Morgunblaðið - 19.05.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
110. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hörð átök á
N-Irlandi
Belfast. Reuters.
TIL átaka kom milli lögreglu og
kaþólskra ungmenna í bænum
Portadown á Norður-írlandi í gær-
kvöldi og særðust fjórir, þar af tveir
lögreglumenn. Hófust átökin þegar
ungmennin köstuðu steinum að mót-
mælendum, sem efnt höfðu tO skrúð-
göngu í gegnum bæinn, sem er um
fjörutíu kílómetra frá Belfast.
Seinna kom einnig til átaka milli
göngumanna og lögreglunnar.
Samskipti kaþólskra og mótmæl-
enda í Portadown einkennast af mik-
illi spennu og undanfarin ár hefur
hart verið deilt um Drumcree-göngu
sambandssinna í upphafí júlí í gegn-
um hverfi kaþólikka. Enn er jafn-
framt óleyst deila um afvopnun öfga-
hópa sem valdið hefur vaxandi
spennu á N-írlandi undanfamar vik-
ur og mánuði.
Skyld
Jefferson
eður ei?
Monticello. The Daily Telegraph.
AFKOME NDUR Thomas
Jeffersons, fyrrverandi forseta
Bandaríkjanna, neituðu nýverið
að viðurkenna að afkomendur
hjákonu hans og ambáttar, sem
var blökkukona, væru afkom-
endur forsetans sjálfs en DNA-
rannsóknir þóttu benda til þess
að svo væri.
Afkomendum ambáttarinnar
Sally Hemings var í fyrsta
skipti boðið í árlegt kokkteilboð
sem haldið er á vegum Mont-
icello-samtakanna, en þau eru
samtök fólks sem á ættir að
rekja til Jeffersons og konu
hans Mörthu. Lengra vildu tals-
menn samtakanna hins vegar
ekki ganga og sagði Thomas
Jefferson Eppes: „Fyrst ekki
var hægt að ná O.J. Simpson
með öllum þessum DNA-sönn-
unargögnum er útilokað að þeir
geti neglt T. J. með svo lítilvæg-
um sönnunargögnum “
Kosningasigri Ehuds Baraks og Verkamannaflokksins í Israel vel tekið
Kveðst ætla að vinna að
friði í Mið-Austurlöndum
Jerúsalem. Reuters.
Talsmenn Yassers Arafats, for-
seta heimastjómar Palestínu-
manna, sögðu Arafat i gær hafa
óskað Barak til hamingju með kosn-
ingasigurinn. Lýstu þeir báðir vilja
sínum til að bæta samskipti Israela
og Palestínumanna, að sögn tals-
manna Arafats. Þjóðarleiðtogar víðs
vegar um heim lýstu einnig þeirri
ósk sinni að kjör Baraks yrði til að
stuðla að friði í heimshlutanum.
Barak á nú fyrir höndum það erf-
iða verkefni að mynda ríkisstjóm í
Israel og þótt hann léti í gær ekkert
uppi um hvers konar stjómar-
mynstur hann kysi helst er ekld
talið útilokað að Verkamannaflokk-
urinn gangi til stjórnarsamstarfs
við Likud-bandalagið, sem galt af-
hroð í kosningunum, eftir að Net-
anyahu sagði af sér sem leiðtogi
Likuds.
Shas, flokkur heittrúaðra gyðinga
af austrænum uppmna, var ótví-
ræður sigurvegari kosninganna á
mánudag, en Barak hafði fyrir
kosningamar lýst því yfir að stjóm-
armyndunarviðræður við Aryeh
Deri, leiðtoga flokksins, kæmu ekki
til greina, en Deri var nýlega
dæmdur til fjögurra ára fangelsis-
vistar vegna spilhngar.
