana og
Wesley Clark, yfirmaður herafla
NATO, höfðu fyrr í gær farið fram
á slíkt leyfi í því skyni að auðvelda
herjum NATO að ná fram mark-
miðum sínum í stríðinu gegn Júgó-
slavíu. Tékkar og Slóvakar lofuðu
NATO sambærilegri aðstoð í gær.
A sama tíma samþykktu Evrópu-
sambandsríkin áætlun sem miðast
að því að koma í veg fyrir að Jú-
góslavíu berist oh'a. Það voru
Frakkar sem lögðu áætlunina fram
og verða allir olíuflutningar til og
frá ríkjum ESB til Júgóslavíu
bannaðir skv. henni.
NATO beindi í árásum í fyrri-
AP
STARFSFÓLK í Andrew Mell-
on-byggingunni í Washington
undirbjó í gær hátíðarfund Atl-
antshafsbandalagsins (NATO)
sem hefst á morgun.
nótt sjónum sínum að höfuðstöðv-
um stjómvalda í Belgrad, höfuð-
borg Júgóslavíu, þegai- loftárásir
voni gerðar á höfuðstöðvar Sósí-
ahstaflokks Slobodans Milosevics
Júgóslavíuforseta í borginni. A
sama tíma héldu fjölmiðlar í Júgó-
slavíu því fram að flugskeyti
bandalagsins hefðu valdið dauða að
minnsta kosti tíu manns í flótta-
mannabúðum í Kosovo.
Hátíðarfundur NATO, í tilefni af
fimmtíu ára afmæh bandalagsins,
hefst í Washington í Bandaríkjun-
um á morgun og líklegt er að
stríðsrekstur NATO í Júgóslavíu
muni setja svip sinn á fundinn.
Jafnframt verða spurningar um
framtíðarhlutverk bandalagsins of-
arlega á dagskránni.
■ Sjá umfjöllun á bls. 33 og 49.
Littleton, London. Reuters, AP.
SPRENGJUSÉRFRÆÐINGAR
lögreglu í Bandaríkjunum fundu í
gær meira en þrjátíu sprengjur
sem komið hafði verið fyrir á skóla-
lóð menntaskóla í bænum Littleton
í Colorado þar sem tveir átján ára
piltar gengu berserksgang í fyrra-
dag og urðu a.m.k. þrettán manns
að bana, áður en þeir réðu sjálfum
sér bana. Talsmaður lögreglunnar
sagði að m.a. hefðu heimatilbúnar
sprengjur, sem ódæðismennirnir
tveir útbjuggu, fundist í tveimur
bifreiðum á skólalóðinni, inni í
skólabyggingunni sjálfri sem og á
heimili drengjanna.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði erfitt að skilja hvernig svona
atburður gæti átt sér stað en lagði
áherslu á að allur almenningur í
Bandaríkjunum fyndi til með íbú-
um Littleton og ekki síst ættingj-
um fórnarlambanna.
I fyrstu hafði verið tahð að
a.m.k. tuttugu og þrír, auk ódæðis-
mannanna tveggja, Dylans Kle-
bolds og Erics Harris, hefðu látist í
harmleiknum en í gær var staðfest
að fórnarlömbin væru fimmtán.
Fómarlömbin gætu hins vegar
orðið fleiri, allt að tuttugu og átta,
því margir vora enn á gjörgæslu í
gærkvöldi, að sögn lögreglu.
Skotárásin í fyrradag vakti mik-
inn óhug úti um allan heim og
mörg dagblöð utan Bandaríkjanna
sögðu að ekki væri hægt að koma í
veg fyrir slíkar blóðsúthelhngar í
bandarískum skólum nema með því
að setja strangari lög um byssu-
kaup.
Vekur minningar um
atburðina í Dunblane
„Þegar ég vaknaði í morgun fór
um mig hrollur við tilhugsunina
um að slíkur byssuharmleikur
hefði átt sér stað í einu af sið-
menntuðustu ríkjum heims,“ sagði
George Robertson, varnarmála-
ráðherra Bretlands. Hann hvatti
Bandaríkjamenn til að fara að
dæmi Breta sem settu nær algjört
bann við skammbyssum eftir að
fimmtán börn og kennari þeirra
vora myrt í skoska bænum Dun-
blane 13. mars 1996.
Jóhannes Páll páfi harmaði
einnig blóðsúthellingarnar í Little-
ton og lét í ljós þá von að Banda-
ríkjamenn brýndu fyrir börnum
sínum „þá siðferðislegu hugsjón og
þau gildi sem ein geta tryggt virð-
ingu fyrir friðhelgi mannslífsins".
■ Leitað að/30