Deri kom hins vegar öllum í opna
skjöldu í gær þegar hann lýsti því
yfir að hann hygðist ekki taka sæti
sitt á þingi og láta aðra um hugsan-
legt stjórnarsamstarf. Opnaðist
þannig aftur fyrir þann möguleika
EHUD Barak, sem vann stórsigur á Benjamin Netanyahu í forsætisráð-
herrakjöri í ísrael á mánudag, átti í gær samtöl við leiðtoga Palestínu-
manna og Abdullah Jórdaníukonung og hét því að hann myndi gera sitt
ítrasta til að stuðla að friði í Mið-Austurlöndum.
að Verkamannaflokkurinn myndaði
stjórn sem nyti stuðnings Shas.
Úrslit kosninganna í ísrael verða
tilkynnt formlega á sunnudag eða
mánudag og hefur Barak þá fjöru-
tíu og fimm daga til að mynda rílds-
stjóm. Fram að þeim tíma er Net-
anyahu áfram forsætisráðheri-a.
Sharon skipaður leiðtogi
Likud til bráðabirgða
Slagurinn um leiðtogastól Likud-
bandalagsins hófst þegar eftir að
Netanyahu hafði tilkynnt afsögn
sína og greindi Meir Shetreet fjár-
málaráðherra frá því að hann hygð-
ist sækjast eftir embættinu. Ariel
Sharon, utanríkisráðherra í stjórn
Netanyahus, var hins vegar falið að
gegna leiðtogaembættinu til bráða-
birgða og ekki er talið ólíklegt að
hann bjóði sig fram í væntanlegu
leiðtogakjöri.
Likud tapaði þrettán þingsætum í
kosningunum á mánudag, hefur nú
nítján í stað þrjátíu og tveggja áður,
en Verkamannaflokkur Baraks er
stærsti þingflokkurinn að afloknum
kosningunum, hefur 27 þingsæti.
Shas er þriðji stærsti flokkurinn en
hann bætti við sig sjö þingsætum,
hefur nú sautján i stað tíu áður.
Fjöldi minni flokka er einnig á þing-
inu og segja fréttaskýrendur að það
muni ekki reynast Barak auðvelt
verk að mynda ríkisstjórn.
Barak við
Grátmúrinn
EHUD Barak, leiðtogi Verka-
mannaflokksins í ísrael, heimsótti
Grátmúrinn í Jerúsalem f gær en
Barak vann stórsigur á Benjamin
Netanyahu í forsætisráðherrakjör-
inu á mánudag.
Landhernaður í Kosovo
vefst enn fyrir NATO
■ Erfitt að/26
Brussel. Reuters.
Teikn á lofti í bandarísku efnahagslífí
Camdessus varar
við samdrætti
Tókýó, Washington. AFP, AP, Reuters.
EFNAHAGUR heimsins stendur nu
við „afdrifarík vatnaskil" og von er á
samdráttarkipp í Bandaríkjunum
hvað úr hverju. Þessa viðvörun gaf
Michel Camdessus, framkvæmda-
stjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
IMF, út á blaðamannafundi í Tókýó í
gær, en bankastjórn bandaríska
seðlabankans brást við aukinni verð-
bólgu vestra með því að gefa til
kynna að til greina komi að hækka
grunnvexti á næstu mánuðum.
Hagsveiflan í Bandaríkjunum gæti
tekið „dýfu niður á við á hverri
stundu,“ sagði Camdessus, „en ég
get ekki spáð því að efnahagur Evr-
ópu eða Japans taki við sér.“ I
skýrslu sem Efnahags- og samvinnu-
stofnunin, OECD, gaf út í gær, var
því jafnframt spáð, að á þessu ári
drægi enn lítillega úr hagvexti í
helztu iðnríkjum heims.
Verðbólga í Bandaríkjunum
mældist 0,7% í aprílmánuði, en til-
kynningin um þessa óvænt háu tölu
olli óróleika á verðbréfamörkuðum
vestra á fóstudag og skapaði spennu
í kringum fund bankastjórnar
bandaríska seðlabankans í gær.
Stjómin ákvað að láta grunnvexti
óhreyfða en „stefna að þvi að treysta
frekar peningamálastefnuna“.
Camdessus mæltist til þess að
lögð yrðu fram drög að áætlun um
hvemig mæta skyldi hættunni á
samdráttarkipp í Bandaríkjunum.
„Hinn óvænt mikli hagvöxtur í
Bandaríkjunum [undanfarin misseri]
hefur hjálpað til við að dempa óhrifin
af kreppunni í Asíu sem jaðraði við
að vaxa í heimskreppu á síðasta ári,“
sagði Camdessus. Nú væri komið að
því að spyrja þyrfti hversu lengi enn
tækist að viðhalda hagvexti vestra.
BRESTIR virtust í gær komnir í
samstöðu aðildarrfkja Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) hvað hugsan-
legan landhemað í Kosovo varðar.
Á sama tíma spáðu heimildarmenn í
höfuðstöðvum NATO í Brassel því
að Slobodan Milosevic, forseti Júgó-
slavíu, kynni senn að lýsa yfir
vopnahléi í Kosovo í þeirri von að
tryggja sér frið fyrir loftárásum
NATO um stundarsakir. Javier Sol-
ana, framkvæmdastjóri NATO, ítr-
ekaði hins vegar að bandalagið
„myndi ekki láta blekkjast af falleg-
um yfirlýsingum og áróðursbrögð-
um“. Sagði Solana að NATO myndi
því aðeins lýsa yfir vopnahléi að um
raunverulegan flutning Júgóslaviu-
hers frá Kosovo væri að ræða og ef
hægt væri að staðfesta slíka liðs-
flutninga.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, kom til Albaníu í gær og
hitti m.a. leiðtoga Frélsishers
Kosovo (UCK) að máli og hvöttu
þeir til þess að vesturveldin annað-
hvort sæju skæraliðum UCK fyrir
vopnum eða sendu sjálf landher inn
í Kosovo.
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, sagði hins vegar
„óhugsandi“ að NATO hæfi hernað
á landi í því augnamiði að reyna að
Reuters
DAYID Scheffer, farandsendi-
herra Bandaríkjanna i málum
tengdum stríðsglæpum, sakaði
Serba í gær um þjóðernis-
hreinsanir og sagði að a.m.k.
5.000 manns hefðu verið myrt í
fjöldaaftökum í Kosovo.
binda enda á stríðið í Júgóslavíu
sem nú hefur staðið í átta vikur.
Schröder hitti í gær Massimo
D’AIema, forsætisráðherra ftalíu, á
Suður-Ítalíu og ræddu þeir nauðsyn
þess að Sameinuðu þjóðimar sam-
þykktu ályktun þar sem Serbum
væri skipað að draga herlið sitt frá
Kosovo og sættast á að alþjóðlegar
friðargæslusveitir færa inn í
Kosovo.
Á meðan ítrekaði Bill Clinton
Bandaríkjaforseti þá skoðun sína
að ekki væri hægt að útiloka land-
hemað í Kosovo. Frakkar og
Kanadamenn tóku hins vegar illa í
hugmyndir breskra stjómvalda,
sem létu að því liggja í gær að land-
hemaður í Kosovo myndi reynast
nauðsynlegur fyrr en seinna.
Enginn árangur í Helsinki
NATO gerði í gær loftárásir á
borgir um gervalla Júgóslavíu, að
því er serbneskir fjölmiðlar greindu
frá. Tanjug-fréttastofan sagði jafn-
framt að árásir hefðu verið gerðar á
bæinn Valjevo í vesturhluta Serbíu
í gærdag og að ein kona hefði fallið
í árásunum og tólf særst.
Enginn árangur varð af fundi
sem Strobe Talbott, aðstoðaratan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, átti í
Helsinki með Viktor Tsjemomyrd-
ín, samningamanni Rússa í málefn-
um Balkanskaga, í gær en Rússar
hafa farið fram á að NATO hætti
loftárásum sínum til að hægt sé að
leita lausnar á Kosovo-deilunni.
■ Gæti grafið/27